Morgunblaðið - 22.03.1994, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 22.03.1994, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1994 45 V/SA 25% afsláttur afbaðinnréttingum til mánaðamóta Mávainnréttingar, Kænuvogi 42, sími 688727. Sérsmíðum eldhús-, bað- og fataskápa Opið til kl. 22 í kvöld. Öryggur sigur A-sveitar TR SEINNI hluti deildakeppni Skáksambands ísland fór fram í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur 11. og 12. mars sl. 30 sveitir tóku þátt í keppninni víðs vegar af landinu. í 1. deild var sigur Taflfélags Reykjavíkur mjög afgerandi. A-sveit félagsins sigraði með 42 vinn- inga og B-sveitin varð í öðru sæti með 3216 vinning. í þriðja sæti varð A-sveit Skákfélags Akureyrar með 31 vinning. í annari deild sigraði A-sveit Taflfélags Kópavogs með 26 vinn- inga og flyst því í fyrstu deild að ári. í öðru sæti varð B-sveit Skákfé- lags Akureyrar með 25‘/2 vinning og í þriðja sæti varð D-sveit Tafifé- lags Reykjavíkur með 24'/2 vinning. í þriðju deild sigraði G-sveit Tafl- félags Reykjavíkur, í öðru sæti varð Taflfélag Vestmannaeyja og í þriðja sæti B-sveit Taflfélags Hellis. G-sveit Taflfélags Reykjavíkur flyst ekki upp í 2. deild þrátt fyrir sigur þar sem reglur kveða svo á að hvert félag má aðeins hafa tvær sveitir í 1. og 2. deiid. Því flyst Taflfélag Vestmannaeyja í 2. deild. í fjórðu sveit varð Skákfélag Selfoss og nágr. í 1. sæti og flyst í 3. deild að ári. B-sveit Taflfélags Akraness varð í öðru sæti og Skák- samband Austurlands í þriðja. ■ SKÓLAFÉLAG Sam- vinnuháskólans heldur sína ár- legu söngvakeppni, Bifróvision, á Hótel Borgarnesi laugardaginn 26. mars nk. Bifróvision er og hefur verið árviss viðburður í skólalífi Samvinnuháskólans til margra ára. Veitt eru verðlaun fyrir bestu frammistöðu umboðs- manns. Auk þess eru að sjálfsögðu veitt verðlaun fyrir besta lagið og einnig besta klæðnaðinn. ■ A FUNDl Oddvita Héraðs og Borgnríjarðar eystri sem haldinn var á Hallormsstað 10. þ.m. var fagnað þeim samgöngu- bótum sem felast í snjómokstri yfír Möðrudalsöræfi. Jafnframt skorar fundurinn á samgönguráð- herra að vegurinn frá Egilsstöðum og norður um fjöll verði uppbyggð- ur og lagt verði til hans fé úr stór- framkvæmdasjóði svo heilsárs- tenging milli Norður- og Austur- lands verði lokið sem allra fyrst. „Lagt verður verulegt fjármagn í þetta verk nú á þessu ári og því skorum við á samgönguráðherra að áfram verði haldið af sama þunga þar til þessu verki verði að fullu lokið,“ segir í samþykkt odd- vitafundarins. iislaspilara, tvöföldu kassettutæki, útvarpi, góöum hótölurum, fullkominni fjarslýringu og innbyggðum vekjara ó fróbæru verði - Goldsfar FFH-333L ASeins 44.900,- kr. e5a 39.900,* stgr. SKIPHOLTl 19 SÍMI 91-29800 Nýtt met Æfingaskóla KHÍ ___________Skák________________ Margeir Pétursson ÆFINGASKÓLI Kennara- háskóla fslands vantaði aðeins einn vinning upp á að sigra með fullu húsi I sveitakeppni Grunnskóla í Reykjavík sem fram fór um helgina. A sveit skólans hlaut 35 vinninga af 36 mögulegum, það var aðeins B sveit Æfingaskólans sem tókst að klípa vinning af sveit- inni í fyrstu umferð. í sigur- sveitinni voru þeir Arnar Gunnarsson, Bragi Þorfinns- son, Björn Þorfinnsson og Odd- ur Ingimarsson. Úrslit: 1. Æfíngaskóli KHÍ, A sveit 35 v. 2. Hlíðaskóli 25>/2 v. 3. Æfíngaskóli KHÍ, B sveit 24'h v. 4. Hólabrekkuskóli, A sveit 23 Vi v. 5. Hólabrekkuskóli, B sveit 21 v. 6. Breiðagerðisskóli 19 Vi v. 7. Fossvogsskóli 18'/2 v. 8. Rimaskóli I8V2 v. 9. Breiðholtsskóli, A sveit 18 v. 10. Vesturbæjarskóli 17‘/2 v. 11. Seljaskóli 17 v. 12. Grandaskóli, A sveit 16 v. 13. Ártúnsskóli, A sveit 15'/2 v. 14. Grandaskóli, B sveit 15'A v. 15. Hagaskóli 15 Vi v. 16. Laugamesskóli 15 v. 17. Breiðholtsskóli, B sveit 15 v. 18. Miðskólinn 14‘/2 v. 19. Ártúnsskóli, B sveit 13'/2 v. Umhugsunartíminn var hálf- tími á skákina. Skákstjórar vora Ólafur H. Ólafsson og Ríkharður Sveinsson. Tveir náðu jafntefli við Jóhann Jóhann Hjartarson, stórmeist- ari, tefldi fjöltefli við börn og unglinga á aldrinum 7—14 ára úr Kópavogi í síðustu viku. Fjöl- teflið var á vegum Skákskóla ís- lands og fór fram í félagsheimili Taflfélags Kópavogs að Hamra- borg 5, 3. hæð. Jóhann vann 14 skákir, en tveir náðu jafntefli, þeir Einar Hjalti Jensson, 13 ára, og Sigurður Heiðar Höskuldsson sem aðeins er átta ára gamall. Skákkennsla TK er á þriðju- dögum kl. 17 til 18.30 og hvetur stjórn TK bæði stelpur og strákar til að mæta. Ókeypis er á æfíng- amar. Á æfingunum eru bæði mót og uppákomur og þriðjudag- inn 22. mars verður haldið páska- eggjamót. Hraðskákmót Kópavogs fór fram að loknu skákþinginu. Röð efstu manna varð þessi: 1. Tómas Björnsson 17‘/2 af 19 mögulegum 2. Hlíðar Þór Hreinsson 17 v. 3. Haraldur Baldursson 15 v. 4. Sölvi Jónsson 14 v. 5. Gunnar Freyr Rúnarsson 12*/2 v. Skákkeppni stofnana og fyrirtækja Árlegu móti stofnana og fyrir- tækja lauk fyrir skömmu. Þátt- taka var dræmari en oft áður, í A flokki mættu t.d. aðeins níu sveitir til leiks og vora þær flest- ar skipaðar öflugum og reyndum skákmönnum. Röð hinna efstu varð þannig: A flokkur: 1. íslandsbanki 30‘/2 v. af 36. 2. Búnaðarbankinn 27‘/2 v. 3. Landsbankinn 24 v. í sigursveit íslandsbanka vora þeir Björgvin Jónsson, Björn Þor- steinsson, Þráinn Vigfússon, Gunnar Gunnarsson, Jón G. Bri- em og Gunnar Björnsson. Á hrað- skákmóti í A flokknum sigraði sveit Sýslumannsins í Reykjavík, en íslandsbanki varð að láta sér nægja annað sætið. Austurlandsmótið Svæðamót Austurlands fór fram á Reyðarfirði. Skákmeistari Austurlands varð Sverrir Unnars- son sem var þó stigalægstur kepp- enda. Hann 0g Viðar Jónsson hlutu jafnmarga vinninga, en Sverrir var hærri á Bucholz—stig- um. Hann lagði Viðar að velli í úrslitaskák í síðustu umferð. Röð efstu manna varð þessi: 1. Sverrir Unnarsson 4 v. af 5 2. Viðar Jónsson 4 v. 3. Jónas A. Þ. Jónsson 3‘/2 v. 4. Jóhann Þorsteinsson 3 v. 5. Gunnar Finnsson 2'/2 v. Skákþing íslands 1994 Keppni í áskorenda— og opn- um flokki á Skákþingi Islands 1994 hefst nk. laugardag kl. 14 í Skákmiðstöðinni Faxafeni 12. Teflt verður á hveijum degi fram til mánudagsins 4. apríl, sem er annar í páskum. Frí er á Skírdag, 31. mars. í áskorendaflokki er teflt um tvö sæti í landsliðsflokki í haust. Keppni er heimil þeim sem hafa 1800 stig eða meira, auk þess eiga unglingameistari íslands 1993 og kvennameistari íslands 1993 þátttökurétt. Einnig tveir efstu menn í opna flokknum í fyrra og efstu sex menn svæða- móta sem skilgreind eru af stjórn Skáksambands íslands. Það má vænta afar harðrar baráttu í áskorendaflokknum um landsliðs- sætin tvö. Stjórn SÍ hefur úthlut- að tveimur boðssætum sínum í landsliðsflokkinn til Skákþings Vestfjarða og Skákþings Norð- lendinga. Þar með er ljóst að enginn getur verið öraggur um þátttöku nema vinna sér réttinn. Öllum er heimil þátttaka í opna flokknum. Auk venjulegra verð- launa fá tveir qfstu sæti í áskor- endaflokki að ári, óháð stigatölu. Öðlingamót TR Öðlingamótið er fyrir skák- menn um fertugt og eldri og hef- ur verið afar vel látið af þessum mótum síðan þau hófust. Mótið hefst miðvikudaginn 23. mars kl. 19.30 í skákmiðstöðinni Faxafeni 12 og er öllum opið sem uppfylla ofangreind aldursskilyrði. Tefldar verða sjö umferðir eftir Monrad kerfí, umhugsunartíminn er ein og hálf klukkustund á 30 leiki og síðan hálftími til að ljúka skák- inni. Ólafur Ásgrímsson, alþjóð- legur skákdómari, hefur verið umsjónarmaður öðlingamótanna og sagði hann að teflt yrði einu sinni í viku að jafnaði, en mótinu ætti að ljúka 4. maí. Viku seihni verður síðan hraðskákmót og verðlaunaafhending. er ódýr og örugg leið til að kynnast nýju fólki. Með einu símtali getur þú á þægilegan og skemmtilegan hátt hlustað á skilaboð frá fólki í leit að félagsskap. Vertu með á SÍMAstefnumótinu. Verð 39.90 kr. mínútan. 99 1895 HEIMILISIÐNAÐARSKOLINN Laufásvegi 2 • sími 17800 Þæfing 28., 29. og 30. mars kl. 19.30 - 22.30. Kennari: Anna Þ. Karlsdóttir. Ásaumur í vél 26. og 27. mars 9. og 10. apríl kl. 10 - 13.45. Kennari: Hanne Hintze. Dúkaprjón 9. apríl - 14. maí kl. 10 - 13. Kennari: Ragna Þórhallsdóttir. Fatasaumur 13. apríl - 11. maí kl. 19.30 - 22.30. Kennari:Herdis Kristjánsdóttir. Útskurður 11. apríl - 9. maí kl. 19.30 - 22.30. Kennari: Bjarni Kristjánsson. Pappírs- og korta- gerð 5., 6., 12. og 13. apríl kl. 19.30 - 22.30. Kennari: Þorgeröur Hlöðversdóttir. Prjóntækni 6. apríl - 4. mai kl. 19.30 - 22.30. Kennari: Ragna Þórhallsdóttir. Námskeið fyrir foreldra og börn Körfugerð (4 sk.) Pappírsgerð (2 sk.) 7. apríl - 5. maí (fim.) 9. og 10. apríl (helgi) kl. 19.30 - 21.30 kl. 15 - 18 fyrir börn 8 ára og eldri. fyrir börn 8 ára og eldri. Kennari: Margrét Kennari: Guðnadóttir. Þorgerður Hiöðversdóttir. Myndvefnaður (5 sk.) Smfði (4 sk.) 16. apríl - 14. maí (lau.) 16. apríl - 7. mai (lau.) kl. 10 - 12 kl. 1Ö - 12 fyrir börn 7 ára og eldri. fyrir börn 11 ára og eldri. Kennari: Kennari: Elínbjört Jótisdóttir. Bjarni Kristjánsson. Til að fá frekari upplýsingar vinsamlegast hringið á skrifstofu skólans í síma 17800 mánud. - fimmtud., milli kl. 13 og 15 eða til skólastjóra milli kl. 10 og 12 í síma 21913. Öll kennsla fer fram í húsi Heimilisiðnaöarfélagsins á Laufásvegi 2. V^terkur og kJ hagkvæmur auglýsingamióill!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.