Morgunblaðið - 08.09.1993, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1993
Norðmenn ganga til þingkosninga næstkomandi mánudag
> _ ______________________________________________
Ospennandi kosnmga-
barátta um atvinnumálin
EB-aðild ekki það hitamál sem búist var við
UMSÓKN Norðmanna um inngöngu í Evrópubandalagið (EB) hefur
ekki reynst það hitamál í norsku kosningunum sem sljórnmálaskýrend-
ur áttu von á. Þrátt fyrir að um 66% þjóðarinnar séu andvíg inngöngu,
hafa efnahagsmál vegið mun þyngra í kosningabaráttunni að þessu sinni,
svo og hvernig greiða eigi atkvæði um aðild að EB. „Kosningabaráttan
er fremur leiðinleg nú, lítið um að menn takist hressilega á um málin,“
segir Björn Áge Mossin, blaðamaður hjá Arbeiderbladet. Kosið verður
næstkomandi mánudag og benda skoðanakannanir til þess að Verka-
mannaflokkurinn fari með sigur af hólmi, en honum er spáð um 35% fylgi.
í stað deilunnar um EB eru það
efnahagsmál, atvinnuleysi og velferð-
arkerfið sem tekist er á um. Verka-
mannaflokkurinn nýtur góðs af batn-
andi efnahagsástandi og segir Trygve
Monsen hjá Aftenposten að það sé
höfuðástæða þess að að EB-umræðan
hqfur ekki verið jafn áberandi og
menn áttu von á. Atvinnuleysið er
líklega stærsta einstaka málið, en það
er nú 8,2%. Verkamannaflokkurinn
er sá flokkur sem helst hefur einbeitt
sér að því og bendir á aðgerðir sínar
í þeim málum. Ríkisstjómin, samband
atvinnurekenda og samtök verkalýðs-
félaga hafa gert nokkurs konar þjóð-
arsátt um aðgerðir gegn atvinnu-
leysi. Þær miða að því að ná atvinnu-
leysi niður í 3,5% fyrir aldamót með
því að takmarka launahækkanir og
standa að öðrum aðgerðum í atvinnu-
málum. Hægriflokkurinn og Framf-
araflokkurinn hafa uppi efasemdir um
þetta samkomulag. Hefur Hægri-
flokkurinn lagt til að reglur um ráðn-
ingu og uppsagnir starfsfólks verði
frjálslegri en flokkurinn heldur því
fram að reglumar, sem þykja bind-
andi fyrir atvinnurekendur, séu ein
ástæða atvinnuleysis, þar sem þeir
haldi að sér höndum við ráðningar.
Þá vill Hægriflokkurinn að láglauna-
mörk verði felld úr gildi.
Stjórnarandstöðuflokkarnir áfell-
ast Verkamannaflokkinn fyrir að
hafa ekki haldið niðri atvinnuleysi
en flokkurinn segist á móti vera eini
flokkurinn sem hafi komið með full-
mótaðar aðgerðir í atvinnumálunum.
Að ógleymdum fiskinum
Fiskveiðar hafa einnig spilað stór-
an þátt í baráttunni og hafa margir
stjórnmálamenn lagt leið sína til
Norður-Noregs enda er afstaða fólks
þar ákafiega mikilvæg. Gro Harlem
Brundtland var þar um helgina og
fullvissaði fólk um að ekki einn ein-
asti fískur yrði seldur, með vísan til
veiðiheimilda EB-ríkja. Þar sem sjáv-
arútvegsráðherra Verkamanna-
flokksins, Jan Henry T. Olsen er
EB-andstæðingur og ættaður frá
Norður-Noregi hefur það bætt stöðu
flokksins.
Deilur íslendinga og Norðmanna
um veiðar í Smugunni hafa haft lítil
áhrif á kosningabaráttuna að sögn
stjórnmálaskýrenda. Tryggve Mons-
en segir Verkamannaflokkinn þó síð-
ur en svo hafa beðið neinn skaða af
deilunum.
Milliganga Johans Jorgens Holst
í Mið-Austurlöndum er mikill sigur
fyrir hann og ríkisstjórnina en hefur
ekki afgerandi áhrif.
Af minni kosningamálum má
nefna baráttu Hægriflokksins fyrir
hertri refsilöggjöf og auknum fjár-
veitingum til löggæslu.
EB-málin hafa lítið að segja
Þeir tveir flokkar sem eru harðast-
ir andstæðingar EB-aðildar hafa lagt
mesta áherslu á að gera hana að
kosningamáli, Miðflokkurinn og Sós-
íalíski vinstriflokkurinn. Verka-
mannaflokkurinn hefur ekki viljað
gera EB að kosningamáli. En í stað
þess að menn skiptist með og á
móti EB-aðild hefur deilan snúist upp
í hvort flokkamir eigi að viðurkenna
þjóðaratkvæðagreiðslu um EB-aðild.
„Þeir flokkar sem eru á móti
EB-aðild vilja helst ekki viðurkenna
þjóðaratkvæðagreiðsluna,“ segir
Trygve Monsen. Samkvæmt
stjómarskránni á Stórþingið að taka
endanlega ákvörðun um málin og
verða 3/4 þingmanna að samþykkja
aðildina. Þetta segir Anne Enger
Lahnstein formaður Miðflokksins
ástæðu þess að fólki eigi að kjósa
andstæðinga EB. En samkvæmt
skoðanakönnunum hefur þessi
röksemdafærsla hennar haft
takmörkuð áhrif. Hún hefur þó unnið
mikinn sigur, því hún hefur nærri
tvöfaldað fylgi flokks síns, fyrst og
fremst vegna vasklegrar framgöngu
gegn EB-aðild.
Sósíalíski vinstriflokkurinn hefur
lagt til að Noregi verði skipt upp í
19 fylki og að til þess að EB-aðild
verði samþykkt, þurfi meirihluta í
10 af 19 fylkjum.
Kosningar og hvað svo?
Nýjustu skoðanakannanir spá
Verkamannaflokknum 33-35% at-
Amma Gro
Gro Harlem Brundtland minnir
kjósendur á að hún er amma í
auglýsingum Verkamanna-
flokksins. Allar líkur benda til
þess að hún haldi embætti for-
sætisráðherra.
kvæða, Hægriflokknum 20-22%,
Miðflokknum 16-17%, Sósíalíska
Vinstriflokknum 10-11% og Kristi-
lega Þjóðarflokknum 6-7%. En hvað
svo?
Svo lengi sem EB-málið er óleyst,
er illmögulegt fyrir borgaraflokkana
að fínna sameiginlega stefnu og það
er sömuleiðis illmögulegt fyrir vinst-
riflokkana þar sem Verkamanna-
flokkurinn og Sósílalíski Vinstri-
flokkurinn eru á öndverðum meið.
Framfaraflokkurinn fór úr síðustu
ríkisstjórn borgaraflokkanna vegna
EB-málsins og það er fátt sem bend-
ir til þess að þeir eigi samvinnu að
nýju.
Trygve Monsen segir líklegast að
Verkamannaflokkurinn verði áfram
við völd með stuðningi frá Sósílíska
vinstriflokknum og Miðflokknum,
þrátt fyrir að flokkana greini á um
EB-aðild.
iV *
<fV?"
J'.G'
N*
g9V
G°>
4?
\*
Ov'
vAv
J <>
Samanburöur d lengd
nokkurra fjölskyldubtla
*Verö samkvæmt verðlistum ágústmánaðar.
Þú hefur kannski ekki gert þér grein
fyrir því að Honda Civic Sedan er
fullvaxinn fjölskyldubíll.
Með sama'nburði við nokkra aðra
fjölskyldubíla kemur þetta skýrt í ljós.
Auk þess að vera rúmgóður og þægi-
legur er Civic Sedan vel útbúinn og
með 1500 i eða 1600 i fjölventla vél.
(H
Vatnagörðum - Sími 689900
-góð fjárfesting
Tyrkir grafa
upp kafbát
TYRKNESKIR sérfræðingar
furða sig nú yfir flaki þýsks
kafbáts sem fannst á strönd
Svartahafs. Flakið var á þurru
landi en kom í ljós þegar verið
var að grafa eftir surtarbrandi.
Ekki er vitað hvernig kafbátn-
um var sökkt. Þá er ekki vitað
hvort hann hefur legið í Svarta-
hafinu frá því í fyrri eða síðari
heimsstyrjöld.
Keðjubréf til
háttsettra
NÝJASTA æðið meðal kín-
verskra ráðamanna eru keðju-
bréf, sem lofa viðtakanda miklu
ríkidæmi sendi hann bréfin
áfram. Láti hann það hjá líða,
bíði hans hins vegar skelfíleg
örlög. Dagblaðið The China
Youth Daily hefur lýst áhyggj-
um vegna þessa og segir fulla
ástæðu til að hafa áhyggjur af
því að þeir sem séu við stjórnvöl-
inn láti glepjast af öðru eins.
Kína og Ind-
land semja
KÍNVERJAR og Indveijar hafa
nú samið um Iandamæri ríkj-
anna eftir 30 ára deilur. Segir
í sameiginlegri yfirlýsingu þjóð-
anna að samkomulagið marki
tímamót, þrátt fyrir að ekki
hafi enn tekist samkomulag um
hversu marga hermenn þjóðirn-
ar megi hafa við landamærin.
Viðskipta-
bann vegna
nashyrnings-
horna
BANDARÍKJAMENN hafa
ásakað Kínverja og Tævana
fyrir ólöglega verslun með nas-
hymingshorn og suma líkams-
hluta tígrisdýra en báðar dýra-
tegundirnar eru í útrýmingar-
hættu. íhugar Bruce Babbitt,
innanríkisráðherra Bandaríkj-
anna nú að leggja til við Bill
Clinton að þeir verði beittir við-
skiptaþvingunum.
Færri flótta-
menn til
Þýskalands
HERTAR reglur þýskra stjórn-
valda hafa dregið úr flótta-
mannastrauminum inn í landið
um helming eða í tæp 15 þús-
und á mánuði. Þrátt fyrir þetta
óska enn of margir eftir hæli
segir Manfred Karner, innan-
ríkisráðherra.
Svikarar eru
svikarar
VADIM Kirpitstjenkó, yfírmað-
ur njósnamála í Rússlandi aftek-
ur með öllu þær fullyrðingar að
sovéskir njósnarar sem unnu
fyrir Vesturlönd og flúðu þang-
að hafí haft heill þjóðar sinnar
í huga. Segir hann þá ekki hafa
verið neitt annað en svikara sem
létu glepjast af peningum. Hins
vegar hafi vestrænir njósnarar
sem flúðu til Sovétríkjanna
fæstir haft peninga í huga held-
ur flúið af hugsjónaástæðum.
Frekari sam-
eining boðuð
IÐNAÐAR- og viðskiptaráð-
herra Frakka, Gerard Longuet,
spáir enn frekari sameiningu
fyrirtækja í orku- og sam-
gönguiðnaðinum. Segir hann
þetta nauðsynlegt til að styrkja
franskan iðnað í kjölfar samein-
ingar Renault og Volvo.