Morgunblaðið - 05.11.1993, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1993
UM HELGINA
Myndlist
Bergur Thorberg
sýnir í Portinu
Bergur Thorberg opnar fyrstu
einkasýningu sína í Portinu í Hafnar-
firði á morgun, laugardaginn 6.
nóvember kl. 15.
Bergur er sjálfmenntaður myndlist-
armaður. A sýningunni eru verk frá
1989-1993, öll unnin með olíu og akríl-
litum á striga.
Sýningin verður opin daglega frá
kl. 14-18, nema þriðjudaga. Sýning-
unni lýkur mánudaginn 22. nóvember.
Síðasta sýningarhelgi
Rósu Ingólfsdóttur
Farandsýningu Rósu Ingólfsdóttur
teiknara sjónvarps lýkur á morgun,
laugardag, í Kaffi 17, Laugavegi 91.
Listakonur frá Noregi
í Hafnarborg
I kaffístofu Hafnarborgar verður
opnuð sýning á verkum tveggja lista-
kvenna frá Noregi á morgun, laugar-
daginn 6. nóvember. Það eru þær Ing-
ema Andersen og Live Helgeland sem
sýna textílverk og skartgripi unna í
silfur.
Ingema hefur áður sýnt hér á landi,
í Norræna húsinu árið 1984 og hún
dvaldi einnig hér á árunum 1964-66,
en þá var hún við nám í Myndlista-
og handíðaskóla íslands. Hún hefur
sýnt í heimalandi sínu og erlendis og
verk eftir hana eru í eigu ýmissa lista-
stofnana í Noregi. Live hefur einnig
sýnt víða.
Listakonurnar koma hingað sjálfar
til að setja sýninguna upp. Sýningin
verður opin daglega frá kl. 12-18 til
22. nóvember.
Glerlist í bókasafni
Inga Elín glerlistakona sýnir nú
listaverk sín í bókasafni Mosfellsbæj-
ar.
Héraðsbókasafn Kjósarsýslu í Mos-
fellsbæ hefur um árabil staðið fyrir
myndiistarsýningum, en vegna
þrengsla er nú hver einasti veggflötur
þakinn bókahillum.
Enn eru gluggar safnsins þó auðir
og þá prýða gluggamyndir Ingu Elín-
ar.
Inga Elín er búsett í Mosfellsbæ
og rekur verkstæði í einu af gömlu
Alafosshúsunum. Að loknu námi hér-
Iendis stundaði Inga Elín nám við
Skolen for brugskunst í Danmörku og
útskrifaðist árið 1988.
Inga hefur haldið 5 einkasýningar
og tekið þátt í 7 samsýningum hér
heima og erlendis.
Héraðsbókasafnið er í Markholti 2
og er opið frá kl. 13-20 mánudaga til
föstudaga.
Þorgerður sýnir í
Stöðlakoti.
Þorgerður Sigurðardóttir opnar
sýningu í Stöðlakoti við Bókhlöðustíg
6, á morgun, laugardag. A sýninguni
eru rúmlega 30 myndir. Þetta eru trér-
istur og skiptist myndefnið í tvo
flokka. Annars vegar eru myndir þar
sem náttúran er beinn áhrifavaldur,
þótt varla sé um náttúrumyndir að
ræða. Þar er blandað saman tréristu
og ristu í plexigler. Hins vegar eru
myndir tileinkaðar nokkrum dögum,
tréristur í lit.
Þorgerður, sem er fædd og uppalin
á Grenjaðarstað í Suður-Þingeyja-
sýslu, sækir myndefni sitt í íslenska
náttúru, öræfi landsins og vinnur með
áhrif náttúrunnar á tilfinningalífið.
Hún útskrifaðist frá grafíkdeild
Myndlista- og handíðaskólans 1989
og hefur unnið að myndlist síðan.
Þorgerður hefur haldið nokkrar einka-
sýningar hér á landi, í Finnlandi 1990
og nú stendur yfír sýning á verkum
hennar í Varnamo í Svíþjóð í boði
menningamefndar Jönköping. Hún
hefur einnig tekið þátt í nokkrum sam-
sýningum hér á landi og erlendis.
Sýningin er opin alla daga, nema
mánudaga frá kl. 14-18 til og með 21.
nóvember.
„Frihedsmuseet“ í and-
dyri Norræna hússins
Sýning í máli og myndum frá
danska „Frihedsmuseet" verður í and-
dyri Norræna hússins 6.-21. nóvem-
ber.
Þar er fjallað um atburði sem áttu
sér stað fyrir 50 árum, er þaulskipu-
lagðar og kerfisbundnar gyðingaveið-
ar hófust í Danmörku. Að þeim stóðu
þýskar lögreglusveitir og Gestapó og
markmiðið var að flytja alla gyðinga
nauðungarflutningi frá Danmörku.
Sýningin lýsir í myndum og máli
ofsóknum Þjóðveija og viðbrögðum
Dana. Auk þess fjallar hún jafnframt
um forsendur og bakgrunn atburð-
anna; • nasismann, gyðingaofsóknir
nasista og stöðu Danmerkur fyrir og
eftir hemámið. Þá er jafnframt dregin
upp mynd af lífí og menningu gyðinga
í Danmörku.
I tengslum við sýninguna heldur
Therkel Stræde sagnfræðingur frá
Danmörku fyrirlestur í Norræna hús-
inu á morgun, laugardag 6. nóvember
kl. 16. Fyrirlesturinn nefnist: Dan-
mörk í október 1943 — björgun gyð-
inga frá útrýmingu.
Fyrirlesarinn, Therel Stræde, er
fæddur í Danmörku 1953. Hann lauk
cand.mag.-prófí í sagnfræði frá Kaup-
mannahafnarháskóla og háskólanum
í Hróarskeldu. Hann hefur stundað
rannsóknir í nútímasögu og skrifað
um síðari heimsstyijöldina.
Gígja Baldursdóttir
sýnir í Portinu
Gígja Baldursdóttir opnar myndlist-
arsýningu í Portinu, Strandgötu 50,
Hafnarfírði, á morgun, laugardaginn
6. nóvember kl. 15.
Gígja lauk stúdentsprófi frá Fjöl-
brautaskólanum við Ármúla 1979, hún
stundaði nám við Myndlistarskólann í
Reykjavík 1980-1981, Oslo Maleskole
1981-82 og Myndlista- og handíða-
skóla íslands 1982-86. Hún lauk BFA-
gráðu frá Iowa State University 1992.
Sýningin verður opin alla daga
nema þriðjudaga frá kl. 14-18 og lýk-
ur 21. nóvember.
„Birta frá öðrum
heimi“
Ketill Larsen heldur málverkasýn-
ingu á Fríkirkjuvegi 11 dagana 6.-7.
nóvember. Sýninguna nefnir hann
„Birta frá öðrum heimi“ og er þetta
tuttugasta sýning hans.
Á sýningunni eru um 90 myndir,
flestar nýjar. Þetta eru olíu- og akríl-
myndir.
Ketill málar aðallega blóma- og
landslagsmyndir en einnig bera fyrir
augu myndir sem lýsa hugmyndum
Ketils um annan heim, t.d. fljúgandi
skip.
Á sýningunni verður leikin tónlist
eftir Ketil af segulbandi.
Sýningin verður opin báða dagana
frá kl. 14-22.
Mónókrómíur úr
Ingólfscafé í Café 17
Jóhann A. Kristjánsson sérkennari
og fréttaljósmyndari DV mun opna
sýningu á 37 svart/hvítum ljósmynd-
um sem teknar hafa verið á skemmti-
staðnum Ingólfscafé með reglulegu
millibili sl. eitt og hálft ár. Myndirnar
sýna gesti staðarins og lýsa mannlíf-’
inu í Ingólfscafé eins og það kom ljós-
myndaranum fyrir sjónir.
Sýningin verður í Café 17, Lauga-
vegi 91, og mun hún standa yfir frá
5. nóvember til 3. desember.
Þetta er önnur einkasýningin sem
hann heldur, en auk þess hefur hann
tekið þátt í nokkrum samsýningum,
m.a. með Blaðaljósmyndarafélaginu.
World Press Photo 93 í
Kringlunni
Ljósmyndasýningin World Press
Photo verður að þessu sinni sett upp
í Kringlunni. Sýningin hefst 5. nóvem-
ber og stendur til 16. nóvember nk.
Allar myndirnar sem unnu í World
Press Photo-samkeppninni í ár eru til
sýnis í Kringlunni.
Tónlist
Gítarleikur í
Kringlunni
Gítarleikarinn Páll Eyjólfsson mun
leika klassíska gítartónlist í Kringl-
unni á morgun, laugardaginn 6. nóv-
ember. Leikin verða verk eftir F. Sor,
F. Tarrega og L. de Naraváez, auk
þess sem flutt verða spænsk þjóðlög.
Tónleikarnir hefjast kl. 13 og eru þeir
í göngugötu Kringlunnar. Um er að
ræða framhald á samstarfí Kringlunn-
ar og hóps gítarleikara og verður þeim
fram haldið á hveijum laugardegi út
nóvembermánuð.
Tónal í Háskólabíói
Tónal, Tónlistarsamband Alþýðu,
mun halda opna tónleika í Háskólabíói
á morgun, laugardaginn 6 nóvember
kl. 14. Á dagskrá er íslensk og evr-
ópsk tónlist ásamt sviðsetningu á völd-
um köflum úr West Side Story. Einn-
ig mun Lúðrasveit Verkalýðsins leika
létt lög. Aðgangur er ókeypis.
Söngkvöld
Söngskólans
Nemendasamband Söngskólans í
Reykjavík (NSÍR) var stofnað 2. sept-
ember sl., en nú eru liðin 20 ár síðan
Söngskólinn hóf starfsemi sína undir
forystu Garðars Cortes. Fyrsta söng-
kvöld NSÍR verður í kvöld, 5. nóvem-
ber kl. 21. í Söngskólanum á Hverfis-
götu 44. Félagsmenn eru hvattir til
að mæta og taka með sér gesti. Nýir
félagar og gestir þeirra eru velkomnir.
Leiklist
í ' r' ■ 1 jP]
Hjálmar Hjálmarsson og Róbert
Arnfinnsson í hlutverkum sínum.
Róbert Arnfinnsson
70 ára
Róbert Amfinnsson átti sjötugsaf-
mæli 16. ágúst sl. Af þessu tilefni
verður frumsýning Þjóðleikhússins á
verkinu Allir synir mínir jafnframt
afmælissýning til heiðurs honum. Rób-
ert leikur þar fjölskylduföðurinn Joe
Keller sem er knúinn til að horfast í
augu við gerðir sínar og eigin sam-
visku.
Róbert var ásamt Herdísi Þorvalds-
dóttur yngstur leikara sem fastráðinn
var við tjóðleikhúsið haustið 1949 og
hefur verið í hópi fastráðinna leikara
allar götur síðan. Hann hefur leikið
rúm 150 hlutverk í Þjóðleikhúsinu síð-
an hann lék Kára í Fjalla-Eyvindi í
hátíðarsýningunni við opnun Þjóðleik-
hússins. Honum hefur oft verið sýndur
heiður fyrir list sína og má í því sam-
bandi nefna að hann var sæmdur Ridd-
arakrossi hinnar íslensku fálkaorðu,
fékk Silfurlampann tvisvar sinnum svo
og viðurkenningu fyrir gott tungutak
í útvarpi auk menningarverðlauna DV.
Karma sýnt í Yerzlun-
arskóla Islands
Leikfélag Verzlunarskóla íslands,
leikfélagið Allt miili himins og jarðar,
mun fmmsýna leikritið KARMA í dag,
föstudaginn 5. nóvember kl. 20., sem
byggt er á leikritinu „A Streetcar
Named Desire eftir Tennessee Will-
iams“.
Uppsetning þess er liður í listahátíð
Nemendafélagsins, sem fram fer dag-
ana 3.-8. nóvember. Leikstjóri verks-
ins er Guðmundur Haraldsson og að-
stoðarleikstjóri er Fífa Konráðsdóttir.
Tónlistin í leikritinu er ijölbreytt.
Leikendur stunda allir nám við skól-
ann, en helstu hlutverk leika Sigríður
Margrét Oddsdóttir, Siguijón Birgir
Hákonarson og Kristín María Sigþórs-
dóttir.
Uppsetning listahátíðarinnar er í
höndum Listafélags Verzlunarskóla
íslands.
Einnig verða sýningar þriðjudaginn
9. nóvember og fimmtudaginn 11.
nóvember. Miðaverð er 600 kr.
Leikritið verður sýnt í hátíðarsal
Verzlunarskóla íslands.
3.000 áhorfendur í
Borgarleikhúsinu
í sl. viku sóttu 3.000 áhorfendur
Borgarleikhúsið heim. Uppselt var á
4 sýningar á Elínu Helenu, aðeins
örfá sæti voru laus á Spanskfluguna
á fímmtudagskvöldið en uppselt á
laugardagskvöld. Fjölmargir sáu
Ronju ræningjasdóttur á laugardag
Nokkrar væntanlegar bækur frá smærri forlögum
Reylgahlíðarætt
og Völundarhús
Octavios Paz
Nýjar bækur
Strandhögg eftir Rún-
ar Helga Vignisson
BÓKAÚTGÁFAN Forlagið hefur gefið út bókina Strandhögg eftir
Rúnar Helga Vignisson. Hún hefur að geyma níu sögur sem saman
mynda heildstætt skáldverk. Þetta er þriðja bókin sem Rúnar Helgi
sendir frá sér, en fyrir þremur árum kom úr eftir hann skáldsagan
Nautnastuldur sem tilnefnd var til íslensku bókmenntaverðlaunanna.
í kynningu Forlagsins segir: „Í
íjörðum norður liggur ættfaðir
grafinn þversum og horfir á bak
niðjum sínum renna sér fótskriðu
niður jörðina, í suðlægari sveitir og
landsfjórðunga, i önnur lönd og álf-
ur, allt suður til Ástralíu. í strand-
högg á fjarlægum slóðum. Hvað
varð um þetta fólk? Hvernig vegnar
því í nýjum heimi? Hefur það gert
upp sakirnar við sinn fæðingar-
hrepp og íslands þúsund ár, við
ástvinaleysið og það ástkæra yl-
hýra, við leyndar hvatir og svikna
drauma?
Strandhögg er 204 bls. Erlingur
Páll Ingvarsson hannaði kápu.
Prentsmiðjan Oddi hf. prentaði.
Verð 2.680 kr.
Rúnar Helgi Vignisson
Tankred Dorst aðalráðgjafandi leiklistarhátíðarinnar í Bonn
Rætt um þýska leikritun
TANKRED Dorst, Ieikskáld og
aðalráðgjafi leiklistarhátíðar-
innar í Bonn, mun á morgun,
laugardag, segja frá hátíðinni
og ræða stöðu þýskrar leikritun-
ar í Þýska bókasafninu við
Tryggvagötu 26. Hann talar á
ensku og hefjast umræðurnar
klukkan 16.
Dorst er með þekktustu leikrita-
höfundum í Þýskalandi eftir stríð.
Eftir hann liggja
á þriðja tug leik-
sviðsverka auk
útvarpsleikrita,
kvikmyndahand-
rita og óperu-
texta. Síðan
1992 hefur Dorst
verið aðalráð-
gjafandi leiklist-
arhátíðarinnar í Tankred Dorst
Bonn, „Bonner Biennale", þar sem
uppfærslur nýrra leikrita allstaðar
að úr álfunni eru kynnt'ar og sýnd-
ar. „Bonner Biennale“ er umtalað-
asta leiklistarhátíð sem hleypt hef-
ur verið af stokkunum undanfarin
ár í Evrópu. Dorst er hingað kom-
inn í tengslum við þetta starf og
mun skoða þær íslensku sýningar
sem eru á íjölunum núna.
BORIST hafa upplýsingar um
fyrirhugaðar útgáfubækur nokk-
urra smærri forlaga og er erindi
þeirra margvíslegt.
Líf og- saga gefur út Sögu
Reykjahlíðarættar í þremur bind-
um. Ættfræðistofnun Þorsteins
Jónssonar tók saman. Þetta er ný
og aukin útgáfa bókar sem kom
fyrst út 1939.
Skákprent hafur auk skákbóka
og tímarits gefið út margar bækur,
meðal annars ljóðabækur. Væntan-
leg er ný Ijóðabók eftir Kristján J.
Gunnarsson og safn vísna eftir
Rúnar Kristjánsson. Einnig kemur
út ný bók eftir Ingvar Agnarsson
í flokki bóka um drauma Sem hann
hefur dreymt og er skrifuð í anda
kenninga Helga Pjeturs.
Hjá Reykholti kemur út bók um
glæpaforingja Chicagoborgar, lífs-
spekibók eftir Norman Vincent Pe-
ale, bók um körfuknattleik og tvær
barnabækur með sígildum ævintýr-
um.
Smekkleysa ætlar að senda frá
sér hið víðkunna ritgerðasafn Nó-
belsskáldsins Octavio Paz frá Mex-
íkó: Völundarhús einmanaleikans, í
þýðingu Ólafs Engilbertssonar.
Höfundaútgáfan gefur út fyrstu
skáldsögu Þorvarðs Hjálmarssonar,
samtímasögu sem nefnist Himinn-
inn hefur enga fætur.
Bókaútgáfan Björk er með skáld-
sögu eftir Stefán Júlíusson sem
hann kallar Grímumaðurinn.
Birtingur hefur fyrir nokkru gef-
ið út Aldrei aftur meðvirkni, en
meðal annarra væntanlegra bóka
frá forlaginu eru Þjálfun miðils-
hæfileika, íslandsbók Mikaels, Full-
komin heilsa og Frá Taó til jarðar.
Fluga er forlag sem sendir frá
sér ljóðabók eftir nýjan höfund,
Pálma Agnar Franken.
Augnhvíta er útgefandi sjö ein-
þáttunga eftir Bjarna Bjarnason
sem bera titilinn Dagurinn í dag.
Ásútgáfan gefur út ljóðabókina
Ljóðblik eftir Kristjönu Emilíu Guð-
mundsdóttur. Bókin er litprentuð
og myndskreytt af Grími Marinó
Steindórssyni.
I