Morgunblaðið - 07.11.1993, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1993
___________KVIKM YNDIR/ ST J ÖRNUB ÍÓ hefur tekið til sýninga_____________
gamanmyndina So I Married an Axe Murderer með Mike Myers í aðalhlutverki,
en hann skaust eftirminnilega upp á stjörnuhimininn í fyrra þegar hann lék
aðalhlutverkið í Wayne’s World
Hættur
hj ónabandsins
IKVIKMYNDINNI So I Married an
Axe Murderer er leitast við að blanda
saman spennu og gríni. I myndinni
leikur Mike Myers Charlie Mac-
kenzie, upprennandi ljóðskáld í San
Francisco, serti er svo skelfingu lost-
inn yfir tilhugsuninni um hjónaband
að hann neytir allra tiltækra ráða til
að losa sig við kærustur sínar áður
en það er um seinan. Að því kemur
þó að hann verður yfír sig ástfanginn
í Harriet Michaels (Nancy Travis), og
gerir hann allt hvað hann getur til
að yfirvinna þær kenndir sem hafa
orðið til þess að eyðileggja fyrri sam-
bönd hans. Harriet er bæði vel gefin
og kynþokkafull, og rekur hún eigin
kjötvinnslu. Þegar ailt kemur til alls
er hún hins vegar sú sem Charlie
hefði einna helst átt að varast, því
allar líkur benda til þess að hún sé
kaldrifjaður morðingi sem hafi komið
fyrri eiginmönnum sínum fyrir katt-
arnef.
Ástfanginn
CHARLIE verður ástfanginn af eiganda
kjötvinnslu og réttir hann henni hjálpar-
hönd í vinnunni.
So I Married an Axe
Murderer er hugarfóstur
annars framleiðanda mynd-
arinnar, Roberts N. Fried,
og rithöfundarins Robbie
Fox. Þeir fengu Thomas
Schlamme til að leikstýra
myndinni, en auk þess að
hafa gert ijölda tónlistar-
myndbanda hefur hann gert
gamanmyndir með t.d.
Bette Midler og Whoopi
Goldberg, en frumraun hans
í kvikmyndum var Miss
Firecracker með Holly
Hunter, Tim Robbins, Mary
Steenburgen og Alfre Wo-
odard. Samskipti þeirra
Schlamme og Mike Myers
voru ekki alltaf upp á það
besta á meðan á tökum
kvikmyndarínnar stóð, en
leikstjórinn hefur látið hafa
eftir sér að gerð myndarinn-
ar hafi verið mjög erfið á
köflum. Hann segir Myers
hafa haft mjög ákveðnar
skoðanir varðandi ýmislegt
í gerð myndarinnar, og
reyndar sé sá eiginleiki hans
bæði sá versti og sá besti í
fari hans. Að öðru leyti vill
Schlamme ekki tjá sig urn
samskipti þeirra félaga, en
kunnugir telja þó með öllu
útilokað að þeir muni
nokkru sinni deila saman
sumarhúsi. Það voru ekki
aðeins erfiðleikar í sam-
skiptum aðalleikarans og
leikstjórans, því Myers
komst einnig upp á kant við
handritshöfundinn Robbie
Fox þegar hann gerði til-
kall til þess að vera skráður
sem meðhöfundur handrits-
ins. Það mál kom til með-
ferðar Félags handritahöf-
unda og bar Fox sigur úr
býtum í þeirri deilu.
Þekktir aukaleikarar
' Nancy Travis leikur
Harriet, sem hefur ekki
hugmynd um að elskhugi
hennar telji hana mögulega
vera kaldrifjaðan morðingja
sem iðki kjötvinnslu bæði í
heimahúsi og á vinnustað
sínum. Nancy kom fyrst
fram í kvikmyndinni Three
Men and a Baby, og í kjöl-
farið fylgdu svo myndimar
Three Men and a Little
Lady, Internal Affairs, Air
America, Passed Away og
Married to the Mob. Nýlega
fór hún síðan með hlutverk
í Chaplin og í the Vanis-
hing, þar sem hún lék á
móti Jeff Bridges og Kiefer
Sutherland. Um þessar
Flagð undir fögru skinni?
SKÖMMU eftir að Charlie hefur kvænst Harriet tekur hann að gruna að hún
sé eftirlýstur fjöldamorðingi.
mundir fer leikkonan með
hlutverk í kvikmyndinni
Greed, þar sem hún leikur
á móti Michael J. Fox og
gömlu kempunni Kirk Dou-
glas.
í myndinni So I Married
an Axe Murderer koma
fram nokkrir þekktir leikar-
ar í aukahlutverkum og má
þar m.a. nefna Charles
Grodin, sem leikur fúllynd-
an ökumann og Phil Hart-
man, sem leikur fyrrverandi
fangavörð sem fer með
ferðamenn um Alcatraz-
fangelsið illræmda.
Tvö hlutverk
MIKE Myers fer með tvö
hlutverk í myndinni So I
Married an Axe Murder-
er. Til vinstri á myndinni
sést hann í hlutverki föð-
ur söguhetjunnar.
Leikstjórinn
LEIKSTJÓRINN Thomas
Schlamme átti í nokkrum
útistöðum við Mike Myers
á meðan á tökum myndar-
innar stóð.
Milli tveggja heima
MIKE Myers stendur á vissan hátt á þröskuldi í lífi
sínu um þessar mundir þegar hann knýr á um að vera
tekinn alvarlega sem gamanleikari í fremstu röð með
leik sínum í kvikmyndinni So I Married an Axe Murder-
er. Með hlutverki sínu í Wayne’s World skaust þessi
áður nánast óþekkti leikari skyndilega upp á stjörnu-
himininn, en sú mynd var byggð á persónu sem hann
hafði skapað í sjónvarpsþáttunum Saturday Night Live
og fjallar um tvo snargeggjaða unglingsstráka. Mynd-
in halaði inn 200 milljónir dollara og varð til þess að
Myers fékk „stjörnuveikina“.
ingu að maður sé ódauðleg-
ur, en svo þegar maður
missir foreldri sitt þá
skyndilega gerir maður sér
grein fyrir því að þessu er
öðruvísi farið,“ segir Myers.
Prófsteinn
So I Married an Axe
Murderer þykir einnig vera
prófsteinn á það hvemig
leikaranum gengur að full-
orðnast. Þar stendur hann
í svipuðum sporum og ýms-
ir fleiri leikarar sem skotist
Það er ekki aðeins hlut-
verkið í So I Married an
Axe Murderer sem hefur
fært Mike Myers að þrö-
skuldi fullorðinsáranna, því
undanfarið ár hefur ýmis-
legt í einkalífi leikarans
þokað honum áleiðis þang-
að. Auk þess að verða þrít-
ugur hefur hann gengið í
hjónaband á þessu tímabili,
og þá varð hann fyrir því
að missa föður sinn. „Á ár-
unum milli 16 og 25 ára
stendur maður í þeirri mem-
hafa upp á stjörnuhimininn
með leik sínum í Saturday
Night Live, en spumingin
er hvernig þeim tekst að
sanna sig í flóknum kvik-
myndahlutverkum eftir að
hafa leikið í stuttum grín-
þáttum í sjónvarpi. Lome
Michaels, sem á sínum tíma
réði Myers að Saturday
Night Live og framleiddi
Wayne’s Worid og framhald
hennar sem er væntanlegt
á hvíta tjaldið innan tíðar,
segist aldrei áður hafa
fylgst með svo skjótum
frama og hjá Myers, ef und-
anskilið er flug Johns Belus-
hi upp á stjömuhimininn
þegar hann lék í Animal
House.
„Það kemst enginn
skeinulaust úr slíku, en
Mike er hins vegar vænsti
piltur með góðan kjarna.
Hann hefur nægilegan
styrk auk þess sem hann
vill vera tekinn alvarlega.
Hann langar til að verða
annar Peter Sellers," segir
Michaels.
Sé það raunin þá er ljóst
að Myers setur markið hátt,
ekki síst þegar tekið er til-
liti til fortíðar hans. Hann
fæddist í Toronto í Kanada
og þar lagði stund á leiklist
á menntaskólaárunum.
Hann gekk til liðs við Ieik-
hópinn Second City að loknu
stúdentsprófi, og fluttist
skömmu síðar til Chicago,
þar sem hann lék með hópn-
um, en 26 ára gamall gekk
hann til liðs við Saturday
Night Live. Þar kom hann
fljótlega með uppástungu
um persónuna Wayne
Campbell, sem endurspegl-
ar bandarískan dreifbýlis-
þungarokkara, og þar með
var hann orðin stjama. Þó
Á krossg-ötum
MIKE Myers þykir standa á krossgötum í lífi sínu um
þessar mundir, en spurningin er hvort honum tekst
að skapa sér nafn meðal helstu gamanleikara sam-
timans.
Wayne’s World II kunni
kannski ekki að gera Myers
að öðrum Peter Sellers þá
staðfestir myndin engu að
síður að hann er á krossgöt-
um í lífi sínu. Myndin fjallar
einmitt um það hvernig
Wayne verður að horfast í
augu við að jafnaldrar hans
hafa þroskast og tekið
framförum, og staðfestir að
ekki er endalaust hægt að
iifa tímabilið milli þess að
ljúka skólanámi og hefja
störf í samfélaginu sem
ábyrgur þjóðfélagsþegn.