Morgunblaðið - 22.03.1994, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 22.03.1994, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1994 35 SJALFSMYNDIN eftir Þuríði J. Kristjánsdóttur Hvað er átt við með hugtakinu sjálfsmynd? Hvernig mótast sjálfs- myndin? Hvers vegna eiga upp- alendur að velta þessu hugtaki fyr- ir sér? Þetta er vissulega aðeins hugtak, en við trúum því að það hafi að baki sé veruleika hvort sem við notum þetta orð yfír þann veru- leika eða ekki. Hvað geta uppalendur, fjöl- skylda, leikskóli, grunnskóli, gert til að stuðla að heilbrigðri, já- kvæðri sjálfsmynd - eða hjálpa þeim sem hafa neikvæða sjálfsmynd? Sjálfsmynd er heildarsumma þess sem við álítum um okkur sjálf, meðvitað og ómeðvitað. Ég er svona og svona, get þetta, get ekki hitt. Margir segja að sjálfsmyndin sé eitt mikilvægasta atriði í „gerð“ okkar, t.d. ráðist athafnir mjög af sjálfsmynd. Sjálfsmynd felur í sér: sjálfskynj- un, hvernig ég skynja mig, sjálfs- hugmyndir, þ.e. sjálfskynjun ásamt þeirri merkingu sem við gefum henni, og sjálfsviðhorf, og vegna þess að sjálfsviðhorf beinast inn á við, að okkur sjálfum, þá eru tilfinn- ingar, sem þessi viðhorf vekja, sér- lega sterkar. Menn eru sammála um að sjálfs- myndin lærist. Við erum ekki fædd með mótaða sjálfsmynd, en við fæðumst visslega með ákveðnar forsendur sem hafa áhrif á hvernig námið fer fram. Sjálfsmyndin mót- ast í samskiptum okkar við um- hverfið, dautt og lifandi, og þó mest hið lifandi, annað fólk. Þar eru þrír aðilar vitaskuld sterkastir: Fyrst og sterkast er heimilið, for- eldrar, systkini, annað fólk, þá fóstrur og annað starfsfólk á leik- skólum og hin börnin þar og síðar koma til kennarar í grunnskóla og hin börnin þar. Delta Kappa Gamma - Fé- lag kvenna í fræðslustörfum skrifar á ári fjölskyldunnar Einn liður í mótun sjálfsmyndar er speglun barnsins í hinum full- orðnu eða í öðrum börnum. Bamið veit oft ekki í hvaða jarðveg orð þess og athafnir falla. Það lítur því á þann sem hjá því er og les svar- ið: Ég var fyndinn, ég gerði e-ð ljótt o.s.frv. Við rannsóknir á viðbrögð- um fullorðinna við orðum og athöfn- um barna hefur komið í ljós að okkur hættir til að alhæfa það nei- kvæða en mun síður hið jákvæða. Okkur hættir til að segja „alltaf ertu..., alltaf gerirðu..." þegar um neikvæða hluti er að ræða. Slikar endurteknar athugasemdir setja spor, ekki síst þegar þær koma frá þeim sterku í umhverfiím. Það er líka mikilvægt að koma því til skila að barninu sé ekki hafnað þótt verknaði þess sé hafnað. Jákvæðri sjálfsmynd fylgir a) sú tilfinning að tilheyra, vera viður- kenndur hluti af samfélagi, litlu eða stóru, b) sú tilfinning að vera fær um og c) sú tilfinning að vera e-s VELDUR BÓKHALDIÐ ÞÉR ÁHYGGJUM? $ Áttu í erfiðleikum með skil á vsk-skýrslum? $ Hefur þú nógu góða yfirsýn yfir reksturinn? & Viltu fá góða efnahags- og rekstrarreikninga? KYNNTU ÞÉR ÞÁ VASKHUGANN 700 ánægðir notendur eru okkar bestu meðmæli!!! Vaskhugi — samtvinnað bókhaldskerfi: Fjárhags-, sölu-, viðskiptamanna-, birgða-, launa- og verkefnabókhald. Vaskhugi hf. Grensásvegi 13, sími 91-682 680, fax 91-682 679 virði, eiga tilverurétt. Hér stendur alltaf „sú tilfinning" vegna þess að tilfinningar mínar í þessu sambandi eru minn raunveruleiki, hvað svo sem öðrum sýnist. Þær eru hluti af mínum einkaheimi sem aðrir eiga takmarkaðan aðgang að. Lítum nánar á þetta. Grundvöliur þeirrar tilfinningar að tilheyra er talinn vera það öryggi sem fæst á fyrstu árum barnsins þegar allt fer vel, þ.e. þegar það öryggi næst að barnið treystir stöðugleika um- hverfisins, treystir því að mamma eða annar einstaklingur komi aftur inn í líf þess þó svo að hann sé þar ekki samfellt, og að grundvallar- þörfum verði fullnægt. Sá sem hef- ur innbyrt þessa öryggiskennd er talinn nokkuð brynjaður fyrir áföll- um á þessu sviði síðar. Umönnunin þarf að skapa þetta öryggi, en ger- ist það ekki á ungum aldri er talið örðugt að bæta þar um síðar. Sú tilfinning að vera fær um. Þeir sem helst hafa kannað þann _ þátt leggja áherslu á tilganginn. Óll athöfn hefur tilgang og einstakl- ingurinn hefur þörf fyrir að ná þeim tilgangi. Áhugaleysi á verkefni get- ur verið ótti við að mistakast. Umhvprfí þarf að vera þannig að barnið þori að láta sér mistakast, þori að horfast í augu við sjálft sig og læri að skilja að mistök eru eðli- leg. Það kann hins vegar ekki góðri lukku að stýra að verkefni séu yfir- leitt þannig að mistök séu það eina sem bam reynir. Jákvæð sjálfsmynd er ekki sú tilfinning að geta allt, það er vitaskuld óraunhæf sjálfs- mynd. Sú tilfinning að vera e-s virði er sterkur þáttur hér, það er tilfínning sem aðrir gefa - eða hið gagnstæða - og byggir á því sem áður er nefnt. Það er kannski ekki síst umhugs- Þuríður J. Kristjánsdóttir „Það er kannski ekki síst umhugsunarefni fyrir uppalendur að sjálfsmyndin heldursér við. Við látum fram- komu okkar og frammi- stöðu falla að þeirri sjálfmynd sem við höf- um.“ unarefni fyrir uppalendur að sjálfs- myndin heldur sér við. Við látum framkomu okkar og frammistöðu falla að þeirri sjálfmynd sem við höfum, látum heiminn falla að henni, og það á jafnt við hvort sem sjálfsmyndin er jákvæð eða nei- kvæð. Við látum okkur mistakast þegar það á við, ómeðvitað, við veljum ósjálfrátt félaga og aðstæð- ur sem hæfa og túlkum það sem við okkur er sagt samkvæmt því. Þegar neikvæðri sjálfsmynd er þannig haldið við getur skapast vítahringur sem erfitt er að rjúfa því sjálfmyndin er sérlega föst fyr- ir. Breytingar, innri breytingar, eru óþægilegar og við reynum ósjálfrátt að veija okkur fyrir þeim. Sjálfs- myndin er m.a. tæki til að halda innra jafnvægi, hún segir til um hvernig við túlkum reynslu okkar og hún stjómar væntingum okkar. Þegar niðurstöðum margra rannsókna á sjálfsmynd eru dregn- ar saman kemur m.a. í ljós: 1. Sjálfsmynd og markstig eru tengd, en markstig er það mark sem við miðum frammistöðu okkar við þegar við dæmum hana góða eða lélega. 2. Gengi og frámmistaða í námi er tengt sjálfsmynd. Það gerist oft að sá sem hefur þá föstu sannfær^ ingu að hann geti ekki lært þetta eða hitt láti ósjálfrátt frammistöðu sína falla að þeirri mynd þótt hann hafí alla burði til að gera betur. 3. Hlýja í uppeldinu'stuðlar að jákvæðri sjálfsmynd. 4. Virðing fyrir barninu stuðlar að jákvæðri sjálfsmynd, þ.e. því er komið til skila að barnið sé fullgild- ur þegn sem á sinn tilverurétt. 5. Skýr mörk, samkvæmni í upp- eldinu og tiltölulega hátt markstig hefur allt jákvæða fylgni við sjálfs- myndina. 6. Umhverfið sé ekki ógnandi heldur skapi öry'ggi. 7. Samskipti byggi á gagnkvæm''-* um skilningi. Hér hefur verið stiklað á stóru, e.t.v. of stóru. Gleymum því ekki á ári fjölskyldunnar að heimilið þarf að vera sá griðastaður hlýju, öryggis og festu sem styður barnið á mestu mótunarárunum. Þegar ytri aðstæður eru erfíðar getur sigl- ingin milli skers og báru verið vandasöm og þá reynir á að láta ekki ágjöfina lenda á barninu. Höfundur er fyrrverandi prófessor. DIPLOMAT FISTÖLVAN FRÁ MORE Alvöra UPPFÆRANLEG VÍRUSVÖRN í BIOS Morgunblaðið/Óskar Magnússon Nágrannar fjölmenntu á Góugleði Eyrarbakka. FÉLAG eldri borgara á Eyrarbakka hélt nýlega sína þriðju Góu- gleði. Að þessu sinni var nágrönnum frá Selfossi og Stokkseyri boð- ið og fjölmenntu þeir til hófsins. Skemmti fólk sér vel. Góugleðin var haldin í nýja fjölnotahúsinu á Eyrarbakka. Diplomat fístölvan fæst 25, 33 eða 66 MHz, með grátóna- eða litaskjá, hörðum diski allt að 340 MB, sem einfalt er að skipta um og vinnsluminni allt að 20 MB. Diplomat hefur tengimöguleika við öll helstu jaðar- tæki, innbyggt disklingadrif og tengi fyrir bílrafmagn. "Docking Station" er búin tengjum fyrir skjá, lykla- borð og mús, og 4 tengiraufum fyrir netkort, hljóðkort, fax/módem og viðbótar hlið- eða raðtengi. Rými er fyrir 2 viðbótardrif, t.d. geisladrif og 51/4" disklingadrif. Með einu handtaki er Diplomat breytt í hefðbundna borðtölvu. *BQÐEIND- Austurströnd 12 • Sírni 612061 • Fax 612081 ■

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.