Morgunblaðið - 07.11.1993, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.11.1993, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1993 ERLENT INNLENT Telguskatts- lækkuní stað lækkun- ar vsk. á mat RÍKISSTJÓRNIN hefur boðið launanefnd aðila vinnumarkaðar- ins að fallið verði frá áformaðri lækkun virðisaukaskatts á mat- væli um áramót og fyrirhuguðum skattbreytingum til að mæta tekjutapi af þeim sökum, en í stað- inn komi lækkun á tekjuskatti launþega. Benedikt Davíðsson, forseti Alþýðusambands íslands, segir að fráhvarf frá lækkun virð- isaukaskatts á matvæli hafí hlotið litlar undirtektir á fundi stóru samninganefndar ASÍ, og ef skoða eigi þann möguleika kosti það samningaviðræður á nýjan leik. Talsmenn Vinnuveitenda- sambandsins telja að með svari sínu hafí ríkisstjómin uppfyllt for- sendur samningsins og ekki sé ástæða til uppsagnar hans. Nauðgunardómur þyngdur HÆSTIRÉTTUR hefur þyngt dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfír Björgvini Þór Ríkharðssyni og dæmt hann í 12 ára fangelsi fýrir tvær nauðganir, líkamsárás, rán og nokkur fjársvikabrot. Þetta er þyngsti fangelsisdómur sem upp hefur verið kveðinn yfír manni á íslandi fyrir aðrar sakir en mann- dráp. Varnarviðræðum frestað FUNDUM lauk í Washington á föstudag án þess að niðurstaða fengist í viðræðum bandarísku og íslensku viðræðunefndarinnar um framtíð vamarstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli og var þá við- ræðum frestað um óákveðinn tíma. 2% raunvaxtalækkun BANKAR og sparisjóðir meta vaxtaþróun á markaði þannig að raunvextir ríkisbréfa á eftir- markaði muni hafa lækkað um 2% eftir helgina og hyggjast þeir þá tilkynna ákvörðun um vaxtalækkun þannig að raun- vextir lækki um 2%. Vextir helstu skuldabréfa á íjármagns- markaði hafa haldið áfram að lækka og í vikunni voru húsbréf í fýrsta skipti seld á yfirverði. Lækkun vaxta um tvö prósentu- stig mun að mati viðskiptaráð- herra auka ráðstöfunarfé heim- iia, fyrirtækja og ríkis og sveitar- félaga um 5,1 milljarð króna ef litið er til skamms tíma og um 9,7 milljarða ef litið er til lengri tíma Tillaga um veiðileyfagjald TILLAGA um veiðileyfagjald kom fram á Fiskiþingi í vikunni, en Sighvatur Bjamason, fram- kvæmdastjóri Vinnslustöðvar- innar í Vestmannaeyjum, segir að hann telji að forráðamenn í sjávarútvegi eigi að taka frum- kvæðið og samþykkja veiði- leyfagjald. Grímuklæddur nauðgari GRÍMUKLÆDDUR maður ógn- aði stúlku á 16. ári með hnífi og nauðgaði henni við hús Land- véla við Skemmuveg í Kópavogi. Rannsóknarlögregla ríkisins hef- ur lýst eftir manninum sem er talinn 17 til 18 ára gamall, en leit að honum hefur ekki borið árangur. Frystitogari á síld FRYSTITOGARINN Venus frá Hafnarfírði er að hefja síldveiðar fýrstur frystitogara, en hann mun stunda veiðar með flot- eða botntrolli. Útgerðs togarans hef- ur keypt 1.100 tonna síldarkvóta og verður síldin flokkuð og heil- fryst um borð fyrir markað í Japan. ERLENT Gífurlegt tjón í skóg- areldum MIKLIR skógareldar geisuðu í hlíðunum við Los Angeles í vik- unni og frá því fyrir síðustu helgi. Bmnnu þeir á mörgum stöðum og er taiið fullvíst, að einhveijir þeirra hafí hafíst með íkveikju. Á föstudag voru slökkviliðsmenn búnir að ná tökum á þeim eldum, sem enn loguðu, en þá voru um 1.000 hús brunnin til kaldra kola og tjónið var metið á 70 til 80 milljarða ísl. kr. Um 120 manns slösuðust og að minnsta kosti þrír.menn létust. Þar sem eldam- ir fóru um býr aðallega efnafólk og misstu margar kunnar kvik- myndastjörnur húsin sín. María Ellingsen leikkona slapp með skrekkinn ef svo má segja því að eldhafið náði næstum að húsdyr- unum hjá henni en fór ekki lengra og þau hjónin Iris Erlingsdóttir og Gunnlaugur Helgason töldu einnig, að þeirra híbýli hefðu sloppið. Grimmdarverk I Bosníu ÁTÖKIN í Bosníu fara harðnandi og var hart barist um bæinn Vares í miðhluta Iandsins í vik- unni. Féll hann í hendur stjómar- hernum eða múslimum og flýðu þá þúsundir íbúa hans, aðallega Króatar, yfír á svæði Serba. Eru margar fréttir um grimmdarverk og dráp á óbreyttum borgumm. í vikunni fóru leynilegar friðar- viðræður, sem haldnar voru í Noregi, milli Króata og Serba í Krajina-héraði í Króatíu út um þúfur en á föstudag var þó skýrt frá því, að fulltrúar króatíska hersins og herliðs Serba í Krajina hefðu samið frið. Alnæmisskelfing í Pýskalandi SKELFING og ótti hafa gripið um sig meðal milljóna Þjóðveija vegna upplýsinga um, að ýmis fyrirtæki, sem framleiða blóðefni, hafi allt frá 1985 selt óskimað blóð, sem hugsanlega kunni að vera alnæmissmitað. Hefur Horst Seehofer, heilbrigðisráðherra Þýskalands, hvatt alla, sem feng- ið hafa blóðgjöf á þessum tíma, til að kanna hvort þeir séu smitað- ir. Á Ítalíu hefur einnig verið hafin rannsókn á þessum málum en þar voru fýrirtæki skylduð til að skima blóð frá apríl 1986. Ráðuneytisstjóri þar í landi hefur hins vegar verið handtekinn fyrir að hafa gegn greiðslu leyft ein- hverjum fyrirtækjum að nota óskimað blóð fram í febrúar 1987. Jeltsín þrengir að lýðveldunum BORÍS JeItsín,''forseti Rússlands, kynnti fyrir fáum dögum drög að nýrri stjómarskrá fyrir leiðtogum 88 héraða og lýðvelda í landinu en þeir neituðu að samþykkja þau. Leggur Jeltsín áherslu á, að lýðveldin geti ekki sagt skilið við sambandslýðveldið og vill, að hér- uðin 67 fái sömu lagalegu stöðu og lýðveldin. Aftur heim BÆRINN Vares í Mið-Bosníu hefur ýmist verið í höndum Króata eða múslima og bæjarbúar hafa flúið . burt eða snúið aftur allt eftir því hverjir ráða honum hverju sinni. Myndin er frá því í fyrradag en þá * voru múslimskir bæjarbúar að koma til að vitja heimila sinna. Friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna í Bosníu Svíum hrósað fyrir óttaleysi o g ákveðni Vares. Reuter. SÆNSKIR hermenn í gæsluliði Sameinuðu þjóðanna í Bosníu hafa vakið á sér sérstaka athygli fyrir góðan aga og ákveðni og þeir hafa ekki hikað við að ganga á milli stríðandi fylkinga í því skyni að bjarga óbreyttum borgurum og eigum þeirra. Er öðrum norrænum hermönnum í gæsluliðinu borin sama saga og hafa sumir haft á orði, að best væri að fela Norðurlöndum gæslustarf Sameinuðu þjóðanna. Þegar múslimar eða stjórnarher- inn í Bosníu náðu á sitt vald bænum Vares eftir að Króatar höfðu hörfað þaðan hófu þeir að ræna þar og rupla en yfírmaður sænsku her- mannanna skipaði þeim að skerast í leikinn. Þeir komu í veg fýrir bíl- þjófnað og rán úr verslunum og hótuðu að hefja skothríð gerðu múslimar óbreyttum, króatískum borgarbúum eitthvað til miska. Dagana áður, meðan bærinn var enn í höndum Króata, gættu Svíamir öryggis múslimskra borg- ara eftir bestu getu og fylgdust með líðan fanga, sem Króatar höfðu tekið. „Svíarnir björguðu lífi okk- ar,“ sagði einn þeirra síðar. Hættu lífi sínu Á þeim sólarhring, sem leið frá því Króatar hörfuðu og þar til músl- imar komu til bæjarins, söfnuðu sænsku hermennirnir saman fólki, k konum, bömum og gamalmennum, í stöðvum sínum og hættu oft lífí sínu við að bjarga því enda leyni- * skyttur víða að verki. Segjast * fréttamenn ekki fyrr hafa séð gæsluliða SÞ ganga fram af jafn l mikilli ákveðni. " Mjög misjafnt orð hefur farið af gæsluliðum SÞ í Bosníu eftir því hvaðan þeir eru en auk Norður- landabúanna hafa Bretar þótt standa sig mjög vel. Ross Perot Reutcr Sköpun alheims- ins sögð hafa tekið 720.000 ár Lundúnum. The Daily Telegrapli. SAMKVÆMT biblíunni tók sköpun heimsins sex daga og nýjustu rannsóknir vísindamanna benda til þess að hver dagur hafi verið 120.000 ár. Bandaríkin Kappræður um NAFTA Washingion. Reuter. AL GORE, varaforseti Banda- ríkjanna, og Ross Perot, óháði frambjóðandinn í síðustu forseta- kosningum, ætla að efna til sjón- varpskappræðna í beinni útsend- ingu um Fríverslunarbandalag Norður-Ameríku (NAFTA). Kappræðurnar fara fram í þætti Larrys Kings hjá CATAT-sjónvarpinu á þriðjudag. Perot er andvígur bandalaginu og kappræðumar gætu haft mikil áhrif á atkvæða- greiðslu um málið í fulltrúadeild þingsins 17. nóvember, þannig að Gore og Bill Clinton forseti taka þarna mikla áhættu. Rannsóknir á loftsteini, sem vegur háift tonn og féll niður úr geimnum í sambandsríkinu Vict- oria í Ástralíu árið 1969, hafa gefið nákvæmar upplýsingar um hversu lengi sólkerfið var að myndast, að sögn vísindamanna í vísindatímaritinu Nature. „Nokkur korn í þessum loft- steini eru eldri en sólkerfið og þau hafa varðveist án þess að bráðna eða gufa upp,“ sagði Emst Zinner, prófessor við Was- hington-háskóla í St. Louis, Missouri. „Þau innihalda atóm af samsætunni magnesíum-26, sem myndast við geislavirka sundrun samsætunnar ál-26. Við vitum að það tekur ál-26 720.000 ár að'sundrast í magnesíum-26. Kornin í loftsteininum urðu þess vegna fast efni í lok þessa tímabils. Ljóst er af þessu að sólin, pláneturnar og loftstein- arnir umhverfis hana, fengu lög- un sína fyrir minna en milljón árum,“ sagði Zinner. Margir stjömufræðingar hafa talið að myndun sólarinnar hafí tekið mun lengri tíma, eða marg- ar milljónir ára. Risastórar stjörnur Rannsóknimar hafa ennfremur leitt í ljós að efnið sem myndaði sólina og pláneturnar kom fyrir fimm milljónum ára frá svæði gríðarstórra stjarna, sem em 50 sinnum þyngri en sólin, að sögn Zinners. „Þetta er vegna þess að kornin úr loftsteininum eru mjög rík af kolefni. Innsta lag sólarinn- ar, þar sem kjarnasamruninn á sér stað, er ekki enn orðið nógu heitt til að búa til kolefni og býr .ekki til neitt frumefni þyngra en helíum. Aðeins efnahvörf inni í mjög heitri og stórri stjömu búa til kolefni." > * > l

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.