Morgunblaðið - 22.03.1994, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1994
11
Til heiðurs Jóni Gunnari
Myndlist
Bragi Asgeirsson
Félagar, nemendur og spor-
göngumenn hins framsækna
myndlistarmanns Jóns Gunnars
Árnasonar hafa opnað sýningu
honum til heiðurs í salarkynnum
Nýlistasafnsins. Húsakynnin voru
að hluta til aðsetur SÚM-lista-
hópsins meðan hann var og hét
frá síðustu árum sjöunda áratug-
arins til upphafsára þess áttunda.
Má segja, að þetta sé eins konar
upphitun fýrir hina stóru yfirlits-
sýningu verka hans í Listasafni
íslands er verður opnuð nú um
helgina.
Jón Gunnar var einn af stofn-
endum listhópsins og mjög áber-
andi í þeim félagsskap alla tíð,
og brimbtjótur nýrra viðhorfa í
rýmislist. Hann og félagar komu
fram á miklum umbrotaárum í
íslenzkri myndlist, er farið var
að gæta íhaldssemi og stöðnunar
hjá brautryðjendum óhlutlægra
viðhorfa, og þörf var uppstokk-
unar listgilda, og valdadreifingar
í félagsmálum. Allt gerðist þetta
á þessum árum, jafnt utan sem
innan samtaka myndlistarmanna
(FÍM), og þegar slíkt gerist verð-
ur ekki komist hjá nokkrum
árekstrum og pústrum.
Þessir tímar eru mér minnis-
stæðir, því að þetta var í upphafi
ferils míns sem listrýnis, auk þess
sem ég hafði á þessum árum
drjúg afskipti af félagsmálum
myndlistarmanna. Kom það í
minn hlut að skrifa um nokkrar
árlegar samsýningar SÚM, m.a.
þá þriðju í október 1969, sem
jafnframt var hin fyrsta í nýjum
húsakynnum, en með þeim þátta-
skilum rótfesti hinn lausformaði
listhópur sig. Það er 21 listamað-
ur sem á verk á sýningunni og
er hver með eitt verk samkvæmt
lögmálum lýðræðisins, en hins
vegar eru sum rúmfrek en önnur
varla meira en lófastór, sem und-
irstrikar að lýðræðið er afstætt í
heimi hér.
Sýningin hefst á málverki eftir
Tryggva Ólafsson í Kaupmanna-
höfn og er það málað í minningu
Jóns Gunnars: „Til Jóns Gunnars
1991“. Er hér um sígild efnistök
að ræða í málverki, en annars
kennir margra grasa á sýning-
unni því listamennirnir hafa þró-
ast hver í sína áttina að segja
má, þó hið hugmyndafræðilega
sé iðulega grunntónninn. Þama
eru og einnig verk eftir þau Jó-
hann og Kristínu Eyfells, sem
ekki tengdust listhópnum hér
heima svo ég viti til, en hafa
seinna tekið þátt í sýningum með
meðlimum hans ytra. Jóhann,
sem var ásamt fleirum á kafi í
nýjum viðhorfum á undan list-
hópnum, á eitt athyglisverðasta
verkið á sýningunni, „Stólpi"
1994, sem er það formrænt
mýkra og fjölþættara en það sem
hann hefur verið að fást til þessa.
Kristín er með stóra portrettmynd
sömuleiðis frá 1994, sem er mjög
einkennandi fyrir hana, og setja
myndir þessara þriggja lista-
manna hlýlegri svip á heildina
fyrir það að sækja meira til fortíð-
arinnar og erfðavenjunnar.
Þá kemur verk Björgvins Gylfa
Snorrasonar í miðrými á óvart
„Blönduð tækni“ 1994, en það
er frábrugðið flestu sem frá hon-
um hefur komið til þessa og ólíkt
áhugaverðara. Kristján Guð-
mundsson hefur gripið til ritblýs-
ins og gert mjög myndræna línu-
mynd „Lárétt/lóðrétt“ (1993), og
Sigurður bróðir hans vísar til
smiðju Jóns Gunnars í verki sem
hann nefnir „Skúlptur" (1994).
Athyglisverðasta verkið og
með sterkustu vísuninni er senni-
lega „Minningardýr um hnífa-
Jón“ (1994) eftir Magnús Tómas-
son, hið frumlegasta og mest
ögrandi sennilega sjálfsmynd
Rósku frá 1990 „Ef þú ætlar að
fara að selja þig Róska mín, þá
mundu það — að selja þig dýrt“
(J.G.Á), og mesti brandarinn í
anda núlista verk Ólafs Sveins
Gíslasonar „Skál“ (1994), sem er
hvítur flatur kassi á vegg og sá
sem vill forvitnast um innihald
hans dregur upp vískípela. En
húmor er þó vissulega nauðsyn-
legur inn á milli.
Eins og sjá má af upptalning-
unni eru langflest myndverkin frá
1994, en einnig eru á sýningunni
tvö bréf frá útlendum vinum Jóns,
eitt hljóðbréf frá Magnúsi Páls-
syni, ein bók og hljómplata frá
Einari Guðmundssyni í Múnchen
auk margra annarra verka. Dreg-
ið saman í hnotskurn er sannferð-
ugur SÚM-bragur á sýningunni
og sem slík er hún verð allrar
athygli. Hefur umsjónarmaður
sýningarinnar Kristinn E.
Hrafnsson unnið hér gott verk,
en að ósekju hefði sýningarskráin
mátt vera efnismeiri.
'................ '
4ra herb. íbúð í Hafnarf irði
Nýkomin til sölu falleg 4ra herb. íbúð um 90 fm á efri
hæð í steinhúsi við Álfaskeið. Allt sér. Mikið geymslu-
pláss. Eignin er í ágætu ástandi. Verð 8,2 millj.
Árni Gunnlaugsson hrl.,
Austurgötu 10, sími 50764.
V *
I •
Hverafold - 3ja — glæsilegt útsýni
Glæsileg nýleg 90 fm íbúð á 3. hæð í litlu fjölbýli.
Þvottahús í íbúð. Parket. Flísar. Vandaðar sérsmíðaðar
innréttingar. Gervihnattaloftnet. Eign í sérflokki. Áhvíl-
andi byggingasjóður 3,5 millj. Verð 8,3 millj.
Fasteignasalan KjörBýli
Nýbýlavegi 14, Kópavogi, sími 641400.
Hjallabraut - Hafnarf.
Til sölu falleg 3ja-4ra herb. íb. á 1. hæð. Húsið er
nýklætt að utan á varanlegan hátt. Gott innra skipulag.
Nýslípað parket. Yfirbyggðar svalir. Eignin er laus nú
þegar. Verð aðeins 6,4-6,7 millj.
Upplýsingar í síma 696572 og hjá
Valhús, fasteignasölu, sími 651122.
Fiskbúð
Vantar þig góða örugga fyrirvinnu? Til sölu er
þekkt fiskbúð með mikil viðskipti og marga fasta
viðskiptavini. Góð vinnsluaðstaða á staðnum.
Stöðug aukning. Laus strax.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
F.YRIRTÆKIASALAIM
SUDURVE R I
SÍMAR 812040 OG 814755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
Sumarfargjöld SAS til Norðurlanda
15. april - 30. september
26.900 27.900 30.900 31.900
Kaupmannahöfn Stokkhólmur Stavanger Heisinki
Osló Gautaborg Bergen Malmö
Norrköping Mnri
Jönköplng Kalmar Váxjö Vásterás Örebro wsr-Æ
Sumaráætlun SAS 27. mars - 30. september.
Frá ísiandi þriöjudaga, föstudaga og sunnudaga kl. 16:20.
Frá Kaupmannahöfn þriöjudaga, föstudaga og sunnudaga kl. 14:30.
Hjúgðu með SAS og skelltu þér í sólina og sumarið.
Frá Kaupmannahöfn er þægilegt tengiflug til borga um öll Norðurlöndin.
Hafðu samband viö söluskrifstofu SAS eöa feröaskrifstofuna þína.
Sölutímabil fargjaldanna nær tll 30. apríl.
Bókunarfyrirvari 21 dagur.
Lágmarksdvöl 7 dagar, hámarksdvöl 1 mánuöur.
Börn og unglingar frá 2ja til 12 ára fá 33% afslátt.
fslenskur flugvallarskattur 1.340 kr., danskur 720 kr.,
norskur 600 kr. og sænskur 130 kr.
SAS á íslandi - valfrelsi í flugi!
Laugavegi 172 Sími 62 22 11