Morgunblaðið - 06.05.1994, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1994 13
Bæjarstjórar
á Húsavík
Húsavík - Flestir bæjarsljórar
landsins, eða 23 talsins, funduðu
nýlega á Húsavík en það er fast-
ur viðburður að þeir hittist einu
sinni á ári og ræði mál er varða
stjórnun sveitarfélaga og sam-
skipti ríkis og sveitarfélaga. Að
þessu sinni ræddu þeir sérstak-
lega uin jöfnunarsjóð sveitarfé-
laga, frumvarp sem fyrir Alþingi
lá um húsaleigubætur og reynslu
af þeim tckjustofnum sem þeim
eru markaðir í stað aðstöðugjalds
sem aflagt hefur verið. Þeir
munu ekki hafa rætt atvinnuleys-
isbætur þó búast megi við að ein-
hverjir þeirra missi atvinnuna í
þessum mánuði.
Morgunblaðið/Silli
BÆJARSTJORAR og makar að loknum fundi um stjórnun sveitarfélaga, sem haldinn var á Húsavík.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Hjólað í góða veðrinu
Keflavík - Þetta hefur gengið framar vonum og Skottu virðist
líka vel að ferðast á þennan hátt,“ sagði Sólveig Jónasdóttir í
Keflavík sem í gær var á ferð á hjólhesti sínum í góða veðrinu.
Sólveig tók fjölskylduhundinn Skottu með í ferðina og ekki var
annað að sjá en henni líkaði vel þessi ferðamáti. Einnig var
dóttir Sólveigar, Snæfríður Aþena Stefánsdóttir, með í hjólreiða-
ferðinni, en þær mæðgur sögðust nota hvert tækifæri sem
gæfist til að hjóla og hér eftir fengi Skotta að fara með.
Sveitarfélög í Dala-
sýslu sameinuð
Búðardal - Sameiningarnefnd sveitarfélaga í Dalasýslu hélt íj'öl-
sóttan fund nýverið til að kynna íbúum sýslunnar undirbúning og
aðdraganda sameiningar sveitarfélaga Dalasýslu. Hrepparnir sem
sameinast eru Skarðs-, Fellsstrandar-, Laxárdals-, Haukdals- og
Miðdalahreppar og Hvammssveit.
Þetta sameiginlega sveitarfélag
verður reynslusveitarfélag sem þýð-
ir að ýmislegt verður þægilegra í
framkvæmd varðandi þau verkefni
sem fyrir liggja í náinni framtíð.
Ein sveitarstjórn skipuð 7 fulltrú-
um fer með yfirstjórn sveitarfélag-
anna. Eignir og skuldir núverandi
sveitasjóða verða sameinaðar í einn
sjóð fyrir 11. júní. Aðalstöðvar
stjórnsýslunnar verða í Búðardal
og er stefnt að því að jafna svo sem
kostur er þjónustu við íbúa.
íbúar hafa allir jafnan aðgang
að félagslegri þjónustu. Sveitar-
stjórn kýs, að afloknum kosningum,
fímm manna félagsmálanefnd sem
fer með stjórn félagsmála.
Sveitarfélagið rekur grunnskóla
í Búðardal og, ásamt öðrum sveit-
arfélögum, að Laugum. Rekstur
þessara skóla verður fyrst um sinn
með sem líkustum hætti og verið
hefur.
Sveitarfélagið rekur þijú félags-
heimili, Staðarfell, Árblik og Dals-
búð, eitt eða í samstarfi við aðra
eignaraðila s.s. ungmennafélög.
5 manna lista- og menningar-
málanefnd annast málefni safna.
Bætt umhverfi
Sveitarstjórn beitir sér fyrir
bættu umhverfi og aðstæðum ungl-
inga til íþrótta-, tómstunda- og fé-
lagsstarfa. 5 manna íþrótta- og
æskulýðsnefnd hefur umsjón með
rekstri og viðhaldi íþróttamann-
virkja.
Fráveitumál í sveitarfélaginu
verða könnuð með það að markmiði
að koma öllu frárennsli í rotþrær
eða fráveitur. Sérstök fram-
kvæmdaáætlun verður gerð um
þetta atriði.
Leitast verður við að efla Heilsu-
gæslustöðina í Búðardal og standa
vörð um stöðugildi tveggja lækna.
Ljúka á við gerð svæðisskipulags
skv. núgildandi tímaáætlun.
Sveitarstjórn hefur undirbúning að
gerð aðalskipulags skv. lögum.
Embætti byggingarfulltrúa verður
óbreytt.
Höttur
semur
við bæjinn
Egilsstöðum - Undirritaður
hefur verið tímamótasamning-
ur á milli íþróttafélagsins Hatt-
ar á Egilsstöðum og bæjaryfir-
valda um að bærinn styrki
Hött á einn eða annan hátt um
rúmar fjórar milljónir króna.
Að sögn Árna Margeirsson-
ar, formanns Hattar, felur
samningurinn í sér afnot af
íþróttahúsi bæjarins, knatt-
spyrnuvelli og fijálsíþróttaað-
stöðu. Auk þess er um að ræða
beinan rekstrarstyrk upp á
rúmar fimmtán hundruð þús-
und krónur. Höttur mun sjá
um rekstur á íþróttasvæðinu í
sumar og næsta umhverfi
hans.
Tímamótasamningur
Árni segir samninginn vera
tímamótasamning að því leyti
að nú sé í fyrsta skipti skrifleg-
ur samningur undirritaður um
styrk bæjarfélagsins til íþrótta-
félagsins. Ennfremur liggi nú
fyrir skilgreining á því starfi
sem Höttur innir af hendi fyrir
bæjarfélagið og um afnot þess
af íþróttamannvirkjum. Auk
þess veitir samningurinn félag-
inu hærri rekstrarstyrk en
áður. íþróttafélagið Höttur
rekur sjö deildir og á sumrum
rekur það einnig íþrótta- og
leikjanámskeið og sér líka um
hið árlega Egilsstaðamaraþon.
Morgunblaðið/Benedikt Sigurðsson
Árni Margeirsson, for-
maður Hattar, og Kristinn
Krisljánsson bæjarstjóri.
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Emil Guðmundsson, svæðis-
stjóri og Gísli Gíslason, bæjar-
sljóri Akraness.
Heiðraður
í heimabæ
Akranesi - Emil Guðmundsson,
svæðisstjóri Flugleiða í Hollandi, var
á dögunum með hóp blaðamanna frá
hollenskum fjölmiðlum í boði Flug-
leiða og fór m.a. með hópinn á
bernskuslóðir sínar á Akranesi þar
sem vel var tekið á móti þeim.
Gestirnir skoðuðu það markverð-
asta á staðnum undir leiðsögn Þór-
dísar Arthúrsdóttur, ferðamálafull-
trúa, og m.a. fóru þau í stutta sjó-
ferð þar sem þeim gafst kostur á
að renna fyrir fisk með góðum
árangri. Eftir að hafa skoðað
Byggðasafnið í Görðum bauð Gísli
Gíslason bæjarstjóri til móttöku í
gamla presthúsinu og notaði tæki-
færið til að heiðra Emil fyrir öfluga
liðveislu hans við Akurnesinga á
undanförnum árum.
Fínt í útskriftirnar - Tökum vel á móti ykkur
Dæmi um verö:
Aldrei betra verð.. Enginn milliliður
beint frá framleiðanda
Jakkaföt frá 11.900,
Skyrtur frá 2.900,-
Stakar buxur frá 3.900,
Skór frá 3.900,-
Laugavegi, sími 17440
Stakir jakkar frá 7.900,- • 5% stadgreiösluafsláttur Kringlunni, simi 689017