Morgunblaðið - 22.03.1994, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 22.03.1994, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1994 19 -ojy * * I. Hnsgagnahiimn U/lll RISK VERSl Morgunblaðið/Jón Svavarsson Biskupsfrúin stígur i stólinn BISKUPSFRÚIN, Ebba Sigurðardóttir, sté í stólinn í Dómkirjunni um helgina og flutti ræðu við messu þar. Samkvæmt heimildum Morg-unblaðsins mun þetta vera í annað sinn í 994 ára sögu kristni á íslandi að biskupsfrú predikar við messu/en áður gerði það Sólveig Ásgeirsdóttir, eiginkona Péturs Sigurgeirssonar biskups. BÍLDSHÖFÐA REYKJAVIK SÍMI 20 112 681199 „Ríkí Palestínumanna mun ógna heimsfriði“ VERÐI Palestínuaröbum leyft að stofna sjálfstætt ríki á Vesturbakka Jórdan, mun þróast stórt palestínskt ríki sem hrekur Hussein Jórdaníu- konung frá völdum og ryður Jórdaniu úr vegi með aðstoð frá Teher- an. Stofnun slíks ríkis yrði ekki gerð með þáttöku Arafats, leiðtoga PLO, heldur myndu ofstækismenn samtakanna stýra henni. Stofnun riksins myndi ekki aðeins ógna ísrael heldur öllu svæðinu fyrir botni Miðjarðarhafs, Egyptalandi, Evrópu og Bandaríkjunum og stefna þann- ig heimsfriði i voða. Þennan boðskap bar Benjamin Netanyahu, leið- togi Likud-flokksins, stærsta hægriflokks í ísrael, nefnd innan Evópur- áðsins sem fyrir skemmstu var á ferð í landinu. „Hann málaði vægast sagt dökka mynd af afleiðingum slíks ríkis fyrir okkur,“ segir Lára Margrét Ragnarsdóttir, alþingismaður og varaformaður nefndarinnar sem sér um tengsl milli þjóðþinga og tengsl við almenning gagnvart ráðinu, ásamt því að leggja mikla áherslu á umræðu um framkvæmd lýðræðis í löndum sem ráðinu tengjast. Lára Margrét er nýkomin úr heim- sókn til ísrael ásamt þijátíu þing- mönnum nefndarinnar sem hitti helstu stjómmálamenn landsins, meðai annars Yitzhak Rabin, forsæt- isráðherra, Shimon Peres, utanríkis- ráðherra, Ezer Weizmann, forseta ísraels, Weiss, forseta Knesset, ísra- elska þjóðþingsins, Faisal Husseini, einn helsta talsmann PLO í landinu, og fyrrnefndan Netanyahu. Sammála andstæðingar „Okkur fannst Netanyahu fara offari þegar hann lýsti þessu. Hann spáði því að ef þessari þróun yrði ekki afstýrt myndi heimsmyndin breytast á þann hátt að til yrðu þijú til fjögur risaveldi í framtíðinni. En það sem kom okkur mest á óvart var að málflutningur leiðtoga Likud- fiokksins fékk óvæntan stuðning frá Faisal Husseini, talsmanni PLO, sem við hittum í Jerúsalem, og sagði það sama um samvinnu á svæðinu og hvernig heimurinn muni þróast. Hann orðaði það svo að „heimurinn gæti ekki samþykkt að hafa lítil ríki í framtíðinni". Meira að segja „lítil ríki eins og England og Þýskaland“, eins og hann orðaði það, hefðu verið „þvinguð inn í Evrópusambandið". Heimurinn stefni í að vera skipaður fáum, stórum ríkjum. Husseini und- irstrikaði mikilvægi nýsvæðissam- vinnu í Mið-Austurlöndum, sem væri nauðsynleg. Núverandi stjórnir væru þar ekki til frambúðar og vinna þyrfti að breytingum að pólitísku umhverfi og lögum til að af samvinnu gæti orðið,“ segir Lára Margrét. Husseini varaði við því að ef núverandi ástandi linnti ekki brátt, myndi það ýta und- ir öra fjölgun heittrúarmanna. Lára spurði hann hvort samvinna palest- ínuaraba við lönd heittrúa múslima myndi ekki að endingu leiða til þess að ísrael yrði hornreka á svæðinu og loks mulið undir fæti. „Hann vék sér undan spurningunni og fannst hún greinilega ekki mjög þægileg, sagði bara að það væru líka heittrú- armenn í ísrael,“ segir Lára Margrét. Evrópskt ísrael Forseti þingsins, Weiss, viðraði þá skoðun við nefndina að Ísraelsríki væri nokkurs konar „kleyfhugi" sem gæti ekki gert upp við sig hvort það ætti að tilheyra heimi Mið-Aust'- urlanda eða Evrópu. Sjálfur áliti hann ríkið vestrænt þrátt fyrir að „vera rökréttasta framlenging þess sem hér stóð til forna, fyrir utan Egyptaland" því „minningar okkar eru vestrænar", hefur Lára Margrét eftir honum og segir hún að fleiri Iraelsmenn sem nefndin hitti hafi slegið á sama streng, sumir jafnvel talið æskilegt að Israel gengi í Evr- ópusambandið. „Þingforsetinn kvaðst líta á ísrael sem pólítíska töfralausn, þar sem íbúar þess hafi flutt þangað í trúarlegum tilgangi en verið gjörólíkir með tilliti til siða, hegðunar og menningar," segir Lára Margrét. Oft væri erfitt að sætta trúna og stjórnmálin og í raun spurn- ing hvort hægt væri að skapa trú- verðugt lýðræðisríki úr þessum ólíku eigindum sem ná aðeins yfir þijár kynslóðir. Aherslur eru þó aðrar en í flestum lýðræðisríkjum, eða eins og hann sagði; „tilvist ísraels kemur á undan velferð þess“.“ Fjöldamorðin hvíla þungt Lára segir að þrátt fyrir að tölu- vert bæri á milli þeirra manna sem nefndin hitti, bæði hvað varðar áherslur og skoðanir, hafi þrjú atriði verið þeim öllum hugleikin; friðarvið- ræður ísraels og PLO, þáttur Banda-. ríkjamanna við milligöngu um frið og fjöldamorðin í bænahúsi múslima í Hebron, sem stefnt hafa friðarum- leitunum í tvísýnu. ísraelsmenn hafi verið sammála um að kaldrifjað morð væri að ræða, án þess að pólítískt ráðabrugg byggi þar að baki. Shimon Peres sagði að fyrir fjöldamorðin hefði ástandið í Israel verið það besta sem ríkt hafði í langan tíma, en morðin hefðu verið harmleikur fyrir alla þjóðina og kölluðu á gagngera endurskoðun á allri stefnumótun. Rabin, forsætisráðherra, sagði nefndinni að ekki hefði verið nema um mánuður eftir af samningavið- ræðum við PLO þegar atburðirnir í Hebron áttu sér stað og skaðinn sem þeir yllu væri óbætanlegur. „Rabin talaði um að hryðjuverk hefðu tvö- faldast í landinu eftir samkomulag ísraels og PLO, en eftir Hebron hefði ástandið versnað svo mjög að nú þegar væri búið að myrða á fjórða tug gyðinga í hefndarskyni," segir Lára Margrét. Friðarviðræðum framhaldið Bandarísk stjórnvöld tilkynntu á föstudag, í kjölfar þess að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmdi fjöld- armorðin í Hebron, að Sýrlendingar, Jórdanir og Líbapir myndu hefja frið- arviðræður við ísraela í apríl næst- komandi. Einnig var tilkynnt um för nefndar háttsettra, ísraelska emb- ættismanna á fund PLO í Túnis á sunnudag til að halda áfram samn- ingaviðræðum um sjálfstjórn Palest- ínumanna á Gaza-svæðinu og Jeríkó á Vesturbakkanum. ísraelar hafa einnig tekið líklega í að alþjóðlegar eftirlitssveitir fari til starfa á þessum svæðum. Bæði ísraelarnir sem þing- mennirnir ræddu við og fulltrúi PLO minntust á þátt Bandaríkjamanna í friðarumleitunum og töldu hann mik- ilvægan. Weizmann forseti nefndi m.a. til skýringar að þrátt fyrir að frumkvæðið að friðarsamningum milli Israela og Egypta fyrir um hálf- um öðrum áratug hefði komið_ frá Begin, fyrrum forsætisráðherra ísra- els, og Sadat, fyrrum forseta Egypta- lands, hefði aldrei tekist að ljúka þeim án þáttöku þáverandi Banda- ríkjaforseta, Jimmys Carters. „Weiz- man lýsti yfir ánægju sinni með valdasetu Mubaraks í Egyptalandi og sagði að ef samningar við PLO tækjust sem skyldi, yrði næsta verk- efni að semja við Sýrlendinga um frið. Okkur varð einkar ljóst að ísra- el stendur mikil ógn af þeim, enda stórt og vel búið sovéskum vopnum. Hann taldi ekki heldur að Rússland myndi halda sig til hlés í framtíðinni og spáði að fyrr en varir yrði það veigamikill aðili að þessu flókna spiii fyrir botni Miðjarðahafs,“ segir Lára Margrét. * Þingað í Israel LÁRA Margrét Ragnarsdóttir ásamt Shimon Peres, utanríkisráð- herra ísrael, og Vittorio Colombo, þingmaður Kristilegra demókrata frá Italíu, en hann er formaður Þings- og almenningstengslanefndar Evrópuráðsins. Með alvæpni í Hebron UNGIR ísraelskir landnemar með alvæpni ganga um markað araba í miðbæ Hebron. Palestínumenn krefjast þess nú að landnemar verði afvopnaðir til að auka líkur á langþráðum frið. Hjá okkur sérðu það fallegasta sem kemur frá Ameríku. Sófasett og alls konar sófaborð, borðstofuhúsgögn, skápa og skenka, hægindastóla og staka sófa, svefnherbergis- húsgögn, dýnur, svefnsófa og margt margt fleira. Komdu og sjáðu þessi fallegu húsgögn -verðið kemur á óvart.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.