Morgunblaðið - 22.03.1994, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 22.03.1994, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1994 Frjálst val eftirTryggva Þormóðsson Frumvarp að nýjum útvarpslög- um hefur nú litið dagsins ljós og verður brátt til meðferðar á Al- þingi. Lög þessi eru því miður ekki sett fram af neinni bjartsýni eða trú á samkeppnishæfni RÚV og nánast ekkert atriði í lögunum breytir einu eða neinu, hvorki sam- keppnisstöðu „frjálsu" stöðvanna 'eða því sjálfsagða réttlætismáli frjálsu vali fólks um hvaða þjónustu það kýs að notfæra sér eða hvort það kýs að hafna þjónustu allra. Satt að segja lýsa lögin ,jfrati“ á annars ágætt starfsfólk RÚV og er því samkvæmt frumvarpinu ekki treyst til að standa af sér fijálsa samkeppni. Frelsi til að velja Að geta valið um hvort við viljum nýta okkur þjónustu sjónvarps- og hljóðvarpsstöðva er í hinum sið- menntaða heimi talið til sjálfsagðra mannréttinda, svo ekki sé talað um að geta valið á milli stöðva sem ^ senda út efni sem fellur að menn- ingarskilgreiningu hvers og eins, hvort sem sú „menning" er í formi rabbþátta, fræðsluefnis eða tónlist- ar, dægurlaga eða „æðri tónlistar". Hérlendis er hins vegar enn við líði sú stefna að fólkinu í landinu sé ekki treystandi til að skilgreina hvað er „menning" og þar af leið- andi þurfí ráðamenn að skilgreiná menninguna og mata síðan landslýð í gegnum Ríkisútvarpið undir stjóm manna sem skipaðir eru til þeirra starfa af ráðamönnum hveiju sinni. En ekki dugar þetta til því „menn- ingin“ kostar, og til að fjármagna RÚV skal öllum þeim er eiga þau tæki sem nota má til að sjá eða heyra RÚV gert að greiða afnota- gjald RÚV hvort sem viðkomandi notfærir sér þjónustu þess eður ei, að vísu skilst mér að þeir sem eru löglega heyrnarlausir fái 50% af- slátt. Mest öll innlend dagskrárgerð fer framhjá þeim þar sem textun innlends efnis er ekki almenn þó svo að tækni til móttöku texta fyr- ir heyrnarlausa hafi verið í al- mennri notkun til dæmis í Banda- ríkjunum allar götur síðan 1984. Öll tæki skráð Samkvæmt skilgreiningu eiga allir sem kaupa sjónvarps- og hljóð- varpstæki að skrá slíka eign sína og sjá kaupmenn um þá skráningu, þrátt fyrir að öll seld tæki hafi ver- ið skráð samkvæmt þessu allar göt- ur frá stofnun RÚV telur inn- heimtudeild stofunarinnar þörf á því að hundelta þá sem ekki eru með slík tæki á heimilum sínum með endalausum gíróseðlum og lögtaks- hótunum, og þá virðist ekki lengur vera í gildi réttarfar siðmenntaðra manna og maður er saklaus uns sekt er sönnuð heldur er viðkom- andi sekur og skal sæta viðurlögum samkvæmt því, eða eins og einn lögfræðinga RÚV svaraði spurning- unni „En af maður hefur ekki út- varp?“, „Það er ekki tekið gilt.“! Allmargir hafa af ýmsum orsökum lent í miklum hrakingum í baráttu sinni við þá „vindmyllu" sem inn- heimtudeild RÚV er, dæmi eru um tæki sem seld eru og kaupandi gef- ur upp rangt nafn (ekki er krafist skilríkja). Aðrir eru einfaldlega ekki með tæki, og svo eru þeir til sem búa inni á heimili annarra og fá að kíkja á skjáinn af og til. Sjómenn eru í sérflokki hvað þessa innheimtu snertir og eru mörg skip flotans með fleiri en eitt tæki um borð og er að sjálfsögðu krafist afnotagjalds fyrir þjónustu RÚV. Það fer hins vegar ekki mikið fyrir þjónustunni þar sem sendingarnar ná ekki til þessara skipa utan 4ra mílna frá ströndum landsins. Þar af leiðandi eru tæki notuð til að horfa á myndbönd sem greitt er „Frjálst val hefur það ekki á stefnuskrá sinnni að loka eða leggja niður RÚV, heldur að fólki sé frjálst að velja og hafna...“ fyrir fullu verði á næstu mynd- bandaleigu. Fé sótt í vasa almennings Fijálst val hefur það ekki á stefnuskrá sinni að loka eða leggja niður RÚV, heldur að fólki sé fijálst að velja og hafna af hvaða ástæðum sem er. Það er umhugsunarvert að á tímum atvinnuleysis og samdrátt- ar, skuli vera til stofnun sem hefur lögverndaðan rétt til þess að sækja fé í vasa almennings. Fólki er fijálst að hætta áskrift af blöðum og allri annarri þjónustu ef svo ber undir, fólk getur hins vegar ekki hætt að greiða til RÚV, og skiptir þá engu um aðstæður fólks svo sem atvinnu- leysi, dvöl erlendis eða ef fólk ein- faldlega vill spara sér kostnað. Árs afnotagjald RÚV, er til dæmis um það bil andvirði mánaðarafborgunar af húsbréfaláni ungs fólks! Móðgun við kjósendur Ef fólk sættir sig við það að ráða- menn skammti því efni á öldum ljós- vakans þá er lítið við því að gera, en fyrir þá sem ekki kæra sig um slíka valdníðslu þá er möguleiki að gera eitthvað í málinu. Til upplýs- inga fyrir þær þúsundir Íslendinga sem skrifað hafa i.öfn sín á lista Frjáls vals má geta þess að þó svo að öllum alþingismönnum hafí verið formlega boðið á fund samtakanna Fijálst val þá sáu aðeins 2 af 63 ástæðu til að mæta. 61 þingmaður ákvað að hunsa alla þá kjósendur sína sem skrifuðu sig á lista. í mín- um augum er þetta ekki aðeins gróf móðgun við kjósendur heldur lýsir þessi framkoma takmarkalausu dómgreindarleysi þessara þing- manna, að hunsa vilja fjölda kjós- enda svo stuttu fýrir kosningar. Samstaða í verki Þar sem þingmenn sjá ekki ástæðu til að koma til okkar þá verðum við að fara til þeirra. Eg vil því skora á allan þann fjölda fólks sem ritaði nöfn sín á lista Frjáls vals að gera nú betur og senda sínum eftirlætisþingmanni áþreifanlega áminningu um að seta þeirra á Alþingi er fyrir tilstuðlan kjósenda og breytingum háð. Til þessara nota er kjörið að nota gíró- seðilinn frá RÚV, skrifa stórum stöfum á framhlið hans nei takk og setja í umslag merkt sem hér segir: Háttvirt/ur-------------------- (Fijálst val þingmanns) Alþingi við Austurvöll, 150 Reykjavík. Ef vill er ekkert að því að ljósrita seðilinn og senda sínum eftirlætis- þingmanni ljósritið í pósti en greiða RÚV seðilinn í næsta banka. Þó held ég að það komi til með að standa í RÚV að lögsækja hátt í 20 þúsund manns sem ekki greiða seðlilinn með þessari aðferð. Tímaskekkja Ef þú ert mótfallinn þeirri tíma- skekkju sem skylduáskrift RÚV raunverulega er, þá er nú tækifæri til að stuðla að breyttu hugarfari meðal alþingismanna er þeir fjalla um frumvarp útvarpslaganefndar, sem miðar að því að halda áfram að innheimta með góðu eða illu af- notagjald af RÚV, hvort sem fólk notfærir sér þjónustu þess eður ei. Að lokum vil ég minna fólk á að fundur á vegum Frjáls vals um þessi mál verður haldinn nk. þriðjudag, 22. mars, kl. 20.30, Hótel Loftleið- um. Höfundur er Ijósmyndari og áhugamaður um frjálst val á Ijósvakamiðlum. ------»--♦-♦--- Skólahljóm- sveit Kópa- vogs heldur vortónleika SKÓLAHLJÓMSVEIT Kópa- vogs heldur vortónleika sína í félagsheimili Kópavogs annað kvöld, miðvikudaginn 23. mars, og hefjast þeir kl. 20. Á tónleikunum koma fram um áttatíu hljóðfæraleikarar í þremur sveitum og flytja tónlist úr ýmsum áttum, m.a. lög eftir Jón Ásgeirs- son, Henry Mancini, Beethoven og Sigvalda Kaldalóns. Auk þess mun fyrrum meðlimur hljómsveitarinn- ar Ingibjörg Guðlaugsdóttir leika á básúnu, Rómönsu eftir Car Mar- ia von Weber. Skólahljómsveit Kópavogs hef- ur um árabil verið óijúfanlegur hluti af menningarlífi Kópavogs undir stjórn Björns Guðjónssonar en heldur nú sína fyrstu tónleika undir stjórn Össurar Geirssonar sem tók við hljómsveitinni um síð- ustu áramót. Þú svalar lestrarþörf dagsins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.