Morgunblaðið - 22.03.1994, Side 2

Morgunblaðið - 22.03.1994, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1994 2 Vi ár s amsárás HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær 35 ára gamlan mann, Thanh Tuong Bui, i 2V4 árs fang- elsi fyrir að hafa aðfaranótt 21. nóvember sl, stungið 22 ára gaml- an mann með hnífi þannig að taug- ar og slagæð skárust í sundur með þeim afleiðingum að maðurinn, sem hafði dottið í götuna á flótta undan manninum með hnifinn, hlaut lífshættulega blæðingu. Atburðurinn varð við Lækjargötu þegar sá sem fyrir stungunni varð og fjórir félagar hans settust inn í bíl hins dæmda og báðu hann að aka sér í Kópavog sem hann hafði fallist á að gera gegn 1.000 króna gjaldi. Einn farþeganna hafði ætlað að skrifa tékka fyrir farinu en bílstjórinn vildi einungis taka við greiðslu í reiðufé og kom til orðaskipta og síðan átaka með mönnunum sem enduðu á þann veg að farþeginn hljóp undan en bílstjórinn elti með hníf á lofti. Á móts við Menntaskólann í Reykjavík féll farþeginn í götuna og kom þá bílstjórinn að og lagði hnífnum í handlegg mannsins. Hnífurinn gekk í gegnum upp- handlegginn og skar í sundur vöðva, aðalslagæð í handleggnum og eina af þremur megintaugum í handleggn- um. Það var mat lækna að slagæða- blæðingin hefði verið lífshættuleg ef pilturinn hefði ekki komist strax und- ir læknishendur. í framburði sínum fyrir Héraðsdómi sagði ákærði að þegar hann sá manninn detta á flótta undan sér hefði hann ákveðið að stinga hann í handlegginn, ekki til að drepa hann heldur til að gera eitt- hvað til að stöðva hann en árásarmað- urinn kvaðst hafa fundið.mikið til eftir högg sem hinn hafði veitt honum fyrr í viðskiptum þeirra. Þá sagði ákærði að hann hefði hugsað sér að stinga manninn til þess að lögreglan kæmi og sæi að hann hefði barið sig. í niðurstöðum Péturs Guðgeirsson- ar héraðsdómara segir að manninum verði ekki refsað fyrir tilraun til manndráps heldur fyrir meiriháttar líkamsárás enda hafí hann borið að hann hafi ætlað að stinga manninn í handlegg en ekki í bol eins og hann hafði færi á og að hann hafi ekki ætlað að ráða manninum bana. Þá segir að ætla megi að sá sem fyrir stungunni varð hljóti varanlega ör- orku vegna atlögunnar en taugin sem skarst í sundur við lagið starfar ekki eðlilega. Var refsing mannsins talin hæfílega fangelsi í 2Vi ár en frá þvf dregst gæsluvarðhald sem hinn dæmdi hefur sætt allt frá árásardeg- inum. í dag Sameining felld______________ íbúar Skriðuhrepps felldu tillögu um sameiningu Skriðuhrepps, Glæsibæjarhrepps og Öxnadals- hrepps í eitt sveitarfélag 22 Prófkjör____________________ Prófkjör vegna sveitastjómar- kosninganna í vor fóru fram víða um land um síðustu helgi 50-51 Leiðari Fjölskyldan, atvinnan og vel- ferðin 26 Pnjunblabib ► Guðmundur Stephensen, 11 ára, Lslandsmeistari í borðtenn- is - Guðjón Guðmundsson bestur í fimleikum - Grindavík deildar- meistari í körfuknattleik fangelsi fvrir lík- Tveir piltar í varðhaldi vegna líkamsárásar og innbrots GengU í skrokk á manni sem stóð þá að innbroti Morgunblaðið/Sverrir Vatnselgur MIKILL vatnselgur myndaðist á götum víða á höfuðborgarsvæðinu í gær vegna hlýinda og mikillar rigning- ar. Af þeim sökum höfðu starfsmenn gatnamálastjóra Reykjavíkurborgar í ýmsu að snúast. Á myndinni sést þegar verið var að hreinsa frá niðurfalli sem stíflast hafði vegna krapa. Fulltrúaþing KÍ á skólatíma Tímasetn- inginer gagnrýnd KENNARASAMBAND íslands heldur fulltrúaþing sitt í fyrsta sinn á starfstima skóla í vor. Þing- ið verður haldið þrjá fyrstu kennsludagana eftir páska og er tímasetningin harðlega gagnrýnd af Landssamtökunum Heimili og skóla. Svanhildur Kaaber, for- maður Kennarasambandsins, seg- ir að nemendum verði tryggð kennsla á meðan ráðstefnan stendur yfir. Unnur Halldórsdóttir, formaður samtakanna, varpar m.a. fram þeirri spumingu í bréfí til fjölmiðla og Kennarasambandsins hvort samtökin telji þessa ráðstöfun líklega til að auka virðingu almennings á kennara- starfmu og skorar á fræðsluyfírvöld að tryggja að nemendur fulltrúa á þinginu fái lögboðna fræðslu á með- an á því standi. Svanhildur Kaaber, formaður Kennarasambandsins, seg- ir að farið verði að samþykkt full- trúaþings 1991, og að dæmi ýmissa annarra heildarsamtaka, og þingið haldið á starfstíma skóla enda hafí fulltrúum nú verið fækkað um helm- ing og séu aðeins 119, t.d. séu að- eins 27 þátttakendur úr Reykjavík. Heppilegast hefði verið að halda ráð- stefnuna í apríl, svo hún ylli sem minnstri röskun m.a. vegna þess að þingfulltrúar úti á landi gætu ferðast á síðasta degi páskafrísins. hlaut alvarlega innvortis áverka og þurfti að gangast undir aðgerð ÞRÍTUGUR maður hlaut alvarlega innvortis áverka þegar tveir tæplega tvítugir innbrotsþjófar sem hann hafði staðið að verki gengu í skrokk á honum. Maðurinn rifbrotnaði og skaddaðist á nýrum og milta. Morgunblaðið/Júlíus Eins og myndin ber með sér var versta veður þegar slysið varð á mótum Bústaðavegar og Litluhlíðar. Fernt flutt á slysadeild Maðurinn var á gangi um Vest- urberg á fjórða tímanum aðfara- nótt sunnudags þegar hann veitti athygli mannaferðum í söluturnin- um Straumnesi. Þegar hann sá skömmu síðar tvo pilta hlaupa út úr sölutuminum veitti hann þeim eftirför en þeir snerust til varnar, slógu hann niður, spörkuðu í kvið hans, slógu hann í höfuð og hlupu síðar á brott. Maðurinn komst heim til sín og gerði lögreglu viðvart. Hann var fluttur á sjúkrahús þar sem hann gekkst undir aðgerð og lá enn á sjúkrahúsi í gær. Líðan hans var sögð eftir atvikum. verði áfrýjað eða ekki. í málinu var deilt um það hvort akstur Aðals hf. fyrir Ríkisspítal- ana á þvotti gæti fallist undir það að vera leiguakstur eða ekki. Því var m.a. haldið fram í málinu af hálfu stefnanda að enginn hefði heimild til leiguaksturs á því starfssvæði er um ræðir aðrir en félagar í Trausta. Þá er einnig bent á skyldu sendibifreiðastjóra til að vera í stéttarfélagi skv. lög- um um leigubifreiðar. Hvorki for- svarsmenn né bílstjórar Aðals hf. eru félagar í Trausta, félagi sendi- bifreiðastjóra. í 2. mgr. 5. gr. lag- anna sé einnig skýrt kveðið á um að þeir sendibifreiðastjórar sem Skömmu eftir atburðinn sá lög- regla til piltanna, sem þekktust af lýsingu mannsins, þar sem þeir voru á hlaupum um Breiðholtið. Þeir höfðu sprengt upp spilakassa í söluturninum og tekið tóbak úr hillum en ekki haft það á brott með sér þar sem styggð kom að þeim. Annar piltanna, sem er 18 ára gamall, hefur margsinnis kom- ið við sögu lögreglunnar. Þeir voru handteknir og færðir í fanga- geymslur og síðar í yfirheyrslur til RLR. í gær voru piltamir úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna rannsóknar málsins. ekki séu í stéttarfélögum sendibif- reiðastjóra á umræddu svæði, þar sem takmörkunin á fjölda er í gildi, sé óheimilt að stunda leiguakstur. Stefndi mótmælti því m.a. að um leiguakstur sé að ræða í skiln- ingi laganna um leiguakstur og benti á að bifreiðir Aðals séu ekki hugsaðar til notkunar fyrir al- menning heldur eingöngu í fyrir- fram ákveðið verkefni, þ.e. að flytja þvott. Þá taldi stefndi að túlka verði 73. gr. stjórnarskrár- innar í samræmi við.ll. gr. Mann- réttindasáttmála Evrópu sem vemdi rétt manna til að standa utan félaga. FERNT var flutt á slysadeild með sjúkrabílum eftir árekstur þriggja bíla á mótum Litluhlíðar og Bú- staðavegar á tíunda tímanum i fyrrakvöld. Meiðsl fólksins voru talin mikil en ekki lífshættuleg. Dómsorð Dómurinn kemst að þeirri niður- stöðu að ekki sé um að ræða leigu- þifreiðaakstur í skilningi laga um leigubifreiðaakstur. Einungis sé greitt fyrir ákveðnar klukkustund- ir en ekki hveija ferð og miðist reikningarnir við það. Verkið er unnið fyrir einn aðila samkvæmt samningi að undangengnu al- mennu útboði, en ekki eftir gjald- mæli.Starfsmönnum Aðals hf. ber því ekki að lúta þeim takmörkun- um á atvinnufrelsi sem lögin um leigubifreiðaakstur gera ráð fyrir. Ber því að sýkna stefndu af öllum kröfum í málinu. Stefnanda var ennfremur gert að greiða stefndu 160 þúsund hvoru fyrirtæki um sig í málskostnað. Dóminn kvað upp Ólafur Börkur Þorvaldsson héraðsdómari. Q Areksturinn varð í ofankomu, hvass- viðri og lélegu skyggni þegar bíl sem ekið hafði verið austur Bústaðaveg var beygt áleiðis norður Litluhlíð, í veg fyrir tvo fólksbíla á leið vestur Bústaðaveg. Áreksturinn var mjög harður og slasaðist fólk í öllum bílun- um þremur og var flutt á slysadeild með sjúkrabílum. Samkvæmt upplýs- ingum lögreglu varð fólk fyrir tals- verðum meiðslum en ekki lífshættu- legum. Fólksbílamir tveir vom óöku- færir eftir áreksturinn. Skoðuðu Brennu- Flosa Öraefum. SVEITARSTJÓRNARMENN, allt frá Borgamesi í vestri og að Jökuldal, voru staddir hér í því augnamiði að skoða sorp- brennslustöðina í Svínafelli, sem hlotið hefur nafnið Brennu-Flosi. Þetta voru um 50 manns, þeir, sem lengst að voru komnir, komu frá Borgamesi. Með sveitar- stjórnamönnunum var fulltrúi frá Hollustuvernd ríkisins og fram- leiðanda vélarinnar. Heldur hrepptu menn leiðinlegt veður, sem þó aftraði mönnum ekki frá því að skoða sorpbrennsluna. Sigurður Félag sendibifreiðastjóra tapar máli um félagaaðild Egilsstöðum HÉRAÐSDÓMUR Austurlands sýknaði í gær fyrirtækið Aðal hf. og Ríkisspítalana af kröfu Trausta, félags sendibílstjóra, um ógild- ingu á samningi er gerður var á milli Ríkisspítalanna og Aðals um akstur á þvotti. Guðlaugur B. Gíslason, formaður Trausta, segir að ákveðið verði á stjórnarfundi á miðvikudag hvort málinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.