Morgunblaðið - 07.11.1993, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 07.11.1993, Qupperneq 31
fRftirgititlritaMb ATVINNU ,/RAÐ- OG SMÁAUGLÝSINGAR I I ! I - I l- ATVINNU U A ■! YSINGAR Framkvæmdastjóri Stór félagasamtök með aðsetur í Reykjavík óska eftir dugmiklum framkvæmdastjóra. Æskilegt er að hann geti hafið störf um ára- mót. Krefjandi starf. Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl. fyrir 20. nóvember nk., merktar: „Jarðýta með eldmóð." Afgreiðslustarf Hagkaup óskar eftir að ráða starfsmann til afgreiðslustarfa í dömudeild í verslun fyrir- tækisins í Kjörgarði, Laugavegi 59. Starfið er heilsdagsstarf. Æskilegt er að umsækjendur séu ekki yngri en 25 ára. Nánari upplýsingar um starfið veitir verslun- arstjóri á staðnum (ekki í síma). HAGKAUP .:4- ST. JÓSEFSSPlTALI LANDAKOTI Hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa nú þeg- ar við hjúkrun aldraðra í Hafnarbúðum. Lítil og heimilisleg deild. Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Jóna Her- mannsdóttir, hjúkrunarstjóri, s. 604300. VERSL UNARSTJÓRI Óskunt eftir að ráða verslunarstjóra til starfa hjá KASK, Djúpavogi. Áhugavert og krefjandi starf í nýlegri verslun. Starfssvið: Dagleg stjórnunar- og afgreiðslu- störf. Innkaup og birgðahald. Rekstrar- og kostnaðareftirlit. Við leitum að manni með reynslu af verslunar- stjórn. Viðkomandi þarf að hafa frumkvæði, geta starfað sjálfstætt og skipulagt störf annarra. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf, merktar: „Verslunarstjóri 294“, fyrir 13. nóvember nk. Hagvangur h f Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir Dagvistardeild Akureyrarbæjar Laus er til umsóknar staða hverfisfóstru frá 1. desember 1993. Óskað er eftir starfs- manni með fóstrumenntun og staðgóða reynslu af leikskólastarfi. Hverfisfóstra hefur yfirsýn yfir og annast uppeldislega ráðgjöf varðandi alla þætti dag- vistunar barna á vegum Akureyrarbæjar. Hún annast faglega og stjórnunarlega ráðgjöf á leikskólum og skóladagheimilum, lögboðið eftirlit og leyfisveitingar handa dagmæðrum og er forstöðumaður gæsluvalla. Nánari upp- lýsingar um starfssvið og megin verkefni gefur deildarstjóri dagvistardeildar í síma 96-24600. Laun eru skv. kjarasamningi STAK og Akur- eyrarbæjar eða Launanefndar sveitarfélaga og Fóstrufélag íslands. Nánari upplýsingar um kaup og kjör gefur starfsmannastjóri í síma 96-21000. Umsóknareyðublöð fást á starfsmannadeild Akureyrarbæjar á Geislagötu 9. Umsóknarfrestur er til 12. nóvember 1993. Starfsmannastjóri. Hveragerðisbær Iðngarðar Hveragerðisbær leitar eftir samstarfsaðilum um stofnun iðngarða í Hveragerði. Vegna áforma bæjarstjórnar um að gera bæinn að heilsubæ má atvinnustarfsemi ekki hafa mengandi áhrif á umhverfi. Bæjarfélagið vill kanna áhuga viðkomandi á svokölluðu fyrir- tækjaneti um stoðþjónustu, t.d. bókhald, inn- heimtu, símsvörun, markaðsstarfsemi o.fl. Þátttaka í slíku neti er ekki skilyrði. Bæjarfélagið býður milligöngu leigusala og leigutaka iðnaðarhúsnæðis um hagstæð leigukjör. Veitustofnanir Hveragerðis bjóða ennfremur endurgjaldslausa hitaorku til iðnaðarnota samkvæmt nánara samkomulagi. Jarðgufa er allt að 160 gr. C heit. Greiða skal fyrir orku til húshitunar en nýjum atvinnuskapandi fyrirtækjum, sem hefja starfsemi í Hvera- gerði, er boðið upp á endurgjaldslausa hita- orku til húshitunar fyrstu sex mánuðina. Hveragerði er vel í sveit sett varðandi sam- göngur við höfuðborgarsvæðið og Suður- landsundirlendið sem og hafnaraðstöðu í Þorlákshöfn. Þeir, sem áhuga kynnu að hafa, eru beðnir um að senda skriflega umsókn til bæjar- stjórnar fyrir 20. nóvember nk. Nánari upplýsingar veita bæjarskrifstofur í Hveragerði, Hverahlíð 24, 810 Hveragerði. Sími 98-34150. Nordisk IndustrHbnd Nordisk Industrifond er ein þeirra stofnana sem heyra undir Norrænu ráðherranefndina. Markmið sjóðsins er að örva tækniþróun og nýsköp- un í norrænu atvinnulifi. Þetta er gert með þvi að koma af stað og jjármagna norræn rannsókna- og þróunarverkefni í atvinnulífinu. Sjóðurinn hefur yfir að ráða u.þ.b. 100 MNOK árið 1993. Sjóðurinn vinnur náið með þeim aðilum sem fjármagna rannsókna- og þróunar- verkefni á Norðurlöndunum. Norræni iðnaðarsjóðurinn hefur aðsetur sitt í Ósló. Starfsfólk sjóðsins er frá Norðurlöndunum fimm. FORSTJÓRI Ráðningartímabil núverandi forstjóra rennur út á næsta ári. Því er leitað að nýjum for- stjóra sem ber ábyrgð á daglegri starfsemi sjóðsins. Forstjórinn er ábyrgur gagnvart stjórn sjóðsins, en þar sitja tveir fulltrúar frá hverju Norðurlandanna. Forstjórinn á að vera norrænn ríkisborgari. Æskilegt er að hann hafi starfsreynslu úr iðnaði og/eða þekkingu á rannsókna- og þróunarstarfí. Umsækjandi þarf að vera hug- myndaríkur og hafa góða samvinnuhæfileika. Boðið er upp á krefjandi og áhugavert starf sem felur í sér mikil samskipti við iðnfyrirtæki, rannsóknaumhverfið og aðila, er veita fjármagni til rannsókna á öllum Norðurlöndunum. Nýi forstjórinn verður ráðinn í fjögur ár með möguleika á framlengingu um fjögur ár, þ.e. hámark 8 ár. Laun samkvæmt samkomulagi. Sérstakur kaupauki er veittur ef forstjór- inn flytur frá öðru norrænu Iandi. Nánari upplýsingar veitir annar fulltrúa íslendinga í stjórninni, Hallgrímur Jónasson, forstjóri Iðntæknistofnunar íslands, sími 68 7000, eða núverandi forstióri, Per Gielsvik, sími 90 47 2241 6480. Umsóknir á dönsku, norsku eða sænsku með upplýsingum um nám og fyrri störf og æskileg launakjör, sendist til Nordisk Industrifond, Nedre Vollgt. 8, N-0158 Ósló, Noregi, fyrir 22. nóvember 1993. NORDISK INDUSTRIFOND

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.