Morgunblaðið - 30.04.1994, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRIL 1994
7
Formaður Sambands íslenskra sparísjóða
Engin breyting
verður á vöxtum
um mánaðamótin
BALDVIN Tryggvason formaður Sambands íslenskra sparisjóða segir
að engin vaxtabreyting verði nú um mánaðamótin hjá sparisjóðunum,
en hins vegar séu þau mál í athugun. I Morgunblaðinu í gær var
haft eftir Sighvati Björgvinssyni viðskiptaráðherra að sparisjóðirnir
eigi í ljósi góðrar afkomu sinnar að ganga á undan í vaxtalækkun, og
að hans mati geti vaxtamunur þeirra innlánsstofnana sem ekki eigi
við útlánatöp að stríða verið tveimur prósentustigum lægri en ann-
arra. Sagðist Baldvin ekki vilja kljást við bankamálaráðherra um
þetta mál.
„Ég vil ekki standa í neinu orða- ir. Það er ekkert samhengi milli
skaki við ráðherrann, en þetta er þess að við höfum í þessu tilviki
hans skoðun og hann má hafa hana hagnast og að vextirnir hafi verið
fyrir mér,“ sagði Baldvin og bætti of háir. Við vorum með að meðal-
við að engin ákvörðun hefði verið tali lægstu útlánsvextina á síðast-
tekin hjá sparisjóðunum um að liðnu ári og við vorum einnig með
lækka vextina. hæstu innlánsvextina á síðastliðnu
„Þótt við högnumst er ekki þar ári. Þetta er því ekkert spurningin
með sagt að við förum að lækka um það hvað vextirnir eru, en okkur
vextina út af því. Það er alltaf ágætt ber lagaleg skylda til þess að hafa
að fyrirtæki geti staðið sig vel, því eigið fé okkar vel yfir þeim mörkum
fólkið sem lætur okkur hafa pening- sem sett eru og við erum að reyna
ana sína trúir okkur fyrir þeim. Það að passa okkur á því og þurfa ekki
verður að geta treyst á að þessar að vera að taka víkjandi lán eins og
innlánsstofnanir sem eru sparisjóð- aðrir hafa þurft að gera sumir hvetj-
irnir séu traustar og góðar stofnan- ir,“ sagði Baldvin.
Reuter
Norræn fegurð á Filippseyjum
FJÖLDI fegurðardísa er kominn til Maníla á Filippseyjum til að
keppa um tignina ungfrú alheimur 1994 en úrslit fara fram 21. maí.
Á myndinni sjást fulltrúar Norðurlandanna, f.v. Caroline Sætre frá
Noregi, Svala Björk Árnadóttir ungfrú ísland, Gitte Andersen Dan-
mörku, Domenique Forsberg Svíþjóð og Henna Merilainen Finnlandi.
Yfirflugfreyja um reyk-
ingar í millilandaflugi
Kemur allt
of oft fyrir
ÁSLAUG Pálsdóttir yfirflug-
freyja hjá Flugleiðum segir það
allt of algengt að farþegar séu
staðnir að reykingum á salerninu
í millilandaflugi.
Áslaug segir að þótt farþegar
reyki ekki á salerninu í hverri ferð
gerist það stundum oftar en einu
sinni í sömu ferðinni. „Það er greini-
legt að fólk setur þetta ekki í sam-
hengi við flugöryggi sitt,“ segir Ás-
laug. Hún segir einnig að þeir sem
bijóti reykingabannið geri það frek-
ar af nikótínþörf en til þess að ganga
í berhögg við reglur félagsins. As-
laug segir að ekki sé um tilteknar
flugleiðir innan Evrópu að ræða,
engin þeirra sé undanskilin. „Við
gerum alltaf athugasemdir, einnigi
bjóðum við fólki níkótíntyggjó," seg-
ir Áslaugar og bætir við að fólk taki
banninu mjög misjafnlega. Sumir
þræti fyrir brot sitt þótt reykinn
leggi fram á gang, einhveijir biðjist
afsökunar eða skammist sín en
margir segist hreinlega ekki þola
við. „En ég held að um leið og um-
ræðan kemst af stað þá átti fólk sig
á því að þetta varðar öryggi allra í
vélinni," segir Áslaug að lokum.
Sjúku hestarnir
á Fákssvæðinu
Fóðurof-
næmiekkí
útilokað
„VIÐ höfum ekki með ör-
uggri vissu fundið ný til-
felli. Meðan við bíðum eftir
niðurstöðum frá Danmöhku
er staðan því óbreytt og
sömu reglur um umgengni
í gildi fram yfir helgi,“ sagði
Steinn Steinsson héraðs-
dýralæknir um ástandið á
Fákssvæðinu í Víðidal.
Hann útilokar ekki að
tengja megi sjúkdóm í 15
hestum við fóðurgjöf. Hugs-
anlega sé um áður óþekkt
ofnæmi að ræða.
Steinn fylgdist með því þeg-
ar hestarnir voru fluttir í
sóttkví í Mosfellsdal í gær.
Hann sagði að biðstaða væri
í málinu. Beðið væri eftir nið-
urstöðum úr sýnatöku frá
Danmörku og tíminn leiddi í
ljós hvort um smitun væri að
ræða í önnur hús. Ef ekki
hefðu greinst fleiri tilfelli á
mánudag eða þriðjudag væru
miklar líkur á að sjúkdómur-
inn væri einangraður.
Sú kenning hefur komið
fram að rekja megi sjúkdóm-
inn til fóðurs. Steinn sagði að
ekki væri hægt að útiloka
hana. „Til dæmis gæti hugsast
að um heiftarlegt ofnæmi sem
við höfum ekki kynnst áður
væri að ræða,“ sagði Steinn.
Líðan hestanna
Erling Sigurðsson, tamn-
ingamaður og gæslumaður
hestanna, sagði að líðan þeirra
hefði lítið breyst. „Að því frá-
töldu,“ sagði hann, „að minna
slím kemur upp úr þeim og
hóstinn er heldur þurrari. Þeir
hestar, sem við héldum að
væru komnir yfir það versta,
virðast vera farnir að hósta
meira,“ sagði Erling. Hann
sagði að hestarnir yrðu í
sóttkví í Selholti í Mosfellsdal
þangað til staðan skýrðist.
Hann yrði yfir hestunum en
óviðkomandi væri bannaður
aðgangur að .^ginu.
þruman
Úrvals blómaáburður
alltaf þegar þú vökvar
boð 1 lítri kr. 359--
j( £ po I Ztö 0 t