Morgunblaðið - 08.09.1993, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 08.09.1993, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEFfEMBER 1993 " '30 Lára Pálsdóttir, Ejjanesi — Minning Fædd 31. ágúst 1933 Dáin 31. ágúst 1993 Lára Pálsdóttir húsfreyja í Eyja- nesi lést 31. ágúst á Sjúkrahúsinu á Hvammstanga eftir langvarandi og erfið veikindi. Kvaddi hún þenn- an heim að morgni sextugsafmælis síns, sem um leið var brúðkaups- dagur hennar og manns hennar, Jóns Jónssonar bónda í Eyjanesi. Þau giftu sig hjá sýslumanninum á —.Blönduósi á 25 ára afmælisdaginn hennar, svo að nú var 35 ára brúð- kaupsafmæli þeirra. Þau voru ár mikilla starfa við að byggja og rækta jörðina og gleði yfír mann- vænlegum börnum. Foreldrar Láru, Vinbjörg Ásta Jóhannsdóttir og Páll Theodórsson, bjuggu lengst af á Sveðjustöðum á Hrútaíjarðarhálsi og þar eru böm þeirra fædd. Lára var 4. í röð fímm systkina, en elsti bróðirinn Friðrik Theodór tók ungur að árum við búi með móður sinni, er Páll lést 1939. Hin systkinin eru Amdís húsfreyja á Barkarstöðum í Miðfírði, Jóhanna í Keflavík og Finnbogi í Reykjavík. Vinátta okkar Láru Páls, eins og við heima í Ási kölluðum hana, hófst fyrir rúmum 40 árum, er hún starfaði á bernskuheimili mínu í Reykjavík einn vetur, minnileg mjög fyrir glaðværð sína og mynd- arskap. Bundumst við Lára tryggð- arböndum, þótt hún væri fullvaxta en ég 12 ára bam, elst fímm syst- kina. Við höfðum samliggjandi her- bergi og brölluðum margt saman. Hún kenndi mér ýmsa gamla leiki og gestaþrautir og ekki er laust við að hún eigi þó nokkur spor í skóla- •'handavinnunni minni þennan skemmtilega vetur. Láru þótti afar vænt um næstyngstu systur mína, sem var fjögurra ára, er þetta var, og talaði oft um hana hin síðari ár. Sumarið á eftir fórum við öll fjöl- skyldan í heimsókn til Láru í Sveðjustaði og var það mikill við- burður fyrir mig. Fengum við syst- urnar og mamma að gista hjá Láru, móður hennar og systkinum , en feðgarnir fóru í Reykjaskóla. Þótti mér hátíðlegt að lifa þennan gamla tíma, sem mér fannst vera á bænum inni á hálsinum, og njóta gestrisni mæðgnanna. Nú er gamli bærinn horfinn, en ég minnist hans og kyrrðarinnar, er við sátum á Varp- anum eins og systkinin kölluðu torf- vegginn fyrir dyrum úti. Þannig er sagan um forna vin- áttu okkar Láru Páls og hún var eina vinkonan í nýju umhverfí, er við hjónin fluttum í Prestbakka fyr- ir fjórum árum. Þau Jón voru líka með er nýi presturinn var boðinn velkominn við fyrstu messuna á Stað. Lára dvaldist nokkur ár í Reykja- vík og eignaðist tvö börn með unn- usta sínum þar, Guðlaugi Eiríks- syni, þau Þröst Unnar og Vinbjörgu Ástu, en leiðir þeirra skildu. Þá var Þröstur í frumbernsku, en Ásta fæddist nyrðra. Giftist Lára Jóni frá Tannstaðabakka eins og áður getur og voru elstu börnin alla tíð hans börn líka. Jón og Lára byijuðu búskap á gamla bænum á Tann- staðabakka, en hófust fljótlega handa við uppbyggingu nýbýlis í landi jarðarinnar, sem Jón nefndi því ágæta nafni Eyjanes. Gamli bærinn brann sumarið 1961 og varð nokkru bjargað fyrir ötula framgöngu Láru, Einars mágs hennar og fleiri góðra granna, en Jón var fjarstaddur. Um skeið bjuggu þau í nýja húsinu á Tann- staðabákka ásamt Einari og fjöl- skyldu hans, en brátt kom að því að íbúðarhús var risið í Eyjanesi. Dugnaði Jóns og Láru er viðbrugð- ið og var byggingartími hússins aðeins sjö mánuðir og fluttust þau inn í það 12. mars 1962. Ræktun túnsins var gífurlegt verk og hlýtur hver, sem ekur um veginn ofan við Eyjanes, að dást að túninu slétta og fagra, sem þeim tókst að rækta upp af flagmó og mel, alls 33 ha. Oft hefur verið sofíð lítið og aldrei gefíst upp. Fyrsta barn Láru og Jóns, Jó- hanna Svanborg, dó vöggudauða * t Ástkær eiginmaður minn, JÖRUNDURPÁLSSON arkitekt, lést að morgni 6. seRtember sl. Guörún Stefánsdóttir. t Hjartkær bróðir okkar, JÓN GUÐJÓNSSON frá Skúmsstööum, Eyrarbakka, lést á heimili sínu Grænumörk 1, Selfossi, 3. september. Systur hins látna. t Sambýlismaður minn og fósturfaðir, ÓLI LÚÐVÍK LAXDAL, klæðskerameistari, lést í Borgarspítalanum þann 7. september sl. Gunnhildur Eiriksdóttir, Skúli Hersteinn Oddgeirsson. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTA GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR, Stigahlið 8, Reykjavík, lést að morgni 7. september. Fyrir hönd aðstandenda, Aðalheiður Sveinsdóttir, Ingveldur Sveinsdóttir. tæplega ársgömul og ber systir hennar tveimur árum yngri sama nafn. Hin börnin eru Jón Bjami, Albert, Guðrún og Þorgeir. Eiga systurnar báðar heimili í Vest- mannaeyjum, Jón Bjarni rekur fýr- irtæki í Reykjavík, en yngstu bræð- umir búa í Eyjanesi. Bamabörnin eru orðin tíu, en hið yngsta þeirra er sonur Guðrúnar, sem fæddist daginn fyrir andlát ömmu sinnar, og gladdi sú fregn hana mjög á hinsta £ævikvöldi. Veikmdastríð Láru Pálsdóttur stóð lengi og sýnir varnarleysi hins sjúka, er sjúkdómsgreining er ekki nægilega skýr. Það munu vera 17 ár, síðan fyrstu einkenni heilaæxlis komu í ljós^ en þrautir hafði hún miklu fýrr. Ásta dóttir hennar, seg- ir að höfuðverkur hafí verið fylgi- fískur hennar, en samt hafi hún verið fjörug og glöð og haft gaman af að hitta kunningjana. Og sannir hátíðisdagar voru, þegar fjölskyld- an fór í stuttar dagsferðir saman. Starfsdagurinn var langur og ann- imar ótrúlegar, og hún bætti jafn- vel við sig vinnu utan heimilis. Eftir hina stóru skurðaðgerð, þegar æxlið var loks numið burt, vom kraftamir þrotnir. Lára dvald- ist hin síðustu ár lengst af á Sjúkra- húsinu á Hvammstanga, en þau Jón fluttu heimili sitt að Nestúni 4, þar sem eru íbúðir eldra fólks í vistlegu umhverfí, þótt lítt gæti Lára notið þess. Margsinnis þufti hún á sjúkra- hús í Reykjavík og oft var hún afar þreytt. En það skein í góða, glaða skapið, þegar farið var að spjalla og glöddu hana gamlar minningar. Arndís systir hennar sat oft hjá henni og síðast minntust þær systur þess, að mamma þeirra hafði haft að orðatiltæki að ljúka þessu eða hinu af fyrir afmælið hennar Láru, en þá voru töðugjöld á Sveðjustöð- um. Nú urðu töðugjöldin að inn- göngu í dýrð himinsins. Við vitum, að nú líður Lám okkar vel. Við söknum hennar og biðjum Guð að blessa hana, börnin hennar og manninn hennar, sem studdi hana svo vel í langæjum veikindunum. Guðrún L. Ásgeirsdóttir, Prestbakka. Lára Guðlaug Pálsdóttir andaðist í sjúkrahúsinu á Hvammstanga 31. ágúst sl. á sextugsafmæli sínu. Andlát Lám kom engum á óvart, hún átti að baki margra ára bar- áttu við erfíðan sjúkdóm og fyrir löngu var ljóst hver mundi hafa betur í því stríði. Lára var fædd og uppalin á Sveðjustöðum í Miðfírði, dóttir hjónanna Páls Theodórssonar og Vinbjargar Ástu Albertsdóttur. Hún eignaðist ung tvö börn; Þröst Unnar Guðlaugsson, fæddan 1955 og Vinbjörgu Ástu Guðlaugsdóttur, fædda 1956, en bjó ekki með föður þeirra. Árið 1958 giftist hún eftirlifandi manni sínum; Jóni Jónssyni frá Tannstaðabakka. Þau hófu búskap sinn á föðurleifð Jóns en byggðu upp af miklum myndarskap nýbýlið Eyjanes og fluttust þangað í mars 1961. Lára og Jón eignuðust dótt- ur; Jóhönnu Svanborgu árið 1959, en misstu hana tæplega ársgamla og var það þeim hjónum báðum mikið áfall. Þau eignuðust aftur dóttur; Jóhönnu Svanborgu 1961 og síðan komu hin bömin koll af kolli; Jón Bjarni 1962, Albert 1964, Guðrún 1967 og loks Þorgeir 1973. Bömin eru nú öll uppkomin og barnabörnin að fylla tuginn. í mörg horn hefur verið að líta með allan barnahópinn auk starf- anna að búskapnum, ekki síst með- an þau hjón vom enn að byggja upp bæði jörð og húsakost. Lára heyrðist þó aldrei kvarta, var aldrei t GUÐMUNDUR GÍSLASON, Efstasundi 16, lést á öldrunardeild Hvítabandsins 7. september. Börn hins látna. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ARENT CLAESSEN, Flókagötu 58, lést 7. september. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni, fimmtudaginn 16. septem- ber kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarstofnanir. Siguriaug Claessen, Hildur Claessen, Skapti Steinbjörnsson, Hjördís Claessen, Jón Eyjólfur Jónsson, og barnabörn. t Ástkær unnusti minn og faðir, sonur, bróðir og dóttursonur okkar, VILHJÁLMUR GEIR AÐALSTEINSSON, lést þann 30. ágúst. Jarðarförin fór fram í kyrrþey. Þökkum auðsýnda samúð. Diljá Erna Eyjólfsdóttir, Aron Örn Viihjálmsson, Hólmbjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir, Aðalsteinn Steinþórsson, Marfa Dögg Aðalsteinsdóttir, Aðaibjörg Hólm Aðalsteinsdóttir, Lára Jónína Magnúsdóttir, Vilhjálmur Geir Þórhallsson. þreytt sjálf en gætti þess vel að allir aðrir fengju tilhlýðilega hvíld frá störfum. Þetta breyttist ekki þó hún yrði alvarlega veik fyrir tæpum tuttugu árum síðan, þótt hún fengi mörg flogaveikisköst á dag hélt hún ótrauð áfram að reka heimilið með sama myndarbragnum og alltaf hafði verið. Það var ótrú- leg seigla og dugnaður í þessum litla grannvaxna líkama og segja mætti mér að Lára hafi oftar þrauk- að meira af vilja en mætti. Þó nóg hafi verið að hafa fyrir stafni hafði Lára bæði tíma og krafta aflögu til að hlúa að aðkomu- börnum og unglingum sem dvöldust á heimilinu að sumri til. Þannig naut undirrituð umönnunar hennar, hvatningar og alúðar sumarlangt, þegar erfíðleikar voru heima fyrir og meira að segja tókst henni næst- um að telja manni trú um að maður hefði meira og minna bjargað öllu heimilishaldinu og búskapnum. Ekki amalegt veganesti fyrir hálf- vaxinn stelpukrakka. Mér finnst að það hafi verið sól í Hrútafirðinum allt þetta sumar. Þarna var lagður grunnur að einlægri vináttu og rík- um tengslum fram á síðustu ár. Um það bil tíu árum seinna fór Fjalar minn til hennar fölur, grann- ur, óöruggur og ósköp lítill í sér. Ég sótti hann seinna um sumarið útitekinn, hraustlegan og pattara- legan og gott ef hann stóð ekki i þeirri meiningu að hann hefði verið heimilinu mikil stoð og stytta í þess- ar 5 eða 6 vikur, 8 ára gamall. Þannig var Lára, hún átti alltaf hlý orð og hrós um aðra og þeirra verk, en eyddu talinu ef það barst að hennar eigin verkefnum. Líf Láru var svo sannarlega ekki dans á rósum. Ofan á barnsmissi, að missa allt sitt í eldsvoða og eig- in veikindi var eiginmaður hennar heilsuveill til margra ára. Hún kvartaði þó ekki upphátt og ekki lái ég henni þótt hún reyndi með öðrum hætti að deyfa vonbrigðin yfir erfiðleikunum og draumunum sem ekki rættust. Hún kastaði ekki steinum heldur lagði sig fram um að sjá jákvæða þætti hjá öðrum, skilja afstöðu þeirra og líðan frekar en dæma gerðir þeirra. Sama hvernig á stóð hjá henni reyndi hún ávallt að gleðja aðra og hlúa að þeim, þótt hún sjálf ætti frekar rétt á aðhlynningu samkvæmt öll- um venjulegum mælikvörðum. Lára lét sig alla tíð mestu varða líðan og afkomu bamanna sinna. Hún gladdist yfír velgengni þeirra og var áhyggjufull þegar í móti blés. Þegar ég hitti hana fyrir tæp- um tveim árum er hún hafði nýver- ið gengist undir stóra aðgerð og fengið sjúkdómsgreiningu sem var í raun dauðadómur ræddi hún það af æðruleysi. Hún sagðist vera til- búin til að kveðja þennan heim, börnunum vegnaði öllum vel, þau væru öll fleyg og fær nema helst sá yngsti, en þau eldri mundu sjá um hann ekki síður en hún. Taki eitthvað við þegar við kveðj- um þennan heim og skipti þar máli athafnir okkar hérna megin þá er víst að Lára Pálsdóttir á góða heim- von. Jóni, börnunum og barnabörnun- um votta ég mína innilegustu sam- úð. Hjördís Hjartardóttir. Erfidrykkjiir Glæsileg kíiífi- hlaðborð tíillegir salir og mjög góð þjónusta. Upplýsingar ísíma22322 FLUGLEIDIR 1ÍTEL Limilllt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.