Morgunblaðið - 22.03.1994, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 22.03.1994, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1994 Grindavík Prófkjör í Framsókn Grindavík. FRAMSÓKN ARFÉL AGIÐ I Grindavík hélt prófkjör fyrir sveitastjórnakosningar um helg- ina. 453 tóku þátt í því. Tíu buðu sig fram og var kosn- ingin bindandi fyrir 3 efstu sætin. Hallgrímur Bogason varð efstur með 314 atkvæði í fyrsta sætið og 432 alls, Valdís Inga Kristinsdóttir varð önnur með 217 atkvæði í íyrstu tvö sætin og 395 alls og Sverrir Vilbergsson varð þriðji með 208 atkvæði í fyrstu þtjú sætin og 292 alls. Röð annarra varð eftirfar- andi: 4. Kristrún Bragadóttir 216 (264), 5. Róbert Tómasson 260 (314), 6. Anna María Sigurðardótt- ir 228 alls, 7. Símon Alfreðsson 223 alls, 8. Svavar Svavarsson 210 alls, 9. Þórarinn Ólafsson 187 alls og 10. Sigríður Þórðardóttir 159 alls. Bæjarfulltrúarnir Bjarni Andrés- son og Halldór Ingvason gáfu hvor- ugur kost á sér en Framsóknar- flokkurinn á tvo fulltrúa í bæjar- stjórn Grindavíkur. Hallgrímur og Sverrir koma báðir nýir inn á list- ann ásamt Róberti. FO ♦ ♦ ♦ Framsókn í Vík Óbreytt í 4 efstu sætumim GUÐMUNDUR Elíasson varð efst- ur í prófkjöri Framsóknarflokks- ins í Vík í Mýrdal, sem fram fór um heigina. Fjórir efstu menn á listanum skipa núverandi hrepps- nefnd Mýrdalshrepps. 150 manns tóku þátt í prófkjörinu sem var opið og fjórtán buðu sig fram. Guðmundur Elíasson fékk 118 atkvæði í 1. sæti, Svanhvít Sveins- dóttir fékk 67 atkvæði í 1.-2. sæti, Eyjólfur Siguijónsson fékk 89 at- kvæði í 1.-3. sæti og Sigurður Ævar Haraldsson fékk 73 atkvæði í 1.-4. sæti. Þau eiga sæti í hrepps- iiefnd Mýrdalshrepps. Næstur er Karl Pálmason sem fékk 60 atkvæði í 1.-5. sæti, Brand- ur Guðjónsson fékk 62 atkvæði í 1. til 6. sæti, Guðný Sigurðardóttir fékk 56 atkvæði í 1.-7. sæti, Njörður Helgason fékk 55 atkvæði í 1.-8. sæti, Einar Klemensson fékk 48 at- kvæði í 1.-9. sæti, Páll Pétursson fékk 46 atkvæði í 1.—10. sæti, Mál- fríður Eggertsdóttir fékk 39 atkvæði í 1.—11. sæti, Matthías Jón Björnsson fékk 38 atkvæði í 1.-12. sæti, Ásrún Guðmundsdóttir fékk 22 atkvæði í 1.-13. sæti og Sigurbjörg Tracy fékk 17 atkvæði í 1.-14. sæti. Kristján Þór Kristjánsson við bílinn, sem virðist nokkuð skemmd- ur. Gísli, tvíburabróðir Kristjáns, og vinkona hans höfðu farið úr bílnum fáum mínútum áður. * Bíll með tveimur fór í Isafjarðarhöfn Björgnðu sér á sundi og klifruðu upp á bryggju ísafirði. TVEIR saulján ára piltar lentu í Isafjarðarhöfn aðfaranótt sunnu- dags, þegar bíll þeirra fór út af hafskipabryggjunni. Þeir kom- ust sjálfkrafa út úr bílnum, syntu að bryggjunni og klifruðu upp eftir hjólbörðunum sem notaðir eru sem stuðpúðar. Þeir ákváðu að ganga upp á lögreglustöð, til að láta vita af óhappinu, en fengu far hálfa leiðina með bíl, sem átti leið um. Þeim varð ekki meint af volkinu Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson Bíllinn dreginn úr ísilagðri höfninni morguninn eftir. Ovíst er hvernig farið hefði ef ísinn hefði legið yfir þegar óhappið varð. „Við vorum að rúnta um bæinn og renndum niður á höfn til að létta á okkur,“ sagði farþeginn í bílnum, Kristján Þór Kristjánsson úr Hnífsdal, við Morgunblaðið. „Við vorum báðir í öryggisbeltum, en ég var að losa það af mér, um leið og Torfi stöðvaði bílinn. Þá gerðist eitthvað, ég fann að bíllinn byijaði að renna, svo kastaðist hann til og ég fann fyrir smá höggi. Svo vissi ég ekkert fyr en bíllinn lá á hvolfi í sjónum með framend- ann hallandi niður. Ég reyndi fyrst að opna hurðina hjá mér, en hún var blýföst. Við vorum báðir mjög rólegir og töluðum saman. Við sáum að afturrúðumar voru upp úr sjó svo við skriðum aftur þakið og með sameiginlegu átaki tókst okkur að opna aðra afturhurðina og henda okkur út í sjóinn. Við syntum svo hlið við hlið að hafnar- kantinum og klifruðum hvor upp sinn fríholtarenninginn. Engin umferð var á bryggjunni, svo við ákváðum að ganga upp á lögreglustöð og láta vita af okkur. Ég fór fyrst að finna til mikils kulda þegar við fórum að ganga á móti vindinum, en það var um 10 stiga frost þegar þetta skeði og sjávarhiti um 0 gráður." Þeir félagarnir voru búnir að ganga um 300 metra þegar bíll keyrði fram á þá og tók bílstjórinn þá upp í og ók þeim á lögreglustöð- ina. Þangað komu þeir klukkan 1.20. Lögreglan dembdi þeim beint í bað og dúðaði þá í teppi þar til komið var með hlý föt á þá að heiman. Piltarnir þökkuðu björgunina því að þeir eru báðir í góðu líkamlegu formi, en þeir æfa báðir knatt- spyrnu, og að þeir voru báðir frek- ar léttklæddir og áttu því betra með að klifra upp á bryggjuna. Þannig háttar til á bryggjunni, að engin ummerki eru um hvar bíllinn fór útaf önnur en smá bútur af stuðara, sem lá við bryggjupolla. Ökumaður bílsins, Torfi Jó- hannsson, segist ekki geta gert sér grein fyrir hvað fór úrskeiðis. Hann var að stöðva bílinn þegar eitthvað klossfestist og við það missti hann stjórn á honum. Hann segir að bíllinn hafi lent á bryggju- stólpanum og við það hvolfdi hon- um fram af bryggjukantinum. Þarna er 6-8 metra dýpi og því óvíst hvernig farið hefði ef bíllinn, sem er nýlegur Renault-fólksbíll, hefði sokkið áður en þeir komust út. - Úlfar Þorlákshöfn 218 kusu hjá D-lista 150 hjá framsókn SAMEIGINLEGT prófkjör sjálf- stæðis- og framsóknarmanna var haldið í Þorlákshöfn Iaugardag- inn 19. mars. Alls tóku 218 þátt í prófkjöri D-listans og 150 í próf- kjöri B-Iistans. í núverandi sveit- arsljórn Ölfushrepps sitja 3 af D-lista og 2 af B-lista auk eins fulltrúa dreifbýlis og eins fulltrúa af sameiginlegum lista Alþýðu- flokks og Alþýðubandalags. Prófkjör sjálfstæðis- manna á Egilsstöðum Egilsstöðum. PRÓFKJÖR sjálfstæðismanna á Eg-ilsstöðum fór fram um síðustu helgi. Þátttökurétt í prófkjörinu höfðu allir fullgildir meðlimir Sjálf- stæðisfélags Fljótsdalshéraðs sem búsettir voru á Egilsstöðum og náð höfðu 16 ára aldri prófkjörsdagana 18. og 19. mars. Ennfremur þeir sem kosningarétt eiga í sveitarstjórnarkosningunum og undirrit- að hafa inntökubeiðni í Sjálfstæðisflokkinn, eða stuðningsyfirlýsingu við framboð sjálfstæðismanna samhliða þáttöku í prófkjöri. Efstur varð Einar Rafn Haralds- son framkvæmdastjóri sem fékk 39 atkvæði í fyrsta sæti og 63 atkvæði ails, Bjarni Elvar Pjetursson tann- læknir, nýr maður á lista, lenti í öðru sæti með 33 atkvæði í annað sætið og 62 atkvæði alls, Guðmund- ur Steingrímsson hljóðmeistari lenti í þriðja sæti með 16 atkvæði í það sæti og 53 alls. Á eftir þeim komu fveir nýir menn á lista Sveinn Ingi- marsson og Hannes Snorri Helga- son. í 6.-8. sæti lentu síðan Jónas Þór Jóhannsson, Anna MaríaEinars- dóttir og Guðjón Sigmundsson. Alls tóku 66 þátt í prófkjörinu. „Góður listi“ Efsti maður á lista, Einars Rafns Haraldssonar, segist ánægður með listann. Sjálfstæðismenn hafa nú aðeins einn mann í bæjarstjórn og telur Einar líklegt að núverandi lista muni vegna betur í komandi kosn- ingum. 6 ,p - Ben.S. Niðurstöður úr prófkjörinu urðu þessar: D-listi, 7 efstu sætin. 1. Bjarni Jónsson vélstjóri, 136 atkv. í 1. sæti, 193 alls, 2. Sigurður Bjarnason skipstjóri, 93 atkv. í 1. til 2. sæti, 187 alls, 3. Hjörleifur. Brynjólfsson framkvæmdastjóri, 101 atkv. í 1. til 3. sæti, 183 alls, 4. Kristín Þórarinsdóttir hjúkrunar- fræðingur, 106 atkv í 1. til 4. sæti, 175 alls, 5. Sesselja Pétursdóttir verslunarmaður, 122 atkv. í 1. til 5. sæti, 164 alis. 6. Ævar Agnars- son framleiðslustjóri, 108 atkv. í 1. til 6. sæti, 129 alls, 7. Jón Davíð Þorsteinsson vélstjóri, 135 atkv. í 1. til 7. sæti, 135 alls. B-listi, 7 efstu sætin. 1. Þórður Ólafsson verkamaður, 62 atkv. í 1. sæti, 116 alls, 2. Sigurð- ur Þráinsson garðyrkjubóndi, 49 atkv. í 1. til 2. sæti, 106 alls, 3. Þórarinn Snorrason bóndi, 66 atkv. í 1. til 3. sæti, 117 alls, 4. Ingibjörg Sverrisdóttir húsmóðir, 55 atkv. í 1. til 4. sæti, 100 alís, 5. Hrönn Guðmundsdóttir garðyrkjufræðing- ur, 65 atkv. í 1. til 5. sæti, 102 alls, 6. Sigurður Garðarsson verkstjóri, 78 atkv. í 1. til 6. sæti, 95 alls, 7. Edda Laufey Pálsdóttir læknaritari, 83 atkv. í 1. til 7. sæti, 88 alls. Niðurstaða í prófkjöri D-Iistans er bindandi en hjá B-listanum var samkomulag fyrirfram um skiptingu sæta milli dreifbýlis og þéttbýlis, iisti þeirra verður birtur síðar. J.H.S. A Framtíð garðyrkjunnar á Islandi Lækkun raforku- verðs tíl greinar- innar er lykilatriði Hveragerði. IÐNAÐARRÁÐHERRA, Sighvatur Björgvinsson, kom til fundar með garðyrkjubændum í Hveragerði í gær, mánu- dag, en tilefni fundarins var að kynna fyrir ráðherra þá möguleika sem aukin raflýsing býður upp á fyrir þessa grein. Niðurstaða fundarins varð sú að ráðherra bauðst til að láta athuga sérstaklega hvaða möguleikar og rök séu fyrir lækkun á raforkuverði til greinarinnar. Verður þetta gert í náinni samvinnu milli garðyrkjubænda og iðnaðarráðuneytisins. Kjartan Ólafsson, formaður Sambands garðyrkjubænda, sagði á fundinum með iðnaðar- ráðherra að ástæða hefði þótt til að kynna betur fyrir ráða- mönnum þá möguleika sem raf- lýsing gefur, en með henni mætti bæði jafna út framboðið og auka afkastagetu innan greinarinnar. Samband garð- yrkjubænda hefur lagt hug^ myndir sínar fyrir Landsvirkjuri og aðra hlutaðeigandi, en við- brögð þar voru ekki uppör- vandi, hvorki í verði né öðrum skilmálum. Frumathuganir sýna að Landsvirkjun þarf ekki að leggja út í neinn kostnað þar sem dreifikerfi RARIK myndi fullkomlega anna þeirri eftir- spurn sem af aukinni nýtingu hlytist. Björn Guðjónsson garðyrkju- bóndi sagði á fundinum að ef engin lýsing væri í sinni stöð þá yrðu þar aðeins þtjú árs- verk, en með þeirri lýsingu sem nú er getur hann veitt sjö manns atvinnu allt árið. í landinu eru nú um 115 garðyrkjubýli sem skapa um 450 ársverk. garðyrkjan nýtur engra styrkja frá hinu opinbera, enda þótt vitað sé að stuðningur við garðyrkju innan Evrópu- sambandsins sé allt að 25%. A.H.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.