Morgunblaðið - 15.09.1993, Síða 20

Morgunblaðið - 15.09.1993, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEFfEMBER 1993 Skotbar- dagar í Kroatíu TIL skotbardaga kom í gær á milli hersveita Serba og Króata við borgirnar Sisak og Zadar í héraðinu Krajina í Króatíu sem Serbar hafa á valdi sínu. Skutu Serbar niður króatíska MiG-21 orrustuþotu. í Genf sömdu Alija Izetbegovic leiðtogi múslima í Bosníu og Franjo Tujdman for- seti Króatíu um vopnahlé í átök- um múslima og Bosníu-Króáta í Bosníu. Fann kelt- neskan sjóð BRESKUR maður vopnaður málmleitartæki fann 977 kelt- neska gull- og siifurpeninga í jörðu við bóndabæ í vesturhluta Englands í fyrradag. Peningarnir eru taldir vera frá fyrstu öld. Er þetta stærsti fundur sinnar teg- undar en peningarnir voru á 40 sentimetra dýpi. Rafstraumur drepur sæðið ÞÝSKT fyrirtæki í Svartaskógi, Neue Technologien, hefur þróað nýja getnaðarvörn fyrir karl- menn, málmhólka sem komið er fyrir í hvorri sáðrásinni. Þegar sæðisvökvinn spýtist í gegnum hólkana drepur veikur rafstraum- ur sæðisfrumumar. Þúsund ár í fangelsi BORGARDÓMUR í Belfast á Norður-írlandi dæmdi 26 ára hryðjuverkamann, Scott Monag- ham, í 989 ára fangelsi í gær fyrir 80 hegningarlagabrot, þ. á m. morð- og sprengjutilræði við breska hermenn. Er Monagham, sem er liðsmaður IRA, gert að afplána hvetja refsingu fyrir sig þannig að þegar afplánun einnar refsingar lýkur tekur sú næsta við. Finnar sjá fram á bata EFNAHAGS- og samvinnustofn- un Evrópu (OECD) sagði í gær að gera mætti ráð fyrir stigvax- andi efnahagsbata í Finnlandi í vetur og á næsta ári en atvinnu- leysi myndi ekki minnka fyrst um sinn. I álitsgerð OECD sagði að atvinnulöggjöfin og miklar niður- greiðslur í landbúnaði stæðu fínnsku efnahagslífi fyrir þrifum. Samdráttur í Japan ÞJ ÓÐARFRAMLEIÐSLA Japana dróst saman um 0,5% á tímabilinu apríl til júní eða sem svarar 2,0% á ári, samkvæmt opinberum tölum sem birtar voru í gær. Lík- ur eru taldar á að hagvöxtur verði neikvæður á fjárhagsárinu, í fyrsta sinn í tvo áratugi. Framleiðsla dregst saman í Þyskalandi LANDSFRAMLEIÐSLAN dróst saman um 2% í Þýskalandi á fyrri hluta ársins en utanríkisviðskipti voru hins vegar mun hagstæðari en búist hafði verið við, að sögn þýsku hagstofunnar. Andófsmanni sleppt í Kína EINN kunnasti pólitíski fangi Kína, Wei Jingsheng, var sleppt úr haldi í gær eftir 14 ára vist af 15 í díflyssu. Hann var dæmd- ur í 15 ára fangelsi fyrir að hvetja til lýðræðis í Kína. Talið er að hann fái frelsi í tengslum við að Alþjóðaólympíunefndin (IOC) ákveður í næstu viku hvar Ólymp- íuleikarnir árið 2.000 verða haldnir. Urslit þingkosninganna í Noregi gætu haft víðtækar afleiðingar Andstæðingar EB-aðildar ná undirtökum á þinginu FLESTIR virðast þeirrar skoðunar að verulega hafi dregið úr líkun- um á að Norðmenn muni á næstu árum gerast aðilar að Evrópu- bandalaginu vegna úrslita þingkosninganna á mánudag. Vissulega vann Verkamannaflokkurinn og minnihlutastjórn Gro Harlem Brundtland sigur en Miðflokkurinn, sem berst hatrammlega gegn Evrópusamstarfi og sækir fylgi sitt aðallega til Norður-Noregs, þrefaldaði þingmannafjölda sinn. í sumum landsbyggðarkjördæmum fékk hann allt að 40% atkvæða. Þetta er besti árangur flokksins frá því forveri hans, Bændaflokkurinn, fékk 15,9% atkvæða í kosn- ingunum árið 1930. Miðflokkurinn er nú næst stærsti flokkurinn á norska þinginu og ætlar að nota þingstyrk sinn til að koma í veg fyrir EB-aðild með öllum tiltækum ráðum. „Það verða handalögmál í þing- inu vegna EB-málanna,“ sagði Anne Enger Lahnstein, leiðtogi Miðflokksins, sem gengur undir nafninu „nei-drottningin“ í Noregi. Hún sagði einnig, í samtali við fréttastofuna NTB, að hún ætti von á að EB-andstaða myndi nú einnig fara vaxandi í Svíþjóð og Finnlandi. Samkvæmt norsku stjórnar- skránni frá 1814 verða þrír fjórðu þingmanna að samþykkja aðild að Segir Walker að það hafi einungis gerst tvisvar, á meðan á kalda stríð- inu stóð, að höfuðstöðvar KGB í Moskvu hafi sent skilaboð til sendi- manna sinna á Vesturlönum að þeir ættu að búa sig undir „yfírvofandi árás“. Fyrra skiptið hafí verið árið EB og er því ekki Iengur meiri- hluti fyrir aðild á norska þinginu. Má jafnvel færa rök fyrir því að EES-samningurinn hefði ekki kom- ist í gegnum norska þingið eins og það er nú skipað. Brundtland ánægð Brundtland sagði í gær að þrátt fyrir niðurstöðu kosninganna myndi ríkisstjórnin halda aðildar- viðræðunum áfram. „Verkamanna- 1961, er deilan um eldflaugamar á Kúbu stóð sem hæst, og annað skipt- ið í september 1983. Hörð viðbrögð Vesturlanda við þeim atburði er Sovétmenn skutu í 1. september niður kóreska risaþotu, með þeim afleiðingum að 269 manns flokkurinn hefur fengið þá stuðn- ingsyfirlýsingu sem hann bað um,“ sagði Brundtland og bætti við að það væri norska þjóðin sem myndi endanlega ákveða afdrif EB-aðild- arinnar. Stefnir stjórnin að því að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um málið, annað hvort árið 1994 eða 1995, ef viðunandi samningsniður- staða næst. Norðmenn kusu einnig um EB-aðild árið 1972 og höfnuðu henni þá með naumum meirihluta. Samkvæmt skoðanakönnun, sem birtist í Dagbladet, hefur EB-and- staða heldur ekki verið jafn mikil í Noregi um áratuga skeið. Sam- kvæmt könnuninni eru 58% Norð- manna á móti aðild en 31% eru hlynntir henni. Fyrsti sigurinn Þetta var í fyrsta skiptið sem Brundtland tókst að vinna kosn- ingasigur sem forsætisráðherra og spá stjórnmálaskýrendur í Noregi því að hugsanlega kunni Verka- fórust, sannfærðu ráðamenn í Moskvu, að sögn Walkers, um að kjamorkuárás á Sovétríkin væri yfír- vofandi. Óttuðust þeir að árásin ætti að eiga sér stað í skjóli umfangsmikillar heræfíngar, sem skyndilega var boð- að til í nóvember þetta sama ár. Seg- ir Walker að Rússar hafí verið mjög fegnir er heræfíngunni lauk án þess að á þá væri ráðist, þar sem þeir hefðu verið teknir að trúa sínum eig- in áróðri um að Reagan-stjómin væri vís til að hefja kjarnorkustyrjöld að fyrra bragði. mannaflokkurinn að vera á leið upp úr lægð síðustu ára. Brundtland hefur leitt flokkinn í fjórum síðustu kosningum og tapaði flokkurinn ávallt fylgi. Hann fékk 41% at- kvæða árið 1985, 36% árið 1987, 34% árið 1989 og 30% árið 1991. Nú virðist sem flokkurinn hafí fengið í kringum 36% atkvæða. Kosið aftur í Osló? Tölvubilun í Osló gerði það hins vegar að verkum að ekki er búist við að endanlegar niðurstöður kosninganna muni liggja fyrir fyrr en í dag eða á morgun. Norsku blöðin sögðu í gær að það væri hneyksli hvernig staðið hefði verið að málum í höfuðborginni og að komast yrði að því hver bæri ábyrgð á klúðrinu. Létu sumir leið- arahöfundar jafnvel liggja að því að kosningarnar yrðu ógildar vegna málsins og því yrði hugsanlega að kjósa á ný um hin fimmtán þing- sæti Osló. Bandaríkin Aftökur ekki verið fleiri í þrjá áratugi New York. Frá Huga Ólafssyni, fréttárit- ara Morgunbiaðsins. ÞRJÁTÍU manns hafa verið líflátn- ir í nafni laganna það sem af er þessu ári í Bandaríkjunum og hafa aftökur aldrei verið fleiri síðan hæstiréttur landsins heimilaði þær að nýju árið 1976. Margt bendir til að aftökur muni enn færast í aukana, ekki síst það að hæstirétt- ur hefur auðveldað framkvæmd þeirra með því að vísa ítrekað frá áfrýjunarbeiðnum sem gætu haft fordæmisgildi. Yfir 200 manns hafa verið teknir af lífí síðan 1976, þar af 31 í fyrra, fleiri en nokkru sinni í þijá áratugi, en verða væntanlega enn fleiri á þessu ári. Yfír 2.600 fangar bíða eft- ir eitursprautu, aftökusveit, raf- magnsstólnum eða gálganum, eftir því hvernig lög viðkomandi ríkja kveða á um framkvæmd dauðarefs- ingar. Um 200 eru dæmdir til dauða ár hvert, en þeir eru aðeins brot þeirra sem fremja 20.000 morð á ári í Bandaríkjunum. Andstæðingar dauðarefsingar halda því fram að þeir sem hana hljóta séu ekki alltaf verstu níðingarnir, en séu hlutfalls- lega oftar svartir en hinir sem sleppa með fangelsisvist og nálega alltaf fátækir, sem þýði að þeir geti ekki ráðið góðan lögfræðing. Önnur vinsæl rök gegn dauðarefs- ingunni er að hún verður ekki aftur tekin. Athugun sem birtist í lögfræði- tímariti fyrir nokkrum árum komst að því að 23 hefðu verið teknir af lifí saklausir á þessari öld. Meirihluti almennings í flestum ríkjum er þó fylgjandi dauðarefsing- um og hert refsilöggjöf hefur verið á stefnuskrá bandarískra stjómmála- manna í báðum þingfiokkum í um tvo áratugi. Nú dúsa rúmlega milljón manns í bandarískum fangelsum, fjórfalt fleiri •en árið 1973. Hlutfallslega eru hvergi fleiri bak við rimlana en í Bandaríkj- unum. Nú færist mjög í vöxt að dæma minniháttar sakamenn í stofufangelsi með senditæki í ól um ökklann og fylgist lögregla með 40.000 slíkum um þessar mundir. Þessi þróun er þó síður merki um hugarfarsbreyt- ingu en auraleysi yfírvalda, enda kostar það skattborgara áttfalt meira að setja smábrotamenn í fangelsi en að láta þá dúsa nauðuga á stofusófan- um. Sovétmenn óttuðust kjamorkuárás 1983 ^^London. Reuter. ÁFORM Bandaríkjamanna um geimvarnir og árás sovéskra herþotna á kóreska farþegaflugvél árið 1983 gerðu það að verkum að heimurinn var mun nær kjarnorkustyrjöld en hingað til hefur verið talið, að sögn breska rithöfundarins Martin Walker. Kemur þetta fram grein í blað- inu Guardian þar sem hann vitnar til sovéskra leyniskjala en Walker er fyrrum fréttaritari blaðsins í Moskvu. Bók eftir hann um kalda stríð- ið kom út í Bretlandi í gær.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.