Morgunblaðið - 22.03.1994, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 22.03.1994, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1994 Kosið um sameiningu þriggja sveitarfélaga Sameining felld í Skriðuhreppi ÍBÚAR Skriðuhrepps felldu í kosningum á laugardag tillögu Eyþings um sameiningu þriggja syeitarfélaga í Eyjafirði, Glæsi- bæjarhrepps, Skriðuhrepps og Öxnadalshrepps. íbúar hinna hreppanna tveggja samþykktu tillögu um sameiningu. Forsvars- menn sveitarfélaganna hafa ekki hist en gert er ráð fyrir að fundað verði fljótlega um niðurstöðuna. í Glæsibæjarhreppi voru 167 á kjörskrá, 89 gi-eiddu atkvæði eða rúm 53%. Já sögðu 50 manns, 38 sögðu nei og 1 seðill var auður. Stefán Halldórsson hreppstjóri á Hlöðum í Glæsibæjarhreppi sagði Svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra Sótt um tvær byg’gingalóðir SVÆÐISSKRIFSTOFA um mál- efni fatlaðra hefur sótt um tvær lóðir til að byggja á sambýli fyrir fatlaða á einni hæð, 280-320 fermetra að stærð. Æskilegt er að húsin verði stað- sett sitt hvoru megin við Glerá. í erindi forsvarsmanna Svæðis- skrifstofunnar til bygginganefndar Akureyrar er jafnframt vakin at- hygli á, að fyrirhugað er að byggja þriðja sambýlið og dagheimili fyrir þroskahefta. Auk þess að vekja athygli á laus- um íbúðarhúsalóðum í Giljahverfi benti bygginganefnd á lóðir á mið- svæði við Lindarsíðu, á grænu svæði við Litluhlíð, og einnig á grænu svæði við Helgamagra- stræti og þá er bent á svæði við Þórunnarstræti sunnan Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri. að vegna lítillar kjörsóknar væri niðurstaðan vart marktæk, en hann taldi áhugaleysi helstu skýr- ingu á lélegri kjörsókn. Hann sagð- ist halda að sameiningarhugmynd- ir væru úr myndinni að sinni í kjöl- far þessarar niðurstöðu. í Skriðuhreppi voru 76 á kjör- skrá og kusu 55 eða 72%. Sam- þykkir tillögu um sameiningu voru 28 en 23 voru henni mótfallnir. Fjórir seðlar voru auðir. í Öxnadalshreppi voru 40 á kjör- skrá, 27 kusu eða 67,5%. Mikill meirihluti þeirra sem kusu í hreppnum voru samþykkir samein- ingu eða 22 sem er yfir 81%. Fjór- ir voru mótfallnir sameiningunni og einn seðill var auður. Sveitarfélögin tvö þar sem sam- einingin var samþykkt hafa heim- ild til að sameinast og sagði Ari Jósavinsson á Auðnum í Öxnadals- hreppi að eðlilegt væri að forsvars- menn þeirra myndu ræða næstu skref í málinu fljótlega. ■ KYRRÐARSTUND verður í Glerárkirkju á morgun, miðviku- daginn 23. mars frá kl. 12-13. Or- gelleikur, helgistund, altarisakra- menti, fyrirbænir. Léttur málsverð- ur að stundinni lokinni. Allir vel- komnir. Þátttakendum í bæna- stundum kvenna er beint í föstu- messur í Akureyrarkirkju á föst- unni. Nýja íþróttahúsið í Ólafsfirði senn tekið í notkun Uppbyggingu lokið NÝJA íþróttahúsið á Olafsfirði er hið glæsilegasta en til stendur að vígja húsið 1. maí. Iþróttaaðstaða batnar Ólafsfirði. FRAMKVÆMDIR við nýja íþróttahúsið í Ólafsfirði eru nú komn- ar á lokastig. Nú er verið að vinna við flísalögn og málningu innanhúss auk annars frágangs og fyrirsjáanlega mun sú áætlun standast að vígja húsið formlega 1. maí næstkomandi. Unnið við flísalögn í íþróttahús- inu. Arkitektarnir Páll Tómasson og Gísli Kristinsson á Akureyri hönnuðu húsið sem er hið glæsi- legasta og ber hönnuðum sínum gott vitni. Aðalsalur hússins rúm- ar löglegan handboltavöll 20X40 m, auk áhorfendasvæðis og verð- ur nú gjörbreyting á aðstöðu til íþróttaiðkunar í Ólafsfirði því gamli íþróttasalurinn í Barnaskó- lanum sem hingað til hefur verið notaður er einungis 8X15 m og kæmust því níu slíkir fyrir á gólf- fleti nýja salarins. Staðsetning nýja íþróttahússins milli sundlaugarinnar og Barna- skólans var gerð með það fyrir augum að búningsaðstaða íþróttahússins nýttist einnig við sundlaugina en sundlaugarmann- virkin voru byggð 1944 og eru orðin allt of lítil og úrelt. í gamla sundlaugarhúsinu verður nú kom- ið fyrir tækjum til líkamsræktar. A undanförnum árum hefur markvisst verið unnið að upp- byggingu aðstöðu fyrir íþrótta- og tómstundastarf í Ólafsfirði. Hafa bæjaryfirvöld litið svo á að koma eigi til móts við auknar kröfur fólks um betri aðstöðu til líkamsræktar og hollari lífshátta. 3 dúndur tilbob frá INDY 440 - INDY 500 EFI SKS - INDY XLT SKS 50.000 kr. afsláttur Kynntu þér málin strax í dag, takmarkað magn Á NORÐUBLANDS Bnkaumboö á íslandi HJÓLBARÐAf’JÓNUSTAN, Undirhlíö 2, símí 96-22840, Akureyri. L- 11576, , sími 94-3800, Bæjarráð styður til- lögu um Norðurstofnun BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur lýst yfir stuðningi við tillögu til þingsályktunar um stofhun sér- stakrar Norðurstofnunar á Akureyri. Umhverfisnefnd Alþingis leitaði umsagnar bæjarstjórnar Akur- eyrar um tillögur Hjörleifs Gutt- ormssonar til þingsályktunar um Norðurstofnun á Akureyri. Stofn- uninni er ætlað það hiutverk að stuðla að sem öflugustum rann- sóknum innlendra aðila á norður- slóðum og alþjóðlegri þátttöku ís- lendinga í málum er varða heim- skautasvæðið. Bæjarráð styður tillöguna og telur að slík stofnun eigi vel heima á Akureyri. Hún styddi og félli vel að þeirri uppbyggingu sem á sér stað í vísindum og rannsóknum í bænum m.a. við Háskólann á Ak- ureyri og setur Náttúrufræðistofn- unar íslands. Bæjarráð mælir því með að tillagan verði samþykkt. Morgunblaffið/Rúnar Þór Höfnin dýpkuð Sanddæluskipið Sóley er nú við vinnu í Fiskihöfninni á Akureyri, en verið er að dýpka höfnina og er efnið flutt út í Krossanes þar sem fljótlega verður haíist hætda við að setja niður stálþil.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.