Morgunblaðið - 07.11.1993, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.11.1993, Blaðsíða 23
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1993 + MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1993 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. Aukið fylgi við gjaldtöku Bersýnilegt er, að hugmyndir um gjaldtöku í einhvetju formi vegna veiða úr takmark- aðri auðlind landsmanna allra eiga vaxandi fylgi að fagna innan sjávarútvegsins sjálfs. Á fiski- þingi, sem stóð í vikunni, flutti Sighvatur Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinn- ar í Vestmannaeyjum, ræðu sem vakið hefur mikla athygli. Hann sagði m.a.: „Með vaxandi erfið- leikum í þjóðfélaginu mun þessi umræða vaxa og ef við sofnum á verðinum gæti svo orðið, að við vöknuðum upp við það einn morg- uninn að búið væri að setja á veiðileyfagjald án nokkurs sam- ráðs við okkur. Því tel ég, að við eigum að taka frumkvæðið í þessu máli og samþykkja þetta gjald með þeim fyrirvara að upp- hæðin verði bundin við verðlag á botnfiskafurðum til dæmis í SDR.“ Sighvatur Bjarnason sagði ennfremur:„Við getum þá hugsað okkur, að 1000 krónurnar fyrir- huguðu verði gjaldið 1. janúar 1996, sem síðan taki sömu breyt- ingum og verðið á afurðunum, það er að gjaldið muni hækka og lækka í takt við breytingar á söluverði botnfiskafurða. Að sjálfsögðu og það er grundvallar- atriði á gjaldið að renna til grein- arinnar sjálfrar þar sem veija á þessu fjármagni til hagræðingar- aðgerða." Sighvatur Bjarnason er einn af hinum yngri forystu- mönnum í sjávarútvegi, sem vak- ið hafa athygli síðustu ár fyrir rösklegar aðgerðir til endurskipu- lagningar í sjávarútvegi. Þess vegna geta þessi ummæli hans verið vísbending um að breytt viðhorf séu að ryðja sér til rúms innan sjávarútvegsins sjálfs. í samtali við Morgunblaðið í gær sagði svo annar forystumað- ur í sjávarútvegi, Guðjón A. Kristjánsson, formaður Far- manna- og fiskimannasambands- ins m.a.: „Ég tel að vaxandi stuðningur sé við þessa hugmynd (þ.e. veiðileyfagjald) meðal sjó- manna þar sem þeir greiða þegar slíkt gjald til útgerðarinnar í dag með þátttöku sinni í kvótakaup- um og það er eðlilegra að greiða gjaldið beint í ríkissjóð." Og for- maður FFSÍ bætti við: „Persónu- lega er ég ekki hlynntur hug- myndinni um veiðileyfagjald en ég er búinn að vara við því um nokkurt skeið að svo geti farið, að það verði sett á, ef þetta kvóta- brask heldur áfram.“ Fiskifélagsdeild Vestfjarða lagði fram tillögu á fiskiþingi þar sem segir m.a.: „Aðalfundur Fiskifélags Vestfjarða...telur, að meðan kvótakerfið er við lýði sé eðlilegt að sala og andvirði sölu veiðiheimilda verði á höndum rík- issjóðs." Þessi tillaga var felld með miklum meirihluta atkvæða en athyglisvert er að tillögu um, að fiskiþing lýsti stuðningi við núverandi kvótakerfi og fijálst framsal veiðiheimilda var einnig vísað frá með miklum meirihluta atkvæða. Þegar málflutningur tals- manna útgerðarmanna og raunar sjómanna einnig um kvótakerfíð og hugsanlega gjaldtöku í um- ræðum síðustu missera er hafður í huga, telst ræða Sighvatar Bjamasonar á fiskiþingi til stór- tíðinda, svo og ummæli Guðjóns A. Kristjánssonar og tillaga Fiskifélags Vestfjarða. Allt er þetta til marks um, að hugmynd- in um einhvers konar gjaldtöku á vaxandi fylgi að fagna. Þegar þar að auki er litið til umræðna á síðasta landsfundi Sjálfstæðis- flokksins, atkvæðagreiðslu í sjálfri sjávarútvegsnefndinni um gjaldtöku og afstöðu iðnaðar- nefndar landsfundarins er ljóst, að umræður um gjaldtöku í sjáv- arútvegi eru komnar á nýtt stig. Áhrifamenn innan sjávarút- vegsins og innan Sjálfstæðis- flokksins, mæla nú með þessari leið í einhverri mynd. Það er tölu- verður árangur af þeim umræð- um, sem fram hafa farið um þetta mál síðustu ár og þá ekki sízt hér á vettvangi Morgunblaðsins. Ýmislegt bendir til þess, að hér gæti verið að skapast ný breið- fylking hluta sjávarúfvegsins, sjómanna og iðnaðarins um þetta efni. Er ekki tími til kominn fyr- ir forystumenn LÍÚ að athuga sinn gang? 43. SERSTAÐA Sorgar felst ekki endilega í h'k- ingamáli, ytra formi og fijálsri hrynjandi, heldur miklu fremur í skírskotunum og hvernig unnið er úr heimildum. Jó- hann yrkir Sorg með svipaðri að- ferð og Eliot Eyðilandið (pr. 1922). Það bendir til þess aðferð Eliots hafi ekki verið eins frumleg og af er látið. Hún hafi legið í loftinu á þeim tíma ef svo mætti að orði komast. Jóhann þekkti ekki skáld- skap Eliots, þótt augljóst sé hann hafi haft veður af því sem var efst á baugi í alþjóðlegri Ijóðagerð. Hvaðsem því líður er aðferð þeirra hin sama í Sorg og Eyðilandinu. Þeir nálgast yrkisefni sín með svip- uðum hætti. Kvæði Jóhanns vex úr biblíumáli og þangað éru skír- skotanir sóttar. Vei, vei, yfir hinni föllnu borg, vísar til Opinberunar- bókar Jóhannesar sem er augsýni- lega aðalheimild kvæðisins, ef svo mætti segja. Sjálf er hún full af táknum og líkingum og hið ósagða sagt undir rós, enda er hún skrifuð á ofsóknartímum. Og enginn skyldi ætla sér þá dul að hann geti skýrt hana til fulls. Sorg er ort á tímabilinu 1905- 1912, segir Hannes Pétursson og hefur eftir Sigurði Nordal það sé frá 1908-09. Eg tel kvæðið sé við- brögð við tilfinningalegu ofnæmi skáldsins sem veit að hveiju stefnir; heimsstyijöld og ragnarökum. Kvæðið er þannig einskonar fyrir- boði um þau átök sem í vændum eru; ógnvænlegur spádómur einsog Opinberunarbókin sjálf. Tómas Guðmundsson segir í samtölum HELGI spjall okkar í Svo kvað Tómas að ljóðlínumar /í dimmum brunnum vaka eitursnákar/og nóttin aumkvast yfir þínum rústum, „gefi örugglega til kynna, að kvæðið sé ort að lokum heims- styijaldar. Mér finnst ég skynja þennan styijaldarblæ, þessa feigð- arkennd ljóðsins", segir Tómas sem hefur ýmislegt við kvæðið að at- huga. En skáld geta að sjálfsögðu upplifað það ókomna - og raunar fjallar margt í ljóðlist um það. Án þess við krefjumst skýringa. Eða var ekki sagt Shelley hefði séð fyr- ir dauða sinn(?) 44 • KÓRALL OG BLÁR HIM- inn blöstu við áður en borgin féll einsog Sódóma forðum, eða Babýl- on. Eyðingu hennar er lýst í Opin- berunarbók Jóhannesar, 11,8 ög 18,10, Vitstola konur í gylltum, kerrum, menn í aktygjum og jó- reykur þyrlast til himna — alit á- þetta einhveijar fyrirmyndir í spá-. dómum Biblíunnar en þó einkum hvítir hestar og undirdjúpin í þriðja erindi kvæðisins sem einnig koma við sögu í Opinberun Jóhannesar, tilaðmynda 6,2. Þar segir, Og eg sá, og sjá: Hvítur hestur; og sá sem á honum sat hafði boga, og honum var fengin kóróna, og hann fór út sigrandi og til þess að sigra. Síðan er talað um rauðan hest sem var „gefíð vald að taka burt friðinn af jörðinni, svoað menn brytjuðu hveijir aðra niður, og honum var fengið sverð mikið“. Þá svartan hest og bleikan, „og sá er á honum sat, hann hét Dauði; og Hel var í för með honum, og þeim var gefið vald yfir fjórða hluta jarðarinnar, til þess að deyða með sverði og með hungri og með drepsótt og láta menn farast fyrir villidýrum jarðarinnar." í kvæði Tómasar Guð- mundssonar, Riddarinn blindi í Fljótinu helga, birtist þessi „bleiki jór“ Opinberunarbókarinnar og á honum fer blindur stríðsguðinn hel- för sína um jörðina og eyddar borg- ir og jörðin mun hvorki festa yndi „við fjöll. sín og kóralskóga“, en það er augljós skírskotun í Sorg. 45, • HVAÐSEM OÐRU LIÐUR gerðist allt sem lýst er í Sorg und- ir ævilok Jóhanns Siguijónssonar sem lézt úr spænsku veikinni, 1919. Menn voru deyddir og drepsótt heij- aði. Dauðinn réð ríkjum á jörðinni og Hel var í fylgd með honum. Loks varð sólin svört sem hæru- sekkur og tunglið rautt sem blóð. „Og stjömur himinsins hröpuðu nið- ur á jörðina, einsog fíkjutré, skekið af stormvindi, fellir vetraraldin sín. Og hiihinninn sviptist burt einsog bókfell, sem saman er vafið, og hvert fjall og ey færðist úr stað sínum. Og konungur jarðarinnar og gæðingamir og hersveitarforingj- arnir og auðmennirnir og maktar- mennirnir og hver þræll og þegn fálu sig í hellum og í hömrum fjalla. Og þeir Segja við fjöllin og hamr- ana: Hrynjið yfír oss, og felið oss fyrir ásjónu hans, sem í hásætinu situr og fyrir reiði lambsins; því að kominn er dagurinn, hinn mikli dagur reiði þeirra, og hver mun geta staðist?" Þannig lýkur þessum sjötta kafla Opinberunarbókar Jóhannesar. ......... (meira næsta sunnudag) SÍÐUSTU HUGMYNDIR ríkisstjórnar Davíðs Odds- sonar um aðgerðir í skattamálum til þess að tryggja framhald þeirra kjarasamninga, sem gerð- ir voru sl. vor, sýna svo ekki verður um villzt, að ríkisstjórnin er komin í réttan farveg. Hún tekur nú mikil- vægar og réttar ákvarðanir í hveiju stór- málinu á fætur öðru. Þetta er mikið fagn- aðarefni öllum þeim, sem bundu miklar vonir við nýtt viðreisnarsamstarf Sjálf- stæðisflokks og Alþýðuflokks. Hin póli- tísku viðhorf i landinu hafa gjörbreytzt á skömmum tíma. Þess vegna eru það mik- il vonbrigði, að niðurstaða fundar launa- nefndar ASÍ og VSÍ í dag, laugardag, skyldi verða sú, að endurnýja kjarasamn- inga á óbreyttum grunni frá því sem gert var ráð fyrir sl. vor í stað þess að taka hinum nýjum hugmyndum ríkis- stjórnarinnar opnum örmum. Morgunblaðið gagnrýndi mjög hlut rík- isstjórnarinnar í gerð síðustu kjarasamn- inga á þeirri forsendu, að það væru eng- in efni til að leggja fram svo mikla fjár- muni úr ríkissjóði til þess að greiða fyrir nýjum kjarasamningum. Þeir peningar væru einfaldlega ekki til. Kostnaðarauki ríkissjóðs vegna kjarasamninganna mundi leiða til aukinnar lánsfjárþarfar ríkis- valdsins og ýta undir hið háa raunvaxta- stig í landinu. Ljóst var, að þessi aðild ríkissljórnarinnar að gerð kjarasamning- anna var umdeild innan stjórnarinnar sjálfrar. Framlag ríkisstjórnarinnar til kjara- samninganna sl. vor var m.a. fólgið í fyrir- heiti um að lækka verulega virðisauka- skatt á matvælum, sem kosta mun ríkis- sjóð hátt á þriðja milljarð króna á árinu 1994 og nokkuð á fjórða milljarð á árinu 1995. Á móti ætlar ríkisstjórnin að afla nýrra tekna með umdeildum hætti, svo sem enn einni hækkun tekjuskatts, hækk- un bifreiðagjalda, tryggingagjalds, útgáfu heilsukorta, þótt hún virðist horfin frá því nú og með skatti á fjármagnstekjur. Þessi fyrirhugaða nýja skattheimta hefur valdið miklum deilum, eins og kunnugt er. Þegar þetta er skrifað um hádegisbil á laugardegi, hefur launanefnd ASÍ og VSÍ nýlokið fundi þar sem m.a. var fjall- að um nýjar hugmyndir, sem ríkisstjórnin hefur sett fram undanfarna daga til þess að standa við sinn þátt í kjarasamningun- um frá því sl. vor. í stórum dráttum byggðust þær á því, að falla frá lækkun virðisaukaskatts á matvælum og þá jafn- framt þeim hugmyndum um nýja skatt- heimtu, sem raktar voru hér að framan en í stað þess mundi ríkisstjórnin beita sér fyrir lækkun tekjuskatts með hækkun á skattleysismörkum og hækkun persónu- afsláttar eða öðrum aðgerðum í þágu launafólks. Sjálfsagt komu fleiri atriði hér við sögu. Ganga mátti út frá því sem vísu, að þessar hugmyndir mundu kosta ríkissjóð jafn mikla peninga og þær aðgerðir, sem gert var ráð fyrir við gerð kjarasamninga sl. vor og að því leyti til á sú gagnrýni, sem sett var fram sl. vor við um þessar hugmyndir líka. Hins vegar er ljóst, að I hinum nýju hugmyndum var fólgin mun einfaldari aðferð til þess að ná settum markmiðum en í þeim fyrirheitum, sem gefin voru sl. vor. Beinir skattar eru orðnir alltof háir. Sú aðgerð ein út af fyrir sig að lækka þá m.a. með hækkun skattleysismarka í stað þess að hækka þá enn hefði verið fagnaðarefni. Með lækkun beinna skatta er launþegum veitt frelsi til að ráðstafa fjármunum sínum á þann veg, sem þeim hentar. Ef launþegum væri sjálfum gefínn kostur á að velja um lækkun beinna skatta eða óbeinna skatta má telja víst, að yfírgnæfandi meirihluti fólks mundi velja þá leið að lsékka beina skatta bæði með hækkun skattleysismarka og hækk- un persónuafsláttar. ■ Með þeim aðgerðum til vaxtalækkun- ar, sem ríkisstjórnin hefur beitt sér fyrir og bersýnilegt er að bera munu skjótan árangur, er grundvöllur lagður að nýrri uppsveiflu í efnahags- og atvinnulífi. Lækkun beinna skatta til viðbótar umtals- verðri vaxtalækkun hefði einnig stuðlað að því sama. Fyrirtæki og heimili, sem eru mjög skuldsett, hefðu notað enn meiri fjármuni en vaxtalækkunin ein losar um til þess að lækka skuldir. Önnur fyrirtæki og heimili, sem hafa til þess svigrúm, auka fjárfestingar og að einhveiju leyti neyzlu. Hvoru tveggja stuðlar að auknum vexti í atvinnulífínu, auknum tekjum rík- issjóðs til þess að standa undir kostnaði við kjarasamningana og stórbættri af- komu bankanna, sem hafa lagt fyrir mikl- ar fjáthæðir í afskriftasjóði til að mæta töpuðum útlánum. Aukið bolmagn skuldu- nauta þeirra til þess að greiða skuldir sínar mundi stórbæta stöðu bankanna eins og t.d. hefur gerzt í Noregi. Þegar á heildina er litið voru rökin fyrir því að lækka beina skatta til viðbót- ar þeirri umtalsverðu vaxtalækkun, sem nú stefnir í, alveg augljós. BENEDIKT DAV- Hagsmunir launafólks íðsson, forseti Al- þýðusambands ís- lands, segir í sam- tali við Morgun- blaðið í dag, laugardag, að þær hugmynd- ir að falla frá lækkun virðisaukaskatts hafi litlar undirtektir fengið á fundi stóru samninganefndar ASÍ, sem og kom á daginn á fundi launanefndar fyrir hádegi í dag, laugardag. Hér hefðu trúnaðar- menn launþega átt að stöðva við og hugsa vel sinn gang. Hveijir eru hagsmunir launþega um þessar mundir? Mesta hagsmunamál launþega í land- inu er að atvinnuástand batni. Síðustu tölur um atvinnuleysi benda til þess að það sé að aukast á ný. Það þarf engum að koma á óvart. Atvinna eykst yfir sum- armánuðina en úr henni dregur yfir vetur- inn. Við erum nú að fara inn í erfiðasta vetur í manna minnum að því leyti til, að þorskveiðikvótinn hefur aldrei verið minni og það mun hafa sín áhrif á at- vinnu landsmanna næstu mánuði. Á móti kemur að vísu ýmislegt nýtt svo sem veiðar utan fiskveiðilögsögunnar. Þó er væntanlega ljóst, að lítið verður um veið- ar í Smugunni I vetur, þegar allra veðra er von. Gífurlega hátt raunvaxtastig hefur leg- ið eins og þungt farg á atvinnulífi lands- manna undanfarin misseri. Veruleg vaxtalækkun eins og nú stefnir í, mun losa mjög um atvinnulífið og eiga sinn þátt í því á næstu mánuðum að auka atvinnu. Þess vegna er það eitt mikilvæg- asta hagsmunamál launþega nú um stundir, að þannig vérði haldið á málum, að vaxtalækkun verði varanleg og ekki aðeins að tveggja prósentustiga vaxta- lækkun verði varanleg heldur einnig að raunvextir lækki enn frekar eins og for- sætisráðherra sagði í samtali við Morgun- blaðið fyrir tveimur vikum, að stefna bæri að. Hagsmunir launþega eru einnig fólgnir í því að efnahagslegur og pólitískur stöð- ugleiki haldist. Fyrirsjáanlegt er, að þau tekjuöflunaráform, sem ríkisstjórnin hef- ur viðrað til þess að fjármagna lækkun virðisaukaskatts, valda deilum, uppnámi og óánægju. Sú aðferð, sem ríkisstjórnin lagði til fyrir nokkrum dögum í því skyni að standa við fyrirheit sín frá því sl. vor við ,gerð kjarasamninga er ekki aðeins hugnanlegri heldur hefði hún stuðlað að stöðugleika í stað þess að hin fyrri aðferð getur ýtt undir óvissu í efnahags- og at- vinnulífi. Þar að auki hefði lækkun beinna skatta til viðbótar við vaxtalækkunina haft þau augljósu áhrif eins og áður sagði, að þau heimili, sem eru með miklar skuldir, og þau eru mörg, hefðu fengið meira ráðrúm til þess, að. greiða þær niður en önnur REYKJAVÍKURBREF Laugardagur 6. nóvember Morgunblaðið/Kristinn fengið tækifæri til aukins sparnaðar, nýrrar fjárfestingar eða aukinnar neyzlu. Þegar á heildina er litið hefði hagur laun- þega af því að treysta vaxtalækkunina í sessi og stuðla að enn frekari lækjcun raunvaxta svo og af lækkun beinna skatta og hækkun skattleysismarka verið svo augljós, að trúnaðarmenn launþegahreyf- ingarinnar hefðu átt að hugsa sig betur um áður en þeir höfnuðu þessum mögu- leika. Einn af helztu leiðtogum verkalýðs- hreyfingarinnar, Guðmundur J. Guð- mundsson, formaður Verkamannafélags- ins Dagsbrúnar, hefur að undanförnu haft uppi efasemdir um vaxtalækkunina og mælt með uppsögn kjarasamninga. Formaður Dagsbrúnar hefur átt þátt í gerð margra kjarasamninga á undanförn- um áratugum. Sumir þeirra hafa verið tímamótasamningar fyrir verkafólk í landinu. Því verður vart trúað, að þessi lífsreyndi verkalýðsleiðtogi sjái ekki við nánari skoðun þann augljósa hag, sem félagsmenn hans hefðu haft af lækkun beinna skatta til viðbótar víðtækri vaxta- lækkun. Guðmundur J. Guðmundsson getur að vísu bent á, að ríkisstjórninni hafí verið mislagðar hendur á undanförnum mánuð- um og misserum og það er rétt. Hann getur líka spurt, hvers vegna hann eigi að trúa því miðað við það, sem á undan er gengið, að nú séu breyttir tímar að þessu leyti. Svarið er, að verkin tala. Veruleg raunvaxtalækkun er að verða að veruleika og hefði enginn trúað því fyrr á þessu ári að til þess gæti komið svo snögglega. Lækkun beinna skatta í formi hækkunar skattleysismarka og hækkunar persónuafsláttar er svo áþreifanleg að- gerð að það getur ekki farið á milli mála, hvort við hana er staðið eða ekki. Einn helzti höfundur þjóðarsáttarsamninganna frá febrúar 1990 hefði nú getað átt aðild að nýrri þjóðarsátt ásamt nýjum forystu- mönnum verkalýðshreyfingarinnar á borð við Benedikt Davíðsson og Björn Grétar Sveinsson, sem í sjálfu sér hefði ekki síð- ur verið merkileg en sú, sem Guðmundur J., Einar Oddur og Ásmundur Stefánsson beittu sér fyrir haustið 1989 og veturinn 1990 og hefur gjörbreytt öllum viðhorfum í efnahagsmálum okkar íslendinga. En því miður þekktu þessir heiðursmenn ekki sinn vitjunartíma. Það er svo rétt, að matvælaverð á ís- landi er alltof hátt og þjóðin mun ekki una því öllu lengur, að það sé í mörgum tilvikum margfalt hærra en gerist með öðrum þjóðum. En er ekki tímabært, að menn reyni að átta sig á því hvers vegna það er? Eru innkaupin enn svona óhag- kvæm? Er álagning í matvöruverzlun margfalt meiri en gefið er í skyn? Er fákeppnin á því stigi, að neytendur beri enn skarðan hlut frá borði? Það er kom- inn tími til að skoða þetta ofan i kjölinn. Ríkisstjórn- in og ríkis- fjármálin ÞÓTT RÍKIS- stjórnin sé tví- mælalaust á réttri leið með þeim víð- tæku ráðstöfunum, sem hún hefur beitt sér fyrir í vaxtamálum, og þeim hugmynd- um, sem hún viðraði í skattamálum, þótt þær næðu ekki fram að ganga, má ekki gleyma því, að hennar hlutur liggur eftir varðandi niðurskurð ríkisútgjalda. Ekki skal úr því dregið að ríkisstjórnin hafí náð umtalsverðum árangri í ríkisfjármál- um og í því að hemja útgjöld hins opin- bera. En betur má ef duga skal. Veruleg raunvaxtalækkun verður ekki fest í sessi til frambúðar nema ríkisstjórn- in beiti sér fyrir nýju og umfangsmiklu átaki til niðurskurðar útgjalda í opinbera geiranum. Sóun íjármuna og eyðsla er enn mikil á þeim vígstöðvum. Þótt menn geti hugsað sér að fjármagna hallarekstur ríkissjóðs einhvern tíma með erlendum lántökum til þess að knýja fram vaxta- lækkun er alveg ljóst, að það getur ekki verið nema skammtímaaðgerð. Hið raun- verulega mein er umframeyðsla hins opin- bera. Breyttur tíðarandi hefur birzt með margvíslegum hætti á undanförnum mán- uðum. Allt í einu þykir sjálfsagt að fækka bankastjórum Seðlabanka um einn og jafnvel um tvo eftir aðstæðum. Allt í einu þykir sjálfsagt að setja þak á bílakaup opinberra aðila vegna æðstu ráðamanna. Margvísleg eyðsla af þessu tagi hefur verið yfirgengileg í opinbera geiranum og er enn. Almenningur krefst þess með sívaxandi þunga, að þessi eyðsla verði stöðvuð og gildir þá einu, hvort um er að ræða bílakaup, ferðakostnað, risnu eða annan slíkan kostnað. Með því að beita sama stranga aðhald- inu í rekstri hins opinbera eins og gert er í rekstri vel stæðra einkafyrirtækja er alveg ljóst að hægt er að skera umfram- eyðslu ríkissjóðs verulega niður. Fjár- málaráðherra hefur hins vegar staðið frammi fyrir þeim vanda, að fagráðherrar horfa á sitt þrönga svið. Ráðherrarnir allir standa frammi fyrir þeim vanda, að þingmennirnir horfa til fjárútláta í eigin kjördæmum. Ríkisstjórn og Alþingi standa frammi fyrir þeim vanda, að hver tilraun til sparnaðar sýnist kalla fram mótmæli þeirra þjóðfélagshópa, sem þær aðgerðir snerta. En þótt vandamálin séu mörg verður að taka á þeim. Ríkisstjórnin hefur fengið byr í seglin en velgengni hennar síðari hluta kjörtíma- bilsins mun fara mjög eftir því, hvernig hún stendur að stjórn ríkisfjármála næstu tvö árin. „Þegar á heildina er litið hefði hag- ur launþega af því að treysta vaxta- lækkunina í sessi og stuðla að enn frekari lækkun raunvaxta svo og af lækkun beinna skatta og hækkun skattleysismarka verið svo augljós, að trúnaðarmenn launþegahreyf- ingarinnar hefðu átt að hugsa sig betur um áður en þeir höfnuðu þessum mögu- leika.“ Ci +

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.