Morgunblaðið - 07.11.1993, Síða 32

Morgunblaðið - 07.11.1993, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ ATVIIMiMA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1993 ATVIN N U A UGL YSINGA R „Au pair“ - Þýskaland Þýsk hjón með ársgamalt barn óska eftir „au pair“ frá 1. janúar 1994. Upplýsingar í síma 9049 9560 8331 (Unnur). Management Strategy & Search Framleiðslustjóri Fyrirtæki með alþjóðieg umsvif innan fiskiðn- aðar óskar eftir að ráða framleiðslustjóra. Fyrirtækið sem starfar innan fiskiðnaðar óskar eftir manni í stöðu framleiðslustjóra í eitt fyrir- tækja sinna. Fyrirtækið sem um ræðir er í Danmörku og starfa þar um 600 manns. Fram- leiðsluvörurnar eru fjölbreyttar, m.a. frystar vörur, reyktar og niðursoðnar. Framleiðslu- stjórinn ber ábyrgð á allri framleiðslunni. Óskað er eftir starfsmanni á aldrinum 35-45 ára með háskólamenntun tengdri fiskiðnaði og reynslu í stjórnunarstörfum. Kunnátta í Norðurlandamáli nauðsynleg. Nánari upplýsingar veitir: Ejvind Skov, Management Strategy & Search, Bjergevej 17A, DK-5600 Fáborg, Danmörk. Sími: 90 45 62 61 75 75, bréfasími: 90 45 6261 95 75. SVÆÐISSKRIFSTOFA MÁLEFNA FATLAÐRA VESTFJÖRÐUM Komdu vestur! Þroskaþjálfar!! Þvf ekki að breyta til og reyna sig á nýjum vettvangi? Svæðisskrifstofa óskar eftir að ráða þroskaþjálfa í eftirtalin störf: Reykhólar Á vegum Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, Vestfjörðum, er nýbúið að opna skrifstofu á Reykhólum. Starfssvið skrifstofunnar er að sinna stuðn- ingi og ráðgjöf við fatlað fólk í Austur-Barða- strandarsýslu. Mikil áhersla er lögð á samvinnu við sveitar- félagið og húsnæði er þegar til staðar fyrir væntanlegan starfsmann. Reykhólar eru í 280 km fjarlægð frá Reykja- vík. í Reykhólahreppi búa 370 manns en helsti þéttbýliskjarninn er á Reykhólum. Þar er öll nauðsynleg þjónusta, s.s. verslanir, skóli, leikskóli, heilsugæsla o.fl. Svæðið er kjörið til útivistar og þar er t.d. að finna eina bestu sundlaug landsins. Umsóknarfrestur er til 1. desember 1993. Nánari upplýsingar gefa Laufey Jónsdóttir framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu í síma 94-5224 og Bjarni P. Magnússon sveitar- stjóri Reykhólahrepps í síma 93-47880. ísafjörður Á ísafirði er vistheimilið Bræðratunga. Þar búa 7 manns ásamt því að þar er rekin skammtímavistun og dagvistun. Mikil vinna er lögð í það að gera breytingar á starfsem- inni í tengslum við breyttar áherslur í þjón- ustu við fatlað fólk. Við leitum að þroskaþjálfa sem er tilbúinn til að vinna í samræmi við markmið stofnun- arinnar. Við bjóðum á móti skernmtilegt starfs-umhverfi, góðan starfsanda, góðan stuðning og upplýsingastreymi. Umsóknarfrestur er til 1. desember 1993. Allar nánari upplýsingar gefa Laufey Jóns- dóttir framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu í síma 94-5224 og Erna Guðmundsdóttir for- stöðukona í síma 94-3290. FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á ÍSAFIRÐI Hjúkrunarfræðingar -gulliðtækifæri Hjúkrunarfræðingar óskast nú þegar eða eftir nánara samkomulagi á 30 rúma bland- aða legudeild. Afbragðs vinnuaðstaða. Sláið á þráðinn og kannið kjörin. Nánari upplýsingar veita hjúkrunarforstjóri, Hörður Högnason (hs. 94-4228), og deildar- stjóri, Rannveig Björnsdóttir (hs. 94-4513), í síma sjúkrahússins á dagvinnutíma, 94-4500. Framkvæmdastjóri Staða framkvæmdastjóra Náttúruverndar- ráðs er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 26. nóvember 1993. Umsóknir sem greini frá starfsferli og mennt- un óskast sendar formanni Náttúruverndar- ráðs, Hlemmi 3, pósthólf 5324,125 Reykjavík. Náttúruverndarráð. Leikskólar Reykjavíkurborgar Fóstrur eða fólk með uppeldismenntun óskast til starfa á neðangreinda leikskóla: Leikgarður v/Eggertsgötu, s. 19619. Ægisborg v/Ægissíðu, s. 14810. Eingöngu í 50% starf e.h. á leikskólana: Álftaborg v/Safamýri, s. 812488. Grandaborg v/Boðagranda, s. 621855. Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leikskólastjórar. Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277. Vísindaráð - Rannsóknaráð rfkisins Alþjóðafulltrúi Vísindaráð og Rannsóknaráð ríkisins vilja ráða sameiginlegan starfsmann tímabundið til eins árs í stöðu alþjóðafulltrúa. ( starfinu felst m.a. eftirfarandi: ★ Umsjón með miðlun upplýsinga til inn- lendra aðila um áætlanir Evrópubanda- lagsins á sviði rannsókna og tækniþró- unar og um aðra alþjóðasamvinnu á sviði rannsókna. ★ Aðstoð við fulltrúa í stjórnarnefndum Rammaáætlunar Evrópubandalagsins um rannsóknir og tækniþróun. ★ Þátttaka í norrænum samráðsnefndum umframkvæmd rannsóknaáætlana EB. ★ Umsjón með útgáfu sameiginlegs frétta- bréfs ráðanna, svo og annars upplýs- ingaefnis sem varðar starfsemi þeirra. Krafist er háskólamenntunar á sviði vísinda eða tækni, kunnáttu í ensku og einu Norður- landamáli, svo og góðrar ritfærni á íslensku. Æskilegt væri að umsækjandi hefði reynslu af notkun tölvu til ritvinnslu og til gagnamiðl- unar og jafnframt að hann þekkti nokkuð til rannsóknastarfsemi á íslandi. Um launakjör fer eftir reglurh um störf opin- berra starfsmanna. Frekari upplýsingar veita framkvæmdastjórar ráðanna. Umsóknir, með upplýsingum um menntun, reynslu og fyrri störf, sendist Rannsóknaráði ríkisins, Laugavegi 13, eða Vísindaráði, Báru- götu 3, fyrir 15. nóvember nk. Framtíðarstarf Við óskum eftir að ráða starfskraft í þjónustu- deild okkar. Starfssvið er almenn skrifstofuvinna í þjón- ustudeild, þ.á m. utanumhald viðhaldssamn- inga og verkbeiðna ásamt símavörslu. Hér er um spennandi framtíðarstarf að ræða hjá traustu fyrirtæki. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi góða samstarfshæfileika og góða almenna tölvu- kunnáttu (ritvinnsla/töflureiknir). Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til okkar fyrir 15. nóvember nk. HP á Islandi hf., Höfðabakka 9, 112 Reykjavík. fBORGARSPÍTAIINN Hjúkrunarfræðingar Á öldrunardeild B-5 er laus 60% staða hjúkr- unarfræðings á næturvaktirfrá 1. desember nk. Á Borgarspítalanum vinnur stór hópur hjúkr- unarfræðinga sem leggur metnað í að veita sjúklingum sem besta hjúkrun. Mikið er lagt upp úr góðri samvinnu, tækifærum til sí- menntunar og þróun hjúkrunar. Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarfram- kvæmdastjóri starfsmannaþjónustu í síma 696356. Læknafulltrúi - geðdeild Læknafulltrúi óskast til starfa við geðdeild. Um fullt starf er að ræða. Upplýsingar um starfið gefur Gerður Helga- dóttir, deildarstjóri, í síma 696301 milli kl. 9 og 11 f.h. Innkaupa- og sölu- stjóri Fyrirtækið er öflugt og rótgróið innflutnings- og smásölufyrirtæki með aðsetur í Reykjavík. Starfið felst í stjórn á innkaupum, markaðs- og sölumálum. Einnig samskiptum við er- lenda aðila og áætlanagerð ásamt umsjón með starfsmanna- og skrifstofuhaldi tengdu innflutningi og sölu. Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu við- skiptamenntaðir og hafi víðtæka reynslu af heildsölurekstri. Starfið krefst þess að við- komandi sé ákveðinn og röggsamur. Góð enskukunnátta skilyrði. Umsóknarfrestur er til og með 10. nóvem- ber nk. Tekið er á móti umsóknum á skrifstofunni, sem opin er frá kl. 9-15. Afleysinga- og ráðningaþjónusta Lidsauki hf. W Skólavörðustig ta - 101 Reykjavlk - Simi 621355 Tæknimaður Þekkt þjónustfyrirtæki óskar að ráða tækni- mann. Starfið felst í uppsetningu, ráðgjöf og þjón- ustu vegna iðnstýritækja/iðnstýritölva ásamt tengdum verkefnum. Óskað er eftir iðnfræðingi, tæknifræðingi eða verkfræðingi sem einnig hefur menntun og starfsreynslu af rafvirkjastörfum. Viðkomandi þarf að þekkja PC umhverfið. Við leitum að aðila sem hefur gaman að fást við krefjandi verkefni og vinna sjálf- stætt. Nánari upplýsingar veitirTorfi Markússon frá kl. 9-12 í síma 679595. Vinsamlegast sendið umsóknir til Ráðgarðs á eyðublöðum, er þar liggja frammi, merkt- ar: „Tæknimaður", fyrir 13. nóvember nk. RÁÐGAFÐURhf. STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF NÓATÚN 17 105 REYKJAVÍK SÍMI686688

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.