Morgunblaðið - 30.01.1994, Blaðsíða 52
FORGANGSPÓSTUR
UPPLÝSINGASÍMI 63 73 00
ffgmiÞliifrife *
varða i
m Landsbanki
íslands
&í-M Æ3 Banki allra landsi
allra landsmanna
MORGUNBLAÐID, KRINGLAN 1 103 REYKJA VÍK
StMl 691100, SÍMBRÉF 091181, PÓSTHÓLF 3040/ AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
SUNNUDAGUR 30. JANÚAR 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Morgunblaðið/Júlíus
Utan vegar
OKUMENN lentu víða í vatidræðum í gærmorgun vegna óveðursins. Bílar festust í sköflum og ökumanni þessa jeppa varð hált á
svellinu og velti bílnum á Vesturlandsvegi.
Dlviðri um land allt
HORFUR eru á ágætisveðri í dag eftir leið-
indaveður víðast hvar á landinu í gær, laug-
ardag. Um morguninn var veðrið verst sunn-
an- og vestanlands og voru um tíma 12 vind-
stig á Stórhöfða í Vestmannaeyjum. Veður
fór versnandi norðanlands eftir því sem leið
á daginn. Lægja átti aðfaranótt sunnudags
og með morgninum. Víða var ófært vegna
veðurs en ekki var vitað til þess að slys
hafi orðið.
„Veðrið er snarvitlaust og nánast allt ófært,“
sagði Bjöm Svavarsson, vegaeftirlitsmaður.
Fært var um Suðurnes og Þrengsli. Aftur á
móti var ófært um Hellisheiði og um Hvalfjörð
vegna veðurs.
Bjöm sagði að óvíða væri mikill snjór á veg-
um. Veðurhæð væri hins vegar veruleg og ófært
vegna skafrennings. Hann sagði að lítið annað
yrði gert fram á mánudag en að moka helstu
leiðir frá Reykjavík ef veður leyfði.
Engin slys hafa orðið
Ekki var vitað til að slys hafi orðið vegna
veðurs upp úr hádegi í gær. Fólk varð þó fyrir
ýmis konar óþægindum, t.d. þurftu 10 ökumenn
að skilja bíla sína eftir á Keflavíkurveginum
aðfaranótt laugardags, þakpappi fauk af hús-
þaki í Vestmannaeyjum og aflýsa varð íþrótta-
móti á Blönduósi. Að auki dofnaði rafmagn um
skeið á Selfossi á tíunda tímanum í gærmorgun
og rafmagn fór um tíipa af í Mýrahreppi, Suður-
sveit og Öræfum á föstudagskvöld. Eitthvað
bar líka á símatruflunum í nágrenni Hafnar.
Björgunarsveitir aðstoðuðu fólk vegna ófærð-
ar í Mosfellssveit, á Kjalarnesi og í Breiðholti
fyrir hádegi á laugardag en um hádegi hafði
færð batnað. Á sama hátt aðstoðaði lögregla í
Hafnarfírði, Kópavogi, Reykjavík og víða úti á
landi vegna þungfærðar. Öllu innanlandsflugi
var frestað vegna veðurs í gær.
Piltanna
leitað
áfram í
LEIT að piltunum tveim frá
Keflavík sem saknað hefur verið
frá því á miðvikudag var haldið
áfram um hádegisbilið í gær, og
stóð þá til að leita fram í myrk-
ur. Þátt í leitinni í gær tóku 40-50
björgunarsveitarmenn ásamt lög-
reglu og átti að fínkemba þau
svæði sem áður hafði verið leitað
á. Kallaður var út sérstakur klif-
urhópur til að síga niður í kletta
við vitann í Keflavík, en þangað
höfðu sérþjálfaðir sporhundar
m.a. rakið slóð eftir piltana.
Að sögn Sigfúsar Magnússonar
hjá svæðisstjórn björgunarsveita á
Suðurnesjum bárust nokkrar vís-
bendingar í gærmorgun um ferðir
piltanna frá því þeirra var saknað,
en hann sagði þær ekki hafa verið
þess eðlis að hægt hafí verið að
byggja á þeim. Björgunarsveitar-
menn komu saman hjá svæðisstjórn-
inni snemma í gærmorgun og sagði
l^igfús að þá hefði verið farið yfír
allar þær vísbendingar sem borist
hefðu fram að því og ákveðið hefði
verið að leita á nýjan Ieik á þeim
svæðum sem þegar hefði verið leitað
á, en leggja átti sérstaka áherslu á
leit meðfram ströndinni í nágrenni
Keflavíkur.
Nýr mótor
eyðileggst
BEINTENGT eldvarnakerfi Vá-
tryggingafélags Islands í Ármúla
3 fór í gang á áttunda tímanum í
gærmorgun. Slökkviliðið fór á
staðinn og reyndist reykur koma
frá mótor í loftræsikerfi i kjallara.
Engin eldur kom frá mótomum
og tók aðeins hálftíma að reyk-
hreinsa húsnæðið. Ekki urðu aðrar
skemmdir en að talið er að mótorinn
sé ónýtur. Hann var settur upp fyrir
viku og eru taldar líkur á að hann
hafi verið gallaður.
Neyðarbíll reynist vel
Á svipuðum tíma fór nýr neyðar-
bíll slökkviliðsins og Landsbjargar í
sinn fyrsta sjúkraflutning. Toyota-
umboðið gaf bílinn í fyrra og hefur
verið unnið að breytingum á honum.
Bíllinn er sérstaklega ætlaður til
sjúkraflutninga í slæmu færi og
œyndist hann afar vel í ferðinni.
Sóttur var maður að Skyggni.
Viðskiptajöfnuðurinn hefur ekki
verið jákvæður í sjö ár, eða frá
árinu 1986, og þar áður var hann
síðast jákvæður á árinu 1978.
Þetta eru mikil umskipti frá síð-
ustu tveimur árum en viðskipta-
hallinn 1993 vartæpir 12 milljarð-
ar og 18 milljarðar króna 1992.
Björn Rúnar Guðmundsson, hag-
fræðingur hjá Þjóðhagsstofnun,
segir að það sé dálítið snemmt að
segja til um hver endanleg útkoma
verður varðandi viðskiptajöfnuð-
inn þar sem tölur um þjónustujöfn-
uð á síðasta ári liggi ekki fyrir.
Hins vegar komi vöruskiptajöfnuð-
urinn heldur betur út en reiknað
hafi verið með í endurskoðaðri
þjóðhagsáætlun og þar séu fengn-
ir tveir milljarðar af þeim tæpum
þremur sem hafi vantað til að við-
skiptajöfnuður væri á núllinu.
Tekjur af sjávarútvegi meiri
Þjónustujöfnuður er vaxtatekjur
og gjöld annars vegar og tekjur
af ferðamönnum, samgöngum og
varnarliði og samsvarandi útgjöld-
um hins vegar. Fregnir af fjölda
Viöskiptaj öfnuður gæti orðið
hagstæður í fyrsta sinii í 7 ár
VIÐSKIPTAJÖFNUÐURINN á nýliðnu ári gæti orðið í kringum
núllið eða jafnvel hagstæður í fyrsta skipti frá árinu 1986, sam-
kvæmt upplýsingum Þjóðhagsstofnunar. Vöruskiptajöfnuðurinn
árið 1993 var hagstæður um 12,1 milljarð króna, tveimur milljörð-
um meira en gert var ráð fyrir í endurskoðaðri þjóðhagsáætlun
sem lögð var fram í desember, en þar var spáð að viðskiptahall-
inn á árinu yrði tæpir þrír milljarðar króna.
ferðamanna á síðasta ársfjórðungi
benda til fjölgunar þeirra frá fyrri
árum, til dæmis fjölgaði ferða-
mönnum um 40% í desember frá
fyrra ári. Björn sagði að þjónustu-
jöfnuður án vaxta hefði verið já-
kvæður um 2,8 milljarða fyrstu
níu mánuði ársins og hann mætti
því snúast mikið til verri vegar á
síðasta ársfjórðunginum til að
verða ekki jákvæður. Ástæðumar
fyrir þessum árangri væru fyrst
og fremst þær að tekjur af sjávar-
útvegi hefðu orðið meiri en reiknað
hafí verið með. Þar kæmi til meiri
afli til dæmis úr Smugunni auk
þess sem verð hefði nokkuð hald-
ist og heldur sigið upp á við á
haustmánuðum. Á hinn bóginn
hefði samdrátturinn í innflutningi
orðið með þeim hætti sem spáð
hafi verið. Verð á sjávarafurðum
hefur hækkað um 1,5% í myntein-
ingunni SDR frá því í september
eftir að hafa farið nánast stöðugt
lækkandi fráþví í ársbyijun 1992.
Björn sagði að spár stæðu til þess
að verðið myndi halda áfram að
síga upp á við á árinu.
Andvari strandaði í
svartabyl við Grímsey
Skipverjum tókst að losa skipið
RÆKJUSKIPIÐ Andvari VE
100 tók niðri við Grímsey um
kl. 10.30 í gærmorgun. Skip-
veijunum tókst að losa skipið
á 10-15 mínútum og koma í
veg fyrir að leki kæmist að því.
Jóhann Halldórsson, skipstjóri
og eigandi Andvara, sem er 300
tonna rækjuskip, sagði að skipið
hefði verið á veiðum í Eyja-
fjarðarál þegar ákveðið hefði ver-
ið að leita vars við Grímsey vegna
veðurs. Þangað hefði verið komið
snemma á laugardagsmorgun og
um kl. 10.30 hefðu skipveijarnir
orðið varir við að skipið hefði
tekið niðri. Þeim hefði sjálfum
tekist að losa skipið á 10-15
mínútum og enginn leki hefði
komið að því.
Jóhann treysti sér ekki til að
meta hve skemmdir á skipinu
væru miklar. Hann sagði að hald-
ið yrði til Akureyrar strax og
veður leyfði og þær kannaðar.
Austan 10 vindstig og svarta-
bylur var við Grímsey uppúr há-
degi á laugardag. Norðan við
eyna lágu þijú skip í vari, Siglu-
vík og Drangey auk Andvara.