Morgunblaðið - 07.11.1993, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 07.11.1993, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1993 Bakkar 2ja - laus Nýstandsett 2ja herb. íbúð á 1. hæð á góðum stað í Bökkunum á hægstæðu verði. Hagstætt fyrir húsbréf með 5% vöxtum. Raðhús - Mosfellsbæ Fallegt endatimburraðhús, 94 fm, með 30 fm bílskúr. 3 svefnh. Parket. Suðurgarður. Skipti möguleg á 2ja eða 3ja herb. íb. á Reykjavíkursvæðinu. Sæberg Þórðarson, löggiltur fasteigna- og skipasali, Skúlatúni 8, s. 625530. Einstakt tækifæri Hvannarimi 6, Grafarvogi Lækkað verð Til sölu vesturendinn í þessu vel staðsetta húsi við lok- aða götu. Húsið er 145 fm ásamt 23 fm bílsk. (3-4 herb.). Til afh. nú þegar, fokhelt að innan og fullbúið að utan. Ath.: Ýmis skipti, sveigjanleg greiðslukjör. Verð nú aðeins kr. 7,8 millj. Áhv. húsbréf kr. 4,0 millj. Fasteignasalan KjörBýli Nýbýlavegi 14, Kópavogi, sími 641400. Minning Helga Helgadóttir Leiðtogi er fallinn. Andlegur leið- togi fjölskyldunnar, sverð hennar og skjöidur, hefur verið kallaður til æðri skylduverka í betri heimi. Ef að líkum lætur munu frískir vindar visku og kærleika blása þar efra við komu ömmu minnar. fjölskyldutréð sem ég ólst upp í hefur verið fallegt og fjölskrúðugt þar sem það skiptist á glæsilegan hátt upp í greinar og laufblöð. Stofn þessa trés var það sterkur að honum tókst alla tíð að halda greinunum saman þótt harðir vindar blésu. Þessi trausti stofn sem hélt trénu uppi og gerði það þess virði að standa stolt er fallinn. Það eina sem getur bjargað greinunum frá því að tvístrast hver í sína átt er minningin um hinn trausta stofn mannkærleikans sem stóð sínar skyldur og gott betur. Ég örvænti ekki um afdrif hinna grónu greina því að hinn stolti stofn skilaði sínum boðum á ákveðinn og öruggan hátt og ruddi braut fyrir dyggðugt líf. Elsku amma okkar er látin, og við elstu bamabömin erum hér saman komin til að minnast hennar og votta henni virðingu okkar. Amma hafði mikil áhrif á okkur og á stóran þátt í mótun okkar allra sem sést í okkar daglegu athöfnum. I gömlu Gróðrarstöðinni eru okkar innilegustu minningar um hana. Þar vorum við sjálfstæðar persónur, fengum að gera allt sem okkur lysti án þess að vera skömmuð. Orðið að skamma var ekki til hjá ömmu. í stað þess að skamma leiðbeindi hún okkur á þann máta að við reyndum að bæta okkur og gera svo að henni líkaði. Amma hafði um stórt heimili að hugsa. Gróðrarstöðin var í raun sam- komustaður, vinir ömmu og afa sóttu þangað mikið og öll ljölskyldan hitt- ist þar til að rabba saman og enginn fór þaðan án þess að fá kaffi og með því. Þótt amma hafí stjómað þessu heimili af miklum skörungsskap hafði hún um margt annað að hugsa. í kjallaranum var blómabúð og þegar bjallan hringdi tiplaði hún niður í kjallara og afgreiddi fallegustu blóm- vendi í heimi. Uppi á lofti var svo saumastofan og eyddi amma mörg- um stundum við saumavélina þar sem hún saumaði m.a. kjóla. Eitt var þó vandamál í Gróðrar- stöðinni. Af og til komu þangað úti- gangsmenn og lögðust fyrir í gróður- húsunum yfir nóttina. Amma úthýsti þeim ekki heldur sendi okkur með vatnssopa til þeirra í morgunsárið. Fyrir okkur var Gróðrarstöðin heill ævintýraheimur. Þar fór maður marga leiðangra um öll húsakynnin, upp á norðurloft, inn í Siggu-her- bergi, niður í blómabúð, inn á teikni- stofu, upp í saumastofu, undir þak- skegg, niður í dimma kjallara, út í gróðurhús og um garðinn allan, sem var eins og skógur í okkar augum, þar sem klifrað vat- upp í tré, skriðið var á bak við runna og farið hingað og þangað. Amma var mikil hefðardama og hafði margar fastmótaðar skoðanir, t.d. í matargerð og borðhaldi, og þó Einbýli - verslunarhús Til sölu gott 117 fm timburhús á góðum stað í Hvera- gerði. Gróinn garður. Sundlaug. Bílskýli. Verð 7,2 millj. Einnig 110 fm verkstæðis- og verslunarhús. Verð 4,5 millj. Upplýsingar í síma 98-78387, fax 98-78367. „Suður - Mjódd“ Nú hafa þjónustuíbúðir í S-Mjódd forndega verið afhentar kaupendum, og verklegum framkvæmdum lokið. FÓLK 60 ÁRA OG ELDRA! Enn eru eftir óseldar örfáar íbúðir. Sýning verður fyrir væntanlega kaupendur sunnudaginn 6. nóv. kl. 14-16. TIL HAMIl „FERIÐ VELKOMIN64 BYGGð BYGGINGAFELAG G Y L F A S GUNHABS BORGARTÚNI 31, SÍMI 622991 FÉIAG ELDEI BORGARA BORGARTÚNI 31, SÍMI 621477 (<5^, FASTEIGNA ILII MARKAÐURINN [ ' J Óðinsgötu 4 11 11540 - 21700 11540 Óðinsgötu 4, símar 11540 - 21700 Jón Guðmundsson, sölustj., lögg. fasteigna- og skipasali, Ólafur Stefánsson, viðskiptafr., lögg. fasteignasali. Einbýlis- og raðhús Goöaland. Glæsil. 205 fm einl. raöh. sem er allt nýl. tekið í gegn. Saml. stof- ur, 4-5 svefnh. Parket. Vönduð eign. Boöahlein - eldri borgar- ar. 85 fm einl. raöh. í tengslum viö þjónustustað í Hafnarf. Laust. Lykiar. Góöir grskilm. Eignask. mögul. Sæbólsbraut. Vandað 250 fm nýl. raöh. Sórsm. innr. Innb. bílsk. Eign í sérfl. MÓaflÖt.Glæsif. 190 fm einl. raðh. m. lítilli einstaklíb. 75 fm bílsk. Brattatunga. Endum. tvíl. tengih. Innb. bílsk. Eignask. mögul. Verð 14,5 m. 4ra, 5 og 6 Reynimelur. Skemmtil. 143 fm efri hæð í 5 ib. húsi. Tvennar svalir. Mikiö endurn. eign. Áhv. 6,8 milij. húsbr. Þinghóisbraut. Glæsil. izo fm efri sérh. i tvíbhúsi. ib. er öll nýl. stands. Bílsk. Ahv. 5,3 mlllj. húsbr. og byggsj. Tjarnarból. Falleg 115 fm Ib. á 1. hæð. 3 svefnh. Verð 8,2 millj. Espigerði. Falleg 100 fm íb. á 1. hæð. 3 svefnh. Laus strax. 3ja herb. Óðinsgata. Falleg 90 fm íb. á 1. hæð ásamt góðú rými i kj. Ib. er ný- stands. Ahv. 4,5 millj. byggsj. rfk. Dalsel. Falleg 90 fm íb. á jaröh. Ahv. 3,2 mlllj. byggsj. Góð grkj. Miðvangur. Góö 95 fm ib. á 2. hæö. 2 svefnh. Suðursv. Verð 7,4 millj. Hellisgata. Endurn. 70 fm íb. á jaröh. 2 svefnh. Verð 5,3 millj. Sólvallagata. 85 fm ib. á 2. hæö. Ahv. 5,2 mlllj. byggsj. o.fl. Laus. Óðinsgata. Góð75fmfb. ájarðh. Áhv. 2,8 m. húsbr. o.fl. Verö 8,0 mlllj. 2ja herb. Staðarhvammur. Vor- um að fá i sölu glæsil. 82 fm ib. á 2. hæð. Stór stofa, sólskáll. Vandaðar innr. Parket og marm- ari. Þvottah. t fb. 28 fm bílsk. Víkurás. Falleg 60 fm fb. á 2. hæð. Laus. Ahv. 1,7 millj. byggsj. Verð 4,9 m. Tjarnarmýri. Ný fullb. 55 fm íb. á 1. hæð með sérgaröi. Stæði í bílsk. Verð 6,5 millj. að annað fólk notaði einnota servíett- ur kom aldrei annað til greina en straujaðar munnþurrkur í silfur- hringjum og viðeigandi borðbúnaður fyrir hvern rétt. Þrátt fyrir mikla nákvæmni í hús- haldi leyfði hún sér að vera amma okkar. Hún gaf okkur reglulega app- elsínur sem hún hafði troðið sykur- mola ofan í og sendi okkur út í garð með sykurkar til að ná í rabarbara til að dýfa í. Það bragðaðist eins og besta sælgæti. Amma var mikil stemmnings- manneskja og voru aliar hátíðir í heiðri hafðar og í öllu tilstandinu passaði hún sig á því að við tækjum virkan þátt í öllu saman og fengum við á tilfinninguna að við værum aðal númerið. A bolludaginn passaði hún sig á því að vera sofandi þangað til allir krakkamir höfðu bollað hana og fengu svo allir bollur í réttu hlutfalli við afköstin um morguninn. Amma lifði tímana tvenna, allt frá lýsislömpum til nútímaþæginda og lagaði sig að aðstæðum hveiju sinni. Þegar hún fluttist úr Gróðrarstöðinni í Keldulandið tók hún sitt gamla heimili með sér og skapaði gömlu góðu stemmninguna á nýjum stað, með bókum, blómum og tilheyrandi. Amma var mjög fróð um alla hluti og fórum við oft til hennar að læra, þá sérstaklega dönsku og ljóð. Amma kunni dönsku betur en flestir og sér- fræðingur var hún í ljóðum. Þegar barnabamabömin fóm að koma í heiminn var vel tekið á móti þeim hjá ömmu. Þá tók maður eftir því að amma vildi strax að hugmynd- ir bamanna réðu ríkjum og leyfði þeim að dröslast með hjólastólinn og göngugrindina eins og ekkert væri sjálfsagðara. Síðustu árin hafa verið ömmu erf- ið vegna veikinda. í gegnum þá erfíð- leika fór hún með mikilli reisn og hélt tign sinni til síðasta dags. Elsku amma, þú hefur gefið okkur þann samnefnara sem gerir okkur að hóp. Minningin um þig er sú taug sem mun haida okkur saman í fram- tíðinni. Heilræði þín munu Iifa með okkur alla ævi. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Eiríkur A.( Helga, Ingólfur, Orn, Sveinn, Eiríkur E. og Gunnar. Hún amma mín var engin „venju- leg kona“, hún var alveg „spes“ eins og mín kynslóð mundi orða það. Þetta vita allir sem hana þekktu. Hún hafði óhrif á samferðamenn sína með einstökum léttleika, bjartsýni, víðfeðmum fróðleik og einlægri hreinskilni. Hún hafði einstakt lund- arfar og átti auðvelt með að fá menn til að brosa breiðar. Ég dáðist svo að því hvernig henni tókst að gera hversdagslega • hluti að hátíðlegum atburðum, og er það því engin furða að við frænkurnar sóttumst eftir að heimsækja ömmu þar sem hvers- dagsleikanum var snúið upp í and- stæðu sína og allt varð svo spenn- andi. Ég var nú ekki há í loftinu þegar ég fór að virða ömmu og dá, það þurfti ekki mikinn þroska til að skilja hversu einstakur persónuleiki hún var. Amma hafði vissulega skoðanir á hlutunum og hikaði ekki við að iáta þær í ljós og átti það til að koma með hreinskilnar athugasemdir, á þann hátt að þær særðu ekki, en maður hafði gott af. Elsku amma, þakka þér fyrir sam- verustundir okkar sem voru margar og skemmtilegar, en þó fyrst og fremst lærdómsríkar. Við höfðum alltaf eitthvað fyrir stafni, við spiluð- um, lásum ljóð eða töluðum saman. Sérstaklega hafði ég gaman af því þegar þú sagðir mér frá æskuárun- um, uppvaxtarárunum á ísafirði og kvennaskólaárunum þar sem þú og „hinar stelpurnar“ brölluðuð ýmis- legt saman og fóruð uppstrílaðar í glæsilegum kjólum á böll með menntaskólastrákunum. Einnig er mér minnisstæð hin ævintýralega sigling þín á suðlægar slóðir árið 1926 sem þú sagðir mér svo oft frá, þar sem þú syntir í sjónum á Costa del Sol löngu áður en fyrsta hótelið var reist þar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.