Morgunblaðið - 15.09.1993, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1993 27
HVERSVEGNA?
eftir Kjartan
Guðjónsson
Hvers vegna erum við íslendingar
með þeim ósköpum gerðir að láta
eignir okkar drabbast niður í van-
hirðu? Sagt hefur verið að hirðingja-
þjóðir fargi öllu sem þær geta ekki
haft beint gagn af eða tekið með
sér. Til skamms tíma hirtu Tyrkir
ekki um fornminjar og jafnvel spilltu
þeim. Barði Guðmundsson taldi að
Islendingar væru afkomendur Her-
úla. Það skyldi þó aldrei vera að við
værum afkomendur Vandala. Ætli
það sé ekki nær einsdæmi að þjóð
sem hefur búið í iandi í meir en þús-
und ár skuli ekki hafa skilið eftir
neitt sem kalla má mannvirki, nema
allt hafí þá, sem flest nú verið látið
drabbast niður. íslendingar hafa ekki
einu sinni nennt að klappa fanga-
mark sitt á stein. Illt er hirðuleysið,
umhyggjan getur stundum verið
verri. Séð hef ég gamalt trafakefli
sem hafði verið pússað með sand-
pappír og lakkborið með háglans.
Ekki ætla ég að þetta sé dæmi-
gert, og þó. Þegar talað er um betr-
umbætur er betra að hafa augu og
eyru opin. Húsameistaraembættið
rústaði nánast Bessastaðakirkju í
snobbrús fyrir forsetaembættinu.
Eftir stóð karaktérlaust hús hvorki
nýtt né gamalt, sýkt af harðviðar-
9g parketplágu sem heltók nýríka
íslendinga í eina tíð. Síðan hafa raun-
'ar málarar haft talsvert að gera við
að mála palisander þiljur og tekk
eldhús. Hvað eftir annað hefur Al-
þingishúsið verið í bráðri hættu. Það
er reglubundið eins og asíuinflúensa
að einhverjir þingmenn eða bréftil-
blaðsins-kjósendur fínni hjá sér hvöt
til að byrja aftur á sjálfstæðisbaráttu
gegn Dönum og hefja baráttu gegn
konungi og kórónu einkum þeirri sem
prýðir alþingishúsið. Þetta hús er
eitt meistarastykki forms og hlut-
falla. Þeir vissu hvað þeir sungu
þessir gömlu karlar. Kóróna þessa
yfirlætislausa, fagra húss er hin
umdeilda kóróna sjálf, hróflið við
henni krossfarar og frelsisvinir og
þið gerið húsið að geldingi, að haus-
lausri afturgöngu. Formblinda er því
miður útbreiddur kvilli. Það er ekki
hægt að ætlast til að almenningur
hafí sérþekkingu á byggingarsögu,
en þegar landsfeður ætla að fara að
ráðskast með byggingu á borð við
alþingishúsið vitandi ekkert í sinn
haus og formblindir að auki, er kom-
inn tími til að spyma við fótum. í
hnúkana tók þegar einn fremsti litt-
erat þjóðarinnar á þingbekkjum lét
sér detta í hug að klessa skjaldar-
merkinu á svalimar. Og vel að
merkja skjaldarmerkið. Við höfum
nánast dmkkið það í okkur með
móðurmjólkinni þetta merki sé eitt
hið fegursta í heimi hér, að um það
þurfí ekki að ræða frekar en nátt-
úrufegurð landsins. En meinið er
bara að þetta er ekki almennilegt
skjaldarmerki heldur myndlýsing (ill-
ustrasjón) eins og teiknað er fyrir
bækur. Hið versta við það er ef til
vill ofhlæðið, sé það smækkað verður
það að torkennilegri klessu, sé það
stækkað koma gallar þess því þeim
mun betur í ljós sem það stækkar
meira. Frá örófí alda hafa skjaldar-
merki verið stílfærð, einfölduð tákn,
þar þarf ekki vitnanna við og ekki
annað en að fletta því upp. Að ofan-
verðu má segja að merkið sé þokka-
lega stílfært (öminn og drekinn) að
neðan snýst það upp í natúralisma
(nautið og jötunninn). Gerð er grein
fyrir hárafari jötunsins belti skó-
þvengjum o.fl. allt í anda myndlýs-
ingar en ekki merkis. Sama gildir
um nautið. Undir öllu saman er svo
vandlega skyggð og útfærð hraun-
hella sem bætir raunar þriðju vídd-
inni í myndina. Uppruni þessa verks
mun vera pennateikning frá 1912
að mig minnir, teiknuð af myndlistar-
manni með hugsjónir ungmennafé-
laganna að leiðarljósi og kannske
ekki von að hann vissi mikið um lög-
mál skjaldarmerkja. Þó nokkrar til-
raunir hafa verið gerðar til að draga
úr agnúum þessa verks og allar mis-
tekist. Við eigum einn mann sem
gæti hugsanlega komið einhverju
viti í þetta merki og er sá Þröstur
Magnússon teiknari, en það verður
ekkert áhlaupaverk. Og áfram með
húsið. Sem betur fer hefur velviljuð-
um mönnum hingað til tekist að
koma í veg fyrir stórslys. Harðvið-
arpúkinn hefur að vísu skotist inn í
anddyrið og reyndar lengra því að
ein þjóðlega vakningin komst alla
leið inn í sal neðri deildar, þegar
háborð forseta var fjarlægt og í stað-
inn kom einhver óskapnaður þiljaður
eins og baðstofuskarsúð. Þetta var
með ferlegri stílbrotum sem orðið
hafa, og það virtist enginn taka eft-
ir þessu á hinu háa alþingi. En ein-
hveijar heilladísir eru víst á sveimi
í húsinu, það hefur líklega gleymst
eða verið vanrækt að bijóta niður
danska borðið því að einn daginn var
það komið aftur á sinn stað án þess
að nokkur á hinu háa alþingi tæki
eftir. Hafi þeir sem skiluðu borðinu
ævarandi þökk.
Eitt sinn var í aðsigi parket-aðför
að dómkirkjunni, en þar kom krókur
á móti bragði. Kristján Eldjárn, þá
þjóðminjavörður, gaf kost á sér í
safnaðarnefnd og enginn hefur treyst
sér til að vaða yfír hann. Sami púki
var byijaður að þreifa fyrir sér í
anddyri safnahússins en komst ekki
lengra hvað sem olli. Vilmundur
Jónsson kom á elleftu stundu í veg
fyrir eyðileggingu á stéttinni framan
við húsið; sem er líklega seinasta
brústeinalögnin á Islandi. Þeir voru
byijaðir að rífa. En á húsið skal ráð-
ist ef ekki að innan þá að utan.
Safnahúsið var fyrir löngu umlukið
smekkleysum en sést þó vel. Nú er
komið að Hæstarétti að bæta gráu
ofan á svart. Hamingjan hjálpi hinni
virðulegu stofnun ef dómarar sjá
ekki lengra en yfír í næstu götu.
Kannske hafa þeir ekki ennþá upp-
götvað sigurverk tækninnar, bíltík-
ina, sem ætti að geta gert þeim kleift
að komast í vinnuna þótt þeir ættu
sér hús annars staðar í landflæmi
borgarinnar. Að takast skyldi að
kreista Bernhöftstorfuna undan blóð-
ugum nöglum glerkastalaofstækisins
í Stjórnarráðinu gengur kraftaverki
næst.
Og þá er komið að meginerindi
þessa bréfs sem er Keldur á Rang-
árvöllum. Ef við eigum nokkra þjóð-
argersemi er það skálinn að Keldum.
„Ef við eigrim nokkra
þjóðargersemi er það
skálinn að Keldum.“
„Ég fínn það á mér að hér hefur
Sólveig Jónsdóttir sofið“, sagði Ámi
Pálsson að sögn Helga á Hrafnkels-
stöðum. Hvort sem Oddaveijar
gengu hér um dyr eður ei er þetta
elsta hús landsins með ummerkjum
sem rekja má allt til upphafs húsa-
smiða á íslandi. Að sinna ekki um
viðhald er slæmt, að taka rangar
ákvarðanir um viðhald er verra. Ég
hef rökstuddan grun um að þama
hafí verið unnin skemmdarverk í
nafni viðhalds. Enginn nema almætt-
ið getur stöðvað regn, en skálanum
liggur við hruni að hluta til vegna
þess að vatnsaga hefur beinlínis ver-
ið beint að húsunum. Ein forn stoð
heldur við gijóthleðslu sem sígur inn
og er það ekki á mínu valdi að spá
fyrir um hvað gerist ef eða þegar
hún lætur undan. Á þaki hefur torf-
ið sigið og sér í bera hauskúpu þar
sem tjaslað hefur verið bárujárni til
undirlags og þetta sker í augun.
Ónýtum fjárhúsum er ekki sýnd ”
meiri óvirðing. Furðuleg ráðstöfun
má það kallast að þynna torfþök á
skálum að sögn til að létta á sperr-
um. Ókjörum af mold og torfí hefur
verið mokað burt svo að nú standa
hinar miklu vindskeiðar upp og út
eins og rif í hungurdauðum manni.
Moldinni var sturtað þar sem hún
eykur á vatnsflauminn. Það er ekki
sjálfgefið að fornleifafræðingar og
arkitektar þekki náttúru torfbæja,
en það gera próflausir bændur og
ekki hafa þeir lagt á ráðin um van-
hugsuð verk að Keldum. Próflaus ,
bóndi sagði mér að tveir menn með
vörubíl gætu á svo sem viku sett
fyrir lekann af mannavöldum. í ár
er veitt tólf hundruð þúsundum til
Keldna. Ekkert af þeirri hungurlús
fer til þess að hefta vatnsagann.
Það má heita tímanna tákn að ís-
lensk menning sé einskis nýt nema
til útflutnings eins og fískur.
Krampakennd ásókn í viðurkenningu
útlendinga útheimtir nánast einn
poppara í hvert sendiráð. Minnimátt-
arkenndin og belgingurinn víxlast á
eins og vonin og kvíðinn. Klapp á
kollinn og gott hjá þér litli minn fá
menn til að kikna í hnjáliðunum. Við
viljum gjarnan vera mikil menningar-
þjóð í litlu landi. Við getum kannske
risið undir því ef við höldum reisn
okkar og segjum við útlendinga:
Sækið okkur heim, kynnist íslenskri
menningu á íslandi. Þess vegna styð
ég heilshugar að af stórhug rísi
menningarmiðstöð að Korpúlfsstöð-
um og fjandinn hirði um kostnaðinn.
Hann gæti orði alls þessa virði, jafn-
vel skilað sér aftur.
Höfundur er listmálari.
Vinmnoar / & haskolaislands
W llllllflVMfll ■ vænlegosttllvinninp
1 u » lHHw P)
378 4745 9157 12058 17822 21543 24282 30843 35494 45308 50244 53954
802 4802 9801 12942 18137 22341 24417 31337 34344 45404 51979 54454
854 4827 9890 13242 18259 22493 24428 31707 34990 44784 52342 55839
1321 5300 10259 14754 19201 23213 24702 31783 38174 44831 52484 54743
2042 4154 10350 14959 19248 23480 24991 32153 38420 44930 52555 54801
2731 4144 10449 15075 19459 24195 27200 33154 39410 47047 52572 57318
3018 4911 10802 15311 19944 25274 27530 33449 39444 48594 52579 58283
3321 7754 10834 15899 20237 25787 28489 34249 40408 48447 53428 58334
3434 8500 11128 14115 20429 25851 28747 34824 40471 48949 53417 59088
3475 8974 11514 14471 21382 24175 30023 34940 43359 50139 53470 59390
Sl. laugardag var birt hér í blaðinu vinningaskrá í 9. flokki hjá
Happdrætti Háskóla íslands. Af einhveijum ástæðum féllu niður
25.000 kr. vinningamir (125 þúsund kr. tromp). Vinningsnúmerin
120 birtast hér að ofan og eru hlutaðeigandi beðnir velvirðingar á
mistökunum.
-
ALAFOSSBUÐIN
Útsala á postulíni, glervörum
og öðrum gjafavörum hefst
í dag, 15. sept.
Ath. vegna breytinga á búöinni
hœttum vió meó postulínsvörur
frá Arzberg.
ÁLAFOSSB ÚÐIN,
Vesturgötu 2, sími 13403.
Vetrartímimi
hjá SJÓVÁ-ALMENNUM
er frá níu til fímm
Haustið er komið og veturinn nálgast óðum.
Hjá SJÓVÁ-ALMENNUM skiptum við yfir í
vetrarafgreiðslutíma sem er frá
klukkan níu til fimm. Vetrartíminn gildir
frá 15. september til 1. maí.