Morgunblaðið - 30.04.1994, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1994
UM HELGINA
Áttu bér knattspyrnudraum?
Ymsir feröamöguleikar í boöi á mesta
knattspyrnuævintýri aidarinnar.
New York, flug og miði á einn leik. Verð frá kr. 70.000 + skattur.
Baltimore, flug og miði á einn leik. Verð frá kr. 60.000 + skattur.
Úrstitapakkinn:
6. júlí: Ferð hefst. Flug fsland - New York.
9. eða 10. júlí: Átta liða úrslitaleikur í einhverri af eftirtöldum borgum:
Boston, Dallas, New York eða San Francisco.
13. júií: Undanúrslitaleikur í Los Angeles eða New York.
16. júlí: Leikur um 3. sætið í Los Angeles.
17. júlí: Úrslitaleikurinn í Los Angeles.
18. júlí: Flug Los Angeles - ísland.
Flogið frá Keflavík 6. júlí, gist á deluxe-hótelum, Sheraton eða sambærilegu i öllum
borgum. Innifalið í verði: Flug til New York og milli allra borga, þar sem leikirnir
verða, gisting i 12 nætur og cat 2-miðar á fjóra leiki. Ferðir til og frá hótelum,
flugvöllum og leikjum innifalið auk fararstjórnar.
Verð kr. 398.000 + skattur, per mann í tveggja manna herbergi.
Flægt er að lengja ferð og bæta við 16 liða úrslitaleik á undan eða fresta heimferð.
I Hafðu samband og við hjálpum þér að láta
drauminn rætast.
WorldCup /Tn r WorldCup
USA94 RA^PVIS USA94
5SSSSSS
WVÍO FERÐASKRIFSTOFA
Hamraborg 1-3, 200 Kópavogi, slmi: 91-641522, fax: 91-641707.
FOLK
fl ÞORMÓÐUR Egilsson, varn-
arleikmaður úr KR, tekur stöðu
Þórðar Guðjónssonar í ferð lands-
liðsins til Brasilíu. Þórður kemst
ekki vegna meiðsla.
■ SERBINN Zoran Miljkovic
mun leika sinn fyrsta leik með
Skagamönnum gegn FH í 8-liða
úrslitum Litlu-bikarkeppninnar á
Akranesi í dag.
■ STEINAR Guðgeirsson, mið-
vallarspilari hjá Fram, meiddist í
æfingaleik gegn Val á fimmtudag-
inn. Hann fékk högg á augabrún og
varð að loka skurði með sextán spor-
um.
H SIGURÐUR Gylfason, leikmað-
ur úr Stjörnunni, lék með Fram
gegn Val, en hann hefur hug á að
ganga í herbúðir Framara, en ekki
Sigurður Guðmundsson eins og
sagt var frá í blaðinu í gær.
■ ARSENAL er tilbúið að borga
300 millj. ísl. kr. fyrir danska landsl-
iðsmanninn Brian Laudrup, sem
hefur leikið með AC Milan. Totten-
ham, Aston Villa og Paris St.
Germain hafa einnig augastað á
honum,
H ÁÐUR höfðu félög eins og
Stuttgart, Frankfurt, Sevilla,
Mónakó og dönsku félögin IF
Kaupmannahöfn og OB sýnt
Laudrup áhuga.
■ ANDYCoIe, sem setti markamet
hjá Newcastle, er hann skoraði sitt
fertugasta mark á keppnistímabilinu
gegn Aston Villa í vikunni, er meidd-
ur á ökkla og óvíst hvort hann leiki
með gegn Sheff. Utd. í dag.
■ COLE og félagar hans Robert
Lee og Paul Bracewell þurfa að
fara í læknisskoðin fyrir leikinn gegn
Sheff. Utd.
■ PAUL McGrath mun leika að
nýju með Aston Villa — gegn Sout-
hampton. Hann var „týndur" í fjórar
vikur og eftir að auglýst var eftir
honum í blöðum í Englandi á þriðju-
daginn, kom hann fram. McGrath
var sektaður 535 þús. ísl. kr. af
Aston Villa fyrir að láta sig hverfa
án þess að láta heyra frá sér í mánuð.
■ ASTON ViIIa hefur aðeins unnið
einn af síðustu. tiu leikjum sínum.
Margir leikmenn liðsins eiga við
meiðsli að stríða.
Opið hús hjá Fram
Knattspyrnufélagið Fram verður með opið
hús kl. 14 á morgun í tilefni 86 ára af-
mæli félagsins. Iþrðttahús Fram er á loka-
stigi og verður það til sýnis milli kl. 14 og
16. Framkonur sjá um veitingasölu.
Sundþjálfarar þinga
íslenska Sundþjálfarasambandið verður
með ársþing sitt í dag og á morgun í
íþróttamiðstöðinni í Laugardal. í tengslun
við þingið verður þjálfaranámskeið.
Rauðu djöflarnir
Stuðninmgsmannaklúbbur Manchester
United, Rauðu djöflamir, halda almennan
félagsfund í dag kl. 14 á veitingahúsinu
Feiti dvergurinn. Á fundinum fá þá menn
í hendur félagsskírteinið.
Liverpool-klúbburinn
Liverpoolklúbburinn kemur saman í Ölveri
Glæsibæ í dag kl. 14 til að horfa á beina
útsendingu frá ieik Liverpool og Norwich.
Pflukast
íslandsmótið í pílukasti verður haldið í veit-
ingahúsinu Fossinum í Garðabæ um helg-
ina. 1 dag kl. 10 hefst keppni hjá körlum
og öldungum og á morgun kl. 10 hjá konum.
Glíma
84. Íslandsglíman fer fram í dag kl. 14 i
íþróttahúsinu að Varmá í Mosfellsbæ.
Keila
Tunglskinsmótið fer fram I kvöld kl. 24 í
Öskjuhlíð.
Hlaup
Þingholtshlaup verður í dag kl. 12. Hlaupið
hefst við Miðbæjarskólann og verður hlaup-
ið 5 km um Þingholtin. Keppt er í þremur
flokkum karla og kvenna, 16-39 ára, 40-49
ára og 50 ára og eldri. Skráning fer fram
í Miðbæjarskólanum kl. 10.30-11.30.
Knattspyrna
8-liða úrslit í Litlu-bikarkeppninni verður í
dag. Akranes og FH leika kl. 13 á grasi —
æfingavelli ÍA, en kl. 14 leika HK - Grinda-
vík, Stjarnan - Breiðablik og Keflavík -
Vestmannaeyjar.
Þróttur og Léttir leika á gervigrasinu i
dag kl. 14 í Reykjavíkurmótinu.
KORFUKNATTLEIKUR / NBA-URSLITAKEPPNIN
Morgunblaðið/Einar Falur
Karl Malone átti mjög góðan leik fyrir Utah Jass, en það dugði ekki gegn
San Antonio Spurs.
SKIÐI
Markus Was-
meier er hætlur
ÞYSKI ólympíumeistarinn í
alpagreinum, Markus Wasmei-
er, tilkynnti það formlega á
fréttamannafundi í Munchen í
gær að hann væri hættur
keppni. Wasmeier er þrítugur
og sigraði nokkuð óvænt bæði
í stórsvigi og risasvigi á Ólymp-
íuleikunum í Lillehammer.
Wasmeier sagði að ástæðan
fyrir því að hann væri nú
hættur, að hann vildi eyða meiri
tíma með fjölskyldu sinni og eins
hafi hann áhuga á kvikmyndaleijt.
„Wasi“ eins og hann ér oft nefnd-
ur hefur verið með í heimsbikar-
keppninni í ellfu ár. „Þetta var
mjög erfið ákvörðun fyrir mig eftir
besta keppnistímabilið á ferlinum.
Ég hugsaði mig vandlega um í fjór-
ar vikur, en tók svo loks endalega
ákvörðun í gær. Keppnisferlinum
er lokið,“ sagði Wasmeier.
„Það er eðlilegt að hætta núna
— hætta á toppnum. Þegar maður
er orðinn þrítugur er annað í lífinu
sem heillar meira en skíðin,“ sagði
Wasmeier, sem á 11 ára gamlan
son með konu sinni, Brigitte, sem
er ófrísk. „Nú hef ég meiri tíma
fyrir fjölskylduna sem stækkar á
næstu dögum,“ sagði hann.
Scotthetja
Indiana í
Orlando
Óvæntir sigrar hjá Indiana Pecers
og Miami Heat á útivöllum
BYRON Scott tryggði Indiana
Pecers sætan sigur gegn
Orlando Magic i Orlando,
89:88, með þriggja stiga körfu
tveimur sek. fyrir leikslok.
„Við gerum allt rétt til að
vinna, nema eitt — við
gleymdum þriggja stiga skytt-
um þeirra í spennunni undir
lokin,“ sagði Brian Hill, þjálf-
ari Orlando.
Reggie Miller skoraði flest stig
fyrir Indiana, eða 24 — þar
af tvær þriggja stiga körfur á
lokakafla leiksins. Shaquille O’Ne-
al skoraði 24 stig fyrir heima-
menn, tók 19 fráköst og varði
fimm skot. Það voru ekki aðeins
óvænt úrslit í Orlando, heldur
einnig í Atlanta.
„Þetta er okkar mesti sigur og
styrkir okkur til frekari afreka.
Varnarleikurinn okkar var góður,“
sagði Glen Rice, sem skoraði fjög-
ur af 13 stigum sínum í leiknum
á síðustu 34 sek. þegar Miami
Heat vann, 88:93, Atlanta Hawks
á útivelli. Steve Smith skoraði flest
stigin fyrir Miami, eða 22. Bimbo
KNATTSPYRNA
Coles setti 17 stig, tók sex frá-
köst og átti fímm stoðsendingar
fyrir Heat, sem tapaði þrettán af
síðustu átján leikjum sínum fyrir
úrslitakeppnina.
Kevin Willis skoraði 17 stig fyr-
ir Atlanta og tók 16 fráköst. Tap-
ið er áfall fyrir Hawks, sem hafði
unnið 20 af síðustu 22 heimaleikj-
um sínum og náði næst bestum
árangri á heimavelli í NBA-deild-
inni í vetur — vann 36 leiki, en
tapaði aðeins fimm.
David Robinson skoraði 25 stig
og tók átta fráköst þegar San
Antonio Spurs lagði Utah Jazz,
106-89, í Vesturdeildinni. Karí
Malone lék best hjá Utah og skor-
aði 36 stig, en hann var eini leik-
maður liðsins sem skoraði meira
en tíu stig í leiknum.
Detlef Schrempf skoraði 21 stig
og Gary Payton 20 þegar Seattle
SuperSonics iagði Denver Nuggets
106:82. Þá skoraði Shawn Kemp
16 stig og tók níu fráköst og Ricky
Pierce skoraði 13 stig. Fyrir gest-
ina skoraði Brian Williams mest,
eða 15 stig í þær nítján mín. sem
hann var inná.
Brasilíumenn hita
upp í Bandaríkjunum
Brasilíumenn ákváðu í gær að leika upphitunarleiki gegn Honduras og
E1 Salvador fyrir heimsmeistarakeppnina í Bandaríkjunum, sem hefst
17. júní. Brasilíumenn leika í riðli með Rússlandi, Kamerún og Svíþjóð í HM.
Þeir leika leikina í Bandaríkjunum — gegn Honduras 8. júní í San
Diego og fjórum dögum síðar gegn E1 Salvador í Fresno í Kaliforníu.
Áður var ákveðið að Brasilíumenn léku gegn Kanadamönnum í Edmonton
4. júní. Þess má geta að landslið Brasilíu verður kallað saman í æfingabúð-
ir í Los Gatos 26. maí.
FELAGSLIF