Morgunblaðið - 22.03.1994, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 22.03.1994, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1994 51 Prófkjör Alþýðuflokksins í Keflavík/Njarðvík og Höfnum Fyrrverandi bæjarstjóri hafnaði sæti á listanum Keflavík. VILHJÁLMUR Ketilsson, skólastjóri, fyrrverandi bæjarstjóri og bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins í Keflavík ákvað á sunnudag, þegar úrslit lágu fyrir í prófkjöri flokksins fyrir komandi bæjarsljórnar- kosningar í nýju sameinuðu bæjarfélagi, Keflavík, Njarðvík og Höfnum, að taka ekki sæti á listanum. Vilhjálmur hafnaði í öðru sæti og hefði samkvæmt prófkjörsreglum átt að taka þriðja sætið þar sem annað sætið var ætlað þeim Njarðvíkingi sem flest at- kvæði fengi. Anna Margrét Guðmundsdóttir bæjarfulltrúi hlaut flest atkvæði í fyrsta sætið, en alls tóku 2.349 þátt í prófkjörinu. Hjalti Öm Ólason, formaður full- trúaráðs Alþýflokksfélaganna í Keflavík, Njarðvík og Höfnum, sagðist hafa fengið skriflega yfírlýs- ingu frá Vilhjálmi Ketilssyni á sunnudag þess efnis að hann myndi ekki taka sæti á listanum þar sem hann hefði ekki fengið stuðning í fyrsta sætið. Hjalti Örn sagði að fulltrúaráðið myndi leggja til að frambjóðendur yrðu færðir upp um eitt sæti á listanum. Hjalti Örn sagði að meiin væru ákaflega ánægðir með hversu mikil og góð þátttaka hefði verið í prófkjörinu og greini- legt að miklir straumar væra til flokksins. „Þessi úrslit urðu mér mikil von- brigði. Ég stefndi á fyrsta sætið en fékk ekki stuðning i það og í ljósi þess hef ég ákveðið að draga mig í hlé,“ sagði Vilhjálmur Ketilsson í samtali við Morgunblaðið í gær. Alls tóku 22 frambjóðendur þátt í prófkjörinu, atkvæði greiddu 2,349 og þar af voru 31 ógilt. Úrslit urðu þau að Anna Margrét Guðmunds- dóttir, Keflavík, hlaut 650 atkvæði í 1. sæti og 1.777 atkvæði alls, Vil- hjálmur Ketilsson, Keflavík, hlaut Átök í umferðinni TIL átaka kom síðdegis á sunnudag milli tveggja manna við hringtorg i Mosfellsbæ eftir að bíll sem annar þeirra, maður á miðjum aldri, var farþegi í hafði skömmu áður að sögn hins, pilts um tvítugt, svín- að fyrir bíl hans. Við átökin féilu mennirnir í götuna og hafði piltur- inn hinn undir. Báðir aðilar sneru sér til lögreglu með kærur. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins var aðdragandi átakanna sá að leið bílanna hafði skorist á gatnamótum í Mosfellsbæ og hafði þá annar ökumaður brotið biðskyldu á hinum. Þeim síðarnefnda, piltinum, tókst naumlega að forðast árekstur á glerhálli götunni með því að aka út fyrir veg. Hinn stöðvaði hins veg- ar ekki og gramdist piltinum það, elti bílinn, komst upp að hlið hans á hringtorgi og þvingaði hann út í kant. Síðan kom til átaka milli hans og manns sem var farþegi í hinum bílnum og veltust þeir um í vegar- kantinum um stund en hættu síðan og hélt hvor í sína átt. Samkvæmt upplýsingum lögreglu höfðu henni borist kærar frá báðum málsaðilum vegna framferðis hins. Hvorugur mun hins vegar hafa meiðst eða orðið fyrir öðru tjóni. Frá því Hjúkrunarheimilið var opnað hafa 360 einstaklingar notið dvalar þar, til lengri eða skemmri tíma. Fjöldi legudaga er orðinn 181.500. Árið 1983, sem var fyrsta lieila starfsárið, voru 153 einstak- lingar innritaðir. Þá dvöldu einstak- lingar oft stutt og mikið var um hvíldarinnlangir, en 1993, tíu árum seinna, voru 40 einstaklingar lagðir inn. Þeir sem lagðir eru inn í Sunnu- hlíð í dag eru mun meiri hjúkrunar- sjúklingar en þeir sem lagðir voru inn fyrir tíu áram og þarfnast mun meiri aðhlynningar. Árið 1983 dvaldi 797 atkvæði í 2. sætið og 1.473 atkvæði alls, þriðji varð Ragnar Halldórsson, Njarðvík, með 872 at- kvæði og 1.257 atkvæði alls, Hilmar Hafsteinsson, Njarðvík, varð fjórði með 844 atkvæði og 1.308 atkvæði alls, fimmti varð Kristján Gunnars- son, Keflavík, með 871 atkvæði og 1.048 atkvæði alls, og í sjötta sæti varð Reynir Ólafsson, Keflavík, með 899 atkvæði og 1.047 atkvæði alls, í sjöunda sæti varð Bjöm H. Guð- björnsson með 686 atkvæði, áttundi varð Jón B. Helgason með 660 at- kvæði, níundi Olafur Thordersen með 676, tíundi Haukur Guðmunds- son með 621 atkvæði og í ellefta sæti varð Bergþóra Jóhannsdóttir með 603 atkvæði. -BB Einarvarð efstur í Garðabæ EINAR Sveinbjörnsson veður- fræðingur, varð í fyrsta sæti í skoðanakönnin Framsóknar- flokksins sem fram fór um helg- ina vegna bæjarsljórnarkosning- anna í vor. Við síðustu sveitar- sljórnarkosningar bauð flokkur- inn fram sameiginlega með Al- þýðubandalagi og Samtökum um kvennalista. Sjö manns tóku þátt í forvali Framsóknarflokksins, Árni Geir Þórmarsson, Einar Sveinbjömsson, Gunnar Jón Ingvason, Hilmar Bjartmars, Inga Hrönn Hjörleifs- dóttir, Ólöf Pálína Úlfarsdóttir og Sigurður P. Sigmundsson. 131 tók þátt i forvalinu. Eftir er að raða niður á framboðs- listann en fýrsta sætið er bindandi fyrir kjörnefndina. í matsal Sr. Þorbergur Kristjánsson hefur annast prestsþjónustu í Sunnuhlíð um 10 ára skeið. Hér er hann á spjalli við dvalargesti í matsal hjúkr- unarheimilisins. Sunnuhlí ð í Kópavogi fagnar 15 ára afmæli FIMMTÁN ÁR eru liðin frá því haldin var stofnfundur Hjúkrunarheim- ilis aldraðra í Kópavogi. Kópavogsbúar söfnuðu sjálfir fyrir heimilinu með frjálsum framlögum og nú rekur Sunnuhlíð umfangsmikla starf- semi fyrir eldri borgara. Þar er Iljúkrunarheimilið, dagdvöl fyrir eldri borgara, sjúkraþjálfun, hár- og fótsnyrtistofa, verslun, matsala o.fl. en auk þess reka Sunnuhliðarsamtökin alls 108 verndaðar þjónustu- íbúðir fyrir aldraða í þremur byggingum. hver einstaklingur að jafnaði 78,3 daga í hjúkrunarheimilinu, en 1993 voru dvalardagar að jafnaði 204,5. Þjónustan aukin Stjórn Sunnuhliðar hefur ákveðið að auka við þjónustu sína og veita upplýsingar um valkosti eldra fólks þegar það hyggst skipuleggja líf sitt og lífsafkomu á ævikvöldi. Stjórnar- formaður Sunnuhlíðar, Ásgeir Jó- hannesson, mun hafa sérstaka við- talstíma tvisvar í viku, á mánudög- um kl. 11-12 og miðvikudögum kl. 15-16. Það eru 12 og 13 ára nemendur í gagnfræðaskóla í Formia, bæ sem er á milli Rómar og Napólí, sem sendu bréfíð. Kennari þeirra í sögu og landafræði hyggst aðstoða þau við að setja upp Islandssýningu og hefur óskað eftir litskyggnum, myndböndum, veggspjöldum, frí- merkjum, mynt, seðlum, bæklingum og öllu því sem nota má til kynning- ar á landi og þjóð. Þess í stað býður hann ýmis konar efni frá Ítalíu. í bréfí sínu segist kennarinn, Bar- tolomeo Pianese, vera orðinn áhyggjufullur af því að ekki takist að setja upp sýninguna og furðar hann sig jafnframt á hinum dræmu viðbrögðum hérlendis. Send voru bréf til Útflutningsráðs, Iceland Rewiew, ítölsku ræðismannsskrif- stofunnar, íslenskra mátvæla, Flug- leiða, Hitaveitu Suðurnesja, Sölu- sambands íslenskra fiskframleið- enda, Osta- og smjörsölunnar og Náttúrugripasafnsins á Akureyri, til að nálgast sem fjölbreyttastar upp- lýsingar um land og þjóð. Engin svör höfðu borist þann 16. þessa mánaðar og biðja Pianese og nem- endur hans, sem skrifa á ensku, les- endur Morgunblaðsins um aðstoð. Heimilisfangið er: Prof. Pianese Bartolomeo, Classe 2 C, Scuola Media „Pollione" 04023 Formia - LT - Italy Óska aðstoðar ÞESSIR ítölsku skólakrakkar óska aðstoðar við að setja upp sýningu um ísland. Hingað til hefur verið fátt um svör frá islenskum fyrir- tækjum. Itölsk börn óska aðstoðar við Islandskyimingu Dræmar undir- tektir fyrirtækja ÞEIR sem áhuga hafa á að kynna Island á erlendri grund, virðast geta lent í hinum mestu erfiðleikum með að koma á tengslum við þá aðila hérlendis sem að landkynningu starfa. Morgunblaðinu barst nýlega bréf frá ítölskum skólakrökkum og kennara þeirra sem sögðu viðleitni sína til að fá kynningarefni frá Islandi engan árangur hafa borið og höfðu þau þó leitað til ýmissa fyrirtækja, sem ætla skyldi að létu sig málið varða. Hópurinn hyggst halda sýningu um Island í júní og segir nú lítinn tíma til stefnu. 11. leikvika, 19. mars 1994 Nr. Leikur: Röðin: 1. Aston Vitla - Oldham - - 2 2. Leeds - Coventry 1 - - 3. Liverpool - Cheisca 1 - - 4. Man. City - Sheff. Utd - X - 5. QPR - Wimbledon 1 - - 6. Southampton - Arsenal - - 2 7. Swindon - Man. Utd. - X - 8. Tottenham - Ipswich - X - 9. West Ham - Newcastle - - 2 10. Brístol C. - Portsmouth 1 - - 11. Notth For. - Bolton 1 - - 12. Oxford - Tranmere 1 - - 13. Southend - Stoke - X - Heiidarvinningsupphæðin: 120 milljón krónur 13 réttin 920.760 n kr. 12 réttin 14.460 i kr. 11 réttir: 950 i kr. 10 réttir: 250 i kr. £ __ fOLTINN 11. leikvika, 20. mars 1994 Nr. Leikur: Röðin: 1. Cagliarí - Sampdoria - X - 2. Foggia - Roma - X - 3. Genoa - Udinese 1 - - 4. Juventus - Parma 5. Lazio - Napoli 6. Leccc - Crcnione.se 1 - - 1 - - - - 2 7. Milan - Inter . 1 8. Piacenza - Atalanta 1 9. Reggiana - Torino 1 10. Empoli - Bologna 11. Mantova - Carrarese 12. Perugia - Reggina 13. Pistoiese - Fiorenzuola - X - 1 - - 1 - - - X - Heildarvinningsupphæðin: 18,0 milljón krónur | 13 réttin 19.980 Jkr. 12 réttir: 1.110 J kr. 11 réttin 0 J kr. 10 réttin 0 J kr. Austfirsku Olympíu- leikarnir Egilsstöðum. LILLEHAMMER-leikunum er lokið í Noregi og þá taka við sk. Austfirsku ólympíuleikarnir á íslandi. Leikar þessir eru árviss uppákoma austfirskra fram- haldsskólanema. Þeir voru að þessu sinni haldnir á Egilsstöðum um síðustu helgi. Opnunaratriði leikanna vakti ntikla athygli þar sem hlaupið var með ólymíueld tvo hringi í salnum og þjóðsöng- urinn hljómaði um salinn. Mættir voru til leiks Framhalds- skóli Austur-Skaftafellssýslu, Verkmenntaskóli Austurlands, Menntaskólinn á Egilsstöðum og Alþýðuskólinn á Eiðum. Keppt var í hefðbundnum íþróttagreinum eins og körfubolta, fótbolta og hand- bolta. Ennfremur var keppt í óhefð- bundnari greinum eins og troðslu- keppni og boccia. - Ben.S VÁKORTALISTÍl Dags. 22.3.1994. NR. 153 5414 8300 5414 8300 5414 8300 5414 8301 5422 4129 5221 0010 5413 0312 0310 5102 3163 0113 3164 7117 0494 0100 7979 7650 9115 1423 3386 5018 |Ofangreind kort eru vákort, sem taka ber úr umferð. VERÐLAUN kr. 5000.- fyrir þann, sem nær korti og sendir sundurklippt til Eurocards. kreditkorthf., Ármúla 28, 108 Reykjavík, sími 685499 Þú svalar lestrarþörf dagsins ásíúum Moggans! y

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.