Morgunblaðið - 30.01.1994, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 30.01.1994, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ ATVIl\ll\lA/RAÐ/SMA 'SUNNUÐAGU'R 30. JANÚAR 1994 45 Tíð yfirmannaskipti í gæsluliði SÞ á Balkanskaga Franski hershöfðinginn Jean Cot, umdeildur yfírmaður 26.000 manna friðargæsluliðs Sameinuðu þjóðanna í fyrrver- andi Júgóslavíu (UNPROFOR), verður kallaður heim í mars, fjórum mánuðum áður en starfs- tíma hans átti að ljúka vegna ósamkomulags við fram- kvæmdastjóra SÞ, Boutros Bo- utros-Ghali, um stefnuna í Bosn- íu. Boutros-Ghali krafðist brott- vikningar Cots þegar hann hitti Francois Mitterrand forseta í París 8. janúar. Þá hafði Cot opinberlega gagnrýnt Boutros-Ghali fyrir að neita að veita sér heimild til að fyrirskipa loftárásir á stöðvar Bos- níu-Serba. Cot taldi sig þurfa slíka heimild þegar árásir væru gerðar á gæsluliða og hefur lagt til að kannað verði hvort gæslusveitir SÞ skuli hefja sókn gegn skæru- liðasveitum stríðsaðila. A leiðtoga- fundi NATO í Brussel fyrir skömmu var Bosníu-Serbum enn hótað loftárásum ef þeir skiptu sér af aðgerðum SÞ á jörðu niðri, en engar loftárásir hafa verið gerðar. Æ fleiri yfirmenn hafa hætt störfum í gæsluliðinu í fyrrverandi Júgóslavíu vegna óánægju með gætna stefnu framkvæmdarstjórn- ar SÞ í stríðinu í Bosníu. Nýlega lét belgíski hershöfðinginn Francis Briquemont af vandasömu starfi yfirmanns 12.000 manna gæsluliðs SÞ í Bosníu og fetaði þar með í fótspor franska hershöfðingjans Philippe Morillons og kanadíska hershöfðingjans Lewis MacKenzie. Allir drógu þeir í efa að SÞ fylgdi réttri stefnu og gagnrýndu aðildar- ríki fyrir að vera of treg til þess að heimila nauðsynlega valdbeit- ingu svo að gæsluliðið geti leyst hlutverk sitt af hendi. Briquemont baðst lausnar hálfu ári áður en ráðningartíma hans lauk, í orði kveðnu vegna ofþreytu, en hann dró ekki dul á að hann taldi sig ekki fá nógu mikinn stuðn- ing frá yfirstjórn SÞ og of lítinn liðsauka. Hann hafði oft farið hörð- um orðum um SÞ þegar hann gegndi starfí sínu og gagnrýnt Oryggisráðið og NATO fyrir að standa ekki við loforð um meiri liðsauka og hótanir um loftárásir á Serba. Breskur herforingi, Sir Michael Rose, tekur nú við starfi yfirmanns gæsluliðsins í Bosníu og skipun hans kann að magna deilur um hvort kalla skuli gæslusveitir SÞ í Bosníu héim í vor eða grípa til harðari ráðstafana. Þegar Briqu- emont var spurður hvaða hollráð hann vildi veita Rose, eftirmanni sínum, sagði hann að hann yrði að vera „mjög þolinmóður" og „minna stöðugt þá sem bæru póli- Sir Michael Rose hershöfðingi tíska ábyrgð á aðgerðum SÞ, á þá erfiðleika sem þeir yllu gæslulið- inu, þar sem ekkert samræmi væri í stefnu þeirra". Rose stjórnaði leyniaðgerðum sérsveitanna Special Air Service (SAS) í Falklandseyjastríðinu 1982 og ári áður höfðu SAS-menn undir hans stjórn bundið enda á umsátr- ið um íranska sendiráðið í London. Tveimur árum eftir Falklandseyja- stríðið varð hann yfirmaður fót- gönguliðs, sem hélt uppi lögum og reglu í Belfast og South Armagh Gæsluliðar eftir árás Bosníu-Serba á Norður-írlandi. Að undanförnu hefur hann verið yfirmaður breska herliðsins á Bretlandseyjum, en nú flytst hann til bækistöðva sinna í Bosníu, Kiseljak, mílli Sarajevo og helztu herstöðvar Breta í Vitez. Sumir fréttaskýrendur efast um að Rose hafi til að bera nógu mikla pólitíska lagni til þess að ná sam- komulagi við stríðsherra á bar- dagasvæðum og viðhalda um leið góðu samstarfí við aðalstöðvarnar { New York. Kunnugir telja að hann verði jafngagnrýninn á yfir- stjórn SÞ og fyrirrennarar hans, þar sem hann hafi ímugust á skrif- ræði og heimsku. Hins vegar er hann talinn einkar hæfur til þess að móta heildaráætlun um friðar- gæsluna í Bosníu vegna víðtækrar reynslu af skæruhernaði og bar- dögum í Aden, við Persaflóa og á Norður-írlandi, kunnáttu í stjórnun hernaðaraðgerða og frumlegra hugmynda um baráttuaðferðir. Talið er að hæfileikar hans mundu ekki síður njóta sín ef hann verður að stjórna brottflutningi UNPRO- FOR frá Bosníu, sem óttast er að gæti haft mikið mannfall í för með sér. Breska utanríkisráðuneytið hefur gefið í skyn að brezku her- mennirnir ! gæsluliði SÞ í Bosníu kunni að vera kvaddir heim í vor og ef Bretar láta verða af hótun sinni má vera að Hollendingar, Kanadamenn og jafnvel Frakkar fari að dæmi þeirra. Þar sem Rose talar frönsku reip- rennandi er sagt að skipun hans muni vega upp á móti yfirgnæf- andi áhrifum Frakka í yfirstjóm UNPROFOR. Af 26.000 gæslulið- um eru 5.000 Frakka, en 2.500 Bretar. Frakkar hafa lagt til að annar franskur hershöfðingi taki við af Cot þegar og ef umboð UNPROFOR verður endumýjað í marslok, en ekki er ákveðið hver það verður. VJterkurog kj hagkvæmur augiýsingamiðill! Menntun og mænrækt grundvöllur heilbrigðs samfélags Kjósum ÞORBERG AÐALSTEINSSON - Frumkvæfti - Framkvæmdavilji - Árangur - Svein Andra i 5. sæti Kosningaskrifstofa Sveins Andra Sveinssonar, borgarfulltrúa, Suðurgötu 7, er opin á milli kl. 9.00 og 24.00. Sjálfstæðismenn velkomnir. Símar 17260 - 17214 Stuóningsmenn. □ MfMIR 5994013119 I Atkv. Frl. I.O.O.F. 10= 175131 8 = 9.1. I.O.O.F. 3 = 1751318 = SP. □ HELGAFELL 5994013119 IV/V 2 □ GIMLI 5994013119 III = 1 Hvítasunnukirkjan Vegurinn Hafnargötu 84, Keflavík. Samkoma kl. 11.00 árdegis. Jesús Kristur er svarið. Allir velkomnir. AuJíVi'i’ko 2 • Kiýwoqur Sunnudagur: Samkoma í dag kl. 16.30. Allir velkomnir. Þriðjudagur: Biblíulestur kl. 20.30. Laugardagur: Unglingasam- koma kl. 20.30. f^mhjálp Almenn samkoma ( Þríbúðum f dag kl. 16.00. Mikill söngur. Samhjálparkórinn tekur lagið. Vitnisburðir. Barnagæsla. Ræðumenn Stefán Baldvinsson og Þórir Haraldsson. Kaffi að lokinni samkomu. Allir velkomnir. Samhjálp. UTIVIST Hallveigarstig 1 • simi 614330 Dagsferð sunnud. 30. jan. kl. 10.30 Þingvellir að vetri. Brottför frá BSl, bensínsölu. Verð kr. 1.500-1.700, frítt fyrir böm. Miðar við rútu. Helgarferð 4.-6. febrúar Þorrablót í Borgarfirði. Gist verður í Félagsheimilinu að Brúarási, gönguferðir og þorra- stemmning. Fararstjóri Lovisa Christiansen. Nánari uppl. og miðasala á skrifstofu. Dagsferð sunnud. 6. feb. Kl. 10.30 Lýðveldisgangan. Kl. 11.00 skíðaganga. Útivist. auglýsingor Svölurnar halda félagsfund í Síðumúla 11 þriðjudaginn 1. febrúar ki. 20.30. Gestur kvölds- ins verður Guðrún Bergmann. Kaffiveitingar. Allar starfandi og fyrrverandi flugfreyjur velkomnar. Stjórnin. VEGURINN ^2 V Kristið samfélag Smiðjuvegi 5, Kópavogi Fjölskyldusamvera kl. 11.00, eitthvað fyrir alla aldurshópa. Almenn samkoma kl. 20.00, prédikari Jón Þór Eyjólfsson. Munið biblíulestur sr. Halldórs S. Gröndals miðvikudag kl. 18.00. Allir hjartanlega velkomnir. „Drottinn varðveitir aiia þá er elska hann. “ ■sgat Hjálpræðis- herinn Kirkjustrcti 2 Sunnudag, dagur fjölskyldunn- ar, kl. 11.00: Fjölskyidusamkoma. Ungt fólk tekur þátt. Veitingar. Kl. 20.00: Hjálpræðissamkoma. Brigader Óskar Jónsson og Ingi- björg stjórna og tala. Mánudag 31. jan.: Heimilasam- band. Verið velkomin á Her. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Almenn samkoma í kvöld kl. 20.00. Samkoma i Breiðholtskirkju í kvöld kl. 20.30. Guðmundur Sigurðsson prédik- ar. Lofgjörð og fyrirbænir. Allir hjartanlega velkomnir. Orð lífsins, Grensásvegi8 Almenn samkoma og sunnu- dagaskóli kl. 11.00. Allir hjartan- lega velkomnir! Sjónvarpsút- sending á OMEGA kl. 16.30. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Ath. Brauðsbrotning færist fram um eina viku, verður ekki í dag heldur sunnudaginn 6. febrúar. Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðumaður Mike Fitzgerald. Barnagæsla og barnasamkoma á sama tíma. Allir hjartanlega velkomnir. SÍK, KFUM, KFUK, KSH Háaleitisbraut 58-60 „Eyðiborgir munu fyliast af mannahjörðum" (Esek. 36,28). Almenn samkoma í kvöld kl. 20.00 í Kristniboðssalnum. Gyða Karlsdóttir hefur upphafsorð og Ragnar Gunnarsson talar. Þú ert líka velkomin(n). FERÐAFÉLAG ÍSLANDS MÖRKINNI 6 - SÍMI 682533 Sunnudagsferðir 30.janúar kl. 13.00 1. Verferð: Útskálar - Leira. öku- og skoðunarferð. M.a. farið að gömlum útróðrarstöðum á Suðurnesjum. Tilvalin fjölskyldu- verð. Fararstjóri: Baldur Sveins- son. Verð 1.500,- kr. 2. Vifilsfell. Ágæt fjallganga. Fararstjóri Jónas Haraldsson. Verð 1.100,- kr. 3. Skíðaganga um Hellisheiði. Um 3 klst. skíöaganga um norð- anverða heiðina. Fararstjóri: Jón Gunnar Hilmarsson. Verð 1.100,- kr. Engin skíðaferð kl. 10.30. Munið þorrablótsferð i Þórsmörk 12.-13. febr. Brott- för frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Einnig stansað við Mörkina 6. Frítt f. böm m. fullorðnum. Mætið vel búin og með nesti. Opið hús ■ Mörkinni 6 (risi) á þriðjudagskvöldið 1. feb. Nánar auglýst eftir helgina. Fáiðykkurferðaáætlun Fl 1994. Feröafélag íslands. Norsk 22 ára stúlka óskar eftir atvinnu á sveitabæ eða i garðyrkju. Hef reynslu. Búfræðitæknir. Hafið samband í síma 90 47 33193883 og spyrjið eftir Marika. Opin vinnustofa, Eiðistorgi 11 í dag kl. 13-17. Leirmótun. Sími: 611570. Á morgun, mánudag, kl. 18. Silkimálun. Bandarískur „Wall Street" bankamaður, 35 ára, svartur karlmaður, 180 cm, 80 kg, hefur áhuga á varanlegu sambandi við konu á aldrinum 24-29 ára. Sendið svar ásamt mynd tii: Atan, 61 West 62nd st. Apt. 23D, NY, NY10023. USA.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.