Morgunblaðið - 07.11.1993, Blaðsíða 44
FORGANGSPÓSTUR
UPPLÝSINGASÍMI 63 73 00
varða i
i
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
MORGVNBLAÐW, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, StMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040/ AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 7. NOVEMBER 1993
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK.
Hvalfjarðargöngin
Unnið
fyrir 500
millj. kr. á
næsta ári
FRAMKVÆMDIR við gerð jarð-
ganga undir Hvalfjörð gætu
kostað allt að 500 millj. kr. á
næsta ári samkvæmt því sem
fram kom í svari ríkisstjómar-
innar til launanefnda aðila vinnu-
markaðarins. Þar kom fram að
þótt enn sé margt óljóst um fram-
vindu málsins séu vemlegar von-
ir til þess að framkvæmdir við
gerð jarðganganna geti hafist á
næsta sumri.
I svari ríkisstjórnarinnar kemur
fram að hún hafi komið verulega
til móts við óskir framkvæmdaaðila
um atbeina ríkisins. Að sögn Gylfa
Þórðarsonar, stjórnarformanns
Spalar hf., verða útboðsgögn vegna
gerðar jarðganganna væntanlega
tilbúin í lok febrúar næstkomandi
og ættu framkvæmdir að geta haf-
jst síðla næsta sumars. Væntanleg-
ur verktaki mun íjármagna fram-
kvæmdirnar meðan á þeim stendur,
en að meðtöldum fjármagnskostn-
aði er gert ráð fyrir að kostnaður
við gerð ganganna verði um 3,6
milljarðar króna.
Launanefndin valdi lækkun virðisaukaskatts á matvælum
Kj arasamningamir
óbreyttir út næsta ár
LAUNANEFND ASÍ og vinnuveitenda telur að forsendur fyrir upp-
sögn kjarasamninga séu ekki fyrir hendi eftir aðgerðir ríkisstjórnar-
innar í vaxtamálum og yfirlýsingar hennar frá því í fyrradag um
framgang ýmissa atriða í aðgerðum sem stjórnin lofaði við gerð
samninganna. Samkvæmt því munu núgildandi kjarasamningar gilda
til loka ársins 1994. Launanefndin hafnar boði ríkisstjórnarinnar
um tekjuskattslækkun í stað lækkunar matarskatts. Virðisaukaskatt-
ur á matvælum verður því lækkaður um áramót eins og áformað var.
eftir langt samdráttarskeið," sagði
Magnús.'
Innlendum vörum til góða
Varðandi ákvörðun launanefndar-
innar um að halda sig við lækkun
virðisaukaskatts á matvælum sagði
Benedikt að vegna ummæla um að
hún leiddi einkum til lækkunar inn-
fluttra matvara hefði ASÍ gert ná-
kvæma athugun á áhrifunum. Niður-
staðan væri sú að um 80% mat- og
drykkjarvara teldist innlend fram-
leiðsla en 20% innfluttar vörur og
að lækkunin kæmi því einkum inn-
lendri framleiðslu til góða.
Seðlabanki og
viðskiptabankar
Mögnlegt
að telja
húsbréf
til lausa-
fjárkvaða
SAMKVÆMT upplýsingum
Morgunblaðsins hugðist
Seðlabankinn bjóða við-
skiptabönkum upp á það á
fundi í gær, að húsbréfaeign
bankanna yrði að hluta til,
eða öllu leyti talin til lausa-
fjár bankanna, á sama hátt
og spariskírteini ríkissjóðs.
Seðlabankinn mun hafa boð-
ið bönkunum í gær upp á
lækkun bindiskyldu, en ekki
afnám hennar.
Samkvæmt upplýsingum úr
Seðlabanka er yfirlýsingar bank-
ans að vænta um ný og breytt
starfskjör viðskiptabanka, lífeyris-
sjóða og verðbréfasjóða á morgun,
mánudag. Bankinn miðar við að
opna viðskipti á morgun kl. 9, þar
sem raunávöxtunarkrafan verði
5%. Það mun vera gengið út frá
því að sú verði ávöxtunarkrafan á
spariskirteinaútboði ríkissjóðs síð-
ar í vikunni, en að útboði húsbréfa
verði frestað um sinn.
Vaxtalækkun líkleg
Seðlabankinn fundaði síðdegis
í gær með stjórnendum viðskipta-
banka, verðbréfasjóða og lífeyris-
sjóða. Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins voru í gær taldar
góðar líkur á því að Seðlabankinn
kæmi það mikið til móts við kröf-
ur viðskiptabankanna um bætt
starfskjör viðskiptabanka í við-
skiptum við Seðlabanka, að þegar
eftir helgi myndu viðskiptabank-
arnir gefa út yfirlýsingu í þá veru
að ákveðið hefði verið að raun-
vaxtastig inn- og útlána bankanna
yrði lækkað um 2% næsta vaxta-
breytingadag, þann 11. nóvember
næstkomandi.
Forystumenn í Alþýðuflokki
telja stöðuveitingar skaða
JÓHANNA Sigurðardóttir félagsmálaráðherra, Össur Skarphéðins-
son umhverfisráðherra og Rannveig Guðmundsdóttir, formaður þing-
flokks Alþýðuflokksins, sögðu á flokksstjórnarfundi í gær að stöðu-
veitingar ráðherra og umræða um biðlaun og bílafríðindi hefðu
skaðað Alþýðuflokkinn.
Launanefndin lauk störfum um
hádegisbilið í gær, laugardag. I yfir-
■ lýsingu nefndarinnar segir að frá
gerð kjarasamninga hafi óhagstæð
þróun kaupmáttar valdið vonbrigðum
og vaxandi atvinnuleysi sé mikið
áhyggjuefni. Lækkun virðisauka-
skatts á matvæli um næstu áramót
muni þó létta byrðar heimilanna,
sérstaklega þeirra tekjulægri. Vaxta-
lækkun muni jafnframt bæta stöðu
heimila og fyrirtækja og stuðla að
bættu atvinnuástandi þegar fram í
sækti.
Brýnt að vaxtalækkun takist
—> Fram kemur það álit að vaxta-
lækkunin skapi skilyrði fyrir nýja
sókn í atvinnumálum og að brýnt sé
að koma í framkvæmd tillögum um
aðgerðir í atvinnumálum. Þá segir
að aðgerðir ríkisstjórnarinnar í
vaxtamálum og sá árangur sem
náðst hafi vegna þeirra undanfarið
sé vissulega mikill og í fullu sam-
ræmi við þær áherslur sem fram
hafi verið settar í tengslum við kjara-
samningana og séu forsenda þess
að þeir gildi áfram.
Benedikt Davíðsson, forseti Al-
þýðusambands íslands, sagði að full-
trúar ASÍ hefur miklar áhyggjur,
ekki síst vegna versnandi atvinnu-
ástands. „Við lítum hins vegar svo
á að svo brýnt sé að vaxtalækkunin
komi að fullu til framkvæmda og
atvinnan aukist, að við viljum mikið
á okkur leggja til að það megi tak-
ast. Við metum stöðuna svo að kjara-
samningarnir heimili ekki uppsögn
ef framkvæmd aðgerða ríkisstjórnar-
innar verður með þeim hætti sem
kveðið er á um í yfirlýsingu henn-
ar,“ sagði Benedikt.
Magnús Gunnarsson, formaður
Vinnuveitendasambandsins, lagði
áherslu á að nú sæu fyrirtækin í
fyrsta skipti í mörg ár fram á rúm-
lega eins árs timabil þar sem líkur
væru á friði á vinnumarkaðnum. Það
ætti að auka mönnum bjartsýni.
„Mér finnst mikilvægt að draga úr
bölmóðinum og að fyrirtækin líti nú
í eigin barm til að skoða hvað hægt
er að gera til að efla fyrirtækin og
atvinnulífið og þar með atvinnuna
Jóhanna sagði það ótvírætt að
stöðuveitingar í kjölfar ráðherra-
skipta Alþýðuflokksins í sumar
hefðu skaðað flokkinn. Guðmundur
Árni Stefánsson heilbrigðisráðherra
sagði því ekki að leyna að innanbúð-
arvandámál í forystu flokksins
hefðu ekki aukið honum styrk eða
traust.
„Við höfum látið Sjálfstæðis-
flokkinn flæða of mikið yfir okkur,
við höfum gefið of mikið eftir gagn-
vart honum, síðast varðandi Þróun-
arsjóðinn þegar brotið var loforð frá
í sumar og látið átölulaust. Við
þurfum að taka harðar á flokknum
og til að mynda tel ég að það sé
úrslitaatriði að við gefum ekki eftir
varðandi okkar prinsip í krókaveið-
um,“ sagði Ossur Skarphéðinsson.
Ágreiningur um niðurskurð
í máli Jóns Baldvins Hannibals-
sonar formanns flokksins kom fram
að hann og fjármálaráðherra
myndu koma með tillögur um við-
bótarniðurskurð í rekstri og til-
færslum og um skattlagningu pen-
ingalegra eigna til að styrkja fjár-
lagafrumvarpið um 2-3 milljarða
sem hann sagði mjög nauðsynlegt
en um þetta stæði pólitískur ágrein-
ingur. Guðmundur Árni sagði ekki
hægt að ætlast til að hægt verði
að ná fjárlagahallanum niður fyrir
10 milljarða miðað við ástandið í
dag með frekari niðurskurði og
Jóhanna Sigurðardóttir sagði að
ekki yrði gengið lengra í viðkvæm-
um málaflokkum og ef ráðist yrði
í frekari niðurskurð myndi það setja
kjarasamninga í uppnám.