Morgunblaðið - 22.03.1994, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1994
fólk f
fréttum
IÞROTTIR
Ólöf Þórhalla Magiiúsdóttir
íþróttamaður ársins
Arsþing Ungmennasam-
bandsins Ulfljóts var
haldið í Hofgarði í Öræfum
12. mars sl. Auk aðalfundar-
starfa voru heiðruð nokkur
ungmenni af sambandssvæð-
inu sem skarað höfðu framúr
í íþróttum með því að setja
mörg met í fyrra. Talið frá
vinstri: Jón Andrésson varð í
5. sæti, Ragnhildur Einars-
dóttir varði í 4. sæti, Rósa
Júlía Steinþórsdóttir varð í
3. sæti, Helga Sigurbjörg
Gunnarsdóttir varð í 2. sæti
og Ólöf Þórhalla Magnúsdótt-
ir varð í 1. sæti en hún var
einnig kjörin íþróttamaður
ársins í annað sinn.
Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson
PIANISTI
Norðmenn finna tvífara Vigdisar
Norska útgáfan af
vikuritinu „Se og
hör“ birti nýverið
mynd af Vigdísi Finn-
bogadóttur forseta
íslands og danska
píanistanum Monu
Lodberg með þeirri
fyrirsögn að Mona
væri tvífari Vigdísar.
Blaðamennimir
Sveinung Habbestad
og Vidar Engum
höfðu samband við
píanistann eftir
Myndirnar sem norska blaðið birti.
margar ábendingar og staðfesti
hún þá cið sér hefði verið bent á
þetta oft og tíðum.
Vigdís er stórglæsileg kona og
ég er upp með mér
ef ég þyki líkjast
henni. Hún er fram-
úrskarandi fulltrúi
kvenna um allan heim
sem hafa dugnað og
þor og ná langt án
þess að glata kven-
legum eiginleikum
sínum,“ segir Mona.
Sjálf er hún dönsk,
en hefur búið í Osló
í 30 ár og hún starfar
sem píanisti í glæsi-
legasta veitingasal
Continentalhótelsins í Osló, „Ann-
en Etage“.
FIMLEIKASAMBANDISLANDS OG AKTIVERUIÍ SVIÞIOÐ
W kalla til námsstefnu í þolfimi og pallaleikfimi
Staður:
Laugardalshöll - Kennslusalir ÍSÍ
- íþróttahús Gerplu.
Þátttaka:
Tilkynnist FSÍ í sima 813101
kf. 10-14 virka daga.
Kennarar:
Jónína Benediktsdóttir, íþróttafr.
og eigandi Aktiverum í Svíþjóð,
Ásgeir Bragason, þolfimiþjálfari,
Guðfinna Sigurðardóttir,
þolfimiþjálfari,
Helen Moog, „Step up“ kennari,
Yesmine Olsson, dansari,
Guðrún ísberg,
dómari í þolfimi.
8. til 10. apríl 1994
ÍÞRÓTTAKENNARAR
ÞOLFIMIÞJÁLFARAR
FIMLEIKAÞJÁLFARAR
DANSKENNARAR
ÁHUGAFÓLK
ERÓBIKK STIG I (L0WIMPACT)
ERÓBIKk STIG 2 (HIGH/L0W)
. ERÓBIKK STIG 3 (FUNK ERÓBIKK)
ERÓBIKK STIG 4 (SH0W ERÓBIKK)
ERÓBIKK STIG 5 (KEPPNISERÓBIKK)
PALLAR STIG I (GRUNNSP0R)
PALLAR STIG 2 (SAMSETNINGAR)
PALLAR STIG 3 (STYRKUR 0G Þ0L)
Missið ekki af þessu einstaka
tækifæri til að kynnast nýjungum
og taka þátt í námskeiði með
þessum frábæru kennurum.
Marco Paoluzzo á ljósmyndasýningpi sinni í Biel í Sviss.
■ '
SVISS
Svart-hvít form
og stemmniiig úr
íslenskri náttúru
ZUrich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttarit ara Morgunblaðsins.
Svissneski Ijósmyndarinn Marco
Paoluzzo hefur þrisvar komið
til íslands. Hann fór þangað fyrst
sumarið 1991, aðallega til að reyna
jeppa sem hann var nýbúinn að
kaupa sér. Hann hreifst af landinu
og ferðin varð að alvöru vinnuferð.
Hann ferðaðist næstu tvö sumur
aftur um landið. Nú á hann myndir
í myndabók um ísland og í mars
opnaði hann sýningu í listasafninu
í Biel í Sviss á íslandsmyndum.
Myndirnar á sýningunni eru allar
svart-hvítar. „Stemmningin í lands-
laginu kemur betur fram í svart-
hvítu,“ sagði Paoluzzo. „Landslagið
er leyndardómsfullt og rólegt á yfír-
borðinu en undir niðri er mikið að
gerast. Það á betur við mig að vinna
í svart-hvítu, auk þess sem veðrið
var ekki alltaf til þess fallið að
nota lit.“ Það eru 55 myndir á sýn-
ingunni alls staðar að af landinu.
Margar þeirra eru dimmar og held-
ur drungalegar. Hvergi sést lifandi
sála. „Það er ekkert fólk á íslandi,"
sagði Paoluzzo, bara hálfpartinn í
gríni. „Það er lítil hætta á að ein-
hver flækist allt í einu fyrir þegar
maður tekur landslagsmyndir þar.“
Paoluzzo gerði myndirnar í ljós-
myndabókina í lit. Nú gælir hann
við þá hugmynd að gera einnig bók
í svart-hvítu. En fyrst þarf að finna
útgefanda í Sviss eða Þýskalandi.
„Mig vantar enn vetrarmyndir frá
Islandi en held að það sé erfitt að
fá gistingu úti á landi yfir vetrar-
mánuðina. Sumarhótelin eru öll iok-
uð.“
Paoluzzo lærði ljósmyndun í ijós-
myndaskólanum í Vevey í Sviss.
íslandssýningin er áttunda einkar
sýningin hans. Hún verður opin tií
3. apríl. Hann hefur tekið þátt í sex
hópsýningum í Sviss og myndi
gjarnan vilja sýna á íslandi. Um
þessar mundir vinnur hann að verk-
ALOE VERA FRA JASON
Lækningamáttur ALOE VERA jurtarinnar er nú á allra vitoröi.
Reynsla þeirra, sem nota ALOE VERA snyrtivörur
frá JASON, er hreint ótrúleg.
Gel með 98% ALOE VERA.
Notast gegn bruna, psoríasis,
exemi, ýmsum tegundum útbrota,
tognun, æðahnútum, kláða o.fl.
Áríðandi: Aðeins ALOE VERA gel án
kemískra ilm- og iitarefna gefur
ALOE VERA frá JASON fæst í ai