Morgunblaðið - 22.03.1994, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 22.03.1994, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1994 25 Fulltrúi SÞ um fimmtugsafmæli samtakanna á næsta ári Viljum efla skilning á starfi samtakanna SAMEINUÐU þjóðirnar verða 50 ára á næsta ári og verður þess minnst með ýmsum hætti í aðild- arríkjunum. „Við viljum efla vit- und almennings um samtökin með öllum hætti. Við viljum t.d. fá fréttamenn til að fjalla um langtum fleira en friðargæslu- starf SÞ, sem þeir hafa yfirleitt mestan áhuga á; 75% af starfi okkar er á öðrum sviðum. Við viljum beina athyglinni að þróun- armálum, afvopnun, mannrétt- indum, fjölskylduáætlunum, um- hverfisvernd og aðstoð við nauð- stadda", sagði Gillian Martin Sorensen, einn af aðstoðarfram- kvæmdasljórum SÞ, í samtali við Morgunblaðið í gær. Sorensen, sem er bandarísk, hef- ur yfirumsjón með því sem gert verður af hálfu samtakanna til að minnast afmælisins. Hún kom í tveggja daga heimsókn til íslands á sunnudag í tengslum við ársfund SÞ-félaga á Norðurlöndum í Reykjavík. „Við ætlum að minnast þessara tímamóta um allan heim með ýms- um hætti allt árið 1995“, sagði hún. „Markmiðið er að grípa þetta sögulega tækifæri til að auka skiln- ing meðal fólks um allan heim á því hvað SÞ eru og geta orðið, fjölga stuðningsmönnum, efla samtökin íyrir starfið næstu 50 árin. 011 að- ildarríkin hafa verið beðin um að taka þátt í hátíðarhöldunum, skipu- leggja samkomur og ráðstefnur, einnig sýningar og tónleika". Aðspurð sagðist hún telja að harðstjórar á borð við Kim Il-sung uðlindirnar, greiða ríkisstjórnir iður eyðileggingu þeirra. Auðlindaskattur Ef takast á að nýta fiskstofnana íeð eðlilegum hætti verða ríkis- tjórnir að hætta að borga fyrir yðileggingu þeirra. Skynsamlegra æri að borga sjómönnum fyrir að ætta og þeir, sem gera út áfram, iga að greiða samfélaginu fyrir ð fá aðgang að auðlindinni, ekki fugt. í því sambandi má nefna, ð stjórn Falklandseyja fór að ráð- m fræðimanna við London’s Im- erial College og krafðist gjalds yrir aðgang að fiskimiðunum mhverfis eyjamar, allt að 28% f aflaverðmæti, og þótt eigendur tlendu skipanna mótmæltu há- töfum borguðu þeir samt. Þjóðar- ekjurnar stótjukust og stofnarnir ru ekki lengur í hættu. Nauðsynlegt er líka að tak- iarka sóknina og það má gera teð ýmsum hætti, til dæmis með ví að bjóða út ákveðin svæði þeg- r um staðbundnar tegundir er að æða eins og skelfisk og leyfa ramseljanlega kvóta. Umfram allt erða þó sjómenn að geta treyst ví, að ríkisstjórnir framfylgi fisk- eiðistjórnuninni af festu og rétt- jeti með það fyrir augum að endur- eisa fiskstofnana en ekki að eyði- íggja. Sérfræðingar FAO spá því, að næstu árum verði fiskur fágæt- ri og dýrari en áður var. Hátt erð mun hafa áhrif á neysluna g ýta undir fiskeldi en það mun amt ekki nægja til að draga úr fveiði meðan niðurgreiðslur eru ið lýði. Hingað til hefur aðeins run heilla stofna dugað til að pna augu manna en nauðsynlegt ,r, að allir sjómenn og allar ríkis- stjórnir átti sig á, að dagar hinna óheftu veiða eru eða ættu að vera liðnir. Morgunblaðið/Þorkell A Bessastöðum GILLIAN M. Sorensen heilsar forseta Islands, frú Vigdísi Finnboga- dóttur, á Bessastöðum á mánudag. í Norður-Kóreu væru ef til vill of einangraðir til að láta sig það miklu skipta hvernig SÞ fjölluðu um mannréttindi í ríkjum þeirra en margir aðrir fylgdust a.m.k vel með því sem sagt væri um þá. Vonandi tækist hinum aðildarríkjunum að þrýsta á einræðisríkin um breyting- ar. Hrun kommúnismans hefði stór- aukið líkurnar á árangri í þessum málum og mörgum öðrum sem lítið hefði verið hægt að hreyfa við í fjóra áratugi. Sorensen sagði að aðildarríkin þyrftu að gæta raunsæis þegar þau legðu nýjar byrðar á samtökin, gera sér grein fyrir því að mannafli og fé væru af skornum skammti, ella hlyti starfið að mistakast. Hún var spurð hvort rétt væri að skylda aðildarríki sem legðu til ný útgjöld vegna friðargæslu og annarra dýrra verkefna til að koma jafnframt með tillögur um fjármögnun verkefn- anna. „Ég er sammála þeirri hug- mynd, hvort sem henni yrði hrund- ið af stokkunum með því að setja reglur eða aðildarþjóðirnar ákvæðu sjálfar slíka vinnureglu. Ég myndi styðja þetta“.- Sorensen var spurð um bruðl og skrifræði, minnt á að Boutros Bout- ros-Ghali framkvæmdastjóri hefði heimsótt útibúin í Genf og sagt síð- ar að aðeins helmingur starfsmanna gerði nokkurt gagn. „Hann hefur nú varla meint þetta bókstaflega. Það er erfitt að vísa því á bug að skrifræði sé vandamál en sé hugað að fjölda starfsfólks [um 50.000 manns vinna hjá SÞ um allan heim. Mo'rgunblaðið] miðað við verkefni þá er starfsliðið ekki fjölmennt. Svo dæmi sé tekið vinna mun fleiri hjá borgaryfirvöldum í New York... En það eru ákveðin vandamál í sambandi við stjórnun og verkefna- skiptingu sem þarf að takast á við og er verið að takast á við af mik- illi elju“. Skagfírsk sveifla Skagfirskt söng- og skemmtikvöld á Hótel íslandi föstudagskvöldið 25. mars. Skemtntiatriði: Karlakórinn Heimir Stjórnandi: Stefán R. Gíslason. Undirleikarar: Tomas Higgerson, Jón Gíslason. Einsöngvarar: Björn Sveinsson, Einar Halldórsson, Pétur Pétursson, Sigfús Pétursson. Skagfírska söngsveitin Stjórnandi: Björgvin Þ. Valdimarsson. Undirleikari: Sigurður Marteinsson. Fjórir ungir skagfirslúr einsöngvarar: Ásgeir Eiríksson, Helga Rósa Indriðadóttir, Margrét Stefánsdóttir, Sigurjón Jóhannesson.Undirleikari: katrín Sigurðardóttir Skagfírskur hagyrðingarþáttur Stjórnandi: Eiríkur Jónsson. Hljómsveit Geirmundar 1/altýssonar leikur fyrir dansi. Verð aðeins kr. 3.900,- Matseðill Portvínsixett austurlensk sjávarréttasúpa med rjómatopp og kavtar. Koniakslegið grísafiUe meðfranskri dijonsósu, parisarkartöjlum. oregano, flamberuðum ávöxtum aggtjáðu grcenmeti. Konfektís mec1pipamyntuperu, kirsubetjakremi og tjómasúhkulaðisósu. fiom I&LMD Miða- og borðapantanir í síma (91) 687111 alla virka daga frá kl. 13-17. Láttu ekki vanann veráa Jjér aá lieilsutjóni. > Hugleiddu livort ekki er kominn tími til að endumýja gömlu dýnuna jjína. Lystadún-Snæland framleiðir allt [ frá einíöldustu dýnum til úrvals rúmdýna sem fullnægja 1 ströngustu feröfum um útlit, gæái og [lægindi. IS dýnan er Jjrískipt. Efst er lag af mjúkum svampi, í miðjunni er latex, sem er unnið úr náttúru- gúmmíi, og neðst er stífur svampur. Stgr.verð 26.900 kr. (80x200sm) er klædd eggja- 'SV 'áSradyna Lakkaskomum mjúkum svampi efst og neðst og í miðjunni er vandaður fjaðrakjarni. Stgr.verð [18.500 kr.| (80x200; er klædd Lúxus jaoraayna latexi efst og neðst, á milli em mjúkar fjaðrir sem steyptar em inní stuðpúða úr frauði. Hver fjaðraeining er klæ dd í poka og fjaðrar |jví sjálfstætt. Stgr.verð l 32.800 kr. (80x200sm) Skútuvogi 11 • Sími 68 55 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.