Morgunblaðið - 30.01.1994, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 30. JANÚAR 1994
ATVmNUAUGlVSINGAR
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Fóstrur eða fólk með uppeldismenntun
óskast til starfa á neðangreinda leikskóla:
í fullt starf:
Seljaborg v/Tungusel, s. 76680.
I hálft starf e.h.:
Grænaborg v/Eiríksgötu, s. 14470.
Þá vantar í 50% stuðningsstarf á skóladag-
heimilið Langholt v/Dyngjuveg, s. 31105.
Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leik-
skólastjórar og forstöðumaður.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277.
Tannlæknastofa
óskar eftir starfskrafti í heilsdagsstarf við
móttöku. Æskilegt er að viðkomandi hafi
unnið við sambærileg störf, sé öruggur og
þægilegur í viðmóti og helst eldri en 30 ára.
Viðkomandi þarf að vera stundvís og áræð-
anlegur.
Umsóknir leggist inn á auglýsingadeild Mbl.
fyrir 4. febrúar merktar: „T - 3896“.
Tölvunarfræðingur
Óskum að ráða tölvunarfræðing til starfa
hjá einu af stærstu iðnfyrirtækjum landsins.
Fyrirtækið er með AS/400 tölvu og Novel
netkerfi.
Innheimtufulltrúi
Hjá innheimtu- og greiðsludeild Hafnarfjarð-
arbæjar er laus 50% staða innheimtufull-
trúa. Vinnutími eftir hádegi.
Krafist er reynslu í innheimtu- og gjaldkera-
störfum og meðferð tölvuupplýsinga.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum STH.
Umsóknir skulu berast á bæjarskrifstofurnar
í Hafnarfirði, Strandgötu 6, eigi síðar en 7.
febrúar nk.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði.
Fyrirtæki í Reykjavík
óskar eftir að ráða
í eftirtalin störf:
Starfsmann f flutningadeiid. Viðkomandi
þarf að hafa minnst 3ja ára reynslu af alþjóð-
legum skipa- og flugflutningum, gerð flutn-
ings- og tollskýrslna o.fl., ásamt góðri ís-
lensku- og enskukunnáttu.
Ritara. Starfið felst í almennum skrifstofu-
störfum, skjalavörslu, símavörslu o.fl. Starfs-
reynsla og enskukunnátta skilyrði og
frönskukunnátta æskileg.
Sölumann. Þarf að hafa reynslu af alþjóðavið-
skiptum og góða ensku- og íslenskukunnáttu.
Umsóknum með launahugmyndum viðkom-
andi skal skilað á auglýsingadeild Mbl. fyrir
8. febrúar nk. merktum: „E - 11390.
Arkitekt
Vegna aukinna umsvifa vill Penninn/Skrif-
stofuhúsgögn hf. ráða arkitekt, innanhúss-
arkitekt eða hönnuð til starfa sem fyrst.
Um er að ræða heilsdagsstarf sem felst eink-
um í teiknun og gerð tilboða, úppstillingum
og tillögugerð, ráðgjöf og sölumennsku, og
tengdum skrifstofustörfum.
Þau sem áhuga hafa á ofangreindu starfi og
vilja vinna hjá traustu og vaxandi fyrirtæki
eru beðin að senda eiginhandarumsóknir
méð upplýsingum um fyrri störf, með-
mælendur og annað það er gagnast má
báðum aðilum vegna ráðningar.
Umsóknum skal skilað fyrir föstudaginn 4.
febrúar merktum:
„Atvinnuumsókn - húsgögn".
■gM Sjúkrahús Akraness
Yfirlæknir
handlækningadeildar
Staða yfirlæknis í handlækningum við Sjúkra-
húsið á Akranesi er laus til umsóknar.
Sjúkrahús Akraness er deildaskipt svæðis-
sjúkrahús með vaxandi þjónustu í helstu
greinum handlækninga, kvensjúkdóma og
fæðingarhjálpar auk lyflækninga.
Á handlækningadeild eru 16 rúm auk dag-
deildar. Við deildina starfa sérfræðingar í
bæklunarskurðlækningum og þvagfæra-
skurðlækningum.
Umsóknir, með ítarlegri náms- og starfsfer-
ilsskrá, sendist framkvæmdastjóra, Merki-
gerði 9, 300 Akranesi, fyrir 15. febrúar nk.
Búseta á staðnum er skilyrði ráðningar.
Nánari upplýsingar veitir Ari Jóhannesson,
yfirlæknir, í síma 93-12311.
Verksvið:
1. Viðhald hugbúnaðarkerfa.
2. Þjónusta við notendur.
3. Þarfagreining, hönnun og forritun.
4. Stefnumótun. Greining vinnuferla.
Innkaup á tölvubúnaði.
Við leitum að tölvunarfræðingi með mennt-
un úr HÍ eða TVÍ eða með aðra haldgóða
tölvumenntun. Þekking á tölvusamskiptum
og PC-netumhverfi æskileg. Fyrirtækið býður
þjálfun í RPG forritun og á AS/400 tölvu.
Starfsþjálfun erlendis.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf.“, merktar
„Tölvunarfræðingur 015“, fyrir 5. febrúar nk.
Hagva ngurM
Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
KÍSILIÐJAN VIÐ MÝVATN
NÝTING NÁTTÚRUAUÐLINDA I ÞÁGU ÞJÓÐAR
Verkefnastjóri
sérverkefna
Við leitum að dugmiklum og drífandi starfs-
manni er hefur til að bera frumkvæði, reynslu
af sjálfstæðum vinnubrögðum. Góð ensku-
kunnátta er skilyrði. Æskilegt að viðkomandi
hafi reynslu við iðnaðarframleiðslu.
Starfssvið felst m.a. í úrlausn ýmissa verk-
efna sem lúta að því að auka nákvæmni og
vinnslumöguleika verksmiðjunnar. Önnur
verkefni eru að bæta samkeppnisaðstöðu
Kísiliðjunnar hf. Uppbygging nýrrar rann-
sóknastofu og þróun gæðaeftirlits. Þátttaka
í ýmsum rannsóknar- og þróunarverkefnum
á vegum Kísiliðjunnar hf.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu
menntaðir á sviði raungreina og/eða verk-
fræðisviða s.s; efnafræði, efnaverkfræði,
matvælafræði eða sambærilegu.
í boði er góð vinnuaðstaða, gott starfsum-
hverfi, sanngjörn laun og fjölbreytt verkefni.
Húsnæði á staðnum.
Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar
nk. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið
störf sem fyrst.
Vinsamlega athugið að fyrirspurnum varð-
andi ofangreint starf verður eingöngu svar-
að hjá Ráðningarþjónustu Lögþings. Farið
verður með allar umsóknir sem trúnaðar-
mál og öllum umsóknum svarað.
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
LÖC'rMLÍOfJ
Guðný Harðardóttir
Skipholti 50c, 2. hæð, 105 Reykjavík
Simi 91-628488
LANDSPÍTALINN
Reyklaus vinnustaður
HANDLÆKNINGADEILD
Staða sérfræðings (100%) í almennum hand-
lækningum við handlækningadeild Landspít-
alans er laus til umsóknar. Umsækjandi þarf
að hafa mikla þekkingu í laparscopiskri vinnu.
Æskileg er reynsla í rannsóknarstofuvinnu
við handlækningar (experimental kírúrgíu) en
ekki skilyrði. Staðan veitist frá 1. september
1994. Umsóknir á þar til gerðum eyðublöð-
um, með upplýsingum um starfsferil og vís-
indastörf skal senda stjórnarnefnd Ríkis-
spítala fyrir 1. apríl 1994.
Nánari upplýsingar gefur Jónas Magnússon,
prófessor í síma 601000.
BLOÐBANKINN
Staða hjúkrunarframkvæmdastjóra í blóð-
tökudeild Blóðbankans er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar nk.
Umsækjandi þarf að vera hjúkrunarfræðingur
og geta hafið störf þann 1. mars nk. Starfið
felur í sér yfirumsjón með skipulagningu
blóðsöfnunar í Blóðbankanum og í blóðsöfn-
unarferðum ásamt eftirliti með blóðgjöfum.
Hann hefur jafnframt nána samvinnu við
deildarstjóra rannsóknadeildar og blóðgjafa-
skrár í daglegum rekstri. Hann starfar undir
stjórn og í samvinnu við forstöðulækni Blóð-
bankans, sem gefur nánari upplýsingar um
starfið í síma 602030.
HJÚKRUNARFRÆÐSLUDEILD
Laus er staða hjúkrunarframkvæmdastjóra
við Hjúkrunarfræðsludeild Landspítalans.
Hlutverk framkvæmdastjórans er að skipu-
leggja fræðslustarf á almennu hjúkrunarsviði
og stuðla að og stunda rannsóknir í hjúkrun.
Óskað er eftir hjúkrunarfræðingi með meist-
aragráðu í hjúkrun og reynslu í rannsóknum.
Staðan er laus nú þegar eða eftir samkomu-
lagi. Umsóknir ásamt upplýsingum um nám
og fyrri störf, berist skrifstofu hjúkrunarfor-
stjóra fyrir 1. mars nk.
RANNSOKNASTOFA HASKOLANS
í MEINAFRÆÐI
Tvær stöður læknafulltrúa (100%) eru lausar
til umsóknar við Rannsóknastofu Háskólans
í meinafræði frá 1. mars nk. eða sem fyrsí.
Réttindi læknaritara eru æskileg. Ráðið er
til frambúðar. Unnið er í ritvinnslukerfi og
skrifað eftir diktafóni. Upplýsingar gefur
Halldóra Halldórsdóttir, sími 601900.
RÍKISSPÍTALAR
Ríkisspítalar eru einn fjölmennasti vinnustaöur á íslandi meö starfsemi
jm land allt. Sem háskólasjúkrahús beitir stofnunin sér fyrir markvissri
meðferö sjúkra, fræöslu heilbrigðisstótta og fjölbreyttri rannsóknastarf-
3emi. Okkur er annt um velferö allra þeirra, sem við störfum fyrir og meö,
39 leggjum megináherslu á þekkingu og virðingu fyrir einstaklingnum.
Btarfsemi Ríkisspítala er helguö þjónustu viö almenning og viö höfum
ávallt gæöi þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni aö leiðarljósi.