Morgunblaðið - 13.10.1993, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1993
9
/
ÁírMuja veyí U — Óff/mi / UU 73
Eitt áreiðanlegasta
spamaöarformið 1
þrjá áratugi
í nærri þrjá áratugi hafa spariskírteini
ríkissjóðs verið ein öruggustu
verðbréfin á markaðnum. Og þau eru
alltaf jafn vinsæl sparnaðarleið enda fá
verðlrréf sem standa þeim jafnfætis í
öryggi, arðsemi og sveigjanleika:
Þú getur komið í Þjónustumiðstöð
ríkisverðbréfa og keypt spariskírteini
fyrir litlar sem stórar fjárhæðir í
almennri sölu.
Auknar kröfurtil
stjórnenda
Undanfarin misseri hefur mikil umræða
átt sér stað erlendis urn ábyrgð og hlut-
verk stjórna fyrirtækja. í nýjasta tölublaði
Vísbendingar er birt grein um þessi mál
út frá íslenzkum sjónarhóli.
Þekkingar-
leysi
Þorkell Sigurlaugsson
viðskiptafræðingur
skrifar grein um „Hlut-
verk stjóma fyrirtsekja“
í nýjasta tölublað Vís-
bendingar og telur m.a.,
að breytingar verði á
kröfum, sem gerðar eru
til stjómenda fyrirtækja,
í náinni framtíð. Grein
hans fer hér á eftir:
„Umræða fer vaxandi
um hlutverk stjóma í
fyrirtækjum, sérstaklega
eftir gjaldþrot Mikla-
garðs. Stjómendur
Miklagarðs kenndu
tölvukerfum um það að
þeir vissu ekki hve alvar-
leg staðan var. Mikli-
garður er líklega fyrsta
dæmi um gjaldþrot þar
sem stjómendumir gefa
þá skýringu að þekking-
arleysi sé skýring gjald-
þrots. Það markar einnig
tímamót að upplýsinga-
kerfinu var kennt um.
Líklega er skýringanna
að leita í sinnuleysi
stjómenda, en við sam-
bærilegar aðstæður er-
lendis væri stjóm fyrir-
tækis persónulega
ábyrgð fyrir því að hafa
ekki lýst fyrirtækið
gjaldþrota löngu fyrr.
Það er athyglisvert rann-
sóknarefni hvort um sé
að kenna stjómleysi eða
forystuleysi þegar stór
fyrirtæki og jafnvel heil-
ar atvinnugreinar verða
gjaldþrota. Ef einhveijir
bera ábyrgð í þessum
málum em það fyrst og
fremst stjómvöld sem
lánuðu fyrirtækjunum
almannaféð sem glatað-
ist. I sumum tilvikum, til
dæmis þegar eigið fé er
neikvætt og fyrirtækið
rekið með tapi, bera
lánastofnanir mikla
ábyrgð.
Verkefni
stjómar
' Æðsta vald í stjórnun
fyrirtækis er í höndum
stjómar þess. Reyndar
má segja að valdið sé
fyrst og fremst í höndum
eigenda en þeir kjósa sér
stjóra sem fer með um-
boð þeirra á milli aðal-
funda til að ráða málum
fyrirtækisins. Vandi
sumra fyrirtækja er þess
eðlis, að þau eiga nánast
enga eigendur, em mun-
aðarlaus ef nota má þá
samiíkingu.
Oft er gerð ítarleg
starfslýsing fyrir for-
s^jóra og aðra starfsmenn
fyrirtækisins en allt of
sjaldan er hugað að verk-
efnum stjómar og hvem-
ig hún starfar. Stjóm fyr-
irtækis á að setja sér
starfsreglur, þar sem
meðal annars er fjallað
um ábyrgð stjóm-
armanna, vinnubrögð,
fjölda funda og fleira.
Stjómin þarf að hugleiða
og skilgreina hlutverk
sitt, verkaskiptingu for-
stjóra og annarra æðstu
yfirmaima fyrirtækisins
annars vegar og stjóm-
armanna hins vegar.
Stjómarmenn fyrir-
tækja em ekki alltaf
nægilega virkir. Illut-
verk, ábyrgð og dagleg
verkefni stjómar, for-
stjóra og framkvæmda-
stjóra em viðfangsefni
sem gefa þarf meiri gaum
en gert er. Margir mis-
skilja algerlega hlutverk
sfjómarmanna. Annað-
hvort em þeir of virkir,
og vilja hafa áhrif á dag-
legan rekstur, eða em
óvirkir og stjómarfundir
verða huggulegir kaffi-
fundir, illa undirbúnir og
i raun formsatriði. Lau-
nagreiðslur til stjómar-
manna endurspegla oft
viðhorf manna til þess
hvaða hlutverki þeir
gegna. Ekki má vanmeta
störf þeirra manna sem
eiga að vera uppspretta
þekkhigar, stefnumörk-
unar og aðhalds í rekstri.
Stjómarlaun eiga að end-
urspegla árangur þeirra
og raunverulega ábyrgð.
Abyrgð
stjóraar
Ábyrgð stjómarmanna
er mikil. í þrengsta skiln-
ingi er hlutverk stjórnar
að ráða forstjóra og veita
honum lausn frá störfum.
Flestir telja verkefnið
mun víðtækara. Stjómin
þarf að hafa framtíðar-
sýn og á að skilgreina
hlutverk félagsins á
hveijum tíma, móta
stefnu þess og höf-
uðmarkmið. Stjórnin á að
fylgjast með starfsum-
hverfinu og að stjórnend-
ur sinni sínu starfi og nái
þeim markmiðum sem
sett em.
Gagnvart hveijum er
þá stjómin ábyrg? Eðli-
legt er að hún sé ábyrg
gagnvart eigendum fyr-
irtækisins. En þá má
spyija hveijir séu eigend-
ur. Hvemig verða tryggð-
ir hagsmunir ólíkra hlut-
hafa sem hafa ýmist lang-
tíma- eða skammtíma-
sjónarmið í huga. Líklega
munu eigendur fyrir-
tækja í framtíðinni gera
meiri kröfur um rekstur
og að skýrt verði fyrir
hluthöfum hver stefna
fyrirtækisins sé svo sem
varðandi arðgreiðslu,
stefnumörkun og mark-
mið til skemmri og lengri
tíma. Auk endurskoðunar
ársreikninga er ekki
óeðlilegt að árangur
stjórnenda við að fram-
fylgja stefnu og mark-
miðum fyrirtækisins svo
og stjórnunarárangur
þeirra almennt sé endur-
skoðaður. Meta þarf
árangur stjómenda til
lengri tima litið og horfa
á fleira en skammtimaár-
angur og niðurstöðu
hvers árs.
í þekkingarþjóðfélagi
framtíðarinnar er liklegt
að fjárfestar hafi áhuga
á langtímaárangri fyrir-
tækisins og hvaða árang-
ur er að nást til aukinnar
framleiðni og hagvaxtar,
fremur en skammtíma-
breytingum á hlutabréfa-
markaði, vegna breytinga
á framboði og eftirspum
hlutabréfa. Það þurfa að
vera til mælikvarðar á
stefnumarkandi árangur
fyrirtækis og hvert mið-
ar. Sljórnir fyrirtækja
þurfa að huga meira að
þeim þætti.“
Þú getur tekiö þátt í mánaöarlegum
útboöum á spariskírteinum meö
aöstoö starfsfólks
Þ j ónustumiöstöö varinnar.
Þú getur keypt spariskírteini í
mánaöarlegri áskrift og þannig
sparaö reglulega á afar
þægilegan hátt.
Gulltryggðu sparnaðinn með
spariskírteinum ríkissjóðs.
RIKISVERÐBREFA
Hverfisgötu 6, sími 91-626040
Eru erlend verðbréffyrir þig?
VEIST ÞU HVAÐA ÞÆTTIR SKIPTA
MESTUMÁLIVIÐ VAL Á ERLENDUM
VERÐBRÉFUM?
*
Efekki, kynntu þér námskeid um erlend verdbréf hjá VIB.
VIB býður nú námskeið um erlend verðbréf. A
námskeiðinu verður farið yfir hvers vegna það getur verið
skynsamlegt fýrir íslenska sparifjáreigendur að fjárfesta í
erlendum verðbréfum. Jafnframt verða kynntir ýmsir
möguleikar sem standa íslenskum fjárfestum til boða.
Þátttökugjald er 3.300 krónur, námsgögn innifalin.
Leiðbeinandi: Asgeir Þórðarson.
20. október
kl. 20:00-23:00.
Skráningþátttakmda í móttöku VÍB
í síma 91 - 68 15 30.
VlB
VERÐBREIAMARKAÐUR ISLANDSBANKAHF.
Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 91 - 68 15 30. Myndsendir 91 - 68 15 26.