Morgunblaðið - 22.03.1994, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1994
Einbýlishús á Hellissandi
Til sölu 120 fm einbýlishús. Laust fljótlega. Möguleg
skipti á íbúð í Reykjavík.
Upplýsingar í síma 93-61290 eftir kl. 19.00.
---------++++-----------♦--------
Hæðarbyggð - útsýni
Vandað einbýli á tveimur hæðum 361 fm með innbyggð-
um bílskúr. Stórar stofur, 4 svefnherb. auk 2ja herb.
íbúðar á neðri hæð. Verð 23 millj. 3400.
EIGNAMIÐLIMN hf
Sími 67-90-90 ■ Síðumúla 21
W--------♦-------
911^0 51Q7H LÁRUS Þ. VALDIMARSSON framkvæmdastjóri
L\ lvVBklw/U KRISTINNSIGURJÓNSSON,HRL.löggilturfasteignasali
Nýjar athyglisverðar eignir á söluskrá:
Á móti suðri og sól
Vel byggt og vel með farið steinhús 165 fm á vinsælum stað í Árbæj-
arhverfi. Glæsil. stofur, furuklæddar, 4 svefnherb. með innb. skápum.
Bflskúr nú teiknistofa og vinnuherb. Glæsil. lóð 735 fm. Útsýni.
í þríbýlishúsi við Barðavog
mikið endurbætt 4ra herb. aðalhæð 90 fm nettó. Góður bflsk. rúmir
30 fm. Ræktuð, falleg lóð.
Á frábæru verði við Dvergabakka
f suðurenda á 3. hæð 3ja herb. íb. um 70 fm. Parket á gólfum. Stórar
svalir. Ágæt sameign. 40 ára húsnlán kr. 3,3 millj. Verð kr. 5,8 millj.
í gamla, góða vesturbænum
glæsil. efri hæð í þríbhúsi byggöu 1967. 2 stórar stofur, 3 rúmg. herb.
í svefnálmu m.m. Tvennar svalir. Innb. bílsk. m. geymslu 37,4 fm. Trjá-
garður. Skipti mögul. á góðri 3ja-4ra herb. íb.
Skammt frá höfninni - útsýni
Ný og glæsil. 1 herb. íb. rúmir 30 fm. Húsið allt nýendurbyggt. Verð
aðeins kr. 2,8 millj. Mikið útsýni.
Góð íbúð - bílskúr - eignaskipti mögul.
Suðuríb. 2ja herb. á 2. hæð v. Stelkshóla. Sólsvalir. Góður bílsk. get-
ur fylgt. Ágæt sameign.
Skammt frá Landspítalanum
suðuríb. 2ja-3ja herb. í kj. Samþykkt. Allt sér. Lítið niðurgr. í reisul.
tvíbhúsi. Glæsil. trjágarður. Tilboð óskast.
• • •
3ja herb. íbúð í gamla bæn-
um. Frábær kjör.
Nánar á skrifstofunni.
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
AIMENNA
FASIEIGNASALAH
Hafnarfjörður - til sölu
verslunar- og skrifstofuhús
Nýkomið í einkasölu þessi glæsilega húseign á þessum
frábæra stað við Reykjavíkurveginn. 1. hæð ca 650 fm
verslunarhæð. Möguleiki á innkdyrum. 2. hæð ca 650
fm skrifstofuhúsnæði. Einnig ca 650 fm kjallari með
innkdyrum sem nýta mætti t.d. sem atvinnuhúsnæði.
Eignin er nú þegar fokheld en afh. fljótlega tilb. u.
trév., fulifrág. að utan, þ.m.t. malþikuð þílastæði. Lán
til 10-15 ára geta fylgt. Húsið selst í heilu lagi eða
smærri einingum. Einstakt tækifæri. Teikn. á skrifst.
Nánari upplýsingar gefur:
Langamýri - Gbæ - 3ja m/bílsk.
Nýkomin í einkasölu glæsil. ca 90 fm 3ja herb. íb. á
1. hæð í nýl. litlu fjölbýli auk ca 24 fm bíisk. Sérgarður
með verönd. Parket. Fullb. eign í sérflokki. Laus strax.
Arnarnes - einb. - sjávarlóð
Nýkomið í einkasölu glæsil. stórt tvílyft einb. á þessum
vinsæla stað. Fráb. útsýni og staðsetning.
Norðurbær - einb. - Hf.
í einkasölu fallegt ca 150 fm einb. á einni hæð auk 45
fm bílsk. Arinn. Fráb. staðsetning við hraunjaðarínn.
Útsýni. Verð 13 millj.
HRAUNHAMAR, fasteignasala,
Bæjarhrauni 22, Hafnarf.,
sími 654511.
Gráglettin ljóð
Bókmenntir
Skafti Þ. Halldórsson
Kristján J. Gunnarsson:
Gráglettnar stundir. Ljóð.
Skákprent. 1993.
Kaldhæðinn ádeiluskáldskapur
er hreint ekki algengur nú á dög-
um. Kannski tíðarandi óvissunnar,
óreiðunnar og efahyggjunnar eigi
þátt í því. Á slíkum tímum er vara-
samt að hafa skoðanir til að byggja
kaldhæðnina á því að hæðni hlýtur
þegar allt kemur til alls að hafa í
sér fólgna ákveðna fordæmingu eða
vandlætingu og byggja á siðferðis-
legri sannfæringu. Og hvað er satt
og rétt á efasemdartímum? Hætta
er á að kveðskapurinn þyki dálítið
innantómur eða afturhaldssamur í
anda Bjarna Jónssonar Borgfirð-
ingaskálds sem orti á sínum tíma
í Aldasöng: „Allt hafði annan róm/
áður í páfadóm".
Kristján J. Gunnarsson hefur þó
engar áhyggjur af þessum kvöðum
tímanna og sendi nýlega frá sér
kaldhæðin ádeiluljóð í bók sem hann
nefnir Gráglettnar stundir. Kristján
er lipur penni, kíminn og mælskur
vel og gagnrýnir samtíma sinn
tæpitungulaust. Kvæðum sínum
skiptir Kristján í fjóra flokka eftir
yrkisefnum. Gagnrýni hans beinist
að ýmsum þáttum nútímans. Hann
Ijallar jafnt um dægurmálapólitík
og gátuna miklu, gagnrýnir jafnt
EES, Karl Marx og metsöluskáld-
skap eins og sannur vandlætari.
Ekki hlífir hann heldur ástinni því
að ekki er laust við að hún sé geng-
isfelld og jafnvel dauðinn og eftirlíf-
ið fá á baukinn. Skáldinu fínnst
t.a.m. uggvænlegt ef dauðinn er
bara plat. I stað myrkursins sé
kastljósi beint að efsta sviðinu:
þegar glossaleg
sápuóperan
gengur aftur
hinum megin
á skjánum
Oft fléttar Kristján þannig gagn-
rýni sína inn í orðaleiki, alls konar
útúrsnúning, þverstæður, rímleiki,
paródíur og leik að myndmáli.
Kristján er nokkuð djarfur mynda-
smiður og leikur sér víða að ögrandi
líkingum: „Við rauðan dauðann/ er
sálin lík konu/ sem sparkar af sér
skónum /til alls vís.“ Á stöku stað
finnst mér þó skáldið missa marks.
Líkast er sem ögrunin við lesandann
verði markmið í sjálfu sér á kostnað
skáldskaparins. I ádrepu á hræsni
í kringum jarðarfarir líkir Kristján
t.d. presti við barþjón.
Sem barþjónn
útí lofræðun
Kristján J. Gunnarsson.
hristir prestur slurk
af drottins orði.
Þótt Kristján grípi á ýmsum kýl-
um í kaldhæðinni ádeilu sinni er
henni varla ætlað sérstakt þjóðfé-
lagslegt hlutverk. Miklu nær væri
að segja að gagnrýni hans beindist
að ýmsu í fari samtímamannanna,
einkum hræsni og yfirborðs-
mennsku. Þó að mér fínnist að
skáldskapur Kristjáns mætti sums
staðar vera beinskeyttari gleður þó
beiskjublandin kímni hans og hug-
kvæmnin stundum augað og púk-
ann í lesanda.
Ratti heldur sönguámskeið
SÖNGKONAN, söngkennarinn
og prófessorinn Eugenia Ratti
er væntanleg til landsins í lok
þessa mánaðar og mun halda
námskeið fyrir söngvara og
söngnema í Reykjavík dagana
l.-ll. apríl.
Eugenia Ratti\ var hér síðast á
ferð á liðnu hausti og hélt þá
umfangsmikið námskeið fyrir
söngvara og söngnema sem lauk
með því að ópera Mozarts, Öndin
frá Kaíro, var færð upp í leikhúsi
frú Emilíu.
Þar sem Ratti getur aðeins stað-
ið stutt við er nú fjöldi þátttak-
enda í námskeiði hennar takmark-
aður. Eins og fyrr verður um
51500
Hafnarfjörður
Löngumýri - Gbæ
Glæsil. ca 140 fm timbureinb-
hús auk bílsk. Steni-klætt að
utan. Áhv. ca 3,5 millj. byggsj.
rík. Verð 14,5 millj.
Hjallabraut 33
- þjónustuíbúð
Til sölu góð 2ja herb. ca 70 fm
íb. á 3. hæð. Ekkert áhv. Verð
8,9 millj.
Hjallabraut
- þjónustuíbúð
Góð 2ja herb. þjónustuíb., fyrir
Hafnfirðinga 60 ára og eldri, á
4. hæð ca 63 fm. Áhv. byggsj.
ca 3,2 millj. Verð 7,4 millj. Skipti
mögul.
Álfaskeið
Góð ca 100 fm 4ra herb. íb. á
1. hæð í þríbýlishúsi.
Klettagata
Til sölu tvær 4ra-5 herb. íb. í
tvíbýlishúsi auk bílskúrs. Geta
selst saman.
Arnarhraun
Góð 5 herb. íb. á 3. hæð í þríb-
húsi ca 136 fm. Sérinng. Áhv.
ca 1,5 millj.
Lindarhvammur
Glæsil. efri sérhæð ásamt risi
ca 140 fm. Mikið endurn.
Æskil. skipti á einbhúsi í Hafn-
arfirði ca 200-300 fm.
Árni Grétar Finnsson hri.,
Stefán Bj. Gunnlaugss. hdl.,
Linnetsstíg 3, 2. hæð, Hfj.,
símar 51500 og 51601.
Eugenia Ratti.
einkatíma að ræða og fær hver
þátttakandi sex kennslustundir.
Að þessu sinni verða ekki haldnir
lokatónleikar, en í tengslum við
námskeiðið verður áformuð heim-
sókn söngkonunnar í október
næsta haust undirbúin með þeim
sem þess óska en þá er ráðgert
að æfa og setja upp stutta óperu
með þátttakendunum.
Það er Jóhanna G. Möller söng-
kona sem stendur fyrir þessum
námskeiðum og veitir nánari upp-
lýsingar um þau.
DAGBÓK
HALLGRÍMSKIRKJA: Fyr-
irbænaguðsþjónusta kl. 10.30.
Beðið fyrir sjúkum. Kvöldbænir
með lestri Passíusálma kl. 18.
LANGHOLTSKIRKJA: Vina-
fundur kl. 14-15.30 í safnaðar-
heimili. Leiðsögn Flóka Kristins-
sonar í lestri ritninganna. Aftan-
söngur í dag kl. 18.__
NESKIRKJA: Mömmumorg-
unn í safnaðarheimilinu kl.
10-12.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Foreldramorgunn kl. 10-12.
Starf fyrir 10-12 ára í dag kl.
17.30. Kl. 20.30 kyrrðar- og
íhugunarstund með Taizé tón-
list. Te og kakó í safnaðarheim-
ili.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Sþarf
10-12 ára barna (TTT) í dag kl.
16.30. Bænaguðsþjónusta með
altarisgöngu kl. 18.30. Fyrir-
bænum má koma til sóknar-
prests í viðtalstíma. Fjölskyldus-
amvera fyrir börn sem fermast
10. apríl nk. verður í kvöld kl.
20.30.
KÁRSNESSÓKN: Samvera
æskulýðsfélagsins í kvöld kl.
20-22 í safnaðarheimilinu Borg-
um. ______________________
FELLA- og Hólakirkja: For-
eldramorgunn í fyrramálið kl.
10.
HJALLAKIRKJA: Mömmu-
morgnar miðvikudaga kl. 10-12.
----------------------r-
LANDAKIRKJA, Vestmanna-
eyjum: Mömmumorgunn kl. 10.
Kyrrðarstund á hádegi kl. 12.10.
TTT-fundur kl. 17.30.
KFUM, KFUK, KSH: Samkom-
ur verða í Kristniboðssalnum,
Háaleitisbraut 58-60 kl. 20
hvert kvöld vikunnar frá þriðju-
degi til sunnudags.