Morgunblaðið - 22.03.1994, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1994
49
I
!
I
(
(
í
í
I
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
i
í
Oskar og Stöð 2
Frá Þorsteini Jónssyni:
Eins og flestir kvikmyndaá-
hugamenn hafa tekið eftir, og
reyndar allir aðrir líka, þá styttist
óðum í afhendingu Óskarsverð-
launanna margfrægu. Ástæðan
fyrir þessum skrifum er einföld:
einlæg ósk um að fá að sjá afhend-
inguna í beinni útsendingu, eða
að fá að sjá hana alla síðar. Ég
trúi ekki öðru en að Stöð 2 íhugi
það alvarlega að uppfylla þessa
litlu ósk. Ef ekki, þá vildi ég gjarn-
an _fá að heyra: „Af hveiju ekki?“
Ég tel mig vera mjög mikinn
áhugamann um kvikmyndir og
reyndar er bíóferð eitt það
skemmtilegasta sem ég geri. Jafn-
framt hef ég verið áskrifandi að
nokkrum kvikmyndatímaritum og
keypt reglulega blöð út úr næstu
bókabúð. Tilgangurinn er auðvitað
að fylgjast með bransanum, sjá
hvaða myndir eru væntanlegar,
sjá hvaða myndir slá í gegn og
eru aðsóknarmestar. Umdeildir
hápunktar eru allar þær verð-
launahátíðir sem kvikmynda-
bransinn heldur, og það er engum
blöðum um það að fletta að Ösk-
arsverðlaunahátíðin ber höfuð og
herðar yfír aðrar hátíðir, bæði
hvað varðar virðuleika verðlauna
og skemmtanagildi. Ég geri mér
grein fyrir því að þetta er mjög
umdeild skoðun, en þessu held ég
þó fram, án þess að rýra virðuleika
eða gildi Cannes-hátíðarinnar,
Berlínar-hátíðarinnar, BAFTA-
verðlaunanna eða einhverra ann-
arra. Hver má auðvitað hafa sína
skoðun.
Árlega horfir rúmlega fímmt-
ungur jarðarbúa á beina útsend-
ingu frá Óskarsverðlaunaafhend-
ingunni og ef ég man rétt höfum
við íslendingar, mesta bíóþjóð í
heimi, aðeins einu sinni fengið að
sjá hana í beinni útsendingu (sem
ég man eftir síðustu ár). Það var
þegar Friðrik Þór Friðriksson töfr-
aði alla með Börnum náttúrunnar
(eru menn eitthvað sárir út af því
að hún skyldi ekki fá verðlaunin
og gæti það verið ástæða fyrir því
að hátíðinni sé ekki sjónvarpað
beint til okkar?).
Rökin fyrir því að hafa beina
útsendingu eru sterk: — íslending-
ar eru farnir að geta séð allar
helstu myndirnar áður en að sjálfri
afhendingunni kemur (aðeins ein
„stór“ eftir að koma, (Philadelp-
hia), — íslendingar eru mesta bíó-
þjóð í heimi, beinar útsendingar
yrðu eflaust til þess að auka að-
sókn í kvikmyndahús, — það er
til margt annað en íþróttir sem
hægt er að horfa á í beinni útsend-
ingu (sbr. NBA-úrslitin). Það sæt-
ir því mikilli furðu hjá mér (og
væntanlega öðrum) að ekki skuli
vera sýnt beint frá hátíðinni, sem
tekur aðeins 3-4 klukkutíma af
öllu árinu í útsendingu.
Að setja „óheppilegan sýningar-
tíma“ fyrir sig sem einhvers konar
afsökun er auðvitað bull! Stöð 2
er nú alltaf með dagskrá fram
yfír miðnætti á öllum dögum, til
kl. 2.00-3.00 á fimmtudagskvöld-
um og alveg fram til 5.00 um
helgar! (Og ég man ekki betur en
að maður hafí vaknað um miðjar
nætur til þess eins að fylgjast með
íslenska landsliðinu í handbolta í
Seoul hér um árið, og það voru
nokkrar nætur ... „í boði“ RÚV!)
Kostnaður er væntanlega eitt
stærsta „áhyggjuefnið" við svona
beinar útsendingar. Þar fínnst mér
það vera stórsnjöll hugmynd að
Stöð 2 leiti til kvikmyndahúsa og
myndbandaleiga til að sameinast
um að borga kostnaðinn. Fyrir
kvikmyndahúsin þýðir öll umíjöll-
un um Óskar heilmikið í aðsókn
að ég tali nú ekki um þegar fjöl-
margar tilnefndar myndir eru enn
í gangi eða við það að koma út á
myndbandi (sbr. The Fugitive með
sjö tilnefningar)! Ef ég hef talið
rétt þá hafa Háskólabíó og
Stjörnubíó samtals 40-45 tilnefn-
ingar á myndum sem þau hafa
sýnt. Háskólabíó verður væntan-
lega með In the Name of the Fat-
her og Schindler’s List enn á al-
VELVAKANDI
SÖFNUN FYRIR
NORÐAN
. FYRRVERANDI skólafélagar
Áka Elíssonar og Bryndísar
Karlsdóttur í Laugaskóla vetur-
inn 1978-1979 hafa opnað bó-
karlausan reikning í Búnaðar-
banka íslands á Akureyri til
styrktar fjölskyldunni en Áki
féll frá á sviplega hátt nýlega.
Reikningurinn er númer 115652.
Nánari upplýsingar gefur Hólm-
fríður Haraldsdóttir í Grímsey.
DÁLEIÐSLAN
HJÁLPAÐI
VEGNA neikvæðrar umfjöllunar
um árangur dáleiðslumeðferðar
til að hætta reykingum vil ég
koma því á framfæri að þessi
aðferð hefur hjálpað mér. Ég fór
til Friðriks Páls Ágústsonar og
hann reyndist mér mjög vel og
var meðferðin í raun allt öðru
vísi en ég hafði gert mér í hugar-
lund. Ég er hætt að reykja og
það er allt honum að þakka.
GÆLUDÝR
Köttur í heimilisleit
VEGNA veikinda á heimilinu
vantar eins árs gamlan geltan
högna gott heimili. Hann er
heimakær og mjög blíður. Upp-
lýsingar í síma 24349.
Hamstrabúr
VILL einhver gefa- mér lítið
hamstrabúr. Upplýsingar gefur
Agnar Þór í síma 24907.
Kanínur
VIÐ óskum eftir tveim dverg-
kanínum og búri. Ef einhver
getur hjálpað okkur er hann vin-
samlega beðinn að hringja í síma
687802.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Kvengullúr fannst
SEIKO-kvengullúr fannst við
Engjateig í Reykjavík fyrir
u.þ.b. 10 dögum. Eigandinn má
vitja þess í síma 812088.
Pennaveski og tölvuúr í
Krabbameinshúsinu
PENNAVESKI og tölvuúr barns
fundust á bílastæði við Krabba-
meinshúsið, Skógarhlíð 8, fyrir
nokkru. Spurt var eftir þessum
munum en þá voru þeir ekki
komnir í leitirnar. Nú er sú sem
saknaði þessa beðin að hringja
aftur í síma 621414.
Næla fannst
STÓR silfurnæla fannst á bíla-
stæði Varmárskóla í Mosfellsbæ
fyrir u.þ.b. einum og hálfum
mánuði. Nælunnar má vitja til
skólaritara.
mennum sýningum þegar hátíðin
fer fram. Alls eru þessar tvær
myndir með 19 tilnefningar og
báðar til þeirra þriggja helstu
(besta mynd, besti leikstjóri, besti
leikari). Það væri því Háskólabíói
mikill fengur í því að hafa beina
útsendingu frá hátíðinni, eða í
versta falli að sýna hátíðina sem
fyrst óklippta.
Þessi grein mín er alveg örugg-
lega málsvari fyrir flesta ef ekki
alla kvikmyndaunnendur hér á
landi. Ég vil því biðja Stöð 2 að
íhuga vel hvort bein útsending
geti ekki farið fram og hvort ekki
megi gera okkur kvikmynda-
áhugafólkið hamingjusamt að-
faranótt 22. mars nk. Við erum
stór hópur, alveg örugglega jafn-
stór og körfuboltaaðdáendurnir
sem fylgjast méð NBA-úrslitum
beint á Stöð 2. Reynið því að taka
tillit til okkar líka (stór kostur að
gera sem flestum til hæfís!). í
langversta falli skora ég á Stöð 2
til að gefa almennilega skýringu
á því hvers vegna hátíðin er ekki
sýnd beint.
Með von um að Óskar frændi
líti í heimsókn ...
ÞORSTEINN JÓNSSON,
kvikmyndaunnandi,
Breiðvangi 56,
Hafnarfirði.
Pennavinir
ÁTJÁN ára finnsk stúlka með
áhuga á íþróttum, ljósmyndun,
menningu og tónlist, kvikmyndum
og bókmenntum. Vill skrifast á við
17-22 ára pilta og stúlkur:
Sylvia Partanen,
Kasvihuoneenkatu 16,
28130 Pori,
Finland.
ÁTJÁN ára pólsk stúlka með áhuga
á ferðalögum, íþróttum en hún
stundar sjálfsvarnaríþrótt sem
nefnist Aikido:
Magdalena Nowak,
ul. Limanowskiego 12,
64-920 Pila,
Poland.
SAUTJÁN ára Ghanastúlka með
áhuga á bréfaskriftum og safnar
póstkortum:
Beatrice Adubea,
Kade Secondary School,
P.O. Box 134,
Kade,
E/region,
Ghana.
LEIÐRÉTTIN G AR
Rangtföðurnafn
Föðurnafn Stefáns Sívarssonar
KR, besta sóknarmanns 5. flokks B
í handknattleik, misritaðist í blaðinu
s.l. laugardag, og eru hlutaðeigandi
beðnir velvirðingar.
Listinn
Misritun varð í grein Braga Ás-
geirssonar í sunnudagsblaðinu. Þar
var Gallerí Listinn rangnefnt og
ennfremur var heimilisfangið rangt,
en það er Hamraborg 20Á.
Vinníngstölur
laugardaginn
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af5 1 2.107.789
o J 4. 4af5^ 122.158
3. 4at5 118 5.357
4. 3al5 3.724 396
Heildarvinningsupphæd þessa viku: 4.581.093 kr.
SILFURSKEMMAN
Silfurskartgripir frá Chile og Mexfkó
Tilvalið til
fermingagjafa!
Opið dagl. frá kl. 15-18, laugard. frá kl. 10-12
eða eftir samkomulagi.
Sími 91-628112
Miðbraut 31, 170 Seltjarnarnesi.
TÖLVUNÁM 60 KLST.
Hi HNITMIÐAÐ - ÓDÝRT - VANDAD
60 klst. tölvunám er markvisst námskeið
íyrir alla, þar sem sérstök áhersla er lögð
á notkun tölva í atvinnulíímu.
______ Þú laerir:___________ ,__________
■HH Almenna tölvufræði
MS-DOS og Windows gluggakerflð
HHHi Ritvinnsluna Word fyrir Windows
Excel töflureikni og áætlanagerð
H Tölvusamskipti
Nýjar veglegar bækur fylgja - Engln undirbúningsmenntun
Fáið sendan bæklingt - Innritun haiin
f -~°1^ Tölvuskóli Reykiavíkur
f.y.v.v.v.vj H BORGfiRTÚNI 28.10S REYKJAUÍK. sfmi 616699. fax 616696
QIIIT H3 QVd V ÐINH3AH
...við leysum málin!
Við leigjum út samkomutjöld af ótal gerðum og stærðum -allt frá
50 og upp í 5000 fermetra fyrir hverskonar samkomur. Tjaldið sjálf
- eða látið vana starfsmenn aðstoða ykkur við að reisa tjöldin á svip-
stundu hvar á landinu sem er. Þau eru fljótleg í uppsetningu og geta
staðið hvort heldur sem er á grasi, möl eða malbiki.
-------— lUÝTT! --------------
Leigjum nú einnig út falleg tréborð og klappstóla,
trégólf og gasofna, Ijós og fánaborgir.
______________________________
PANTIÐ TÍMANLEGA - í SÍMA 625030
TjmmyFinn
KOIAPORTSINS
0] ELECTROLUX GOODS PROTECTION