Morgunblaðið - 15.09.1993, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1993
Reykhólahreppur í sameiningarhug
Verðmæti þorskafla frá áramót-
um er talið um 12,5 milljarðar
króna, en 1992 var það 14,3 á sama
tíma og 17,1 milljarður 1991. Verð-
mæti karfans hefur aukizt milli ára
og varð nú um 6 milljarðar, þar af
einn milljarður fyrir úthafskarfa,
Tekinn ölvaður
á vörulyftara
LÖGRGLAN á ísafirði var kölluð
til Suðureyrar um kvöldmatar-
leytið í gærkvöldi sökum manns
sem var ölvaður á vörulyftara.
Maðurinn var færður til ísafjarðar
þar sem tekin var skýrsla af hon-
um og blóðsýni.
Að sögn lögreglunnar var maður-
inn að vinna á lyftaranum á hafnar-
svæðinu á Suðureyri en þar var ver-
ið að landa físki. Sökum ökulags
hans þótti rétt að kalla lögreglu til.
en alls er verðmæti botnfiskaflans
28,6 milljarðar nú, en var 28,7 í
fyrra og 32,7 í hitteðfyrra. Verð-
mæti loðnuaflans nú varð 3,1 millj-
arður, en var 2,4 í fyrra, en verð-
mæti síldar og loðnuhrogna varð
minna nú. Rækjan skilaði nú 3,6
milljörðum á móti 3,3 árið áður,
humaraflinn er metinn á 470 millj-
ónir og hörpudiskur á 114. Heildar-
verðmæti er því 36 milljarðar á
móti 35,3 í fyrra og 37,4 á sama
tíma 1991.
Munar mest um loðnu og síld
Sé litið á nýliðið fískveiðiár varð
heildaraflinn 1,7 milljónir tonna og
munar þar mestu um rúmlega millj-
ón tonn af loðnu og síld. Þetta er
300.000 tonnum meira en fiskveiði-
árið næst á undan og 600.000 tonn-
um meira en fiskveiðiárið 1990 til
1991.
Sjá nánar Úr verinu, bls. Bl.
fttftripiJtMi&ifr
Metstökk á vélhjóli____________
Jóhannes Sveinbjörnsson setti met
er hann stökk á vélhjóli sínu 34
metra í Njarðvíkurhöfn 7
í dag
Yfirburöir Kasparovs
Nú stefnir í yfirburðasigur Ka-
sparovs á Nigel Short 29
Staða Arafats____________________
Samtök heittrúaðra ógna mest
stöðu Arafats 21
LeiÖari
Margræð kosningaúrslit í Noregi 22
Myndasögur
► Drátthagi blýanturinn - Gátur
- Myndir ungra listamanna -
Þrautir - Brandarar - Leikhomið
- Myndasögur - Ljóð - Fingra-
brúður
Úr verinu
► Verðmæti aflans meira en í
fyrra - íslenzkur hugbúnaður til
vörumerkinga fluttur utan - 10%
hærra verð á hafbeitarlaxi - Lýs-
ing veldur byltingu í laxeldi
Morgunblaðið/Bjami
Valsmenn töpuðu fyrir Aberdeen
VALSMENN lutu í lægra haldi á heimavelli fyrir skoska liðinu Aberdeen í Evrópukeppni bikarhafa á
Laugardalsvellinum í gærkvöldi. Skotunum tókst að gera þijú mörk hjá Val, tvö í fyrri hálfleik og eitt
í þeim síðari, en Valsmönnum tókst ekki að skora mark. Síðari leikurinn verður leikinn í Skotlandi
eftir hálfan mánuð og segja má að möguleikar Vals á að komast'áfram í keppninni séu úr sögunni.
Myndin sýnir Steinar Adolfsson í baráttu við einn Skotann. Sjá nánar íþróttasíðu bls. 43
Óskar að ræða við
hreppa í Dalasýslu
Miðhúsum
Á KYNNINGARFUNDI í Miðhúsum á Króksfjarðarnesi í gær lögðu
verkhönnuðir Vegagerðarinnar fram teikningar að vegi og brú
yfir Gilsfjörð í mynni hans.
Bjami P. Magnússon, sveitarsjóri
Reykhólahrepps, sagði frá því á
fundinum að Reykhólahreppur hefði
skrifað sveitarstjórnum í Saurbæjar-
og Skarðsstrandarhreppi í Dalasýslu
og óskað eftir viðræðum um samein-
ingu. Þeir hreppar eru í Vesturlands-
kjördæmi en Reykhólahreppur er í
Vestfjarðakjördæmi.
Eins og staðan er nú er samvinna
íbúa Reykhólahrepps mun meiri við
Vesturlandskjördæmi en Vestfjarða-
kjördæmi. Vegalengdir milli hrepps-
ins og Dalasýslu munu styttast enn
frekar við tilkomu brúnnar yfir Gils-
fjörð.
Brúin 60 metrar
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem fram komu á fundinum verður
brúin ekki nema 60 metrar og verða
því „vatnaskipti" frekar lítil og því
verður vatnið lítið salt. Jón Helgason
aðalhönnuður lýsti hvemig að verki
yrði staðið og Birgir Guðmundsson,
umdæmisverkfræðingur í Borgamesi,
stjómaði umræðum, sem urðu miklar.
Sveinn.
-------»♦ ♦-------
Formaður nefndar sem leggur til sameiningu sveitarfélaga á Suðurnesjum
Tillagan eingöngu fram bor-
in til að fullnægja lagaskyldu
UMDÆMANEFND Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum stend-
ur einróma að tillögu til félagsmálaráðuneytis um að kjósendum
á Suðurnesjum gefist kostur á að kjósa um sameiningu sveitarfé-
laganna sjö á Suðumesjum í eitt en þó eru nefndarmenn alls
ekki einhuga í afstöðu sinni til tillögunnar, að sögn Kristjáns
Pálssonar bæjarsq'óra í Njarðvík og formanns nefndarinnar. Sveit-
arfélögin sem um ræðir era Keflavík, Njarðvík, Grindavík, Sand-
gerðisbærj Gerðahreppur, Vatnsleysustrandarhreppur og Hafnar-
hreppur. Ibúar í þeim öllum voru 15.941 þann 1. desember sl.
Tillagan sem lögð verður fyrir lqósendur hljóðar svo: Vilt þú að
sveitarfélögin sjö á Suðumesjum verði sameinuð í eitt?
Ekkert liggur fyrir um
sparnað
Kristján segir tillöguna einungis
setta fram til að fullnægja þeirri
lagaskyldu sem á umdæmanefndir
var lögð með lögum sem sett voru
í vor að þeim sé skylt að leggja
fram tillögu að nýrri skiptingu
landshlutanna í sveitarfélög.
Kristján segir að ekkert liggi fyrir
sem bendi til þess að unnt verði
að spara skattgreiðendum á svæð-
inu útgjöld með sameiningunni,
þvert á móti muni reksturinn í
besta falli kosta sömu fjárhæð og
nú. Sýna megi fram á sparnað í
yfirstjórn en á móti komi að ekki
sé annað vitað. en að þjónustu-
framlög úr Jöfnunarsjóði, sem öll
sveitarfélög á svæðinum, nema
Hafnir og Keflavík njóti nú, tapist
og einnig tapist að líkindum tekju-
jöfnunarframlög úr sjóðinum.
Kristján segir að það sem m.a.
veki efasemdir um framgang
málsins sé það hve mjög staðið
hafí á tillögum og hugmyndum frá
félagsmálaráðuneytinu um breyt-
ingar á Jöfnunarsjóði, tekjuöflun-
arkerfi sveitarfélaganna og verka-
skiptingu þeirra og ríkisins.
Ýmis konar samvinna
Kristján sagði að sá kostur að
leggja fram spurningu um samein-
ingu allra sveitarfélaganna í stað
nokkurra, t.d. einungis Hafna og
Sandgerðis, hefði verið sá að sveit-
arfélögin á svæðinu hefðu þegar
með sér ýmis konar samvinnu,
m.a. um rekstur sorpeyðingar-
stöðvar, heilbrigðiseftirlit, öldrun-
Eitt sveitarfélag
Suðurnesjum
í huga,“ sagði Kristján og bætti
við að mörgum hefði þótt rétt að
láta það haldast í hendur að gerð-
ar væru tillögur um sameiningu í
umdæmanefndum og að félags-
málaráðuneyti legði fram tillögur
um verkefnatilflutning og breytta
tekjustofna sveitarfélaga. Þegar
þeirri óvissu hefði verið eytt væri
tímabært að bera málið undir kjós-
endur.
Sjá nánar fréttir og viðtöl á
miðopnu.
Skákþing íslands
Guðfríður
Lilja efst
SJÖUNDA umferð á Skákþingi
íslands var tefld í gærkvöldi. í
landsliðsflokki urðu úrslit þau að
Þröstur Þórhallsson vann Sævar
Bjarnason, Jafntefli gerðu Helgi
Ólafsson og Hannes Hlífar Stef-
ánsson, Björgvin Jónsson og Jó-
hann Hjartarson og Tómas
Björnsson og Jón Garðar Viðars-
son. Helgi Ass Grétarsson vann
Guðmund Gíslason og Andri Áss
Grétarsson og Haukur Angantýrs-
son gerðu jafntefli.
Staðan í iandsliðsflokki er sú að
Helgi Ólafsson er efstur með 5V2
vinning, Hannes Hlífar Stefánsson
og Þröstur Þórhallsson hafa 4>/2 vinn-
ing og frestaða skák. Jóhann Hjart-
arson er með 4 Vi vinning.
Fimmta umferð var tefld í kvenna-
flokki. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
vann Helgu Guðrúnu Eiríksdóttur og
Guðný Hrund Karldóttir vann Önnu
Björgu Þorgrímsdóttur. Er staðan í
kvennaflokki því sú að Guðfríður
Lilja er með 3‘/z vinning, Guðný
Hrund er með 2 '/2 vinning og fre-
staða skák, Helga Guðrún hefur IV2
vinning og frestaða skák og Anna
Bjöjg er með IV2 vinning.
Áttunda umferð í landsliðsflokki
og 6. umferð í kvennaflokki verða
tefldar í kvöld í skákmiðstöðinni í
Faxafeni.
armál og brunavamir og með því
að sameina öll sveitarfélögin þyrfti
t.d. ekki að hugsa grundvöll þess
samstarfs upp á nýtt.
Umræða í skugga óvissu
Kristján sagði að öll þessi um-
ræða hefði farið fram í skugga
óvissu um stöðu sveitarfélaga þar
sem tillögur frá félagsmálaráðu-
neyti hefði skort. „Við höfum beð-
ið eftir einhveiju útspili frá ráðu-
neytinu um það hvernig Jöfnunar-
sjóðurinn mundi deilast til að eyða
efasemdum okkar sem höfum vilj-
að skoða þetta með hagkvæmnina
Afli kvótaársins
1,7 millj.toima
Verðmæti fiskaflans frá áramótum
meira en á sama tíma í fyrra
HEILDARVERÐMÆTI fiskaflans frá áramótum til ágústloka var
36 milljarðar króna, samkvæmt mati Fiskifélags íslands. Á sama
tíma í fyrra nam verðmæti aflans heldur lægri upphæð, eða 35,3
miHjörðum, en á sama tíma 1991 var aflinn metinn á 37,4 milljarða.
Botnfiskafli frá áramótum er nú 403.000 tonn, 790.000 af síld og
loðnu, 42.000 af skelfiski og alls er aflinn því orðinn 1,2 milljónir
tonna.