Morgunblaðið - 08.09.1993, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SBPTEMBER 1993
7
Einar Oddur hættir sem framkvæmda-
stjórí Hjálms hf. á Flateyri
Stofnun Vestfirsks
skelfísks samþykkt
EINAR Oddur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hjálms hf. á
Flateyri, tilkynnti á aðalfundi fyrirtækisins í gærkveldi að
hann hygðist láta af störfum sem framkvæmdastjóri fyrirtæk-
isins innan tíðar, en hann hefur gegnt þvi starfi í 25 ár. Ein-
ar Oddur var kjörinn stjórnarformaður nýrrar stjórnar á
ofangreindum aðalfundi, jafnframt því sem tillaga um stofn-
un nýs fyrirtækis um kúfiskvinnslu Hjálms hf. var samþykkt
og mun nýja fyrirtækið heita Vestfirskur skelfiskur hf.
„Ég hef tilkynnt stjórn Hjálms
hf. að ég hyggist hætta sem fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, og
þessa ákvörðun mína ítrekaði ég
á aðalfundi félagsins í kvöld,“
sagði Einar Oddur í samtali við
Morgunblaðið í gærkveldi.
Ný stjórn var kjörin í fyrirtæk-
inu í gærkveldi, þar sem Einar
Oddur var kjörinn stjómarformað-
ur. Á aðalfundinum var flutt til-
laga stjórnar um að stofna nýtt
félag, er héti Vestfírskur skelfisk-
ur hf., sem jafnframt var sam-
þykkt. Hjálmur hf. leggur inn í
það félag umtalsverða fjármuni,
hús og skip. Einar Oddur mun
einnig verða stjórnarformaður í
hinu nýja fyrirtæki, Vestfirskum
skelfiski.
Aðspurður hveijar ástæður
lægju að baki þessari ákvörðun,
svaraði Einar Oddur: „Ég hef nú
gegnt þessu starfí í 25 ár og mér
fínnst eðlilegt að breyting eigi sér
stað. Ég hef einnig áhuga á því
að breyta örlítið um vettvang og
færa mig til og tel það reyndar
mjög eðlilegt að gera svo, eftir
aldarfjórðung í sama starfí.“
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Þokudagar
í Eyjum
Vestmannaeyjum.
HLÝINDI og blíðviðri hafa verið
í Eyjum síðustu daga. Þessu hefur
fylgt þokuloft sem sett hefur
skemmtilegan svip á landslagið
því þokan hefur lagst á skemmti-
legan hátt yfir hluta bæjarins og
stundum hefur verið þoka í aust-
urbænum meðan sólin hefur skin-
ið í vesturbænum og jafnvel hefur
þokan lagst yfír hluta bæjarins
en fjallatoppar staðið uppúr bökk-
unum.
Grímur
Formaður efnahags- og viðskíptanefndar Alþingis
Vill afnema flutiiingsj öfnunargj ald
VILHJÁLMUR Egilsson formaður efnahags- og viðskiptanefndar Al-
þingis segir að hann sé hlynntur afnámi flutningsjöfnunargjalds á olíu-
vörur. „Helstu rökin gegn afnámi gjaldsins á sínum tíma voru að oiíufé-
lögin myndu mismuna afskekktum byggðalögum í verðlagningu á olíu
en ég óttast slíkt ekki,“ segir Vilhjálmur. Málið var til umræðu í nefnd-
inni veturinn 1991-92 er þáverandi viðskiptaráðherra flutti frumvarp
um afnám gjaldsins. Hins vegar var það ekki afgreitt og Vilhjálmur
telur að endurupptaka málsins hijóti að vera að frumkvæði ráðherra.
Vilhjámur segir að hann geti ekki og viðskiptanefnd nú enda hafí málið
sagt til um hvort stuðningur sé við ekkert verið rætt þar frá því að frum-
afnám jöfnunargjaldsins í efnahags- varpið náði ekki fram að ganga fyrir
tveimur árum. „Rökin sem sett voru
fram gegn frumvarpinu á sínum tíma
ollu því að það náðrekki fram að
ganga en ég tel ekki ástæðu til að
óttast óæskilegar afleiðingar þess að
fella þetta gjald niður,“ segir hann.
„Það hlýtur hins vegar að verða við-
skiptaráðherra sem á frumkvæði að
því að taka þetta mál upp aftur.“
Ekki náðist í Sighvat Björgvins-
son en hann er nú staddur erlendis.
Ekki fleirí
afpantanir
frá Noregi
ENGAR frekari afgantanir hafa
borist frá Noregi á íslensku sjáv-
arútvegssýninguna frá því að 80
manna hópur frá Tromsö hætti
við að koma hingað til lands fyrr
í sumar. Ástæðuna kvað hópur-
inn vera veiðar íslendinga í
Smugunni. Ellen Ingvadóttir
blaðafulltrúi sýningarinnar segir
að staðan sé að öðru leyti óbreytt
og Noregur verði með stærsta
sýningarbásinn.
Hópurinn sem afpantaði ætlaði
að koma hingað til lands með leigu-
flugi og segir Ellen að það sé leitt
að þeir skuli ekki koma því þetta
verði glæsileg sýning. „Kannski
skila einhveijir þeirra sér með
áætlunarflugi,“ segir hún.
Læknafélagið 75 ára
Læknaþing
með hátíð-
ardagskrá
HÁTÍÐARDAGSKRÁ verð-
ur dagana 10. til 18. septem-
ber næstkomandi í tilefni af
75 ára afmæli Læknafélags
íslands. Auk sjálfrar af-
mælishátiðarinnar þann 16.
september verða haldin
fræðslunámskeið, vísinda-
þing, málþing, fyrirlestrar
og aðalfundur Læknafélags-
ins verður haldinn.
Innlendir sem erlendir fyrir-
lesarar munu greina frá rann-
sóknum sínum á þinginu, svo
sem Daniel C. Tosteson, for-
seti læknadeildar Harvard-
háskóla, Leah J. Dickstein,
varaforseti læknadeildar
Kentucky-háskóla, dr. Christa
Habricht prófessor, Peter
Pritchard læknir, dr. Snorri
S. Þorgeirsson, yfirmaður til-
raunadeildar National Cancer
Institute í Maryland, og dr.
Stefán Karlsson, yfírlæknir
frumeinda- og erfðalæknis-
fræðirannsókna í National
Cancer Institute í Maryland.
NU ERU 10 AR SIÐAN STORSYNINGIN
ROKK '83 SLÓ SVO RÆKILEGA í GEGN Á
CCOADWAy
AF ÞVÍ TILEFNI OG VEGNA FJÖLDA
ÁSKORANA SETJUM VIÐ UPP SÝNINGUNA
KYNNIR ER ÞORGEIR ÁSTVALDSSON.
GAMLA ROKKLANDSLIÐIÐ ÁSAMT
STÓRHUÓMSVEIT GUNNARS ÞÓRÐARSONAR
SEM SKIPA:
Næstu sýningar
11. sept.
18. sept.
25. sept.
sson
Gunnar
Engilbert Jensen - Jón Kjel
, Rúnar Georgsson - Einar Schevinq
Ásgeir Steingrímsson - Helga Möller
Miða- og borðapantanir milli kl. 13.00 - 17.00
alla daga í S - 68 71 11
VITlAUSf
K
hcVtfí, pn
★
FRÆGASTA HUÓMSVEIT
★ ALLRATÍMA
HLJÓMAR
LEIKA FYRIR
DANSIÁSAMT ★
ROKKSTJÖRNUNUM
★ TILKL3.00
Verð kr. 3.900.- m/sýningu og mat
Verð kr. 1.500.- m/sýningu
Verð kr. 1.000.- eftir sýningu
M/4TS0ILL
Sjávarréttatrío m/sinnepssósu
Lambahnetusteik m/bakaðri
kartöflu og koníakssveppasósu
Kaffiís m/sherrysósu og kiwi.
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
TILVALIÐ FYRIRT.D
VINNUSTAÐAHÓPA
FÉLAGASAMTÖK 0G
SAUMAKLÚBB/
Þór Níelsen
Harald G. Haralds
Stefán Jónsson
Mjöll Hólm
Garðar Guðmunds.
%
Siggi Johnny Anna Vilhjálms Berti Möller Astrid Jensdóttir Einar Júlíuss. Þorsteinn Eggertss. Sigurdór Sigurdórss.