Morgunblaðið - 08.09.1993, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1993
27
Á skólaráðstefnu
FRÁ ráðstefnu Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur og SAMFOKS sem bar yfirskriftina „Farsæl fyrsta skóla-
ganga - fjársjóður um daga langa“.
Námsstefna haldin um
kennslu 6 ára bama
NÁMSSTEFNA um kennsiu 6 ára barna sem bar yfirskriftina „Farsæl
fyrsta skólaganga - fjársjóður um daga langa“ var haldin á vegum
Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur og SAMFOKS, Samtaka foreldrafélaga
í grunnskólum, í Borgartúni sl. laugardag. Að sögn Áslaugar Brynj-
ólfsdóttur, fræðslustjóra Reykjavíkurumdæmis, var megin þema náms-
stefnunnar að skólinn þyrfti að vera í stakk búinn til að meta stöðu
barnanna og láta foreldra vita um allt sem þau gætu gert til aðstoðar
varðandi skólagöngu þeirra.
Helgi vann alla á
helgarskákmóti
HELGI Ólafsson stórmeistari vann allar skákirnar II á helgarskák-
móti á Akranesi um helgina. í öðru sæti með 9 vinninga kom Jóhann
Hjartarson. Hann tapaði fyrir Helga og gerði tvö jafntefli. Þetta var
41. helgarskákmót timaritsins Skákar.
í þriðja sæti með 8,5 vinninga var
skákforritið Chess Genius sem tefldi
við marga sterka andstæðinga en
þó ekki þá allra bestu. Forritið tap-
aði einni skák fyrir Arnari Þorsteins-
syni, Akureyri, og gerði þrjú jafn-
tefli við þá Jón Hálfdánarson, Akra-
nesi, Magnús Sólmundarson,
Haustnám-
skeið fyrir
foreldra
NÚ ER að fara af stað haustnám-
skeið fyrir foreldra sem fyrir-
! tækið Samskipti: fræðsla og ráð-
gjöf sf. heldur.
Á námskeiðinu er fjallað um sam-
B skipti foreldra og barna, hvernig
sé hægt að ala á ábyrgðarkennd,
sjálfstæði og tillitssemi hjá börnum
og komast hjá stöðugri „valdabar-
áttu“ í uppeldi.
Hugmyndirnar sem liggja að
baki aðferðunum sem námskeiðið
byggist á eru settar fram af banda-
riskum sálfræðingi, dr. Thomas
Gordon. Námskeið sem þetta er nú
haldið í nær 30 löndum víða um
heim.
Leiðbeinendur á námskeiðinu eru
sálfræðingarnir Hugo Þórisson og
Wilhelm Norðfjörð en þeir hafa sótt
þjálfun til Bandaríkjanna og hafa
einkaleyfi á að halda námskeið dr.
B Gordons á íslandi.
Reykjavík, og Guðmund S. Gíslason,
ísafirði.
Þátttaka slíkra skákforrita í skák-
mótum hefur verið afar viðkvæm en
samt færst í vöxt enda augljóst að
í framtíðinni glíma menn í auknum
mæli við tölvuforrit.
í 4.-8. sæti með 7 vinninga urðu
þeir Guðmundur Halldórsson, Karl
Þorsteins, Haukur Angantýsson,
Dan Hansson og Arnar Þorsteinsson.
Unglingaverðiaun sem eru í boði
á helgarskákmótinu hlutu Héðinn
Björnsson, Unnar Þór Guðmundsson
og Róbert Rúnarsson. Hlutskarpast-
ur heimamanna varð Jón Hálfdánar-
son. Hlutskarpastur dreifbýlismanna
varð Arnar Þorsteinsson. Hlutskarp-
astur öldunga varð Gunnlaugur
Sveinbjörnsson, Akranesi, 77 ára,
hlaut 4,5 vinninga. Keppendur voru
40.
♦ ♦ ♦-------
■ Rannsóknarlögreglan í
Hafnarfirði skorar á ökumann
ljósleits Range Rover jeppa með
krómfelgum, sem stakk af frá
hörðum árekstri á Elliðavatnsvegi
á föstudagskvöld og ók skömmu
síðar út af vegi á Rjúpnahæð, að
gefa sig fram. Áreksturinn sem
ökumaðurinn stakk af frá var mjög
harður og mildi að ekki hlaust af
alvarlegt slys, að sögn lögreglu.
Sjónarvottar að því og útafakstri
jeppans skömmu síðar hafa gefið
lýsingu á þeim sem í bílnum voru
og telur lögreglan víst að málið sé
í þann veg að upplýsast en skorar
þó á ökumanninn að gefa sig fram.
Eftirfarandi erindi voru flutt á
námsstefnunni. Anna Guðný Ara-
dóttir, foreldri, talaði um væntingar
til skólans. Hildur Skarphéðinsdótt-
ir, umsjónarfóstra, talaði um mikil-
vægi samvinnu leikskóla og grunn-
skóla. Kristin G. Andrésdóttir, skóla-
stjóri, talaði um skipan skólastarfs
með tilliti til byijenda, Anna N.
Möller, kennari, talaði um sam-
ábyrgð foreldra og skóla og Matt-
hildur Guðmundsdóttir, kennslufull-
trúi hélt erindi sem nefndist Það
læra börnin sem fyrir þeim er haft.
Eftir hádegishlé hélt Árni Sigfús-
son, formaður Skólamálaráðs
Reykjavíkur erindi sem nefndist
Heilsdagsskóli, Björg Eysteinsdóttir,
skólahjúkrunarfræðingur, hélt erindi
um heilsugæslu. Eyrún Gísladóttir,
sérkennslufulltrúi, talaði um sér-
kennsluhúsnæði innan skólakerfis-
ins. Víðir H. Kristinsson forstöðusál-
fræðingur ræddi um sálfræðiþjón-
ustu og Guðbjörg Björnsdóttir for-
maður SAMFOKS hélt erindi sem
nefndist Heim úr skólanum glöð. 'r'
I lok námsstefnunnar voru um-
ræður í klukkustund. Námsstefnu-
stjóri var Kristín Hraundai.
3
Leigjandi
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Sliver. Sýnd í Háskólabíói og
Sambíóunum. Leiksljóri:
Philip Noyce. Handrit: Joe
Eszterhas. Framleiðandi: Rob-
ert Evans. Aðalhlutverk: Shar-
on Stone, William Baldwin,
Tom Berenger, Martin Land-
au.
I spennumyndinni Sliver, sem
sýnd er jöfnum höndum í Há-
skólabíói og Sambíóunum, sam-
einast á ný töfradúettinn úr Ógn-
areðli, handritshöfundurinn Joe
Eszterhas og leikkonan kyn-
þokkafulla Sharon Stone, en lítið
er eftir af fyrri töfrum hafi þeir
þá verið einhveijir. Handrit Eszt-
erhas uppúr sögu Ira Levin er
hreinasta eyðimörk og leikur
Stone staðfestir þær grunsemdir
að á bak við allt skrumið í kring-
um hana leynist aðeins meira
skrum. Sjálf myndin er einn
skrumbingur, eingöngu gerð til
að græða á tímabundnum vin-
sældum Stone.
Roman Polanski gerði ágæta
mynd um leigjanda sem flutti í
á ystu nöf
íbúð með skuggalega fortíð líkt
og Stone gerir í Sliver en Pol-
anski er hér víðsfjarri. í handriti
Eszterhas segir frá glæsilegum
starfsmanni bókaforlags - Stone
tekur sig flott út á skrifstofunni
þótt hlutverkið sé ekki meira
sannfærandi en svo að mann
grunar að hún haldi að vasabrot
sé eitthvað úr fataskápnum - sem
flytur í íbúð í háhýsi þar sem
voveiflegir atburðir hafa gerst
og þeim linnir síst eftir að hún
kemur við sögu.
Það lítur ekki út fyrir að Eszt-
erhas hafi haft spennumynd í
huga þegar hann hnoðaði saman
handritinu heldur kroppinn á
Stone. Myndin á öðrum þræði
að vera víti til varnaðar í þjóðfé-
lagi þar sem rafeinda- og mynd- ’
bandatæknin gerir einkalíf fólks
að útdauðum hlut en í staðinn
fyrir uppbyggingu spennu og
persónugerð sem maður getur
látið sig varða um kemur hvert
sundurlaust atriðið á fætur öðru
þar sem sexapíll leikkonunnar
gegnir aðalhlutverki: Hún fróar
sér í baði, sefur mjög hjá William
Baldwin og í hallærislegasta atr-
iðinu af þeim öllum klæðir hún
sig úr undirbuxunum á stoppfull-
um veitingastað. Það á að vera
smart og ögrandi (allir vita að
Eszterhas hefur sérstakt dálæti
á undirbuxnalausu kvenfólki) en
verður dæmalaust ómerkilegt
sirkusatriði og mun síðra veit-
ingahúsaatriðinu í Þegar Sally
hitti Harry... þaðan sem því er
stolið.
Þess á milli mistekst ástralska
leikstjóranum Philip Noyce („De-
ad Calm“) algerlega að búa til
spennu úr söguþræðinum því
hann er nánast enginn. Tom
Berenger er úti að aka sem rit-
höfundur á ystu nöf og Baldwin
er viðbjóðslegur gægjufíkill, sem
við eigum mögulega að hafa sam-
úð með, en annar þeirra er morð-
ingi af mjög ókunnum ástæðum,
ef nokkrum. Morðmálið fjarar
einhvem veginn út. Myndataka
Vilmos Zsigmond er eftirtektar-
verð en samanburður við annan
nýlegan fjölbýlishúsatrylli,
„Single White Female" eftir Bar-
bet Schroder, fær mann til að
hrista hausinn yfir gerviveröld-
inni í Sliver. Menn hafa gengið
svo langt í að nýta sér skrumið
í kringum Stone sem kyntákn
að þeir hafa gleymt sjálfri bíó-
myndinni.
SltlCI auglýsingar
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533
Helgarferð 8.-10. sept.
Landmannalaugar-Hrafntinnu-
sker-Álftavatn. Gist i skálum
F.(. fyrri nóttina í Laugum og
seinni nóttina við Álftavatn.
Skoðaðir íshellarnir. Ganga á
laugardeginum úr Hrafntinnu-
skeri í Álftavatn, eöa ekið niður
hjá Laufafelli ef vill.
Þórsmerkurferð 8.-10.
sept.
Gist í Skagfjörðsskála/Langadal.
Gönguferðir. Ath. Þórsmörk er
aldrei fegurri en á haustin. Nota-
leg gisting í Skagfjörðsskála, þar
er allt sem til þarf fyrir gesti.
Helgarferð til Þórsmerkur er góð
tilbreyting. \
Brottför í helgarferðirnar er kl.
20 föstudag.
Síðasta skipulagða gönguferðin
um „Laugaveginn" (5 dagar)
milli Landmannalauga og Þórs-
merkur 15.-19. sept.
Brottför miðvikudagsmorgun kl.
08. Verð kr. 12.400,-. Félags-
verð kr. 11.100,-.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofunni, Mörkinni 6.
Ferðafélag íslands.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma i kvöld
kl. 20.00.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Bibliulestur kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
ÉSAMBANO ISLENZKRA
____' KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58-60
Almenn kristniboðssamkoma í
Kristniboðssalnum í kvöld kl.
20.30. Jónas Þórisson, fram-
kvæmdastjóri Hjálparstofnunar
kirkjunnar segir frá nýliðinni ferð
sinni til Afríku. Benedikt Arnkels-
son talar.
RAÐAUGÍ YSINGAR
+
tr
A að flytja inn ódýran mat?
Félagsfundur sjálfstæðismanna í Árbæ verður haldinn fimmtudaginn
9. september kl. 20.30 í Hraunbæ 102b.
Dagskrá:
1. Kjör landsfundarfulltrúa.
2. Dr. Þorvaldur Gylfason ræðir innflutning á matvöru.
Stjórn sjálfstæðisfélagsins í Árbæ,
Selási og Ártúnsholti.
Sjávarútvegsnefnd
Sjálfstæðisflokksins
Boöað er til fundar í sjávarútvegsnefnd Sjálfstæðisflokksins miðviku-
daginn 8. september nk. kl. 20.30 í Valhöll v/Háaleitisbraut.
Á dagskrá fundarins er að ræða og ganga frá drögum að ályktun
um sjávarútvegsmál fyrir komandi landsfund.
Stjórnin.
Hluthafafundur í Skildi hf.,
Sauðárkróki
verður haldinn fimmtudaginn 9. september
kl. 21.00 í kaffistofu Frystihússins.
Fundarefni: Stjórnarkjör og önnur mál.
Stjórnin.