Morgunblaðið - 30.01.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JANÚAR 1994
17
sjómönnum hlut úr hærra brúttósölu-
verði en hún nýtur í raun, til dæmis
81 krónu á fiskmörkuðum, en verð
til hennar að frádregnum kvótakaup-
unum er aðeins 45 krónur. í hinum
tilfellunum kemur sama verð til
skipta, til dæmis 48 krónur.
Lækkar verðið á kvótanum
Aukið framboð á kvóta á almenn-
um markaði ætti að leiða til lægra
verðs á honum. Ætla má að mun
lægra verði boðið í kvóta en áður
og verð hans lækki verulega frá því
sem nú er. Það ætti í raun ekki að
skipta útgerðina í heild máli, þar sem
þar er um innbyrðisviðskipti að ræða.
I raun ætti það fremur en ella að
verða til þess að útgerðin ráði við
kvótakaup án þátttöku sjómanna.
Hvort verðlækkun á leigukvóta hefur
svo aftur áhrif á verð á aflahlutdeild
(framtíðarkvóta), kemur svo væntan-
lega í ljós síðar, verði þetta þróunin.
Breytt útgerð
Annar möguleiki er svo, að þær
útgerðir, sem nægan kvóta eiga og
hugsanlega meira en nægan, setji
hann ekki á Kvótaþingið, heldur leiti
annarra leiða til að ná honum. Sum-
ar útgerðir hafa nýtt sér núverandi
lög um framsal til þess að halda
skipum sínum að öðrum veiðum,
bæði utan og innan lögsögunnar og
fengið aðra til að veiða fyrir sig og
leggja upp hjá sér. Þannig hafa fýrir-
tækin aukið þann afla, sem þau hafa
fengið til vinnslu. í slíkum tilfellum
kemur tvennt til, að leggja af sókn
í aðrar tegundir eða draga úr sókn
út fýrir lögsöguna og einbeita sér
að því að ná eigin kvóta innan henn-
ar, eða kaupa kvótalítil eða kvótalaus
skip til að geta haldið lítt breyttu
sóknarmynstri og hugsanlega beitt
þeim á úthafið. Fari svo að viðskipti
með kvóta dragist saman, getur það
þýtt að færri sjómenn og útgerðir
fá meira að gera, en hinir minna.
Útgerð og vinnsla á móti
Tillögur Þríhöfða hafa fengið mis-
jafnar viðtökur meðal hagsmunaað-
ila. Útgerðarmenn og fiskverkendur
hafna þeim, en sjómenn telja ekki
nógu vel undir lekann sett. Auðvitað
sættir enginn síg-við kvótabrask af
því tagi, þegar kvóti báts er seldur
að miklu leyti á fullu verði, en áhöfn
hans síðan fengin til að taka þátt í
því að kaupa kvóta á bátinn á ný.
Sh'k viðskipti eru hins vegar aðeins
brotabrot af heildinni.
Viðbrögð hagsmunaaðilanna
markast fyrst og fremst af eigin-
hagsmunum þeirra og að miklu leyti
til skamms tíma lítið. Samtök físk-
vinnslustöðva segja að áhrifin af
hugsanlegu Kvótaþingi verði minni
hagræðing, hærra hráefnisverð og
að atvinna skerðist. Þá segir í sam-
þykkt þeirra, að tillögurnar gangi
þvert á frumvarp sjávarútvegsráð-
herra um breytingar á lögum um
stjórn fiskveiða þar sem gert er ráð
fyrir að fiskvinnslustöðvar geti flutt
til sín aflahlutdeild.
Óskar Vigfússon, formaður Sjó-
mannasambands íslands, segir að
þessar tillögur nái ekki utan um þá
gagnrýni sem sjómenn hafi haft uppi.
Fleira þurfi að koma til til að tryggja
umbjóðendur sína. Kvótaþing tæki
þó á aðferðum eins og tonn á móti
tonni og „leiguliðaútgerð", en taki
ekki nógu ákveðið fyrir að sjómenn
verði neyddir til þátttöku í kvóta-
kaupum. Sama niðurstaða varð af
fundi samninganefndar fiskimanna
innan Farmanna- og fiskimannasam-
bands íslands.
Stjórn LÍÚ segir Kvótaþing and-
stætt hagsmunum útgerðarinnar og
vísar á bug tillögum um slíkt þing.
Þar á bæ segja menn að Kvótaþing-
ið myndi stórlega draga úr framsali
aflamarks og þar með draga úr hag-
ræðingu í útgerð.
Markmið kerfisins haldast
Markmið kvótakerfisins hafa með-
al annars verið þau, að hafa framsal
aflaheimilda sem fijálsast til að auka
hagræðingu í sjávarútvegi. Þannig
var markmiðið meðal annars að
fækka skipum með því móti að þeir,
sem vildu hætta, yrðu keyptir út af
hinum, sem áfram gerðu út. Jafn-
framt var hugsunin sú, að útgerðir
gætu selt eða skipzt á aflaheimildum
eftir tegundum til að auka hag-
kvæmni í sókn. Bæði þessi markmið
nást þrátt fyrir hugsanlega tilkomu
Bannad er að
þvinga sjómenn til
kvótakaupa, en er
leyf ilegt að standa
svona að málum,
ef samkomulag
verður um það?
Ljóst er að svo
verður áfram gert,
enda setur Kvóta-
þing ekki undir
þann leka
Kvótaþings. Ólíklegt er að það hafí
verið markmið laganna að fiskmark-
aðir næðu til sín auknum afla til
sölu með því að útvega kvóta. Það
er líka ólíklegt að markmiðið hafi
verið að útgerðir og sjómenn væru
leigðir til að veiða fyrir aðra á lægra
verði en gengur og gerist í beinum
viðskiptum, þó svo að í því felist
hagræðing fyrir þá, sem veitt er fyrir.
Kvótaþingið getur því að nokkru
leyti samræmzt markmiðum kvóta-
kerfisins auk þess sem það veitir sjó-
mönnum nokkra úrlausn. Þarna er á
hinn bóginn um að ræða veigamikla
breytingu á kvótakerfmu, sem getur
breytt miklu fyrir ýmis fyrirtæki,
sem hafa byggt starfsemi sína upp
miðað við núverandi heimildir til
framsals veiðiheimilda. Þessar hug-
myndir um breytingar þarf að vega
og meta við endurskoðun á stjórn
fiskveiða, því þama er á ferðinni
veigamikið og flókið mál.
HELGA
á erindi
Sjö barna móðir sem
hefur unnið að mál-
efnum fatlaðra í áratugi
og hefur fjölþætta
reynslu í borgarmálum
KraftmiMa konu í 7. sætið
STUÐNINGSMENN HELGU JÓHANNSDÓTTUR
PHILIPS er einn stærsti
framleiðandi myndlampa
í heiminum í dag
og brautryðjandi
tæknilegra framfara á sviði
rafeindatækninnar.
Myndgæði PHILIPS
sjónvarpa eru óumdeild.
25'SKJÁRflðeimkr.
Afb.vTiO k
94.DOO.-
Góðar myndir verða betri með PHILIPS.
Þú nýtur þess betur að horfa. Stór skjár og skörp mynd.
Black Matrix FSQ flatur skjár, skapar bestu skerpu sem
hægt er að fá. Fullkomið og sérstaklega hraðvirkt íslenskt
textavarp. Með skarttengi getur þú tengt videóvélina
eða myndbandið beint við tækið og útkoman er 100%mynd
og hljóð. Sjónvarpstækið er með sérstökum útgangi fyrir
Surround magnara. „Spatial sound“ hljóðgjafi, barnalæsing
ofl. 60 stöðvar í minni og sjálfvirkur stöðvaleitari sem skannar
inn bestu skilyrði. Þægileg fjarstýring sem stýrir
öllum aðgerðum.
Kauptu ekki köttinn í sekknum - þú getur treyst PHILIPS.
(D
MUN.
iXlán
Greiöslukjör sem allir ráöa viö:
Visa-raögrelöslur: Engln útborgun, skipt í allt aö 18 mánuöi.
Euro- mögrelöslur: Engin úlborgun, skipt I allt aö 11 mánuöl.
Munaián: 25% útborgun, rest allt aö 30 mánuölr.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SfMI 69 15 00 ■ FAX 69 15 55
Komdu við hjá okkur
í Sætúni 8, sjón er sögu ríkari.
PHILIPS"j
Frábasr myndgæði|| —
✓/ -J,*.