Morgunblaðið - 15.09.1993, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 15.09.1993, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1993 Elín Árnadóttir nýr skattstjóri Vestfjarðaumdæmis „Spennandi verkefni“ FJÁRMÁLARÁÐHERRA hef- ur sett Elínu Árnadóttur skatt- stjóra Vestfjarðaumdæmis frá 1. október nk. með aðsetri á Isafirði. Elín er 32 ára gömul og lauk prófi sem lögfræðing- ur frá Háskóla íslands haustið 1989. Hún hefur unnið hjá embætti ríkisskatt.stjóra frá því í október sama ár. Elín sagði í samtali við Morgun- blaðið að sér litist vel á starfíð og yrði þetta spennandi verkefni að takast á við. Hún sagðist hafa góða þekk- ingu á skattkerfínu eftir að hafa unnið hjá embætti ríkisskattstjóra í fjögur ár, fyrst á virðisauka- . skattsdeild en síðan á lögfræði- sviði á tekjuskattsskrifstofunni. Aðspurð sagði Elín að hún væri ekki fysta konan til að gegna Morgunblaðið/Sverrir Skattstjórinn ELIN Árnadóttir hefur verið sett skattstjóri Vestfjarðaumdæmis. embætti skattstjóra, kona hefði verið sett skattstjóri í hálfan mán- uð í fyrra þegar skattstjóraskipti urðu nyrðra en hún væri fyrsta konan til að taka við skattstjóra- embætti til frambúðar. Uppalin á Suðureyri EJín sagðist vera fædd og uppal- in á Suðureyri í Súgandafírði og þekkti því vel til fyrir vestan. Hún sagði að það legðist vel í sig að flytja til Isafjarðar, þar ætti hún margt skyldfólk og vissi að þar væri mikið af góðu fólki. Sex umsækjendur voru um stöðuna auk Elínar, Guðmundur Halldórsson viðskiptafræðingur, Haraldur Þór Teitsson viðskipta- fræðingur, Jónas Guðmundsson lögfræðingur og þrír aðrir sem óskuðu nafnleyndar. Morgunblaðið/Kristinn Grænlenskur dans GRÆNLENDINGARNIR tóku þjóðbúningana með sér og dönsuðu fyrir gestgjafa sína í Setbergsskóla (að ofan). Þeir sýndu líka bæjar- stjóra Hafnarfjarðar og forseta íslands dans. Loftur tók fram að Grænlendingamir hefðu verið afar kurteisir. Hann sagðist ekki vita til þess að heill grunnskólabekkur frá Grænlandi hefði áður komið í heimsókn til íslands. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veéur Akureyri 6 alskýjað Reykjavík 10 þokumóða Björgvin 13 hálfskýjað Helsinki 10 léttskýjað Kaupmannahöfn 10 rigning Narssarssuaq 8 rlgning Nuuk 8 skýjað Óalö 10 hálfskýjað Stokkhólmur 10 skúr Þórshöfn 8 hálfskýjað Algarve 21 léttskýjað Amslerdam 14 rigning Barcelona 23 léttskýjað Berlín 14 alskýjað Chicago 21 rigníng Feneyjar 28 léttskýjað Frankfurt 18 skýjað Glasgow 12 skúr Hamborg 16 skýjað London 14 skýjað LosAngeles Lúxemborg 18 alskýjað vantar Madríd 20 skýjað Malaga 24 léttskýjað féttskýjað Mallorca 27 Montreal 20 skýjað NewYork 22 skýjað Orlando 23 léttskýjað Paría 18 skúr Madelra 23 léttskýjað Róm 22 rigning Vín 17 alskýjað Washington 21 skýjað Wlnnipeg 4 akýjað Grænlensk ung- menni í heimsókn NEMENDUR í 9. bekk Setbergsskóla í Hafnarfirði hófu skólaárið með einkar skemmtilegum hætti því I byijun september tóku þeir á móti 12 jafnöldrum sínum og pennavinum frá Grænlandi. Græn- lensku ungmennin voru hér í tíu daga og tókst heimsóknin í alla staði mjög vel að sögn Lofts Magnússonar skólastjóra. Loftur sagði að krakkarnir hefðu nýtt tímann hér á landi afar vel og m.a. komið á Þingvelli, að Gullfossi og Geysi, í Krísuvík, Bláa lónið og skoðað Mývatn og ná- grenni þess. Að auki hefðu þeir haft tækifæri til að hitta bæjar- stjórann í Hafnarfirði og forseta íslands. Vinabæir Grænlensku krakkarnir hafa skrifast á við þá íslensku í tvö ár og var reynt að haga því þannig að þeir gistu hjá íslenskum penna- vinum sínum. Saman gerði hópur- inn sér svo ýmislegt til skemmtun- ar og var þá m.a. farið á kvik- myndina Jurassic Park en þess má geta að hvorki er kvikmynda- hús né sundlaug í heimabæ Græn- lendinganna, Ilulissat á vestur- strönd Grænlands. Bærinn, sem er vinabær Hafnarfjarðar, liggur 300 km fyrir norðan heimsskauts- baug og eru íbúamir um 4.500. Mikil sala í nýrri gerð Toyotabíla MIKIL sala hefur verið á nýrri gerð Toyota Corolla bíla og verða um fimmtíu bflar afhentir í vikunni. Tegundin er með minni vél en síðasta árgerð og fer bíllinn því í lægri tollflokk sem lækkar verðið um 155 þúsund krónur. Að sögn Lofts Ágústssonar, blaðafulltrúa Toyota, hefur mikil eftirspurn verið eftir bílunum frá því þeir voru kynnti fyrir helgina og verða um fímmtíu bflar afhent- ir í þessari viku. Hann sagði að ódýrasti Toyota Corolla bíllinn væri nú seldur á 1.074 þús. kónur en verð á árgerðinni frá í fyrra er 1.229 þús. krónur. Loftur sagði að nýja árgerðin væri með 1300 vél en 1600 vél var í þessum bílum áður. Lægri tollflokkur Hann sagði að vélin væri endur- bætt og skilaði 90 hestöflum og munaði ekki nema 24 hestöflum frá fyrri árgerð. Bfllinn lenti í lægri tollflokki vegna þess að vél- in mælist minni sem veldur því að verðið lækkar um 155 þús. krónur. Loftur sagði að viðtökum- ar hlytu að teljast býsna góðar miðað við hvemig bílasala hefur gengið að undanfömu. Góð loðnuveiði VEL HEFUR gengið á loðnumiðunum að undanförnu og hafa skipin verið um sólarhring að ná fullfermi. Alls hafa rúmlega 342 þúsund tonn borist á land á vertíðinni en þar af hafa erlend veiði- skip landað um 13 þúsund tonnum. Um 375 þúsund tonn eru óveidd af loðnukvótanum. Rumlega 20 Þokkalegt útlit Keflvíkingur KE landaði 500 tonnum á Raufarhöfn í gær. Að sögn Gunnlaugs Jónnssonar skip- stjóra ganga veiðarnar vel en skip- in hafa verið um sólarhring að ná' fullfermi. Hann sagði að veður skip stunda nú loðnuveiðarnar. hefði verið gott á miðunum og væri þokkalegt útlit með áfram- haldandi loðnuveiði. Rúmlega 20 skip stunda nú loðnuveiðamar. Albert GK fór á loðnu í vikunni og Víkurberg GK var að fara í sína fyrstu veiðiferð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.