Morgunblaðið - 07.11.1993, Side 1

Morgunblaðið - 07.11.1993, Side 1
72 SIÐURB/C 254. tbl. 81. árg. SUNNUDAGUR 7. NOVEMBER1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins Óvissutímar framundan í stjómmálum landsins Wellington. Reuter. HVORUGUR stóru flokkanna fékk meiri- hluta í kosningunum í Nýja Sjálandi í gær en Jim Bolger forsætisráðherra og leið- togi Þjóðarflokksins lýsti yfir að kosning- unum loknum, að hann hygðist mynda næstu ríkisstjórn í landinu. Verkamanna- flokkurinn jók fylgi sitt verulega þótt hann hafi enn færri þingmenn en Þjóðar- flokkurinn en auk þess komu tveir smá- flokkar mönnum á þing. I þjóðaratkvæða- greiðslu samhliða kosningunum var sam- þykkt að leggja niður einmenningskjör- dæmakerfið en taka upp blandað hlut- fallskosningakerfi að þýskri fyrirmynd. Stjórnarflokknum og Þjóðarflokki Jim Bolgers hafði verið spáð allt að 10% meira fylgi en Verkamannaflokknum en það rætt- ist ekki í kosningunum og raunar fékk Verkamannaflokkurinn fleiri atkvæði en Þjóðarflokkurinn. Sá síðarnefndi sigraði hins vegar í fleiri kjördæmum og var því kominn með 49 þingmenn af alls 99 á þingi. Starf- hæf meirihlutastjórn þarf að hafa 51 þing- mann á bak við sig minnst. Verkamanna- flokkurinn var með 46 og tveir smáflokkar, Bandalagið, samtök ýmissa vinstrihópa, og Allt fyrir Nýja Sjáland, höfðu fengið tvo þingmenn hvor. Þessi staða var miðuð við talningu næstum allra atkvæða annarra en utankjörstaðaatkvæða. í kosningunum 1990 voru þau 230.000. Bolger hyggst mynda stjórn Jim Bolger forsætisráðherra sagði þremur klukkustundum eftir að kjörstöðum hafði verið lokað og úrslitin voru orðin nokkuð ljós, að Þjóðarflokkur hans ætlaði að mynda aftur ríkisstjóm. Taldi hann hugsanlegt, að utankjörstaðaatkvæðin gætu breytt mynd- inni nokkuð flokknum í hag en viðurkenndi, að hann hefði orðið fyrir vonbrigðum. Mike Moore, leiðtogi Verkamannaflokksins, sem vann 16 þingmenn af Þjóðarflokknum, mót- mælti því, að Bolger myndaði aftur stjórn og sagði, að siðferðilega hefði Verkamanna- flokkurinn rétt til þess þar sem hann hefði fengið flest atkvæðin. Spá kosningum fljótt Stjórnmálaskýrendur spá mikilli óvissu í nýsjálenskum stjórnmálum vegna úrslitanna í gær og telja líklegt, að efnt verði til nýrra kosninga innan skamms. Samþykkt tillög- unnar um nýtt kosningakerfi stuðlar einnig að því en það mun verða til að breyta veru- lega þingmannafjölda flokkanna. Mun það sér í lagi gagnast smáflokkunum, sem fengu miklu fleiri atkvæði en þingmannatala þeirra segir til um. Morgunblaðið/Þorkell EKKERT AÐ VANBÚNAÐI Enginn einn flokkur fékk meirihluta í kosningunum á Nýja Sjálandi Skuldseig sendiráð Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgun- blaðsins. SKULDSEIG sendiráð hafa löngum verið yfirvöldum Washington-borgar þyrnir í augum og hafa þau nú fengið utanríkisráðuneytið í lið með sér til að aðstoða við að innheimta stöðumæla- sektir, sem nema sex milljónum doll- ara, 420 milljónum ísl. kr. Þegar hafa verið sett lög, sem kveða á um að and- virði sekta skuli dregið frá aðstoð til hlutaðeigandi ríkja og urðu ísraelar fyrstir til að greiða upp skuldir sínar, 4,3 milljónir kr. Kom það fæstum á óvart því að Israelar fá 210 milljarða kr. í efnahags- og hernaðaraðstoð ár- lega. Rússar skulda 266 milljónir kr. og eru efstir á lista en illa hefur geng- ið að fá þá til að greiða skuldina. Ric- hard Hebert, sem annast hefur þessi mál fyrir hönd borgarinnar, sagði í samtali við Morgunblaðið, að bifreiðar íslenska sendiráðsins hefðu fengið fjór- ar sektir á þriggja ára tímabili sem lauk 1. júlí. Hefði ein verið greidd en útistandandi væru 9.100 kr. Osennilegt er að útistandandi skuldir sendiráðsins verði til trafala í samskiptum íslend- inga og Bandaríkjamanna. Flugvélunum bjargað í fallhlíf I EINNI af teiknimyndasögunum um hann Tinna er hann í flugvél yfir ein- hveijum Kyrrahafseyjum þegar vélin verður fyrir flugskeyti. í stað þess að kasta sér út, ýtir hann á hnapp og flug- vélin og hann svífa mjúklega til jarðar í risastórri fallhlíf. Mörg dæmi eru um að tæknilegar nýjungar eigi rót sína að rekja til óhefts hugarflugs teikni- myndasagnahöfunda en hvort sem það á hér við eður ei, þá er þessi hugmynd að verða að veruleika. Raunar hafa fallhlífar verið notaðar sem öryggis- tæki í smáum eins manns vélum og svifdrekum en nú hafa bandarísk yfir- völd leyft notkun þeirra í skrúfuvélum af gerðinni Cessna 150 og 152. Er fall- hlífinni komið fyrir ofan á vélinni og komi eitthvað óvænt upp á, hreyfilbilun eða annað, getur flugmaðurinn ýtt á hnapp og þá á vélin að svífa mjúklega til jarðar með farþegana. Er helsta hættan í því fólgin, að engin leið er að sljórna því hvar hún kemur niður. Nú er verið að huga að fallhlífum fyr- ir stærri vélar og menn láta sig jafnvel dreyma um, að farþegaþotur verði ein- hvern tima búnar þessu öryggistæki. Fyrir stærstu þoturnar yrði þá um að ræða fallhlíf eða fallhlífar, sem næðu yfir 24 knattspyrnuvelli. OFBELDIOG UNGUNGAR Um hvað dreymir ung- ar konur? Svífandi sjúkraþjálfari EG ER EKKI Á FLÓTTA I SÆLUDAL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.