Morgunblaðið - 07.11.1993, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1993
RAÐAUGi YSINGAR
Mosfellsbær
Mosfellsbær-deiliskipulag
Tillaga að deiliskipulagi í landi Blómvangs í
Mosfellsbæ verður til sýnis á Bæjarskrifstofu
Mosfellsbæjar frá 8. nóv. 1993 til 6. des.
1993.
Athugasemdir, ef einhverjar eru, skulu ber-
ast skriflega til Skipulagsnefndar Mosfells-
bæjar innan framangreinds sýningartíma.
Tæknifræðingur Mosfellsbæjar.
Foreldrar barna ítann-
réttingum, athugið
Foreldrar barna í ttannréttingum, athugið að
Tryggíngastofnun tekur ekki þátt í greiðslu
tannréttingakostnaðar barna ykkar eftir 31.
desember nk., nema meðferðin falli undir
alvarleg tilvik (flokk 1). Kostnaður sem til
fellur eftir næstu áramót verður því aðeins
greiddur að Tryggingastofnun hafi áður sam-
þykkt 65-100% endurgreiðslu.
Aðrir þurfa að þera kostnað af tannréttingum
barna sinna sjálfir.
Reikningar, sem heimilt verður að endur-
greiða verða áfram afgreiddir hjá sjúkra-
tryggingadeild Tryggingastofnunar, Tryggva-
götu 28 í Reykjavík, og hjá umboðum hennar
utan Reykjavíkur.
TRYGGINGASTOFNUN
K& RÍKISINS
Ráðstefna um samræmda
slysaskráningu
Föstudaginn 12. nóvember nk. kl. 9.30-
15.00 heldur Slysavarnafélag íslands ráð-
stefnu um samræmda slysaskráningu f ráð-
stefnusal ríkisins, Borgartúni 6, Reykjavík.
Dagskrá:
Kl. 9.30 Setning.
Einar Sigurjónsson, forseti Slysavarnafélags íslands.
Ávarp.
Fulltrúi heilbrigiðsráðherra.
Slysaskráning - staðan í dag.
Hvernig er hægt að bæta hana?
- Sigurður Helgason, upplýsingafulltrúi Umferöarráðs.
- Brynjólfur Mogesen, yfirlæknir slysa- og sjúkravaktar
Borgarspítalans.
' - Júlíus Valsson, læknir, Tryggingastofnun ríkisins.
- Daníel Hafsteinsson, deildarstjóri SÍT/vátryggingafélögin.
- Friðrik G. Gunnarsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn
Lögreglunnar í Reykjavík.
- Kristinn Ingólfsson, fulltrúi Siglingamálastofnunar ríkisins.
- Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlits ríkisins.
Oflun upplýsinga um slys. Reynslusaga.
Kristján Þorvaldsson, dagskrárgerðarmaður.
Kl. 12.00 Léttur hádegisverður.
Kl. 13.00 Viðhorf lan.dlæknis Ólafs Ólafssonar.
Samræmd slysaskráning - forsenda markvissra slysavarna.
Ólafur Hergill Oddsson, héraðslæknir.
Að ná árangri með upplýsingatækninni/uppbygging og
rekstur slysaskráningakerfis.
Gunnar Páll Þórisson, rekstrarhagfræðingur.
Viðhorf alþingismanns Láru Margrétar Ragnarsdóttur.
Umræður og ráðstefnuslit.
Ráðstefnustjóri: Ingi Hans Jónsson, Grundarfirði.
Þeir, sem hafa áhuga á að sækja ráðstefn-
una, vinsamlegast tilkynnið þátttöku á
skrifstofu SVFI, sími 91-627000 f síðasta
lagi miðvikudaginn 10. nóvember nk.
Slysavarnafélag íslands.
Styrkur til handritarann-
sókna í Kaupmannahöfn
í framhaldi af lyktum handritamálsins ákváðu
dönsk stjórnvöld að veita íslenskum fræði-
manni styrk til handritarannsókna við Stofn-
un Árna Magnússonar (Det Arnamagnæ-
anske Institut) í Kaupmannahöfn. Styrkurinn
veitist til allt að tólf mánaða dvalar og nem-
ur nú um 16.400 dönskum krónum á mán-
uði, auk ferðakostnaðar.
StyrkurÁrna Magnússonar
(Det Arnamagnæanske Legat).
Með sameiningu eftirtalinna sjóða, Det Arna-
magnæanske Legat (frá 1760), Konrad Gísla-
sons Fond (frá 1891) og Bogi Th. Melsteds
Historikerfond (frá 1926) hefur verið stofnaður
einn sjóður, Det Arnamagnæanske Legat. Verk-
efni hins nýja sjóðs er að veita íslenskum ríkis-
borgurum styrki til rannsókna í Árnasafni eða
öðrum söfnum í Kaupmannahöfn. Styrkir
verða veittir námsmönnum og kandídötum,
sem hafa sýnt svo mikla þekkingu á sviði
norrænnar eða íslenskrar tungu, sögu eða
bókmenntum, að vænta megi að þeir muni
inna af hendi verk í þessum greinum sem,
þættu skara fram úr.
Umsóknarfrestur um ofangreinda styrki er
til 25. nóvember nk., en umsóknir ber að
stíla til Árnanefndar (Den Arnamagnæanske
Kommission) í Kaupmannahöfn.
Nánari upplýsingar um styrkina og tilhögun
umsókna fást í menntamálaráðuneytinu,
Stofnun Árna Magnússonar á íslandi og
skrifstofu heimspekideildar Háskóla íslands.
Menntamálaráðuneytið,
5. nóvember 1993.
Styrkir til háskólanáms í
Danmörku, Noregi og Sviþjóð
1. Dönsk stjórnvöld bjóða fram fjóra styrki
handa íslendingum til háskólanáms í Dan-
mörku námsárið 1994-95. Styrkirnir eru
ætlaðir þeim sem komnir eru nokkuð
áleiðis í háskólanámi og eru miðaðir við
9 mánaða námsdvöl en til greina kemur
að skipta þeim ef henta þykir. Styrktarfjár-
hæðin er áætluð um 4.000 d.kr. á mánuði.
2. Norsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa
íslenskum stúdent eða kandídat til há-
skólanáms í Noregi námsárið 1994-95.
Styrktímabilið er níu mánuðir frá haust-
misseri 1994. Til greina kemur að skipta
styrknum ef henta þykir. Styrkurinn nem-
ur um 5.700 n.kr. á mánuði. Umsækjend-
ur skulu vera yngri en 35 ára og hafa
stundað háskólanám í a.m.k 2 ár.
3. Ennfremur hafa norsk stjórnvöld tilkynnt
að þau bjóði fram í löndum sem eiga
aðild að Evrópuráðinu fimm styrki til fram-
haldsnáms við háskóla í Noregi skólaárið
1994-95. Ekki er vitað fyrirfram, hvort
einhver þessara styrkja muni koma í hlut
íslendinga. Umsóknir skal senda til Norg-
es almennvitenskapelige forskningsrád,
Sandakerveien 99, N-0483 Oslo 4, fyrir
15. mars nk. og lætur sú stofnun í té
umsóknareyðublöð og frekari upplýs-
ingar.
4. Sænsk stjórnvöld bjóða fram nokkra
styrki handa erlendum námsmönnum til
að stunda nám í Svíþjóð námsárið
1994-95. Styrkir þessir eru boðnir fram í
mörgum löndum og eru öðru fremur ætl-
aðir til náms sem eingöngu er unnt að
leggja stund á í Svíþjóð. Sérstök athygli
er vakin á því að umsækjendur þurfa að
hafa. tryggt sér námsvist við sænska
stofnun áður en þeir senda inn umsókn.
Styrkfjárhæðin er 6.700 s.kr. á mánuði
námsárið, þ.e. í 9 mánuði. Styrkir til
skemmri tíma koma einnig til greina.
Umsóknir um styrkina skulu sendar til
Svenska Institutet, Gáststipendier, Box
7434, S-103 91 Stockholm, Svíþjóð, og
lætur sú stofnun í té tilskilin umsóknar-
eyðublöð fram til 1. desember nk.
Umsóknir um styrki skv. liðum 1 og 2 skulu
sendar menntamálaráðuneytinu, Sölvhóls-
götu 4, 150 Reykjavík, fyrir 20. desember
nk. á sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
Umsóknum fylgi staðfest afrit af prófskfr-
teini ásamt meðmælum.
Menntamálaráðuneytið,
5. nóvember 1993.
Tilboð
Bifreiðaútboð á tjónabifreiðum er alla virka
mánudaga frá kl. 9.00-18.00. Ljósmyndir af
bifreiðunum liggja frammi hjá umboðsmönn-
um SJÓVÁR-ALMENNRA víða um land.
Upplýsingar í símsvara 91-671285.
T|ónösMi[siin
■ * Drajjhálsi 14-16, 110 Reykjavik, sími 671120, telefax 612620
WTJÓNASKOÐUNARSTÖÐ
Smiðjuvegi 2 -.200 Kópavogur
Sími 683400 (simsvari utan opnunarti'ma) - Telefax 670477
Tilboð
óskast í bifreiðar, sem skemmst hafa í
umferðaróhöppum. Bifreiðarnar verða til
sýnis á Smiðjuvegi 2, Kópavogi, mánudaginn
8. nóvember 1993, kl. 8-16.
Tilboðum sé skilað samdægurs.
Vátryggingafélag íslands hf.
- Tjónaskoðunarstöð -
Tilboð
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar sem verða
til sýnis á Hamarshöfða 6, Reykjavík, mánu-
daginn 8. nóvember 1993 kl. 9.00-16.00.
Tilboðum skal skilað samdægurs.
1. Toyota Starlet árg. 1993
2. Ford EscortXR3i árg. 1984
3. Suzuki Swift GTi árg. 1988
4. Mercedes Benz 230E árg. 1983
5. Daihatsu Charade árg. 1988
6. Toyota Corolla árg. 1991
Ökutækin eru skemmd eftir umferðaróhöpp
og seljast í því ástandi.
Skandia
Vátryggingafélagið Skandia.
Tilboð
óskast í Cole krana 40-45 tonn, árg. 1976.
Kraninn verður til sýnis hjá vélsmiðju Heið-
ars, Kaplahrauni, mánudaginn 8. nóvember.
Tilboðum sé skilað til tjónaskoðunastöðvar
Sjóvá-Almennra, Draghálsi 14-16, fyrir mið-
vikudag.
■ M
■ B
Drayhálsi 14-16, 110 Reykjavík.simi 671120, telefax 672620