Morgunblaðið - 13.10.1993, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1993
13
Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir
Samkór Selfoss
í Seljakirkju
í TILEFNI 20 ára afmælis síns heldur
Samkór Selfoss tónleika í Seljakirkju í
Reykjavík annað kvöld, miðvikudags-
kvöldið 13. október kl. 20.30. Á tónleik-
unum flytur kórinn um 20 lög, innlend
og erlend af ýmsu tagi undir stjórn Jóns
Kristins Cortes við undirleik Þórlaugar
Bjarnadóttur.
Kórinn hefur haldið tónleika á Selfossi
og á Flúðum undanfarnar vikur við góðar
undirtektir áheyrenda. Um 45 kórfélagar
taka þátt í starfi kórsins nú í vetur en
nærri 200 manns hafa sungið með kórnum
á þeim 20 árum sem liðin eru frá stofnun
hans. Á afmælistónleikunum á Selfossi
stjórnuðu fyrrverandi söngstjórar hver sínu
lagi og rifjuðu þannig upp söngsögu kórsins.
Samkór Selfoss.
Einn mælikvarðinn á svarið við
fyrri spurningunni hlýtur að lúta
að notagildi. Þrátt fyrir að tveir
þessara hluta séu afar heimilisleg-
ir, þar sem hillur eru skreyttar
kögri eða eldhúslegt veggfóður
hylur innviðina, reynist notagildið
ekkert við nánari skoðun; hillurnar
eru lokaðar af með gleri á báða
vegu í öðru verkinu, en vantar al-
veg í hinu, sem er opið. Vegna
þessa verður að líta á gripina sem
sjálfstæð höggmyndaverk, sem þó
ganga með vissum hætti gegn
hefðbundnúm skilgreiningum á
þessu sviði, vegna þeirrar tog-
streitu, sem húsgagnaímyndin
skapar.
Hin verkin á sýningunni tengjast
hugmyndum okkar um minnis-
merki og tákngildi þeirra. Annað
verkið minnir á pýramída, en bæði
smæðin og það sem situr efst á
verkinu verður til að draga dár að
þeirri hugsun; hitt verkið hefur
óljósari skírskotanir, en þó mætti
hugsa sér óvenjulegt, gulli slegið
jólatré! Vitneskjan um langdvöl
Guðrúnar Hrannar í Finnlandi,
landi skóga og snjóa, kann að hafa
leitt til þeirrar ályktunar, en hún
er þó ekki verri fyrir það.
Verkin eru glögglega unnin af
vandvirkni og alúð við smáatriði,
og kann það að villa um fyrir áhorf-
endum, sem leita - án árangurs -
að einhveijum æðri gildum. Sá leik-
ur á mörkum skilgreininga, sem
listakonan ber hér fram fyrir áhorf-
endur, er þannig skemmtilega upp
settur og vel til þess fallinn að
vekja fólk til umhugsunar um hug-
tök og afmarkanir á sviði högg-
myndalistar. Það er blessunarlega
fátt um sjálfsagða hluti og algildan
sannleik í myndlistinni, og öll verk
myndlistarmanna sem eru til þess
faliin að minna á það og hrekja
slíkar hugsanir, er vel þegið fram-
lag af þeirra hálfu.
Sýning Guðrúnar Hrannar
Ragnarsdóttur í Gryfju Nýlista-
safnsins stendur einnig til sunnu-
dagsins 24. október.
síns til að komast aftur á rétta
braut, finna hin raunverulegu gildi
í lífmu og búa sig til frekari átaka
eða nýrra lifnaðarhátta. Hann fær
aftur trú á lífið en allt er þetta
sérlega átakalítið og sætt allt sam-
an.
Síðasta sagan er Tókíóleikurinn
frá Japan og segir frá manni á eftir-
launum sem fær að upplifa sig aft-
ur í gegnum sýndarveruleika sem
ungan mann og byijanda hjá fyrir-
tækinu sínu og sér brátt að hans
kynslóð fór rangt að með sina ofur-
áherslu á vinnuna og fyrirtækið en
nú er komin ný kynslóð sem hugsar
meira um fjölskylduna og ástvini
en starfið. Sagan er um árekstur
þessara kynslóða en kemur í engu
á óvart.
Helsta gildi þessara ofur ein-
feldningslegu mynda er að þær
gefa forvitnilega innsýn í fjóra fjar-
læga heima sem sjaldan gefst tæki-
færi til að kynnast.
OPEL VECTRA GL’94
VERÐ KR. 1.497.000.-
TVÖFALDIR STYRKTARBITAR í HURÐUM
ER STAÐALBÚNAÐUR í ÖLLUM
OPEL BÍLUM.
OPEL ER EINN BEST BÚNI BÍLL í HEIMl
HVAÐ VARÐAR ÖRYGGISÞÆTTl.
LEITIÐ NÁNARl UPPLÝSINGA H)Á
SÖLUMÖNNUM OK.KAR.
REYNSLUAKIÐ OPEL OG ÞIÐ GETIÐ UNNIÐ FERÐ TIL ÞÝSKALANDS
FYRIRTVO MEÐ FLUGLEIÐUM.
OPEL - MEST SELDU BÍLARÍ EVRÓPU
- EKKIAF ÁSTÆÐULAUSU
— j'0-
FLUGLEIDIR JSw or»EL.
BÍLHEIMAR
Fosshálsi 1 Reykjavík
Sími 634000
3ja ára
ábyrgð