Morgunblaðið - 22.03.1994, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 22.03.1994, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1994 39 Ragnar Björnsson frá Felli - Minning Fæddur 20. ágúst 1918 Dáinn 10. mars 1994 Þegar okkur barst fregnin um andlát mágs, föðurbróður og vinar, Ragga Björns, eða Ragga frænda, eins og við kölluðum hann gjarnan, hefði það ekki átt að koma okkur svo mjög á óvart, þar sem að við vissum að hann hafði í alllangan tíma átt við erfið veikindi að stríða. Engu að síður fannst okkur þessi atburður gerast fyrirvaralaust og vorum alls ekki undir það búin að taka svo skyndilegri harmafregn. Við höfðum sum hver heyrt í Ragga í síma af og til í vetur, eða hitt hann fyrir skömmu. Það var greinilegt að honum leið misjafnlega vel eftir dögum, en alltaf var hann samt hress og bar sig eins og hetja. Það er raunar ekki nema tæpur hálf- ur mánuður að hann sagði frá því í símtali að hann hefði stóran hluta úr degi verið að sýsla við hestana og skroppið svo á bak í lokin. Þetta gaf fyrirheit um að langt væri í land með sigur elli kerlingar yfir karlinum Ragnari, sem gjarnan var kenndur við fæðingarstað sinn og nefndur Fellibylur. Þetta uppnefni segir þó meira, en að hann væri fæddur í Felli í Breiðdal. Það gaf góða lýsingu á manni, sem fór ekki alltaf alfara- leið, manni sem gustaði af og lét fáa eiga hjá sér, hvort sem var á ungl- ingsárunum á mannamótum eða síð- ar á lífstíðinni. Úr uppvexti bamanna á Vengi er þeim minnisstæður hláturmildur og þrekinn maður, sem góðan hluta úr vetri tók þátt í byggingarfram- kvæmdum þar við múrverk, en að slíkum verkum gekk hann af og til í marga áratugi. Okkur eru enn minnisstæðir málsverðir, þegar hann var hrókur alls fagnaðar og sagði sögur, sem sumir trúðu af því að þær voru fluttar af svo miklum tilfinn- ingahita að menn sáu atburðina og persónurnar ljóslifandi fyrir sér, enda þótt hlátursrokurnar í lokin hefðu átt að valda því að grímur efasemda rynnu á einhvetja. Síðar lærðist mönnum að taka öllum slíkum sögum með fyrirvara en ætíð var í þeim fólgin kímni og þær margar hveijar snilldarlega sagðar. Við munum líka eftir mörgum kvöldum þennan vetur, þegar valin- kunnir bridsspilarar voru fengnir heim í stofuna á Vengi til að spila við húsbóndann þar og Ragnar, bróð- ur hans. Þá lá sá síðarnefndi ekki á liði sínu og lét svikalaust í ljós álit sitt á spilamennskunni. Á þeim kvöldum gat svo sannarlega gustað af Fellibylnum og ekki var alltaf sleg- ið laust í borð. Þegar þetta gerðist var Ragnar fyrir nokkru fluttur á Höfn. Á þeim tíma og næstu árum þar á eftir voru Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, STEFÁN BJÖRNSSON fyrrverandi forstjóri, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 24. mars kl. 15.00. Inga Ólafsdóttir, Hrafnhildur Stefánsdóttir, , Sigurður Stefánsson, Marta Ólafsdóttir, Hafdfs Ólafsdóttir, Atli Hauksson og barnabörn. Innilegar þakkirtil þeirra fjölmörgu, sem heiðruðu minningu ERNU ÞORLEIFSDÓTTUR, Öldugranda 5, sem var jarðsungin 14. mars sl. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Reykja- lundi, starfsfólks Heimahlynningar Krabbameinsfélags Reykjavíkur og starfsfólks á deild 32A á LandspítalanUm. Fyrir hönd fjölskyldunnar og annarra vandamanna, Sigurjón Jóhannsson. + Inniiegar þakkir fœrum við öllum þeim, sem sýndu okkur vináttu og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns mins, föður, tengdaföður og afa, GUNNARS ÁRMANNSSONAR, Ásvallagötu 63, Reykjavík. Guðríður Málfríður Helgadóttir, Guðný Gunnarsdóttir, Jóhann Einvarðsson, og barnabörn. + Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar og tengdaföður, KARLS AUÐUNSSONAR útgerðarmanns, Austurgötu 7, Hafnarfirði. Vigdís Jónsdóttir, Jón Vignir Karlsson, Hjördís E. Ingvarsdóttir, Auðunn Karlsson, Þorbjörg Sfmonardóttir, Níels Karlsson, Jóhanna Pétursdóttir, Sigurður Karlsson, Jóhanna S. Ingadóttir. samgöngur ekki eins góðar og nú er og því höfðu menn sjaldnar tæki- færi til að hittast. Það gerðist þó af og til og alltaf tókst honum á ein- hvern hátt að gera þessa endurfundi minnisstæða og þá ekki síst með sögnunum, sem gerðu hann nánast landsfrægan. Sum okkar muna knattspyrnuleiki suður á Höfn, ekki síst eftir að Stöð- firðingar og Breiðdælingar hófu samstarf á því sviði, þegar Raggi frændi kom á völlinn. Þá læddist stundum að okkur sá grunur að við ættum a.m.k. einn stuðningsmann á vellinum, sem ekki var sama um gengi liðsins og lét hann það stund- um berlega í ljós. Ekki fór raunar á milli mála að hugurinn var oft heima í Breiðdal. Þangað kom hann á þorra- blót, þangað fór hann að veiða lax og alltaf spurði hann frétta þaðan og héðan frá Stöðvarfirði, þegar við hittum hann. Við munum hann líka sum hver, þegar komið var í Sindrabæ á síld- arárunum til að spila á böllum þar. I starfi húsvarðar Sindrabæjar, sem hann gegndi af mikilli alúð og dugn- aði, vann hann sér líka allt að því landsfrægð, því ekki vitum við bet- ur, en hann sé húsvörðurinn, sem gerð eru skil í kvikmynd Stuðmanna og Grýlanna „Með allt á hreinu". í því atriði fær Fellibylsímyndin góða umfjöllun og e.t.v. nokkuð sanna. Við minnumst manns, sem ekki var hófsmaður á neinu sviði. Eins og mörgum er tamt í þessari ætt, heimtaði hann mat sinn og engar refjar. Fengi hann ekki hákarlinn og brennivínið á réttum tíma í verklok, þegar hann kom aftur hingað austur til að múra húsin fyrir næstu ættl- iði, þá einfaldlega orti hann skamm- arvísur um sendisveininn, en Raggi fór létt með að gera vísur og kunni ógrynni af þeim, bæði blautlegum og öðram þjóðlegum kveðskap. Ragnar Björnsson va_r gæfumaður í einkalífi. Hann giftist Áslaugu Jóns- dóttur, frá Skeggjastöðum á Jökuldal sem reyndist honum stoð og stytta alla tíð, stóð með honum í blíðu og stríðu og veitti honum það svigrúm, sem hann þurfti. Að henni, Skeggja, Önnu, Birni, barnabörnum og öðrum nánustu aðstandendum er að sjálf- sögðu mestur harmur kveðinn við fráfall Ragnars. Um leið og við biðj- úm algóðan guð að styrkja alla, sem nú eiga um sárt að binda við andlát hans, viljum við með þessum línum þakka honum góðar og ánægjulegar samverustundir á liðnum áratugum, stundir, sem þó gjarnan hefðu mátt vera fleiri. En minningin um góðan og skemmtilegan mann lifir áfram og við munum ávallt geyma í huga okk- ar sögurnar hans, hnittin tilsvör og óbilandi hæfileika til að sjá spaugi- legu hliðarnar á öllum hlutum. Á þann veg hefur Ragnar Björnsson reist sér bautastein, sem standast mun tímans tönn. Blessuð sé minning hans. Rósalinda Helgadóttir og fjölskylda. Mig langar til að minnast í örfáum orðum föðurbróður míns Ragnars Björnssonar sem lést 10. mars sl. Eg minnist Ragnars sem skemmti- legs frænda og þegar ég var barn fylgdi því alltaf mikil tilhlökkun að hitta hann því aldrei var hægt að vita fyrir, upp á hveiju hann tæki + Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki elliheimilisins Hraunbúða, Vestmannaeyjum. Már Lárusson, Guðmundur Lárusson, Margrét Lárusdóttir, Jóna Lárusdóttir og aðrir aðstandendur. + Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför KJARTANS ÞORLEIFSSONAR, Fannborg 7, Kópavogi. Fyrir hönd aðstandenda, Kristín M. + Faðir minn, afi, bróðir og mágur, BERGVIN GUÐMUNDSSON, Austurbrún 6, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 23. mars kl. 15.00. Guðmunda Bergvinsdóttir, Debbie Shackelford, Engilbert Guðmundsson,lnger Guðmundsson, Guðbjartur Guðmundsson. + Faðir okkar, tengdafaðir og afi, RAFNJÓNSSON tannlæknir, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 24. mars kl. 15.00. Sigrún Rafnsdóttir, Sveinbjörn Rafnsson, Vilhjálmur Rafnsson, tengdabörn og barnabörn. LEGSTEINAR - VETRARTILBOÐ - næst. Hann var hress og kátur, fjör- ugur og ærslafullur þó stundum gæti líka gustað af honum. Hann hafði óskaplega gaman af að segja frá. Hann hafði frá mörgu skemmti- legu að segja og gerði það listavel. Ósjaldan tók maður bakfall af hlátri þegar Ragnar frændi sagði frá. Eg minnist Ragnars frænda líka sem umhyggjusams manns. Hann var tilfinningaríkur og hjartahlýr. Hann starfaði sem húsvörður í Hafn- arskóla nú síðustu ár. Þar naut hann samskipta við nemendur og kennara. Hann bar hag allra sem í kringum hann voru fyrir bijósti og tók börn og jafnvel þá sem eldri voru upp á sína arma ef honum fannst þess þurfa. Gísli Jóhann minnist einnig góðs frænda. Ragnar tók drengnum alltaf opnum örmum og hljóp Gísli alltaf fagnandi á móti honum þegar þeir frændur hittust. Minn kæri frændi. Haf þökk fyrir ánægjulega samfylgd. Blessuð sé minning þín. Elsku Ása. og aðrir aðstandendur. Ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Guðlaug Árnadóttir. Vinningshatar í páskasprelli Nóa-Síríus, Vífilfells og Bylgjunnar þann 16. mars: Sólveig Hlynsdóttir, Hringbraut 25, Hafnarf. Jónína Ingólfsdóttir, Funafold 5, Rvík. Ragnheiður Guðlaugsdóttir, Frostafold 6, Rvík. Össur Indriðason, Hólmgarði 50, Rvík. Kristinn Valdimarsson, Kelduhvammi 16, Hafnarf. Óli Jóhann Níelsson, Haukshólum 4, Rvík. Brynja Vala Bjarnadóttir, Neðstaleiti 8, Rvík. Magnús, Sigmar, Friðrik, Hverafold 12, Rvík. Dýrleif Ólafsdóttir, Selvogsgötu 9, Hafnarf. Hafþór H. Einarsson, Skipasundi 83, Rvík. Hjálmar Guðmundsson, Skipasundi 85, Rvík. Ágústa Guðmundsdóttir, Grófarseli 20, Rvík. Katrín Haraldsdóttir, Bleikjukvísl 17, Rvík. Össur P. össurarson, Hjallavegi 9, Isaf. Bent K. Andersen, Hlaðbrekku 11, Kóp. Lilja Jónsdóttir, Laufsmára 25, Kóp. Alexander Ö. Jóhannsson, Hamrabergi 40, Rvík. Aron B. Jóhannsson, Brimhólabraut 36, Vestm. Eva Dögg Sveinsdóttir, Háaleitisbraut 32, Rvík. Gunnar H. Ólafsson, Laufengi 112, Rvík. Páskaeggjana skal vitja hjá Nóa-Síríus, Hesthálsi 2-4, á skrifstofutíma. Vinningshafar utan höfuð- borgarsvæðis frá páskaeggin send. (ilæsilcg liíiflí- hlaölMirð fallegtr salir og mjög goö þjónusUL Upplysingar i sínui 2 23 22 jg FLUGŒIÐIR aim uruiuit

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.