Morgunblaðið - 22.03.1994, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 22.03.1994, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1994 Afmælisrit með greinum eftir Jóhannes Nordal JÓHANNES Nordal, fyrrv. seðla- bankastjóri, verður sjötugur 11. maí næstkomandi, og þann dag ætla vinir hans og samstarfs- menn að heiðra hann með veg- legu afmælisriti er nefnist Máls- efni og er safn greina Jóhannes- ar. Hið islenska bókmenntafélag gefur afmælisritið út, en umsjón með útgáfunni hafa Sigurður Snævarr og Þorsteinn Hilmars- son. Ritið verður um 500 bls. og skiptist í kafla sem heita Mennig og þjóðmál, Saga og samfélag, Af ýmsu tilefni, Samferðamenn, Áfangar í efnahagsþróun, Bankakerfið og Stóriðja og orku- mál. Þeir sem heiðra vilja Jóhannes Nordal og gerast áskrifendur að afmælisritinu geta snúið sér til út- gefanda fyrir 25. mars og fengið nöfn sín skráð í „tabula gratulator-^ ia“ semm birt verður fremst í ritinu. Jóhannes Nordal hefur verið einn helsti áhrifamaður í efnahags- og orkumálum íslendinga um áratuga skeið, og að auki starfað að marg- víslegum menningar- og framfara- málum. Ennfremur hefur hann skrifað nokkuð um félagsfræði og söguleg efni. Um allt þetta mun afmælisritið bera glöggt vitni, og Jóhannes Nordal fagnar 70 ára afmæli 11. maí næstkomandi. hefur nokkur hluti efnisins ekki birst á prenti fyrr. Ritnefnd afmælisritsins skipa Ágúst Einasrsson, Gylfi Þ. Gísla- son, Jón Sigurðsson, Matthías Jo- hannessen, Sverrir Hermannsson og Þorvaldur Gylfason. Jorgen Holm skipamiðlari látínn J0RGEN Holm, skipamiðlari og íslandsvinur, lést í Danmörku á laugardag, tæplega sextugur að aldri. Hann lætur eftir sig eigin- konu og tvær uppkomnar dætur. Jorgen ólst upp í Esbjerg á stríðs- árunum. Sextán ára fór hann á samning hjá Esbjergs Skibshandel þar sem hann lærði viðskiptafræði með áherslu á þjónustu við skip. Hann gengdi herskyldu í Dan- mörku og starfaði síðar um þriggja ára skeið sem herlögregla á vegum Sameinuðu þjóðanna fyrir botni Mið- jarðarhafs þegar Súez-deilan stóð sem hæst. Árið 1961 réðst hann til starfa hjá skipamiðlaranum Oscar Ralff og keypti hann fyrirtækið sex árum síð- ar. Jörgen Holm seldi fyrirtækið á níunda áratugnum. Fyrirtækið Oscar Ralff sá meðal annars um innkaup fyrir íslensk skip sem komu til Dan- merkur. Jorgen Holm heimsótti ís- land oft og hafði ferðast víða um landið. Hann aðstoðaði íslenska námsmenn í Danmörku og veitti þeim húsaskjól. Hann var síðar sæmdur hinni íslensku fálkaorðunni. Eftir að Jörgen seldi fyrirtækið vann hann meðal annars að því að afla verkefna fyrir skipasmíðastöðina Stálvík og sat í atvinnumálanefnd íslensku ríkisstjórnarinnar árið 1989. Morgunblaðið/Þorkell Frá fundi Reyly'avíkurlistans á laugardag þar sem sameiginlegur málefnasamningur var kynntur. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóraefni Reykjavíkurlistans Atvinnuþróunarsjóð- ur er áhættulánasjóður INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, borgarsljóraefni Reylgavíkurlistans segir að ekki sé búið að útfæra í smáatriðum hvernig staðið verður að því að setja á fót atvinnuþróunarsjóð sem sagt er frá í stefnuyfir- lýsingu Reykjavíkurlistans, en slíkir sjóðir séu hins vegar alþekkt fyrirbæri alls staðar í nágrannalöndunum. Ingibjörg sagði að þarna væri um að ræða áhættulánasjóð og auðvitað skorti hann ekki bara í Reykjavík heldur almennt í atvinnulífi hér á Jorgen Holm Iandi. Stjórnvöld hefðu hins vegar ekki sinnt þessu verkefni sem skyldi. Það væri til dæmis hægt að hugsa sér að Reykjavíkurborg færi út á lánamarkaðinn. Hún væri það öflug og traustur lántakandi að hún ætti að gæta tryggt sér lánsfé á hagstæð- um vöxtum miðað við vexti á lánsfé sem smærri aðilum stæði til boða og borgin gæti síðan endurlánað þetta fé. „Reykjavíkurborg hefur millgöngu og er ábyrgðaraðili og hún metur þá líka lánsumsóknir, en þetta útheimtir að það fari fram sjálfstætt mat á öllum lánsumsóknum," sagði Ingibörg Sólrún. Hún sagði að þetta fæli í sér mat á þeim hugmyndum sem sótt væri um lán vegna og hvort þær væru vænlegar til árangurs og myndu skapa mörg störf. Ekki yrði hins vegar horft á fjárhagslegt bolmagn. Hún sagði að svona atvinnuþróunar- sjóðir væru þekktir í Bandaríkjun- um. Þar fjármögnuðu slíkir sjóðir staðbundin atvinnuþróunarfélög í einstökum ríkjum og veittu ábyrgðir og lán, oft með niðurgreiddum vöxt- um, til fyrirtækja á sínu svæði. Hún sagðist ekki endilega vera að tala um að vextir yrðu niður- greiddir á þessum lánum heldur að borgin útvegaði lánsfé með. hag- kvæmum vöxtum og tæki hugsan- lega örlitla þóknun fyrir milli- gönguna. Hins vegar ætti eftir að útfæra þessa hugmynd í einstökum atriðum. Þarna væri um stefnumörk- un að ræða. ----»■♦ ■»-- Peningum og lyfjum stol- ið í heilsu- gæslustöð Suðureyri. AÐFARANÓTT sunnudags var brotist inn í heilsugæslustöðina á Suðureyri og þaðan stolið pening- um og lyfjum. Talið er að farið hafi verið inn um glugga á húsinu. Að sögn lögreglu hafði verið rótað nokkuð til innandyra en hlutaðeig- andi haft lítið upp úr krafsinu. Eitt- hvert lítilræði var tekið af lyfjum og 1.800 kr. í peningum. Ekki voru unnar neinar skemmdir á húsbúnaði né tækjum heilsugæslustöðvarinnar utan að peningarskápur var brotinn upp. Rannsóknarlögreglan á ísafirði vinnur að rannsókn málsins. Nýskipan í ríkisrekstri eftír Friðrik Sophusson Að undanförnu hefur verið unnið að tillögum um það hvernig megi bæta rekstur hins opinbera. Astæð- an fyrir vaxandi áhuga á þessu sviði er m.a. sú krafa skattgreið- enda að fjármunum þeirra sé varið af meiri ráðdeild en verið hefur. Til þess að efla aðhald í ríkisrekstr- inum og koma í veg fyrir skatta- hækkanir er brýnt að beita þeim hugmyndum sem felast í stefnu um þróun ríkisrekstrarins og kölluð hefur verið „Nýskipan í ríkis- rekstri". Þegar hafa verið stigin skref í þessa átt. Árangurinn er smám saman að koma í ljós. Ríkisstarfs- menn hafa sýnt þessum málum áhuga og skilningur almennings á þörfínni fyrir að bæta opinberan rekstur hefur haft sitt að segja. Hér á eftir verða nefndir nokkrir þættir, sem lýsa innihaldi stefnunn- ar. Útboð í fyrsta lagi eru útboð á vegum hins opinbera árangursrík leið til að spara útgjöld. Spamaður af út- boðum undanfarinna ára skiptir hundruðum milljóna. Útboðsstefna ríkisins, sem nýlega var samþykkt í ríkisstjórninni, felur í sér að stofn- anir bjóði út flest innkaup sín og ýmsa þjónustu. Með skýrri útboðs- stefnu er komið í veg fyrir að hægt sé að koma sér fyrir í kerfinu í skjóli ónógrar samkeppni. Mark- miðið er að kaupa inn fyrir árslok 1994 a.m.k. helming rekstrarvara samkvæmt útboðum. Það jafngildir árlegum innkaupum fyrir u.þ.b. 4.000 milljónir króna. Ennfremur skulu innkaup og verksamningar vegna framkvæmda og viðhalds að jafnaði vera samkvæmt útboði fyrir árslok 1994. Sala ríkisfyrirtækja í öðru lagi er sala ríkisfyrirtækja þáttur í nýskipan í ríkisrekstri. Leggja ber áherslu á sölu fyrir- tækja sem eru í samkeppni eða geta búið við samkeppni, því að þannig er hagur neytenda og skatt- greiðenda best tryggður. Þrátt fyrir að sala ríkisfyrirtækja hafi gengið hægar en til stóð hefur orðið góður árangur af þeim aðgerðum. Ferða- skrifstofa Islands var seld starfs- fólki fyrirtækisins. Gutenberg- prentsmiðjan var seld og hefur starfsemi fyrirtækisins styrkst við breytinguna. Sömu sögu má segja af Jarðborunum þar sem starfs- menn og á fímmta hundrað ein- staklinga keyptu hlut. Þá var Is- lensk endurtrygging seld trygg- ingafélögunum. SR-mjöl var selt rúmlega tvö hundruð einstaklingum og fyrirtækjum. Komið hefur fram almenn ánægja starfsmanna SR- mjöls með þessar breytingar. Loks keypti Grandi hf. nýlega hlut ríkis- „Ríkisstarfsmenn hafa sýnt þessum málum áhuga og skilningur al- mennings á þörfinni fyrir að bæta opinberan rekstur hefur haft sitt að segja.“ ins í Þormóði ramma hf. Sú sala gæti markað upphaf að því að sterk og vel rekin fyrirtæki í sjávarútvegi dreifðu rekstraráhættu með því að fjárfesta í fyrirtækjum annars stað- ar á landinu. Þá má einnig nefna lokun fyrir- tækja sem engin ástæða er fyrir ríkið að reka. Lokun Ríkisskipa og sala eigna fyrirtækisins er gott dæmi um breytingar sem skila sér til skattborgara án þess að bitna á þjónustu við almenning. Áfram verður haldið að selja rík- isfyrirtæki eða loka stofnunum sem ekki er ástæða fyrir ríkið að reka. Þannig má einfalda ríkisreksturinn og gera hann skilvirkari. Umbætur í ríkisrekstri í þriðja og síðasta lagi má nefna ýmsar umbætur í ríkisrekstri sem breyta rekstrarumhverfi opinberra stofnana og auka samkeppnis- og gæðavitund þeirra. Eitt þeirra verk- efna sem unnið er að er svokölluð samningsstjórnun. Með samnings- stjómun er átt við það, að ráðu- Friðrik Sophusson neyti og stofnanir gera með sér þjónustusamning þar sem stofnunin „selur“ ráðuneytinu tiltekna þjón- ustu. Þannig má auka aðhald en um leið veita stofnunum meira sjálf- stæði. Lykillinn að árangri er að notendur þjónustunnar hafí eitt- hvað að segja um gæði hennar, markmið séu skýr og vel sé vandað til áætlana. Þetta er ein þeirra leiða sem geta skilað betri rekstri og meiri gæðum í opinberri þjónustu. Hér að framan hefur í grófum dráttum verið sagt frá nokkrum þáttum þess verkefnis sem nefnt hefur verið „Nýskipan í ríkis- rekstri". Þetta verkefni hefur aug- ljósa þýðingu fyrir viðskiptavini rík- isins og starfsfólk þess. Hagsmunir skattgreiðenda eru einnig í fiúfi því að aukin ríkisútgjöld verða ekki fjármögnuð nema með meiri skatt- heimtu. Betri ríkisrekstur Á morgun, miðvikudag, verður haldin ráðstefna um nýskipan í rík- isrekstri. Ráðstefnan er öllum opin og verður haldin í Háskólabíói. Til ráðstefnunnar boða, auk fjármála- ráðuneytis, Aðgerðarannsóknafé- lagið, Gæðastjórnunarfélagið, Hag- ræðingarfélagið og Stjórnunarfélag íslands. Ráðstefnan er framhald tveggja annarra sem haldnar voru á sl. ári. Frá því að ríkisreksturinn tók á sig núverandi mynd hafa afskipti og umfang ríkisins sífellt vaxið. Skiptir ekki máli hvort það er mælt í útgjöldum ríkisins miðað við lands- framleiðslu, eða hlutfalli starfs- manna ríkisins af heildarvinnuafl- inu. Stefna ríkisstjómarinnar er að draga úr umfangi ríkisreksturs með því að selja fyrirtæki eða loka þeim þar sem eðlilegt er að einkarekstur taki við. I öðru lagi má ná fram verulegum árangri með því að bjóða rekstrarverkefni út í stærri stíl en gert hefur verið. Og í þriðja lagi þarf að bæta rekstur fyrirtækja og stofnana, sem ríkið hlýtur að starf- rækja um ófyrirsjáanlega framtíð. Um þennan síðasta þátt verður sér- staklega rætt á ráðstefnunni á morgun. Höfundur er fjármálaráðherra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.