Morgunblaðið - 22.03.1994, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 22.03.1994, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1994 JMwgtiiiMflfrfí Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. Fjölskyldan, atvinn- an og velferðin Fjölskyldumálin eru hörð- ustu málin því þau eiga að sýna þau raunverulegu gildi sem sjálfstæðisstefnan býr yf- ir. Það er Árni Sigfússon, nýr borgarstjóri í Reykjavík, sem þannig kemst að orði í viðtali við Morgunblaðið síðastliðinn sunnudag, þegar hann tíundar lífsviðhorf sín og markmið í borgarmálum. „Atvinnumálin eru hluti af fjölskyldulífinu. Þess vegna segi ég að fjölskyldumálin séu hörð mál. Ef menn halda því fram að ég sé fulltrúi mjúku málanna þá er það alrangt. Fjölskyldumálin eru hörðustu málin ... Og þessi málaflokkur þarf að fá aukið vægi.*’ Þegar Árni Sigfússon tók við starfi borgarstjóra á dögun- um lagði hann megináherzlu á atvinnu- og fjölskylaumál. Hann sagði þjónustu borgar- innar í þágu barna og ung- menna annars vegar og rosk- inna borgarbúa hins vegar vera víðtæka og umfangsmikla. Þessa þjónustu þurfi að styrkja. Jafnframt þurfi borg- arstjórn að að gera allt sem í hennar valdi stendur til að treysta starfsgrundvöll at- vinnulífsins og fjölga störfum. Til atvinnuveganna sækjum við þau verðmæti sem rísa verða undir lífskjörum okkar og fé- lagslegri þjónustu hvers konar. Er ekki úrelt að dæla pen- ingum í verkefni sem skapa vinnu í nokkra mánuði, spyr blaðamaður í viðtalinu. „Það er ekki úrelt fyrir þá einstak- linga sem eru atvinnulausir og þurfa á vinnu að halda til að viðhalda starfsþreki sínu og sjálfsvirðingu,“ svaraði borg- arstjóri. „Hér á landi, þar sem menn eru svo óvanir atvinnu- leysisvofunni, óttast ég að slæmu áhrifin komi fyrr og risti dýpra en annars staðar ...“ Víst er að mörg fyrirvinnan, sem misst hefur atvinnu sína í efnahagssamdrætti síðustu ára, getur tekið undir þessi orð. Sama máli gegnir um þau fimm þúsund ungmenni sem fengu sumarstörf á vegum borgarinnar á síðastliðnu ári. Arni Sigfússon er fulltrúi yngra fólksins í borgarmálun- um og hann hefur lagt áhezlu á ný vinnubrögð og málefni, sem hafa átt undir högg að sækja. Hann hefur verið for- maður Skólamálaráðs Reykja- víkur og segist vilja „mynda stóran hóp sem nær samstöðu um hvernig við sköpum beztu grunnskóla í Vestur-Evrópu. Til þess að auka gæði mennt- unar þarf einsetinn heilsdags- skóla“, segir hann. „Ég vil ekki tala um breyttar áherzlur heldur aukna áherzlu á verk- efni af þessum toga... Fjár- mögnun snýst um forgangs- röðun. Þetta eru forgangsverk- efnin. Annað verður þá að bíða.“ Og nú hefur þessi fulltrúi yngra fólksins og fjölskyldu- gildanna valizt til foiystu borg- arstjórnarflokki sjálfstæðis- fólks. „Þjóðfélagið er að breyt- ast,“ segir hann. „Þessi gildi eru að verða meira áberandi í umhverfi okkar. Fyrir tíu árum þegar haldin voru barna- íþróttamót þótti eiginlega hjá- kátlegt að foreldrar væru með bömunum. í dag þykir það hjákátlegt ef foreldrar eru ekki með börnunum ... Menn eru tilbúnir og bíða eftir tækifæri til að snúa sér meira að fjöl- skyldunni. Og ég held að menn grípi fegins hendi í þann sem tekur slík mál upp og fylgir þeim eftir. Ég held það skipti máli að það sé karlmaður sem gerir það. Sem lýsi því yfir að þetta séu hörðu málin.“ Er ekki frami í pólitík og fjölskyldulíf ósættanlegar and- stæður, spyr blaðamaður. Það telur hinn nýi borgarstjóri af og frá. „Mér finnst ég vera allt öðruvísi stjórnmálamaður. Ég vona að ég sé fulltrúi nýrr- ar kynslóðar í stjórnmálum," segir hann. Mergurinn málsins er að leggja sig allan fram í þágu góðra mála sem til heilla horfa og tileinka sér jákvæð og nútímaleg vinnubrögð. „Við eigum að vinna heiðarlega, eiga okkar fjölskyldur og eiga rétt á að lifa fjölskyldulífí fyrir utan hið opinbera líf.“ Þau svör sem hér að framan hefur verið vitnað til lýsa vel lífsviðhorfum og markmiðum hins nýja borgarstjóra. Áherzl- ur hans varða einstaklinginn og ijölskylduna, almenna hag- sæld og velferð í borginni. Annars vegar atvinnulífið, sem er kostnaðarleg undirstaða af- komu fólks og samfélagslegrar þjónustu. Hins vegar rammann um heilbrigt mannlíf í borg- inni. — „Maður stjórnar sjálfur sínum huga og því, hvernig maður upplifir atburði. Ég vel að uppjifa þá á jákvæðan hátt,“ segir Árni Sigfússon í lok við- talsins, ummæli, sem lýsa bet- ur afstöðu borgarstjóra til manna og málefna en flest annað. AF INNLENDUM VETTVANGI AGNES BRAGADÓTTIR Afkoma Flugleiða 1988-93 (á verðlagi í árslok 1993) 1200 Hagnaður (tap) skv. ársreikningi Hagnaður (tap) án söluhagnaðar Hagnaður (tap) eftir bókfærða vexti af eigin fé '88 '89 n-.-j ; J j_. J '93 '90 ’91 '92 -600 milljónir kr. '91 '92 '93 10%------------ Raunávöxtun 5 — hluthafa — 0 ’91 Raun krafa spari Ar í F Sa spi Markaðsveðmæti hlutafjár í Flugleiðum (á verðlagi í árslok 1993) 5.000 milljónir kr. Markaðsvirði h fjár Flugleiða f um 51% á 3 áru MARKAÐSVIRÐI hlutafjár Flug- leiða hefur fallið um 51% frá árslokum 1990 til ársloka 1993, á verðlagi ársloka sl. árs. Þannig hefur markaðsverðmæti hluta- fjárins fallið úr 4.612 milljónum króna í 2.263 milljónir króna, eða um 2.349 milljónir króna. Raun- ávöxtun hlutafjár hluthafa í Flugleiðum á undanförnum árum hefur verið neikvæð. Hún var neikvæð um 15% árið 1991, nei- kvæð um 28% árið 1992 og nei- kvæð um 11% á liðnu ári. Hörður Sigurgestsson, stjórnarformaður Flugleiða, valdi síðustu sex árin í sögu Flugleiða, í ræðu sinni á aðalfundi félagsins sl". fimmtu- dag, er hann sagði: „I þessu sam- bandi er fróðlegt að horfa til þess, að ef litið er yfir til dæmis síðastliðin sex ár, þá hefur með- alávöxtun hlutafjár í Flugleiðum numið um 7,5% umfram verð- bólgu.“ Söluhagnaður af flugvél- um á árinu 1988 var upp á 945 milljónir króna, söluhagnaður af flugvélum var upp á 214 milljón- ir á árinu 1989 og söluhagnaður af flugvélum á árinu 1990 var upp á 243 milljónir króna. Með því að reikna tekjurnar af flug- vélasölunni inn í afkomutölurnar, má fá þá niðurstöðu sem stjórnar- formaðurinn kemst að, að því er varðar meðalávöxtun hlutafjár- ins, en þessar tekjur eru tilkomn- ar vegna þess að afskriftir fyrri ára hafa numið hærri upphæð en sem nemur lækkun á verðgildi vélanna á sama tíma. Því má skýra þessar tekjur sem leiðrétt- ingy á afskriftum fyrri ára að stórum hluta. Þannig var um 143 milljóna króna rekstrartap að ræða á árinu 1988 hjá Flugleiðum, þegar sölu- hagnaður flugvélanna hefur verið dreginn frá, sem jafngildir 210 millj- óna króna tapi á verðlagi í árslok 1993. Á árslokaverðlagi ársins í fyrra varð útkoma ársins 1989 hjá Flugleiðum neikvæð um 584 millj- ónir króna (án söluhagnaðar), hún varð jákvæð um 59 milljónir króna árið 1990 (án söluhagnaðar), já- kvæð um 105 milljónir króna árið 1991, jákvæð um 106 milljónir króna árið 1992 og neikvæð um 188 milljónir króna árið 1993. Samkvæmt ársreikningum Flug- leiða eru niðurstöðutölur talsvert aðrar. Á verðlagi ársloka 1993 fyrir árið 1988 er hagnaður félagsins samkvæmt ársreikningi 1.183 millj- ónir króna (söluhagnaður vélanna er hagnaðurinn), ársreikningur 1989 sýnir 229 milljóna króna tap, ársreikningur sýnir 452 milljóna króna hagnað 1990 (þar af er sölu- hagnaður flugvéla 284 milljónir króna), ársreikningur sýnir 157 milljóna króna hagnað 1991, 138 milljóna króna tap 1992 (það ár voru flugvélavarahlutir færðir niður um 229 milljónir króna, sem er lík- Hlutabréf félagsins hafa lækkað um 2,3 milljarða króna á markaði á þremur árum á verðlagi árs- loka 1993 Markaðsvirði hluta- fjárins fallið um 83 milljónir króna frá áramótum lega leiðrétting á kostnaði fyrri ára, og meðhöndluð í ársreikningi eins og söluhagnaður flugvélanna) og 188 milljóna króna tap 1993. Hagnaður eða tap Flugleiða eftir reiknaða vexti af bókfærðu eigin fé er á þessum árum sem hér segir (á verðlagi í árslok 1993): 1988 er hagnaðurinn 1.023 milljónir króna, 1989 er tapið 435 milljónir kr'na, 1990 er hagnaður upp á 193 millj- ónir króna, 1991 er tap upp á 241 milljón króna, 1992 er tap upp á 560 milljónir króna og 1993 er tap upp á 564 milljónir króna. Samtals vantar 584 milljónir króna upp á, að ávöxtun eigin fjár á árunum 1988 til 1993 samsvari meðalútlánavöxtum bankanna á sama tíma. Það gerist þrátt fyrir að söluhagnaður flugvéla er yfir 1,9

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.