Morgunblaðið - 22.03.1994, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1994
21
Stöðugt fleiri fyrirtæki láta til sín taka í fiarskiptaheiminum
------Q-------nl-----------------------tl A
AT&Tsækir
á íEvrópu
Hannover. Reuter.
AT&T NSI, tækjadeild stærsta fjarskiptafyrirtækis heims í Evrópu,
gerir ráð fyrir aukinni fjárfestingu, þar sem gagnaflutningafyrir-
tæki muni keppast um að færa símakerfi sín í nýtízkulegra horf.
Dan Hesse, forseti AT&T NSI,
sagði í samtali við Reuter að hann
vildi færa sér væntanlega nútíma-
væðingu í nyt til þess að gera AT&T
að voldugasta seljanda fjarskipta-
búnaðar í Evrópu.
„Takmark okkar er að fá um það
bil 20% markaðshlutdeild í Evrópu
á innan við 10 árum,“ sagði hann.
AT&T NSI hefur sem stendur 4%
hlutdeild á 24 milljarða dollara
markaði Evrópu fyrir fjarskipta-
búnað.
Hesse sagði að þar sem sam-
keppnin ylli samþjöppun í greininni
mundu þijú eða fjögur stór fyrir-
tæki og ýmis sérhæfð minni félög
skipta markaðnum á milli sín.
AT&T hefur sett sér það markmið
að verða aðalseljandi nýs fjarskipta-
búnaðar og sækja í þriðja sætið í
Evrópu.
AT&T er nú annar mesti seljandi
fjarskiptabúnaðar í heiminum, næst
á eftir Alcatel í Frakklandi, en Si-
emens-fyrirtækið í Þýzkalandi er í
þriðja sæti. Siemens og Alcatel eru
hníflöfn í baráttunni um .efsta sæt-
ið í Evrópu og Ericsson-fyrirtækið
kemur næst.
Útgjöld munu aukast á næstu
10 árum þegar samkeppni leiðir til
þess að nýir markaðir munu opn-
ast, meðal annars á sviði farsíma,
og stórir seljendur keppast um að
bæta netkerfi sín og þjónustu áður
en venjuleg símaþjónusta í Evrópu
verður færð í fijálsara horf' 1998.
í síðustu viku tilkynnti þýzki
söluaðilinn Deutsche Bundespost
s Telekom að fimm milljarða marka
stafrænu símakerfi yrði komið á fót
aldamótaárið 2000, sex árum fyrr
en áætlað var.
Áhugi á tengingu ólíkra fjar-
skiptakerfa mun leiða til breytinga
á búnaði sem seljendur kaupa.
Hesse telur AT&T standa vel að
þessu leyti. Mikil breyting muni
verða á fjárfestingum um leið og
meiri áherzla verði lögð á að þókn-
ast viðskiptavinum.
FJARSKIPTASKIPAN HEIMSINS
Forsvarsmenn helstu fjarskiptastofnana, þar á meðal Al Gore varaforseti
Bandaríkjanna, hittust í Argentínu á mánudag til að ræða hvernig megi
koma nýjustu fjarskiptatækni til afskektra hluta heims.
HVAR ERU
SÍMALÍNURNAR?*
10 STÆRSTU SÍMAFYRIRTÆKI HEIMS*
ALLS: 575 milljónir
Japan 10%
Aðrir 34%
Rekstraraðili Tekjur i millj. Land dollara Síma- línur millj.
NTT“ Japan 51.354 57
AT&T*” Bandaríkin 39.580 -
DBPTelekom Þýskaland 34.550 35
BT“ Bretland 23.379 26
France Telecom Frakkland 23.164 30
SIP Ítalía 17.492 24
Bell South Bandaríkin 15.202 19
Nynex Bandaríkin 13.155 16
GTE Bandaríkin 12.644 17
Bell Atlantic Bandaríkin 12.093 18
Alls 242.613 242
'Tölur Irá 1992 "Reikningslok 31. mars 1993 ***Veitir ekki svæðisbundna þjónustu RE
REUTER
Hemili: ITU, úrársskýrslm lyrirlækja
Annað fjarskiptakerfi
um gervihnetti ráðgert
New York. Reuter.
TVEIR úr hópi auðugustu hátæknifrumkvöðla Bandaríkjanna
hafa áform á prjónunum um stofnun fyrirtækis til þess að
koma á fót níu milljarða dollara fjarskiptakerfi um gervi-
hnetti að sögn The New York Times.
William Gates, stofnandi og
stjórnarformaður Microsoft, sem
hann gerði að stærsta tölvuhug--
búnaðarfyrirtæki heims, og Craig
McCaw, sem gerði McCaw Cellular
Communications að stærsta far-
símafyrirtæki Bandaríkjanna,
hafa í hyggju að stofna fyrirtækið
Teledesic með bækistöð í Kirkland
í Washingtonríki.
Hugmyndin er að koma upp
kerfi 840 lítilla gervihnatta, sem
munu mynda tölvuvætt fjarskipta-
net að sögn The New York Tim-
es. Með gervihnattakerfinu hyggst
Teledesic flytja hvers konar mynd-
ir og merki milli staða hvar sem
er á jörðinni. Sagt er að Gates og
McCaw hafi unnið að áætluninni
á laun í þijú ár.
„Tilgangurinn með þessu kerfi
er að veita íbúum sveita og af-
skekktra svæða í heiminum að-
gang að heilbrigðis- og fræðslu-
Þýskaland
Daimler-Benz samsteypan
fær nýjan yfirmann 1995
Bonn. Reuter.
STÆRSTA iðnfyrirtæki Þýzkalands, Daimler-Benz AG, er fá-
mált um þrálátar fréttir um að Jiirgen Schrempp muni taka
við stöðu stjórnarformanns af Edzard Reuter þegar hann læt-
ur af störfum fyrir aldurs sakir á næsta ári.
þjónustu, sem hægt er að fá í
þéttbýli,“ sagði forseti Teledesics,
Russel Daggatt, í samtali við blað-
ið,
Ljósleiðarakerfi, sem mörg sím-
fyrirtæki hafa komið sér upp,
standa hinu nýja gervihnattakerfi
á sporði, en nýja kerfið á að geta
náð til vanþróaðra og einangraðra
svæða í heiminum.
I ráði er að koma kerfinu upp
og hefja starfrækslu á því árið
2001, en fjáröflun er ekki hafin.
Áætlunin krefst samvinnu við
stórfyrirtæki um allan heim og
verður háð leyfi stjórnvalda í
Bandaríkjunum og fleiri löndum.
Gates og McCaw munu eiga um
30% hvor í nýja fyrirtækinu og
McCaw verður stjórnarformaður.
McCaw reynir um þessar mundir
að selja farsímafyrirtæki sitt síma-
félaginu AT&T fyrir 12,6 milljarða
dollara.
Fyrirhugað netkerfi minnir
nokkuð á 3,3 milljarða dollara sím-
kerfi um gervihnetti í eigu fyrir-
tækisins Motorola, sem nefnist
Iridium, en verður afkastameira.
Schrempp er yfirmaður dóttur-
fyrirtækis Daimlers, Deutsche
Aerospace AG (DASA). Að sögn
vikuritsins Der Spiegel hefur
Reuter komizt að óformlegu sam-
komulagi við aðalframkvæmda-
stjóra Deutsche Bank, Hilmar
Kopper — sem er einnig yfirmaður
eftirlitsdeildar Daimlers — um að
skipa Schrempp í stöðu æðsta
manns fyrirtækisins í Stuttgart.
Deutsche Bank er stærsti banki
Þýzkalands og stærsti hluthafinn
í Daimler.
Talsmaður Daimlers segir að
engin opinber ákvörðun verði tekin
um eftirmann Reuters fyrr en eft-
ir ársfund fyrirtækisins 18. maí.
Hvorki Daimler né DASA neita
því afdráttarlaust að Schrempp
hafi verið valinn eftirmaður með
óformlegum hætti.
Schrempp er dugandi kaup-
sýslumaður, sem hefur stjórnað
DASA á umbrotasömu tímabili
síðan fyrirtækið var stofnað 1989,
með samruna nokkurra fyrirtækja,
og hann hefur lengi verið talinn
hugsanlegur eftirmaður Reuters.
Verkefnum hefur fækkað hjá
DASA síðan kalda stríðinu lauk
og Schrempp hefur knúið fram
endurskipulagningu, sem mun alls
kosta um 16.000 manns atvinnuna
fyrir árslok 1996.
Der Spiegel segir að helzti
keppinautur Schrempps sé stjórn-
arformaður Mercedes-Benz AG,
Helmut Werner, hafi fallið í ónáð
hjá Reuter með því að draga
stjórnunaraðferðir hans í efa.
Werner vill að aðgreindar deildir
Daimlers fái aukið sjálfstæði, en
Schrempp er á sama máli og Reut-
er, sem vill að völdin hvíli hjá eign-
arhaldsfyrirtækinu að sögn Der
Spiegels.
Wterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
VELADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKAN
SACHS HÖGGDEYFAR
1FARAR-
8RODDI
SACHS verksmiðjumar eru leiðandi
framleiðendur á höggdeyfum og
kúplingum í evrópska og japanska bíla.
ÓSKALÍNAN FRÁ SACHS TRYGGIR ÖRYGGIOG AKSTURSEIGINLEIKA
1904 viö1994
90 ÁRN
Þekking Reynsla Þjónusta
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 • 108 REYKJAVÍK
SlMI: 91-81 46 70 • FAX: 91-68 58 84
Raftækin
renna út
Hrœrivél
Straujárn
Gerð:
BA 3243.
Gerð:
AT 2580.
K a fm a g n s h n ífa r
Gerð:
EM 3961
K affi k ii n n u r
Gerð:
KA5380.
Kr.
1.795,-
F á s t n m la n d allt
Öll verð mirfPfo stgrafsl.
EINAR
FARESTVEIT
&C0 hf
Borgartúni 28, sími 622900
VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS