Morgunblaðið - 22.03.1994, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 22.03.1994, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1994 23 Kvöldstund í Friðriks- kapellu til heiðurs dr. Sigurbirni biskupi Forysta ASI vill breyta skipulagi og stefnu í sjávarútvegsmálum Heilsteypt fiskvinnslustefna komi í stað fiskveiðistefnu Söluaðiiar m.a. FORYSTUMENN í Alþýðusambandi íslands vilja að fallið' verði frá þvi að móta fiskveiðistefnu og þess í stað verði mótuð heilsteypt fiskvinnslu- stefna. Benda þeir á að slík stefna verði bæði að miða að því að allur fiskur veiddur í íslenskri efnahagslögsögu fari til vinnslu hér innan- lands, meðal annars með því að skylda verði að setja allan afla á mark- að, og einnig því að auka verulega vinnslustigið á þeim takmarkaða afla sem að landi kemur. Þetta kom fram á ráðstefnu ASÍ um stefnumót- un í atvinnu- og kjaramálum sem haldin var síðastliðinn fimmtudag. í erindum þeirra Björns Grétars Sveinssonar, formanns Verka- mannasambands Islands, og Gylfa Arnbjörnssonar, hagfræðings ASÍ, kom fram að miðað við aflahorfur í þorski á komandi árum verði að gera ráð fyrir því að ekki verði mikið svig- rúm til að auka afla fyrr en í fyrsta lagi eftir árið 1997. Því sé ekki hægt að vænast þess að núverandi skipulag og stefna í sjávarútvegs- málum verði mikill þátttakandi í því að auka hagvöxt á íslandi á kom- andi árum og reyndar virðist stefna stjómvalda með frumvarpi um Þró- unarsjóð sjávarútvegsins miðast við það eitt að aðstoða greinina við að draga saman seglin. Fullnýting í stað hráefnisvinnslu Sem lið í því að móta fiskvinnslu- stefnu í stað fískveiðistefnu benda þeir Björn Grétar og Gylfi á að um- breyta verði fiskvinnslunni úr hrá- efnaframleiðslu yfir í meiri fullnýt- ingu þess takmarkaða hráefnis sem íslendingar búi við. Þetta sé hægt að gera.með því að setja upp mark- vissa áætlun líkt og gert var í byijun áttunda áratugarins, þegar frysti- húsa- og skuttogaraáætlunin var sett í gang. Með hertum heilbrigðis- reglum í Evrópu og Bandaríkjunum standi íslendingar í svipuðum spor- um og þá og ef frystihúsin verði ekki endumýjuð sé hætta á að missa töluverða markaði. Með slíkri fjár- festingaráætlun megi gera ráð fyrir að töluverður markaður myndist fyr- ir hönnun og framleiðslu á fram- leiðslukerfum fyrir fullnýtingu og þannig verði hægt að tengja saman útgerð og vinnslu sjávarafurða ann- ars vegar og framleiðslu á tækjum og aðföngum fyrir þá atvinnugrein hins vegar. í beinu framhaldi af því myndi síðan styrkjast möguleiki ís- lendinga á útflutningi á þessum framleiðslukerfum og aðföngum til þeirra landa sem standa frammi fyr- ir því að byggja upp sjávarútveg sinn. Breyta þarf vöruþróun og markaðssetningu Þá benda þeir Björn Grétar og Gylfi á að með mótun fiskvinnslu- stefnu verði einnig að breyta þeirri hugsun sem ríkjandi hefur verið í vöruþróun og markaðssetningu af- urða. Þannig verði að veita aukið fé í að þróa upp íslensk vörumerki á erlendum mörkuðum svo stærri hluti endanlegs söluverðs falli til hér inn- anlands. Einnig verði að skoða að- komu íslendinga að viðskiptasamn- ingum við erlend ríki og viðskipta- svæði til þess að tryggja aðgang með fullunnar vörur og þar skipti EES- samningurinn ákaflega miklu máli. Ágreimngur eftir forval H-listans í Hveragerði Hveragerði. FORVAL H-listans í Hveragerdi fyrir sveitarstj órnarkosningarnar í vor fór fram sl. laugardag. Að H-listanum standa Alþýðubandalag, Alþýðuflokkur, Framsóknarflokkur og Óháðir. Öllum kjörgengum Hvergerðingum var heimil þátttaka í forvalinu. AIIs greiddu um 270 bæjarbúar atkvæði. Enn sem komið er hefur ekki ver- ið birtur listi yfir þá aðila sem flest atkvæði fengu í forvalinu. Fá at- kvæði skilja á milli manna og var endurtalið á sunnudag án þess að niðurstaða fengist. Einhvers ágrein- ings virðist gæta milli flokkanna um endanlega niðurröðun á listann. Flóknar reglur ríkja í forvali sem þessu og hægt er að túlka þær á mismunandi vegu. Þeir flokkar sem að listanum standa réðu ráðum sínum sl. laugar- dag og sameiginlegur fundur allra aðila verður á miðvikudagskvöld. Þar mun væntanlega fást niðurstaða um skipan manna í efstu sæti. Heimildir fréttaritara herma að Ingibjörg Sigmundsdóttir, garð- yrkjubóndi, frá Alþýðubandalagi hafí hlotið flest atkvæði og muni því halda 1. sæti listans í komandi kosningum. Einnig munu þeir Egill Gústafsson, bifreiðastjóri, frá Framsóknarflokki og Hjörtur Benediktsson, garðyrkju- stjóri, frá Óháðum vera í tveimur af fjórum efstum sætum listans. Við síðustu sveitarstjómarkosn- ingar hlaut H-listinn fjóra menn kjöma en sjálfstæðismenn þijá. Ingi- björg Sigmundsdóttir hefur verið for- seti bæjarstjórnar síðasta kjörtíma- bil. -AH KVÖLDSAMKOMA verður í Friðrikskapellu við Hlíðarenda i Reykjavík þriðjudagskvöld 22. mars og verður hún helguð dr. Sigurbirni Einarssyni biskupi og verkum hans. Dómkórinn mun frumflytja lag eftir Þorkel Sigurbjörnsson og syngja sálma við texta sem dr. Sigurbjörn hefur ort eða þýtt. Guð- rún Ásmundsdóttir leikkona les úr verkum hans og predikunum. Sig- urður A. Magnússon rithöfundur ljallar um dr. Sigurbjörn og ís- lenskan sálmakveðskap. Prófessor Einar Sigurbjörnsson flytur hug- vekju. Friðrikskapella er reist af fjöl- mörgum einstaklingum meðal ann- arra samferðarmönnum sr. Frið- riks, minningu hans til heiðurs. Samtökin um byggingu Friðriks- kapellu afhentu þeim félögum í Reykjavík sem sr. Friðrik stofnaði húsið til eignar og afnota sl. vor. Dr. Sigurbjöm var í stjóm samtak- anna sem reistu kapelluna. Kvöld- stundin nk. þriðjudag er örlítill þakklætis- og heiðursvottur til hans. Öllum er heimill ókeypis að- gangur á meðan húsrúm leyfir. Friðrikskapella er vettvangur ýmis konar starfs í anda sr. Frið- riks. Aðildarfélög kapellunnar, sem eru KFUM, KFUK, Fóstbræður, Knattspymufélagið Valur og Skátasamband Reykjavíkur, hafa Dr. Sigurbjörn Einarsson með sér sjálfeignarstofnun um rekstur hennar. Á vegum aðildarfé- laganna og stjómar sjálfseignar- stofnunarinnar fer fram marghátt- uð starfsemi í húsinu. Friðrikskap- ella er lánuð til funda, tónleika- halds og einkaathafna. Á vegum kapellustjórnarinnar eru þar mán- aðarlegar kvöldguðsþjónustur auk kyrrðarstunda sem eru að jafnaði í hádegi annars mánudags í hveij- um mánuði. Alþýðuflokkurinn á Akranesi Ingvar lenti í efsta sæti MATVÖfíUVERSLUNtN VÁKORT Eftirlýst kort nr.: 4507 4500 0022 0316 4543 3700 0009 7116 4543 3718 0006 3233 4546 3912 3256 0090 4842 0308 1995 3028 ÖLL ERLEND KORT SEM BYRJA Á: 4550 50** 4560 60** Dúkurinn er margnota, vatnsvarinn og er auðvelt að þrífa hann. Dúkarnir og servíetturnar fást í ýmsum litum og eru unnin úr hágæða pappír. INGVAR Ingvarsson, bæjarfulltrúi og aðstoðarskólastjóri, varð í 1. sæti í prófkjöri Alþýðuflokksins á Akranesi, sem fram fór um helg- ina. 444 kusu og hlaut Ingvar 167 atkvæði í 1. sæti. Bindandi kosning er í fjögur efstu sætin. Guðmundur Vésteinsson, fyrrver- andi bæjarfulltrúi og deildarstjóri, fékk 134 atkvæði í 1.-2. sæti, Frið- rik Alfreðsson svæðisumsjónarmaður fékk 177 atkvæði í 1.-3. sæti, Haf- steinn Baldursson, bæjarfulltrúi og renpismiður, fékk 204 atkvæði í 1.-4. sæti, Hervar Gunnarsson, bæjarfull- trúi og formaður Verkalýðsfélags Akraness, fékk 199 atkvæði í 1.-5: sæti og Kristján Sveinsson deildar- stjóri fékk 202 atkv. aði í 1.-6. sæti. Sigríður K. Óladóttir hússtjórn- arkennari fékk 119 atkvæði í 1.-7. sæti, Rannveig Edda Hálfdánardóttir móttökuritari fékk 112 atkvæði í 1.-8., Sigríður Ríkharðsdóttir gjald- keri fékk 106 atkvæði í 1.-9. sæti og Siguijón Hannesson framkvæmda- stjóri fékk 108 atkvæði í 1.—10. sæti. Tuttugu manns gáfu kost á sér í próf- kjörinu en atkvæðatölur eru eingöngu gefnar fyrir fyrstu tíu sætin. Próf- kjöri var opið öllum sem ekki eru flokksbundnir í öðrum flokkum. Alþýðuflokkurinn hefur núna þijá bæjarfulltrúa, Ingvar Ingvarsson, Hafstein Baldursson og Hervar Gunn- arsson. 4552 57** 4941 32** Mgreiftslutólk vinsamlegast takið otangreind kort úi umtert og sendié VISA islandi sundurklippt VERDLAUN kr. 5000,- fyrir að klótesta kort og visa á vágest. VISA I5LAND Hðfðabakka 9 • 112 Reykjavik Sími 91-671700

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.