Morgunblaðið - 22.03.1994, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1994
17
Jákvætt framtak verð-
ur að neikvæðri frétt
Um lestrarátak í Iðnskólanum í Reykjavík
eftir Marinó G.
Njálsson
Það er oft skrítið að sjá hvemig
neikvæðni drekkir jákvæðum atvik-
um. Við hjá Iðnskólanum í Reykja-
vik fengum að finna fyrir því ný-
lega.
Helgi Helgason fréttamaður hjá
Ríkissjónvarpinu tók saman litla
frétt um daginn, þar sem hann
ætlaði að fjalla um lestrarkönnun
og -átak sem Iðnskólinn hefur stað-
ið fyrir meðal nemenda í nokkrum
íslenskuáföngum. Þessi litla tilraun
okkar í Iðnskólanum hefur gefíst
vel og hefur leshraði og lesskilning-
ur þeirra nemenda, sem tekið hafa
þátt í átakinu, aukist allvemlega á
stuttum tíma.
Skyldi nú fréttin hafa snúist um
þetta? Nei, aldeilis ekki. Hún sner-
ist upp í andhverfu sína og fjallaði
að mestu um lestregðu Iðnskóla-
nema. Nokkrum dögum síðar gafst
Ingvari Ásmundssyni, skólameist-
ara, tækifæri til að leiðrétta helstu
rangfærslurnar, en skaðinn var
skeður.
Iðnskólinn í Reykjavík hefur
starfað í nærri því 90 ár. Hann
hefur verið vagga iðnmenntunar í
landinu alla þennan tíma og hafa
kennarar og starfslið hans lagt sig
fram við að tryggja frambærilega
menntun handa öllum þeim sem
þangað leita. Þetta hefur eins og
búast má við gengið misjafnlega,
en ég held ég megi fullyrða að út-
koman hefur ekki verið lakari en í
sambærilegum skólum annars stað-
ar í heiminum.
Nemendur koma inn í skólann á
misjöfnum aldri með ólíkan undir-
búning. Skólinn hefur aldrei látið
það trufla sig í starfi, heldur tekið
á hveiju verkefni eftir bestu getu.
Eitt þessara verkefna er fornáms-
kennsla í íslensku, dönsku, ensku
og stærðfræði. Þetta eru svo kallað-
ir núlláfangar fyrir nemendur sem
ekki hafa lokið grunnskólaprófi með
tilskildum árangri. Við erum stolt
af því að geta komið til móts við
þarfir þessara nemenda, vegna þess
að með því erum við að auka hæfni
nemendanna til að takast á við síð-
ari verkefni í lífi og námi.
Ofangreint lestrarátak er liður í
að búa nemenda okkar undir að
takast á við erfiðara nám, annað-
hvort í Iðnskólanum í Reykjavík eða
hveijum þeim öðrum skóla sem
nemandinn kýs. Það er mjög gaman
að sjá þær framfarir sem nemendur
hafa náð á stuttum tíma. Að nem-
andi taki framförum hefur ekkert
Samband
sveitarfélaga
Fulltrúa-
ráðsfundur
SAMBAND íslenskra sveitarfé-
Iaga heldur árlegan fulltrúaráðs-
fund á Hótel Loftleiðum 25. og
26. mars nk. 45 manns úr öllum
landshlutum eiga sæti í fulltrúa-
ráðinu, en auk þeirra sækja fund-
inn forystumenn landshlutasam-
taka sveitarfélaga, fulltrúar
þingflokka og fleiri.
Formaður sambandsins Vilhjálm-
ur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi,
setur fundinn klukkan 10 á föstu-
dag. Meðal mála á dagskrá fundar-
ins er yfirtaka sveitarfélaga á öllum
rekstrarkostnaði grunnskóla 1. ág-
úst 1995, breytingar á reglugerð
jöfnunarsjóðs sveitarfélaga,
reynslusveitarfélög og atvinnuleys-
ið og aðgerðir sveitarfélaga.
að gera með getu hans áður. Fram-
farir geta falist í því að gera gott
betra eða gera sæmilegt viðsættan-
legt. Hvert spor framávið er sigur
og þau hafa verið mörg hjá lang-
flestum.
Það er markmið Iðnskólans í
Reykjavík að bjóða hvetjandi nám
við hæfi nemenda, þeim, atvinnulíf-
„Mörg dæmi eru um að
nemandi hafi byrjað í
fornámi og síðan lokið
iðnnámi með framúr-
skarandi árangri. Ef ekki
hefði verið boðið upp á
fornámið, hefðu þessum
nemendum verið flestar
bjargir bannaðar.“
inu og samfélaginu til hagsbóta.
Að geta hjálpað þeim sem minna
mega sín er hluti af þessu. Og við
erum stolt af því.
Mörg dæmi eru um að nemandi
hafi byijað í fornámi og síðan lokið
iðnnámi með framúrskarandi
árangri. Ef ekki hefði verið boðið
upp á fornámið, hefðu þessum nem-
endum verið flestar bjargir bannað-
ar. Ég vona að okkur auðnist sú
gæfa áfram að fá að bjóða sem
flestum nemendum nám við sitt
hæfi. Hjá okkur eru engir „óhrein
börn“, bara nemendur sem þurfa
tækifæri og stuðning til að ná
árangri.
Höfundur er kennari og
skipulagsstjóri við Iðnskólann í
Reykjavík.
Marinó G. Njálsson
VPS
/
'ó
v\^
b
e\
'6
% VVV ^
rv\0 (í Á0 'P
. v-A'nob
. ti-öO° v
BÍLAHÚSIÐ
Ingvar Helgason hf. Sævarhöfða 2
Sími: 67 48 48 Opið laugardag 10-17 sunnudag 14-17
Bílheimar Fosshálsi 1 - Borgarbílasalan Grensásvegi 11
BG bílasalan Keflavík - Betri bílasalan Selfossi - Bílasala Vesturlands
Bifreiðaverkstæði Sig. Valdimarssonar Akureyri -
Lykill Reyðarfirði - Ernir ísafirði