Morgunblaðið - 13.10.1993, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1993
Réttarhald í Héraðsdómi Reykjavíkur yfir manni sem tvíveg-is hefur orðið mannsbani
Saksókiiari gerir kröfu
umævilangl fangelsi
ÁKÆRUVALDIÐ krefst þess að Þórður Jóhann Eyþórsson, 39
ára, verði dæmdur til þyngstu refsingar sem lög leyfa, fyrir að
hafa orðið Ragnari Ólafssyni að bana á heimili Ragnars við Snorra-
braut í Reykjavík aðfaranótt 22. ágúst sl. og telur saksóknari
hæfilegt að Þórður verði dæmdur í ævilangt fangelsi. Tveir sak-
borninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu voru dæmdir I ævi-
Iangt fangelsi í sakadómi á sínum tíma en sá dómur var mildaður
í Hæstarétti. Annars hefur ævilangt fangelsi ekki verið dæmt í
refsimáli hér landi á síðari tímum. Mál ákæruvaldsins gegn Þórði
Jóhanni Eyþórssyni var dómtekið að loknum yfirheyrslum og mál-
flutningi í gær og er dóms Sverris Einarssonar héraðsdómara að
vænta innan þriggja vikna. I máli Björns Helgasonar saksóknara
sem flutti mál ákæruvaldsins gegn Þórði Jóhanni fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær, kom fram að Þórður Jóhann hefði, einn sak-
hæfra íslendinga á síðari tímum, gerst tvlvegis sekur um mann-
dráp af ásetningi.
Sakborningur
ÞÓRÐUR Jóhann Eyþórsson, með sólgleraugu, kemur í fylgd lögreglu-
manna í Héraðsdóm í gær.
VEÐUR
Vegna reynslulausnar sem honum
var veitt ætti hann eftir að afplána
helming þeirrar 14 ára fangelsisvist-
ar sem hann var þá dæmdur til eft-
ir ásetningsmanndráp sem hann
/ DAG kl. 12.00
Heímild: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspó kl. 16.15 í gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 13. OKTOBER
YFIRLIT: Yfir norðaustur Grænlandi, (slandi og hafinu suðurundan er
1.032 mb allvíðáttumikil hæð.
SPÁ: Vestanátt, víðast gola eða kaldi. Smáól við austuströndina en bjart-
viðri sunnan- og vestanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Norðan- og norðaustan
gola eða kaldi og fremur kalt. Dálítil él norðaustanlands en annars þurrt
og víðast léttskýjað um sunnan- og vestanvert landið.
HORFUR Á LAUGARDAG: Hæg breytileg ótt og fremur kalt. Léttskýjað
víðast hvar á landinu.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30,.4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22. 30. Svarstmi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
Heiðskírt
r r r
r r
r r r
Rigning
Alskýjað
*
V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrirnar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig,.
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
riig..
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær)
Þjóðvegir landsins eru flestir í góðu ásigkomulagi og greiðfærir. Víða
er þó unnið að vegagerð og þurfa vegfarendur að haga akstri sam-
kvæmt merkingum þar. Hálendisvegir eru færir fjailabílum, Gæsavatna-
leið fær til austurs frá Sprengisandi.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
ígrænnilínu 99-6315. Vegagerðln.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavlk hiti ■í-2 2 veður skýjað léttskýjað
Bergen 8 úrk. ígrennd
Helslnkl S alskýjað
Kaupmannahöfn 12 rigning
Narssarssuaq 9 skýjað
Nuuk 4 skýjað
Osló 10 rigning
Stokkhólmur 11 skýjað
Þórshöfn 3 slydduél
Algarve 20 skýjað
Amsterdam 1S skúrásíð. klst.
Barcelona 23 iéttskýjað
Berlín 18 skýjað
Chicago 6 þokumóða
Feneyjar 20 skýjað
Frankfurt 16 rigning
Glasgow 10 skýjað
Hamborg 15 riging á sið. klst.
London 15 skýjað
Los Angeles 19 skýjað
Lúxemborg 13 skýjað
Madrid vantar
Malaga 19 þokumóða
Mallorca 22 skýjað
Montreal 3 alskýjað
NewYork 9 rignlng
Orlando 19 þoka
París 18 skýjað
Madelra 22 skýjað
Róm 26 skýjað
Vín 20 léttskýjað
Washington 9 skúr
Winnipeg -i-S léttskýjað
framdi á nýársnótt 1983 þegar hann
stakk mann með hnífi. Þeim 7 árum
þurfí að bæta við þá refsingu sem
hann hljóti fyrir að hafa ráðið Ragn-
ar Ólafsson af dögum.
Líkamsárás ekki
ásetningsmorð
Páll Arnór Pálsson hrl, verjandi
Þórðar Jóhanns Eyþórssonar, krafð-
ist þess að maðurinn yrði dæmdur
til vægustu refsingar sem lög leyfa
og að brot hans yrði ekki talið ásetn-
ingsmanndráp heldur líkamsárás
sem leitt hafi til dauða; auk þess sem
verknaðurinn hefði verið framinn í
stundaræði og mikilli afbrýðisemi
hefði Þórður Jóhann lagt til Ragnars
með litlum vasahníf, fiskihníf, sem
ekki gæti talist svo hættulegt vopn
að sá sem leggi með því til manns
verði að ætla að líklegt sé að af hljót-
ist bani. I máli veijandans kom m.a.
fram að vegna áfengis- og fíkniefna-
neyslu allra sem verið hefðu í íbúð-
inni þegar verknaðurinn var framinn
væri ekki til að dreifa í málinu trú-
verðugri frásögn um aðdragandann.
Veijandinn byggir m.a. á því að
Þórður Jóhann hafi uniiið verkið í
heiftúðugu stundaræði vegna þess
að hann hafi talið að Rógnar heitinn
væri að ýta fyrrum sambýliskonu
sinni út í að sprauta sig með eitur-
lyfjum. Hann hefði hins vegar aldrei
ætlað að ráða Ragnari bana.
Björn Helgason saksóknari rakti
málsatvik og kom þar fram að viku
fyrir atvikið hefði slitnað upp úr
sambandi Þórðar Jóhanns við stúlku
sem áður hafði átt vingott við Ragn-
ar og hefði tekið upp samband við
hann að nýju. í máli saksóknara kom
fram að Þórður Jóhann hefði talið
að þessi fyrrum sambýliskona sín
væri að leiðast öðru sinni út í mikla
eiturlyfjamisnotkun vegna áhrifa frá
Ragnari. Sólarhringinn fyrir verkn-
aðinn hafi Þórður Jóhann verið við
drykkju og hefði hann þá einnig
neytt kannabisefna og amfetamíns.
Kunningi hans hefði ekið honum um
bæinn í leit að sambýliskonunni fyrr-
verandi og hefðu þeir margsinnis
um kvöldið komið á veitingastaðinn
Keisarann. Síðast hefðu þeir hitt þar
mann sem færði Þórði kveðju fyrr-
verandi sambýliskonu sinnar og
hefði sá sagt honum að hún væri á
heimili Ragnars á Snorrabraut,
steinsnar frá veitingastaðnum.
Þangað hefði Þórður verið kominn
á nokkrum mínútum og hefði hann
farið bakdyramegin að húsinú.
Braust inn með hnífinn
reiddan
í gegnum eldhúsglugga hefði
hann séð stúlkuna ásamt Rhgnari
og þáverandi sambýlisstúlku Ragn-
ars. Þórður hefði tekið upp vasahníf
sem hann gekk alltaf með, opnað
hann og ruðst inn í íbúðina með því
að brjóta upp dyr. Síðan hefði hann
gengið rakleiðis í átt að Ragnari sem
hefði staðið kyrr og sagt við Þórð:
„Hér hefur ekkert skeð“ en Þórður
hefði gengið þétt að Ragnari og
stungið hnífnum í bijóst hans. I
máli saksóknara kom fram að vegna
bráðaaðgerðar sem gerð var til að
reyna að bjarga lífi Ragnars væri
ekki fullljóst um hve mörg stungus-
ár hefði verið að ræða en vitnað var
til skýrslu tæknimanns RLR sem
telur að ummerki á skyrtu Ragnars
bendi til þess að hnífnum hafi verið
stungið í hann þrisvar.
Eftir þetta hafi Þórður lokað vasa-
hnífnum og hent honum í vegg í
íbúðinni og hraðað sér burt, heim
til fyrrum eiginkonu sinnar, þar sem
hann hafi liðið út af og sofið til
morguns en hafí gefið sig fram við
lögreglu eftir að hafa frétt að Ragn-
ar væri látinn.
Saksóknari sagðist telja að þegar
Þórður Jóhann Eyþórsson hefði
ruðst inn í íbúðina með hnífínn reidd-
an hefði verið vaknaður hjá honum
ásetningur um að ráða Ragnari Ól-
afssyni bana.
í ljósi ferils Þórðar Jóhanns væri
ljóst að hann væri hættulegur um-
hverfí sínu, ekki síst þar sem ekki
liggi vafí á að hann sé sakhæfur.
Hann hefði í annað skipti sýnt að
ef hann legði haturshug á ákveðinn
mann væri hann til alls vís og hann
hefði í annað skipti orðið mannsbani
við svipaðar kringumstæður. Ekki
væri neitt hægt að finna í málinu
sem hefði áhrif til refsilækkunar.
Fíkniefni
Páll Arnór Pálsson hrl., veijandi
Þórðar Jóhanns Eyþórssonar, kvaðst
ekki krefjast sýknu heldur þess að
Þórði yrði refsað fyrir líkamsárás
sem leiði til dauða og manndráp af
gáleysi þar sem Þórður hefði borið
að hann hefði aldrei haft skýran
ásetning um að ráða Ragnari Ólafs-
syni bana og ákæruvaldinu hefði
ekki tekist að hnekkja framburði
hans, sem gæfi til kynna að í raun
hefði nánast verið um slys að ræða.
Páll Arnór sagði að lögregla hefði
um skeið litið á íbúð Ragnars sem
stað þar sem fíkniefnaneytendur
vendu komur sínar og kvaðst hann
telja líklegast að þeir sem þar voru
samankomnir þetta kvöld hefðu ver-
ið við fíkniefnaneyslu. Sumir hefðu
gengist við því í yfirheyrslum og
efni og áhöld hefðu fundist á staðn-
um.
Vitnaframburður varpi ekki skýru
ljósi á hvað hafi gerst í íbúðinni en
af framburði fyrrum eiginkonu Þórð-
ar Jóhanns, sem hann sneri sér til
eftir atvikið, sé ljóst að hann hafi
þá talað um að hafa lent í átökum
við Ragnar, hann telji sig hafa meilj
Ragnar en voni að það sé ekki alvar-
legt. Um leið og Þórður Jóhann hafi
frétt að Ragnar væri látinn hafí
hann farið á lögreglustöð og gefið
sig fram.
Neyttu saman amfetamíns
Veijandinn mótmælti því að Þórð-
ur hefði borið kala til Ragnars og
lýsti framburði um það að kvöldið
fyrir voðaverkið hefðu þeir Þórður
og Ragnar hist við Smiðjukaffi í
Kópavogi, neytt þar saman amfet-
amíns og hefði Ragnar gefið Þórði
talsvert af amfetamíni að skilnaði.
Þórður hefði hins vegar verið af-
brýðisamur vegna sambands Ragn-
ars við fyrrum sambýliskonu sína
og óttast að hann ýtti henni út í
mikla fíkniefnaneyslu. Hann taldi
að þar sem ekki lægi fyrir sönnun
um manndrápsásetning og vegna
þess að verknaðurinn hefði verið
framinn í yfirþyrmandi afbrýðisemi
og skyndilegri reiði væru til staðar
refsilækkunarástæður. Veijandinn
kvaðst í ljósi þess telja aðdraganda
þessa máls mun síður alvariegan en
það manndráp sem Þórður Jóhann
framdi á nýársnótt 1983. Þá gat
hann þess að hann teldi að við mat
á þyngd refsingar mætti dómari líta
til þess að reglum uin framkvæmd
reynslulausnar hefði verið breytt og
þær hertar þannig að minni líkur
væru á að refsifangi fengi reynslu-
lausn nú en fyrr þegar nánast var
sjálfkrafa að þeir fengju reynslu-
lausn á helmingi refsitímans.