Morgunblaðið - 08.09.1993, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1993
10/20
©198« Uniwrul Proma Syndlcalo
/t
Ldeíniririn- sacjbi merctö fctrcc i
ííCftingu og stixpj>cc a.-f. "
Ast er...
10-29
að læra að skiptaum
bleiu
TM Reg. U.S Pat Off.—all rights reserved
® 1992 Los Angeles Times Syndicate
Reykingasæti eða ekki reyk-
ingasæti?
BRÉF TEL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329
Af umræðuþætti
Frá Gunnlaugi Jónssyni:
FYRIR stuttu stjórnaði ég umræðu-
þætti í Ríkissjónvarpinu um h' ort
rétt sé að auka frelsi til rneðíerðar
áfengis. Þar var hreyft við ýmsum
spurningum eins og hvort leyfa ætti
bruggun og hvort áfengisvandamál-
ið sé vandamál áfengisbannanna.
Af fjórum þátttakendum voru tveir
líklegir til að svara þessum spurning-
um játandi.
Þetta virðist hafa farið í taugarn-
ar á sumum, m.a. föstum pistlahöf-
undi hjá Ríkisútvarpinu. Það er eins
og það megi ekki einu sinni tala um
þetta. Ég held að ástæðan sé sú að
þessar spurningar snerta einhveijar
kreddur sem fólk elur með sér, þ.m.t.
pistlahöfundar. Menn verða argir
þegar þeir sem hafa þá skoðun að
ríkið eigi ekki að hafa einkarétt á
sölu og framleiðslu áfengis fá að tjá
sig á opinberum vettvangi!
Ekki er hægt að halda því fram
að sjónarmið hinna sem ekki viija
auka frelsi svo mjög í áfengismálum
hafí verið sniðgengin því að hinir
tveir þátttakendurnir, Ingibergur
Jóhannsson formaður íslenskra ung-
templara og Jón K. Guðbergsson
fulltrúi hjá Áfengisvamarráði stóðu
sig með stakri prýði
Hafi menn eitthvað við það að
athuga sem þeir Kjartan Magnússon
formaður Heimdallar og Rúnar
Freyr Gíslason sögðu, bendi ég þeim
hinum sömu á að svara á málefna-
legan hátt og sleppa því að kalla
þá pabbadrengi og lærisveina Hann-
esar Hólmsteins Gissurarsonar.
Reyndar þykir mér furðulegt að
ungir menn sem boða frelsishugsjón-
ir skuli vera kenndir við Hannes
Hólmstein líkt og hann hafi einhvern
einkarétt á slíkum hugsjónum. Ég
veit ekki betur en að tii sé fólk um
allan heim sem trúir á frelsi og hef-
ur aldrei heyrt minnst á Hannes
Hólmstein!
Sumir taka því illa að spurt hafi
verið í þættinum hvort til dæmis
ætti að leyfa mönnum að brugga
eða hvort áfengisvandamálið sé
vandamál áfengisbannanna og tala
um hlutdrægni í því sambandi. Það
þykir mér skrýtið því þessum spurn-
ingum verður ekki svarað nema ein-
hver beri þær upp, hvorki játandi
né neitandi.
Enn hafa ásakanir komið fram
um að stjórn þáttarins hafi verið
ábótavant. Ekki neita ég því að
eflaust hefði ýmislegt mátt betur
fara en varla er hægt að búast við
öðru þar sem ég var að stýra um-
ræðuþætti í fyrsta skipti. Eg und-
irbjó mig hins vegar vel bæði við
gerð viðtala, sem skotið var inn í
þáttinn og einnig fyrir umræðurnar
í sjónvarpssal. Ræddi ég m.a. við
fjölda fólks, sem starfar á sviði
áfengismála. Fullyrðingar um
stjórnleysi finnst mér byggðar á
misskilningi um hlutverk stjórnand-
ans. Verkefni stjómanda svona þátt-
ar er að finna fulltrúa hinna marg-
víslegu skoðana, bæði í viðtöl og
umræðurnar sjálfar. Hann tekur
viðtölin og klippir saman. Hlutverk
hans í sjónvarpssal er að sjá til þess
að umræðurnar snúist um það sem
Frá Guðrúnu Bergmann, f.h.
stjórnar Snæfellsáss hf.:
SÖKUM misskilnings, sem fram hef-
ur komið í fréttaflutningi af geimver-
um og boðaðri komu þeirra til ís-
lands, vill stjórn Snæfellsáss hf. taka
eftirfarandi fram:
Snæfellsás hf. var ekki stofnað
sem áhugafélag um geimverur. Snæ-
fellsás hf. var stofnað fyrir tveimur
árum og er aðaltilgangur félagsins
kaup og rekstur á fasteigninni
Brekkubæ á Hellnum á Snæfells-
nesi, en þar hyggst félagið reka and-
lega miðstöð og standa fyrir fræðslu
og námskeiðum. Einungis er um
sumarrekstur félagsins að ræða að
Brekkubæ og því hefur Snæfellsás
hf. gengist fyrir ýmsum uppákomum
í Reykjavík, þar á meðal ráðstefnu
um geimverur í Háskólabíói laugar-
daginn 28. ágúst sl. Sú ráðstefna er
ekki í tengslum við aðra ráðstefnu
um sama mál sem fyrirhugað er að
um á að tala. Ef svo fer að þátttak-
endur halda sig við efnið og þáttur-
inn gengur vel fyrir sig er besta
stjórnunin fólgin í því að skipta sér
sem minnst af og trufla ekki umræð-
umar. Það held ég að hér hafi verið
tilfellið. Mér sýnist því að þessi
gagnrýni á þáttinn um áfengismálin
sé aðallega sprottin af andúð á efni
umræðnanna og ofurtrú á forsjá rík-
isins í áfengismálum.
Ég hvorki vil né get ætlast til að
öllum þeim sem á þáttinn horfðu lík-
aði efni hans. Það fer hins vegar
ekki hjá því að mér finnst sumir sem
gagnrýnt hafa þáttinn reyni að nota
hann til að koma höggi á fram-
kvæmdastjóra Sjónvarpsins, Hrafn
Gunnlaugsson, í því pólitíska mold-
viðri, sem þeir hinir sömu hafa að
undanförnu viljað þyrla upp í kring-
um persónu hans. A þetta bæði við
um ályktun einhverra starfsmanna
við Sjónvarpið og skrif í Tímanum
og Þjóðviljanum, sem nú kemur út
undir dulnefninu Vikublaðið. Þar rís
lágkúran hæst.
GUNNLAUGUR JÓNSSON,
Stigahlíð 63, Reykjavík.
halda í nóvember nk.
Skipuleggjendur og framkvæmda-
aðilar þeirrar ráðstefnu eru Englend-
ingamir Matthew Dillon, sem rekur
Atlantic Travel, og Anthony Dodd,
sem er framkvæmdastjóri Investiga-
tions of Quest International, sem er
stærsti rannsóknarhópur á fljúgandi
furðuhlutum í Evrópu. Matthew
Dodd telur sig hafa verið í sambandi
við geimverur síðastliðin fimmtán ár
og hafa fengið skilaboð um að þeir
birtist eins og hann orðar það „í
fyrsta skipti opinberlega" við Snæ-
fellsjökul 5. nóvember 1993. Af þeim
ástæðum boða þeir félagar til alþjóð-
legrar ráðstefnu um geimverur á
íslandi 4.-6. nóvember. Einu tengsl
Snæfellsáss hf. við þá ráðstefnu pr
sú aðstoð sem við veitum á
Brekkubæ, þann dag sem ráðstefnu-
gestir ferðast að Snæfellsjökli.
GUÐRÚN BERGMANN,
f.h. stjórnar Snæfellsáss hf.
Yfirlýsing vegna
frétta af geimverum
Víkveiji skrifar
A
Ifrétt hér í Morgunblaðinu í gær
var greint frá því að æviminn-
ingar KGB-hershöfðingjans Viktors
Vladimirovs, sem nýlegn komu út
í Finnlandi, hefðu vakið upp margar
spurningar um siðferði fínnskra
stjórnmálamanna og kaupsýslu-
manna á undanförnum áratugum.
Samkvæmt því sem hershöfðinginn
greinir frá lék hann tveimur skjöld-
um í samskiptum sínum við áhrifa-
menn finnskra stjórnmála, er hann
var sendifulltrúi í sovéska sendiráð-
inu í Helsinki og jafnframt æðsti
yfirmaður sovésku leyniþjónustunn-
ar KGB í Finnlandi 0g beitti m.a.
áhrifum sínum er stjórnarmyndun-
arviðræður stóðu yfir í Finnlandi.
Það fer ekki hjá því að spurningar
vakni upp um hversu víðtæk áhrif
KGB hafi haft á stjórnmála- og
kaupsýslulíf víða um lönd, þegar
KGB var og hét, og þá ekki síst á
Norðurlöndum. Þar getur ísland
ekki verið undanskilið, og Víkveiji
er ekki í nokkrum vafa um að
ýmislegt er enn óupplýst um af-
skipti KGB af íslensku stjórnmála-
og viðskiptalífi á undanförnum ára-
tugum, hvort sem það kemur svo í
hlut fyrrverandi sovéskra sendifull-
trúa á íslandi og útsendara KGB
að upplýsa um þau afskipti, eða
sagnfræðinga og rannsóknarblaða-
manna.
xxx
• •
Onnur frétt í Morgunblaðinu í
gær greinir frá því að banda-
rísku körfuboltalistamennirnir
Harlem Globetrotters séu væntan-
legri hingað til lands eftir rúman
mánuð. Þeir munu leika tvo leiki
við Washington Generals, annan í
Reykjavík og hinn á Akureyri. Harl-
em Globetrotters hefur áður komið
hingað til lands og haldið einskonar
sýningar á körfuboltasnilld sinni,
en þekktastir eru þeir fyrir undra-
verða leiktækni og skemmtilegar
boltabrellur ýmiskonar. Unga fólkið
streymdi á sýningar þeirra er þeir
höfðu hér viðdvöl í fyrsta skipti og
eftir þann mikla áhuga sem vaknað
hefur hér á landi á bandarísku úr-
valsdeildinni í körfubolta (NBA),
sérstaklega í kjölfar úrslitakeppni
Chicago Bulls og Phoenix Suns á
liðnu vori, er ekki að efa að íslensk
æska mun fjölmenna á sýningar-
leiki þeirra og ugglaust hafa mikið
gaman af.
xxx
að verður fróðlegt að fylgjast
með þeim tveimur skákeinvíg-
um á milli fremstu skákkappa
heims, sem hófust í gær og fyrra-
dag, annað í Lundúnum og hitt í
Hollandi. Það einvígi sem er form-
lega séð heimsmeistaraeinvígið, þ.e.
einvígi þeirra Timmans og Karpovs,
á ugglaust eftir að falla í skuggann
af einvígi þeirra Shorts og Kasp-
arovs, sem sögðu sig úr lögum við
alþjóðaskáksambandið FIDE og
halda sitt eigið heimsmeistaraein-,
vígi á vegum eigin skáksambands
atvinnumanna. Það virðist ljóst að
Englendingurinn Nigel Short og
Úkraínumaðurinn Garríj Kasparov
hafa a.m.k. unnið fyrstu lotu í fjöl-
miðlaáróðursstríðinu, hvað sem síð-
ar verður. Það virðist þó í öllu falli
ljóst að hvort sem varamenn heims-
meistarans og áskoranda hans eða
þeir síðarnefndu verða meir í sviðs-
ljósi fjölmiðlanna, að einvígin bæði
og umfjöllunin sem þeim mun
fylgja, mun reynast skákíþróttinni
mikil lyftistöng.