Morgunblaðið - 30.01.1994, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JANUAR 1994
25
Yfirlæknir smitsjúkdóma-
deildar Borgarspítala
STJÓRN sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi sínum
7. janúar sl. að ráða Harald Briem í stöðu yfirlæknis á smitsjúkdóma-
deild Borgarspítalans.
Hér er um að ræða nýja stöðu,
en smitsjúkdómadeild var stofnuð
sem ný deild innan lyflækninga- og
endurhæfingasviðs Borgarspítalans
þann 1. janúar sl. Stofnun deildar-
innar er hluti af nýju stjórnskipu-
lagi Borgarspítalans sem samþykkt
var á sl. ári og er það grundvöllur
styrkrar stjórnunar í stofnuninni.
Haraldur Briem, fæddur 9. ágúst
1945, er sonur Maju-Gretu Briem
og Eiríks Briem, verkfræðings,
fyrrum forstjóra Landsvirkjunar.
Haraldur lauk embættisprófi í
læknisfræði frá Háskóla íslands
árið 1972 og doktorsprófi í lækna-
vísindum frá Karolinska institutet
í Stokkhólmi 1982. Að loknu kandi-
datsári var hann héraðslæknir í
Vestmannaeyjum og stundaði síðan
framhaldsnám í smitsjúkdómum í
Eskilstuna og Stokkhólmi. Hann
varð viðurkenndur sérfræðingur í
smitsjúkdómum 1980 og hefur
starfað sem slíkur á lyflækninga-
deild Borgarspítalans frá árinu
1983. Eiginkona Haralds er Snjó-
laug Ólafsdóttir lögfræðingur og
eiga þau einn son.
MaxMara
U T S A L A N
hefst á morgun
______Mari____________
Hverfisgötu 52 -101 Reykjavík - Simi 91-62 28 62
Kennarar og
leibbeinendur
í líkamsrækt!
Nú gefst ykkur, í fyrsta skipti á íslandi, kostur á
aö taka Ameríska réttindaprófiö í líkamsrœkt.
American Council on Exercise (ACE) hafa faliö
kennara okkar Gillian Sveinsson aö vera próf-
fulltrúi fyrir samtökin hér á landi.
Kennarar Máttar ásamt Gillian gangast fyrir námskeiöi
til undirbúnings prófinu í byrjun maí. Prófiö veröur í
nóvember.
Þeir sem hafa áhuga á því aö öölast ACE réttindi geta
skráö sig nú þegar.
Allar nánari upplýsingar eru veittar hjá MÆTTI í síma
689915 eöa Gillian í síma 642242.
Prófiö hefur alþjóölega viöurkenningu.
Ath! Rétt til þátttöku í prófinu hafa aöeins þeir
sem lokiö hafa námskeiöi í skyndihjálp og
endurlífgun.
FAXAFENI 14, REYKJAVÍK, SÍMI 689915
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi -1 borgarráði frá 1986
og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 1990.
Bréf til sjálfstœðismanna íReykjavík.
Veljum sterkan Iramboðslista
Kæri samherji.
Sjálfstæðisfólk í Reylgavík hefur sýnt mér þann trúnað að velja mig í forystusveit Sjálfstæðisflokksins í
borgarstjórn undanfarin kjörtímabil. Ég var fyrst kjörinn borgarfulltrúi 1982 og tók þá við formennsku í
skipulagsnefnd. Ég hef átt sæti í borgarráði frá 1986 og verið varaformaður þess síðustu tvö ár.
í eitt etsta sætiD!
í störfum mínum sem borgarráðsmaður og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga hef ég lagt
áherslu á að efla og styrlga sveitarfélögin og færa verkefni frá ríki til sveitarfélaga.
Þau atriði sem ég tel skipta meginmáli við störf borgarstjórnar á næstunni eru traust
Qármálastjórn og markvissar aðgerðir til að efla atvinnulífið í borginni. Það er
undirstaða þess að unnt verði að leysa margvísleg velferðarmál borgarbúa
á viðunandi hátt.
Ég hvet þig eindregið til að Kjósa í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Það er á valdi
kjósenda í prófkjöri, að ákveða röð á listanum. Þar færð þú tækifæri til að velja
þann hóp sem þú treystir best til að leiða Sjálfstæðisflokkinn til sigurs í næstu
borgarstjórnarkosningum.
Ég leita eftir stuðningi þínum og góðri kosningu í eitt efsta sœtið á
framboðslistanum. Þannigfengi ég best tækifœri til að sinna margvíslegum
málefnum í þágu Reykjavíkur á nœsta kjörtímabili.