Morgunblaðið - 22.03.1994, Page 20

Morgunblaðið - 22.03.1994, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1994 VIÐSKIFn AIVINNULÍF Iðnaður Járnblendið úr 567m.kr. tapi í 146 m.kr. hagnað 350-400 milljón króna hagnaði spáð á þessu ári HAGNAÐUR varð af rekstri Jámblendiverksmiðjunnar á Grundartanga á síðasta ári sem nemur 146 milljónum króna. Það jafngildir um 5% af veltu og em þetta mikil umskipti í rekstrinum frá síðasta ári þegar 567 milljón króna tap varð á rekstri fyrirtækisins. Afkomubatinn er einkum tilkominn vegna kostnaðarlækkunar í rekstrinum sem rekja má nokk- urn veginn að jöfnu til lækkunar á hráefniskostnaði, orku og launakostnaði, auk þess sem framleiðsla og sala varð meiri en fyrra ár og nokkur verðhækkun varð undir lok árs- ins, að því er fram kom á fréttamannafundi af þessu tilefni. Ennfremur kom fram að horfur á þessu ári em góðar og er gert ráð fyrir að hagnaður verði um 12% af veltu eða um 350-400 milljónir króna. Ríkið á 55% eignarhlut í verksmiðj- unni, norska fyrirtækið Elkem 30% og japanska fyrirtækið Sumitomo 15%. Sighvatur Björgvinsson iðn- aðarráðherra lofaði stjóm og starfsfólk Jámblendiverksmiðj- unnar fyrir árangur í rekstrinum en hann væri afrakstur neyðará- ætlunar sem gripið hefði verið til í septembermánuði 1992. Þá hefði verið ráðist í þá erfiðu aðgerð að skera niður kostnað á öllum svið- um, auk fjárhagslegrar endur- skipulagningar með aðild helstu lánardrottna fyrirtækisins og aukningu hlutafjár. Nú væm að- stæður í rekstrinum hagstæðar aftur og öll áhersla yrði lögð á að borga upp þær skuldir sem safnað hefði verið á erfíðleikatímabilinu. Fimmtungi færra starfsfólk Stefán Ólafsson, stjómarfor- maður fyrirtækisins, sagði að farið hefði verið sameiginlega yfir hvernig hægt væri að styrkja rekstrarforsendur fyrirtækisins til framtíðar og niðurstaðan hefði orðið sú að starfsfólki hefði fækk- að um fímmtung og að auki hefðu þeir sem haldið hefðu störfum sín- um þurft að taka á sig kjaraskerð- ingu og fríðindamissi. Þrátt fyrir þetta hefði orðið gífurleg fram- leiðniaukning á síðasta ári og það segði alla söguna að tekist hefði að reka verskmiðjuna með fullum afköstum og meira að segja ná- lægt metafköstum á árinu. Fórnirnar skiluðu árangri Jón Sigurðsson, forstjóri Járn- blendiverksmiðjunnar, sagði að þær aðgerðir sem ráðist hefði ver- ið í haustið 1992 hefðu tekist, en þurft hefði að færa miklar fórnir og stjómendur fyrirtækisins tækju það sárt að þurfa að segja upp svo mörgu fólki. Höfuðatriði væri þó að fórnirnar sem færðar hefðu verið hefðu skilað árangri og það væri ekki teikn á lofti um neitt annað, en að þessi árangur í rekstri fyrirtækisins væri til fram- búðar eða svo langt sem hægt væri að sjá fram í tímann. Sam- kvæmt fíárhagsáætlun í ár væri gert ráð fyrir að hagnaður af rekstrinum yrði 350-400 milljónir króna og árangur fyrstu mánuði þessa árs benti ekki til annars en að það myndi ganga eftir. Fram kom að hækkandi verðlag á járnblendi nú stafaði af verndar- aðgerðum Bandaríkjanna og Evr- ópusanibandsins gegn ýmsum framleiðendum. Þessar aðgerðir bitnuðu ekki á íslenskri fram- leiðslu og nyti hún góðs af meðan þetta ástand varaði, en óvissa varðandi það væri fyrir hendi. Upphaf markaðsdrægrar stjórnunar er rakið til olíukrepp- unnar. Næstu 10-15 árin á eftir þróaðist bæði innan orkugeirans og rannsóknarstofnana nýtt svið, þ.e. markaðsdræg stjórnun orku- eftirspurnar. í frétt frá fundarboð- endum kemur fram að henni er KorlooPlast Sænsk gæðavara #J*4 KORK-gólfflisar JjS? með vinyl-plast-áferð ; Kork*o*Plast:^^S! Aðrar korkvörutegundir á lager: Undirlagskork i þremur þykktum Korkvólapakkningor I tvoimur þykktum Gufubaðstofukork Voggtöfiu-korkplótur i þromur þykktum Kork-parkett venjuiegt, i tvoimur þykktum l. Elnkaumboð á íslandi: Þ. Þ0RGRÍMSS0N & C0 Ármúla 29 • Reykjavik • Sími 38640 nú einkum beint í tvennum til- gangi. í fyrsta Iagi mætir orku- veita vaxandi eftirspurn eftir orku og aukinni flutningsþörf í dreifi- kerfi með því að fjárfesta í orku- hagræðingu hjá orkukaupandan- um í stað hefðbundinna lausan á borð við nýja virkjun eða eflingu dreifikerfis. í annan stað er mark- aðsdræg stjórnun einnig notuð af orkukaupanda til að lágmarka orkukostnað án þess að takmarka afköst eða þægindi og koma í veg fyrir orkusóun. A ráðstefnunni verða auk inn- lendra fyrirlesara tveir erlendir gestir sem kynna munu reynslu af DSM í Kanada og Danmörku, þeir Loren Hörður Guðbjartsson frá Kanada og Carl Christian Jarby frá Danmörku. Daginn eftir ráðstefn- una verðu svo haldið námskeið í orkugreiningu og orkuráðgjöf sem er hluti af DSM hugmyndafræð- inni. Leiðbeinandi verður Carl Christian Jarby. Ráðstefna Evrópusambandsins ogVIB Hótel Saga 24. mars 1994 IÐNAÐUR OG VIÐSKIPTI í KJÖLFAR GILDISTÖKU EES 11:45 Innritun 12:00 Hádegisverður í Grillinu 13:20 Sighvatur Björgvinsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, flytur ávarp Erindi í Ársal: 14:00 Aneurin Rhys Hughes, sendiherra ES á íslandi og í Noregi 14:20 James Pond, yfirmaður frétta- og upplýsingamála samninganefndar Evrópusambandsins íBrussel 15:00 Sveinn Hannesson, framkvœmdastjóri Samtaka iðnaðarins 15:20 Kaffihlé 15:40 Benedikt S veinsson, forstjóri íslenskra sjávarafurða 16:00 Björn Björnsson, framkvœmdastjóri íslandsbanka hf 16:20 Zygmunt Tyszkiewicz, forstjóri UNICE - Union oflndustrial and Employer's Confederation ofEurope 16:40 Umrœður, fyrirspurnir og svör 17:00 Aneurin Rhys Hughes flytur samantekt og lokaorð Ráðstefnustjóri: Aneurin Rhys Hughes. Ráðstefnugjald, sem innifelur hádegisverð og kaffi, er kr. 2000,- Nauðsynlegt er að skrá þátttöku fyrirfram í síma (91) - 62 24 11. ES heldur ráðstefnuna í samvinnu við VÍB - Verðbréfamarkaö íslandsbanka hf. Skipuleggjendur ráðstefnunnar áskilja sér rétt til að breyta dagskrá vegna ófyrirsjáanlegra breytinga. - Aðstoð við skipulag og umsjón: Kynning Og Markaður - KOM hf. V. Stærstu hluthafar Olíufélagsíns þús. kr. 1. Olíusamlag Keflavíkur 74.881 ’aa '921 2. Samvinnusjóður íslands hf. 61.061 '93 '92 3. Samvinnulíleyrissjóðurinn 58.037 '93 '92 4. Vátryggingafélag íslands hf. 53.341 '93 13,10% 5. Vogun hf. 6. KEA 7. Sjóvá-Almennar hf. 8. Lífeyrissj. verslunarmanna 9. Helgafeil 10. Festinghf. '92 [_ 27.623 '93 '92 23.936 '93 '92 23.856 '93 8 '92 [ 20.070 '931 '92 [ 13.272 '931 '92 |j 11.914 '93 8 '92 f 10,68% 10,15% 19,58% ■I 9,33% ]_j8J)5% 4,83% 4,78% 4,19% ] 10,75% ■14,17% ,41% ■ 3,51% 3,39% 12,32% ] 2,32% 2,08% 2,06% 1,92% 11. Lífeyrissjóður tæknifræðinga 10.987 '93 '921 l 1,92% 10.149 '93 K 11.78% 12. Starfsm.félag Olíufél. hf. 13. Sameinaði lífeyrissjóðurinn 14. Kf. Borgfirðinga 15. Venushf. 9.625 '93 '92 1111,78% ■11,68% _11,64% 8.030 '93 ■ 1,40% '92 Pn 1.89% 1,23% 7.053 93 '92 Heildarhlutafé 571.543.790 kr. Olíufélög Afkoma Esso óbreytt frá sl. ári Hagnaðurinn var 198 milljónir í fyrra HAGNAÐUR Olíufélagsins hf., Esso, á síðasta ári nam 198,4 milljónum króna en aðalfundur félagsins verður haldinn næst- komandi fimmtudag. Um er að ræða sömu afkomu og árið áður þegar hagnaður af rekstrinum varð 197,4 milljónir króna. Rekstrartekjur Olíufélagsins og dótturfélaga þess voru 8.526 millj- ónir á síðasta ári samanborið við 7.422 milljónir á árinu 1992. Hækkunin milli ára nemur því 1.100 milljónum króna eða 15%. Á síðasta ári gjaldfærði Esso samtais 171,6 milljónir króna vegna niðurfærslu á útistandandi töpuðum kröfum og hlutabréfum. Eigið fé félagsins var í árslok 1993 3.325 milljónir sem er 47% af heildarfjármagni þess. Arðsemi eigin ijár var 6,4%. Hlutur Olíufélagsins hf. í heildarinnflutningi olíufélaganna á gasolíu og sambærilegri olíu, bíla- bensíni, svartolíu og þotueldsneyti var 44% á síðasta ári eða 272 þúsund tonn af 617 þúsund tonna innflutningi. Auk þess fluttu Flug- leiðir inn tæp 22 þúsund tonn af þotueldsneyti til eigin nota. Ráðstefna Markaðsdræg stjómun kynnt MARKAÐSRÁÐ Sambands íslenskra rafveitna og Samtök iðnað- arins gangast fyrir ráðstefnu nk. fimmtudag um markaðsdræga stjórnun eða Demand Side Management eins og það er kallað á ensku. Ráðstefnan verður haldin að Hótel Loftleiðum og hefst kl. 8 árdegis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.